Fréttablaðið - 08.11.2003, Page 18

Fréttablaðið - 08.11.2003, Page 18
18 8. nóvember 2003 LAUGARDAGUR Áhorfendur vita ekki hvort þeireru staddir í sálfræðimeðferð eða á skemmtun. Ég spyr áhorf- endur mína jafnan eftir sýningar og svörin skiptast jafnt,“ segir austurríski sálfræðingurinn og kynlífsráðgjafinn Bernard Lud- wig. Ja ja ja Ludwig er höfundur sýningar- innar 100% hitt og var staddur hér á landi um síðustu helgi til að sjá hina íslensku útgáfu á þessari mjög svo sérstæðu sýningu sem ákaflega erfitt reynist að skil- greina hvers eðlis er. Leiksýning? Kabarett? Fyrirlestur? Uppi- stand? Leikkonan Helga Braga „fer með“ sýninguna, sem nú gengur hér fyrir fullu húsi. Höf- undurinn steig sjálfur á svið ásamt Helgu Brögu og tók eitt at- riði við mikinn fögnuð leikhús- gesta. „Þetta er algjör snillingur, ljúf- ur karl og ferlega fyndinn. Talar með sterkum þýskum framburði. Ja ja ja,“ segir Helga Braga. Margir hafa orðið til að benda á að Helga Braga sé fædd til að flytja 100% hitt og hún telur það hreint ekki úr vegi. „Svona getur Guð verið góður. Ég hef fengist við þetta allt með einum eða öðrum hætti, sem þarna liggur til grund- vallar. Þetta kynlífsstöff er reynd- ar svoldið nýtt fyrir mér... það er að segja fræðilegi þátturinn.“ Helga Braga segir sýninguna sí- breytilega og þá breytilega í al- vörunni. Ekki líkt því sem talað er um í leikhúsinu þegar kannski smáatriðum er hnikað. Markaður fyrir hendi Það er fyrirtækið Kvikmynda- mógúll, systurfyrirtæki Mógúls- ins sem stendur fyrir uppfærslu íslenska leikritsins Sellófon eftir Björk Jakobsdóttur, sem er fram- leiðandi 100% hitt. Framkvæmda- stjórar eru systurnar Sygin og Signý Eiríksdætur. Þær hafa tryggt sér sýningarrétt á verkinu um heim allan ef undan eru skilin þýskumælandi lönd – en þar kýs höfundurinn sjálfur að halda um taumana. Fréttablaðið náði tali af Bernard Ludwig þegar hann var nýlega lentur og búinn að bóka sig inn á hótel. Ákaflega erfitt er að skilgreina 100% hitt. Ludwig skilgreinir sjálfan sig sem sálfræðing, ekki sem leikara eða leikskáld. „Ég hef unnið við sálfræðilega kynlífs- meðferð hjartasjúklinga í yfir tíu ár og haldið fjölmarga fyrirlestra um þetta efni. Fyrirlestrar mínir þróuðust smátt og smátt út í að þykja fyndnir. Og fyndnari og fyndnari. Það var alls ekki ráð- gert en þetta virkar mjög vel,“ segir Ludwig. Hann bendir jafn- framt á að þarna hafi greinilega verið markaður fyrir hendi sem hann fylli í án þess að það hafi nokkru sinni verið hugsað eftir þeim leiðum né stefnt að því markvisst. Hafa ber kynlíf í flimtingum Ludwig segir sálfræðimeðferð án hláturs auma sálfræðimeðferð. „Ef ekki er hlegið í meðferðinni fyllist ég grunsemdum. Með öðr- um orðum, ég met ekki árangur sálfræðimeðferðar út frá því hversu margir vasaklútar blotna í henni heldur þvert á móti. Betri aðferð er að nálgast vanda með hlátri.“ En er kynlíf eitthvað til að hafa í flimtingum og hlæja að? „Já,“ svarar Ludwig að bragði. „Gott samband byggist á hlátri og húmor. Það er algerlega nauðsyn- legur þáttur og grundvöllur góðra sambanda.“ Sjálfur býr Ludwig með konu sinni í Austurríki en þaðan gerir hann út, fer um hin þýskumæl- andi lönd og flytur fyrir- lestra/grínsýningar sínar. Hann stefnir að því að fara víðar en seg- ir ensku sína ekki nægjanlega góða enn sem komið er, en það standi til bóta. jakob@frettabladid.is BERNARD LUDWIG Segir sig nánast fyrir slysni hafa dottið í tómarúm á markaðnum með fyrirlestrum sínum sem smám saman þróuðust út í eins konar uppistandssýningu. Höfundur 100% Hitt, Austurríkismaðurinn Bernard Ludwig, var staddur hér á landi nýlega. Ludwig er sál- fræðingur og sýningin var upphaflega fyrirlestrar um kynlíf, sem urðu fyndnari og fyndnari, enda segir Lud- wig hláturinn nauðsynlegan í sálfræðimeðferðum. Árangur ekki mældur í blautum vasaklútum Ég er aldrei kallaður annað enKiddi Bigfoot. Stundum Kiddi B. Og ef þú hringir í 118 getur þú fengið númerið hjá Kidda Big- foot,“ segir yfirmaður útvarps- sviðs Norðurljósa um nafn sitt. Nafnið mitt er með sérkennilegra móti þessa vikuna og vandséð að prestur hefði samþykkt að ausa ungbarn vatni með nafnið Bigfoot á vörum. Tímarnir breytast og mennirnir með. En hvernig í ósköpunum er þetta til komið? „Þegar ég var ell- efu ára var ég kominn í númer 45,“ segir Kiddi, „og þá byrjaði grínið: ‘Kiddi, það er verið að sekta skóna þína hér fyrir utan!’ Eða: ‘Það er verið að draga skóna þína í burtu!’ Jafnvel kennar- inn tók þátt í þessu og sagði eitt sinn: ‘Það vantar Sigurð í bekkinn. Fór hann nokkuð í skóna þína, Kiddi?’“ Kiddi lét sér vel líka og segir að sem bet- ur fer hafi hann vaxið upp í það að samsvara sér ágætlega. Hann slagar nú hátt í tvo metra og not- ar skó númer 47. Kiddi Bigfoot reyndi fyrir margt löngu að fá sig skráðan sem Kidda Bigfoot í þjóðskrá en það gekk ekki. Hann bindur þó vonir við að reglurnar séu að rýmkast líkt og með síma- skrána. „Þeir harðneituðu að skrá mig undir þessu nafni í símaskrána á sínum tíma. Það var ekki fyrr en Tal kom til tals, þegar samkeppnin kom, að þeir urðu mýkri á reglunum.“ En hvað var drengurinn látinn heita á sínum tíma? Jú, Kristján Þór Jónsson er nafnið sem aldrei er í notkun. Kristján er í höfuðið á hrossakóngi móðurafa Kidda, Kristjáni Vigfússyni og Þór er í höfuðið á föður hans, Jóni Þór Friðsteinssyni. ■ ■ Nafnið mitt Í stórum skóm KIDDI BIGFOOT Er aldrei kallaður annað og talar um Bigfoot sem sitt nafn. „Þegar ég var 11 ára var ég kominn í skó númer 45 og þá byrjaði grínið.“ HELGA BRAGA OG BERNARD LUDWIG Austurríski höfundur kynlífsfræðslusál- fræðikabarettsins 100% hitt var staddur á Íslandi um síðustu helgi til að sjá og taka þátt í sýningunni. Helga Braga segir Lud- wig snilling, ljúfan og fyndinn. Ludwig hoppaði upp á svið í einu atriðinu og vakti mikla lukku. FRÉTTAB LAÐ IÐ /VILH ELM Tækifæri sem býðst bara einu sinni og Aldrei aftur! HEILDSÖLUVERÐ á veiðivörum • Abu kasthjól frá 3.200 • Abu Ambassadeur frá 6.900 • Abu fluguhjól frá 4.500 • Abu veiðistangir frá 2.990 • Red Wolf veiðistangir frá 1.995 • Fenwick flugustangir frá 9.990 • Mitchell hjól frá 1.595 • Abu spúnar 350 • 20 stk Francesflugur í boxi 3.000 • Einnig töskur, vöðlur, vesti o.m.fl. í jólaveiðipakkann Opið alla helgina Síðumúla 8 – sími 568 8410 Galopnum lagerinn okkar í Síðumúla 8 Og seljum úrval af veiðivörum á hlægilegu verði Rétti tíminn til jólagjafakaupa Opið: Laugardag 10 – 16 Sunnudag 12 – 16 Virka daga 10 – 18 FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.