Fréttablaðið - 08.11.2003, Side 23
LAUGARDAGUR 8. nóvember 2003
■ Næsta stopp
23
Við höfum nú alltaf ferðastsaman við Lilja“, segir Flosi
Ólafsson og telur því best að ráð-
færa sig við eiginkonu sína áður
en hann svarar því hvaða stað á
jarðarkringlunni hann gæti helst
hugsað sér að heimsækja þessa
stundina. „Hún segir Arnarvatns-
heiði en mér líst ekkert á það enda
alveg kolvitlaust veður. Við höf-
um alltaf notað öll okkar frí til að
ferðast á hestbaki út um allar
trissur og þá helst óbyggðir.“
Flosi er í banastuði í bylnum í
Borgarnesinu. „Bókin mín Ósköp-
in öll var að fá fínustu gagnrýni
hjá hinum stranga krítíker Er-
lendi Jónssyni og mér dettur því
helst í hug að það gæti verið gam-
an að skreppa til New Orleans.
Við Lilja vorum þar fyrir ná-
kvæmlega 17 árum í boði banda-
rísku ríkisstjórnarinnar. Þeir
höfðu komist að því að ég hafði
þýtt mikið af amerískum literatúr
og töldu því að ég ætti skilið að
þeir gerðu vel við mig og buðu
okkur í tveggja mánaða reisu um
öll Bandaríkin. Þetta var óskap-
lega gaman og við flugum með
þotum á milli staða og alls staðar
biðu bílaleigubílar eftir okkur.“
Flosi segir að New Orleans hafi
heillað hann sérstaklega. „Maður
upplifði auðvitað mikla djass-
nostalgíu. Það var óskaplega mik-
il stemning og það flæddi
dixilandmúsík og fínn, uppruna-
legur djass út úr hverri einustu
holu. Það hríslaðist um mann
gamalt stuð. Það væri því ekki
galið að fara þangað núna og
hræra aðeins upp í æskuminning-
unum, nostalgíunni og draumun-
um sem maður átti áður en maður
varð alveg þroskaheftur.“ ■
NEW ORLEANS Í LOUSIANA
Frönsk menning er rótgróin í borginni en
íbúarnir eru af frönsku, spænsku, ítölsku,
írsku og þýsku bergi brotnir.
Flosi Ólafsson þráir dunandi djass og æskufjör:
Stuð í New Orleans
FLOSI ÓLAFSSON
„Við fórum lengst suður eftir og enduðum
í New Orleans,“ segir Flosi. Hann gæti vel
hugsað sér að komast aftur í djassinn.
NIGELLA LAWSON
Sjónvarpskokkurinn frægi mun líklega elda
fyrir Bush.
Forseti Bandaríkjanna á
von á góðu:
Nigella eldar
fyrir Bush
Breska forsætisráðuneytiðhefur ekki viljað neita orð-
rómi um að sjónvarpskokkurinn
vinsæli Nigella Lawson muni sjá
um veitingar fyrir George Bush í
væntanlegri heimsókn hans til
Bretlands seinna í mánuðinum.
Frétt þess efnis birtist á vefsíðu
The Guardian og þar var sagt að
Nigella hefði heimsótt Downing-
stræti og lagt á ráðin um matseð-
ilinn ásamt þjónum forsætisráð-
herrahjónanna. Bush var nýlega
í Taílandi og þar höfðu tíu mýs
það hlutverk að smakka fyrst á
matnum sem borinn var á borð
fyrir Bandaríkjaforseta, en ótt-
ast var að reynt yrði að eitra fyr-
ir honum. Ekki er gert ráð fyrir
að sömu öryggisráðstafanir
verði viðhafðar í Downingstræti
10 þá þrjá daga sem heimsókn
Bush stendur yfir. ■
DAVID BECKHAM
Sá ástæðu til að lýsa því yfir í óspurðum
fréttum að Victoria væri hamingjusöm.
David Beckham:
Vic er ekki
óánægð
David Beckham kom öllum áóvart á blaðamannafundi á
Spáni á dögunum. Blaðamenn
voru að búa sig til brottfarar þeg-
ar Beckham sagði: „Það er eitt
sem ég vil segja að lokum. Menn
geta haldið áfram vangaveltum
sínum um að eiginkona mín sé
óhamingjusöm, en það er bara
þvættingur. Hún er mjög ham-
ingjusöm hér í Madrid. En hún er
vinnandi kona og er því á ferða-
lögum til London og Ameríku.
Hún er ekki hér á hverjum degi af
því hún vinnur. Ég vil að fólk viti
að hún er hamingjusöm hér. Það
eru engin vandamál í hjónabandi
okkar.“
Slúðursögur hafa verið í gangi
um að hjónaband Beckhams og
eiginkonu hans Viktoríu væri í
vandræðum og forystumenn Real
Madrid höfðu bannað blaðamönn-
um að spyrja Beckham um einka-
líf hans. Yfirlýsing hans kom því á
óvart. Spænskir fjölmiðlar hafa
gagnrýnt Viktoríu fyrir að eyða
ekki nægum tíma með eiginmanni
sínum í Madrid. ■