Fréttablaðið - 08.11.2003, Page 25
sónu sé maðurinn á bak við kjarn-
orkuáætlun Norður-Kóreu, og hafi
lagt áherslu á það áratugum sam-
an að gera landið að kjarnorku-
veldi.
Suður-Kóreumenn segja að
Kim Jong-il sé veruleikafirrtur
drykkjurútur sem hafi aldrei
komið út fyrir landsteinana og sé
uppalinn í vernduðu umhverfi.
Þeir halda því fram að hugmyndir
Kim Jong-il um veröldina séu
fengnar úr bandarískum kvik-
myndum, en hann er mikill kvik-
myndaáhugamaður. Þeir segja að
hann líti á kvikmyndir um James
Bond sem merkilegar og sannar
heimildarmyndir um gang mála í
veröldinni utan Norður-Kóreu.
Hversu lengi?
Norður-Kóreumenn þurftu að
þola langa óstjórn Kim Il-sung og
ómögulegt er að segja til um
hversu lengi þeir verða að þola
soninn Kim Jong-il, sem svo sann-
arlega virðist ekki ætla að verða
föðurbetrungur.
Hitt er nokkuð ljóst, að veldi
hans getur ekki staðið til lang-
frama. Efnahagsvandi landsins er
gífurlegur, og verst af öllu er að
landslýður skuli ekki geta brauð-
fætt sig. Þær aðstæður sem nú
eru uppi í Norður-Kóreu valda
ómældum þjáningum. Spurningin
er því ekki hvort Kim Jong-il geti
haldið völdum, heldur aðeins
hversu langur tími líður uns veldi
hans hrynur.
Á Vesturlöndum hafa menn
nokkrar áhyggjur af því hvað
muni gerast ef þetta furðulega
þjóðskipulag hrynur til grunna á
skömmum tíma. Það gæti gerst
með ýmsum hætti:
Í fyrsta lagi gæti flóðbylgja
fóttamanna flykkst yfir landa-
mærin inn í Suður-Kóreu, Rúss-
land og Kína til að forðast hungur-
dauða.
Í öðru lagi gætu harðlínumenn
í Pjongjang fengið þá flugu í höf-
uðið að ráðast á Suður-Kóreu og
hafið styrjöld sem gæti haft ófyr-
irsjáanlegar afleiðingar.
Í þriðja lagi gætu einhverjir
aðilar í Norður-Kóreu gert upp-
reisn og hrifsað til sín völdin. Slík-
ir aðilar gætu þá annað hvort
tengst stjórn landsins eða stjórn
heraflans.
Aukin spenna
Þegar Norður-Kórea hrynur
gæti spenna aukist í samskiptum
Kínverja og Bandaríkjamanna.
Kínverjar eru ekki spenntir fyrir
því að missa af Norður-Kóreu sem
stuðpúða við landamæri sín, og fá
í staðinn leppríki Bandaríkjanna
og 37 þúsund manna bandarískt
herlið við bæjardyrnar hjá sér.
Það er því fremur líklegt að Kín-
verjar reyni að treina lífið í stjórn
Kim Jong-il í Norður-Kóreu enn um
hríð, jafnvel þótt það kosti hungur
og þjáningar fyrir íbúa landsins,
sem hafa orðið að þola meiri hörm-
ungar og einangrun en flestir aðrir
jarðarbúar síðustu 50 árin. Svart-
sýnismenn sem halda því fram að
heimurinn fari versnandi geta bent
á Kim Jong-il máli sínu til stuðn-
ings, því að þótt Kim Il-sung hafi
verið slæmur virðist sonurinn ekki
vera föðurbetrungur.
thrainn@frettabladid.is
LAUGARDAGUR 8. nóvember 2003 25
Afslátturinn gildir út nóvember
Bæjarlind 14-16 | 201 Kópavogi | Sími 564 4400 | Fax 564 4435 | tekk@tekk.is | www.tekk.is
opi›: laugardag 10-16 og sunnudag 13-16
10% - 30% afsláttur
af öllum bor›stofusettum
TUTTI-BOR‹ 180X90
OG 4 DION-STÓLAR 124.200 KR. 99.360 KR.
ver› á›ur ver› nú
PRINCESS-BOR‹ 180X90
OG 6 ARJAN-STÓLAR 123.000 KR. 86.100 KR.
ver› á›ur ver› nú
BOR‹STOFUDAGAR
Kim Il-sung, faðir Norður-Kóreu, var bóndasonur frá
Mangjondæ. Hann var enn á
barnsaldri þegar foreldrar hans
flúðu frá Kóreu til Mansjúríu
undan Japönum. Stóri Kim gekk í
skóla í Kína. Árið 1932 varð hann
foringi í skæruliðahópi sem herj-
aði á japanska hernámsliðið í
Kóreu. Árið 1941 flúði stóri Kim
frá Mansjúríu til Sovétríkjanna
og fékk þar hernaðarþjálfun. Árið
1945 snéri stóri Kim aftur til
heimalands síns, að þessu sinni
sem majór í hernámsliði Sovét-
manna. Sovétmenn gerðu hann að
landstjóra sínum í bráðabirgða-
stjórn sem sett var á laggirnar í
þeim hluta Kóreu sem Sovétríkin
höfðu sigrað. Árið 1948 varð hann
fyrsti forsætisráðherra í Alþýðu-
lýðveldinu Kóreu. Stóri Kim trúði
því að það væri heillaráð að sam-
eina suður- og norðurhluta lands-
ins með vopnavaldi, og fékk leyfi
Stalíns til að gera árás suður yfir
landamærin í jún 1950 – og þá
hófst Kóreustríðið.
Kóreustríðinu lauk 1953 með
því að Kínverjar og Sovétmenn
héldu stóra Kim við völd í Norður-
Kóreu gegn því að gera ekki til-
kall til yfirráða yfir Suður-Kóreu,
leppríki Bandaríkjanna.
Eini iðnaðurinn sem ekki var í
kaldakoli eftir andlát stóra Kims
árið 1994 var hergagnaiðnaður.
Norður-Kórea hefur haft góðar
tekjur af því að selja hergögn til
ýmissa arabalanda, svo sem Líb-
íu, Írans og Sýrlands – og skömmu
áður en Saddam Hússein var
hrakinn frá völdum hafði hann
samið við Norður-Kóreumenn um
kaup á eldflaugum sem áttu að
draga lengra en þá 150 km sem
Sameinuðu þjóðirnar heimiluðu.
Stóri Kim var aðhlátursefni
manna á Vesturlöndum vegna
þeirrar persónudýrkunar sem
hann fyrirskipaði í landi sínu, og
vegna þeirrar þvælu sem hann
skrifaði og hélt að væri pólitísk
hugmyndafræði; kjarni þeirrar
speki er misskilinn marxismi og
sú kennisetning að Norður-Kórea
eigi að vera sjálfbært land og
þurfi ekki á öðrum þjóðum að
halda. Þessi kenning er kölluð
„juche“. ■
HINN EILÍFI LEIÐTOGI
Persóna Kim Il-sung vomir yfir öllu í
Norður-Kóreu og þótt hann sé látinn hef-
ur því verið lýst yfir að hann sé eilífur
leiðtogi þjóðarinnar. Hér sést í fótskör
risastórs minnismerkis um hann.
KIM IL-SUNG
Var aðhlátursefni margra á Vesturlöndum
vegna persónudýrkunar sem hann skip-
aði fyrir um.
Faðirinn stóri Kim