Fréttablaðið - 08.11.2003, Qupperneq 26
26 8. nóvember 2003 LAUGARDAGUR
Ef um velgengni verður að ræða!Sem er háð ýmsu. Uppsetningin
þarf að takast vel. Fran þarf að
leika þetta almennilega, svo þarf
fólk að vilja koma og ef það tekst,
þá hugsanlega má sjá fram á að
þetta fari að skila mér verulegum
tekjum,“ segir Björk Jakobsdóttir,
meintur milljarðamæringur.
Leiklist flutt út
Nýjasti útflutningsatvinnuveg-
ur Íslendinga er nýstárlegur.
Nefnilega leiklist. Íslensk fyrir-
tæki hafa tryggt sér sýningarrétt
víða um heim á verkum á borð við
100% Hitt og Hellisbúanum. Bæði
þessi verkefni eru eftir erlenda
höfunda. Það er hins vegar Selló-
fon ekki. Þar er um að ræða einleik
eftir Björk Jakobsdóttur, og eru
ekki síst vonir bundnar við að það
muni gera það gott á erlendri
grundu. Sellófon er alfarið höfund-
arverk hennar og nýverið sýndi
hún í 150. skipti hér á landi. Björk
hefur gert samning við fyrirtækið
Mógúlinn um sýningarrétt á Selló-
fon um heim allan. Þegar er verið
að sýna verkið í Sviss við miklar
vinsældir, til stendur að setja það á
svið í Þýskalandi, Tékklandi, Pól-
landi og á Spáni. Fara jafnan vin-
sælar og virtar leikkonur hvers
lands um sig með hlutverk nútíma-
konunnar Ellenar. Mikið þykir um
vert að þekktar leikkonur fari með
mónólóginn enda slíkt vænlegast
til vinsælda.
Talað er um að höfundargreiðsl-
ur á farsælli leiksýningu í Evrópu
geti numið tugum milljóna en Am-
eríka er draumalandið – þá eru
menn farnir að tala í hundruðum
milljóna. Nú er frágengið að Selló-
fon verður sett upp í New York og
mun hin þekkta sjónvarpsleikkona
Fran Drescher, þekkt sem barn-
fóstran í sápunni „The Nanny“,
fara með hlutverk Ellenar.
Sögurnar ganga
ljósum logum
Björk segir sögusagnir um
óheyrilegan gróða sinn vaxa og
vaxa og vaxa líkt og snjóbolti niður
brekku. „Ég er ekki lengur millj-
arðamæringur heldur billjarða-
mæringur. Gott ef það fellur ekki í
minn hlut, og kannski Björgólfs, að
stoppa í fjárlagagatið. Það er ákaf-
lega gaman að fylgjast með
reikniskúnstum fólks í þessu sam-
bandi. Ég vildi óska að sú væri stað-
an en maður verður bara að vera
þolinmóður og vona hið besta. Og
halda áfram að versla í Bónus þang-
að til þessir fuglar allir eru í
hendi.“
En þetta eru ekki alfarið sögu-
sagnir. Velgengni Sellófon á Íslandi
er staðreynd, 150 sýningar og Ís-
lendingar hafa orðið vitni að ýms-
um veldum verða að veruleika sem
byggja á velgengni einnar leiksýn-
ingar: Hárið og Hellisbúinn til
dæmis. Björk kýs að gera ekki mik-
ið úr þessu.
„Stundum hefur þetta verið sett
fram svona. Ég leik náttúrlega í 100
manna sal sem munar nokkru. Auð-
vitað þræti ég ekki fyrir að ég sem
leikkona hef aldrei fyrr haft jafn
rausnarleg sýningarlaun og núna í
Sellófon. Auðvitað gengur vel.
Samt er stundum kjánalegt hvernig
þetta er sett upp, til dæmis grein
sem ég las í Séð og heyrt. Þar var
tekin einhver ofætluð áhorfenda-
tala og margfölduð með miðaverði.
Svo var því stungið beint í minn
vasa. Svona gengur þetta ekki fyrir
sig og mega heita undarlegar
reikniaðferðir hjá fólki sem segist
stunda ábyrga blaðamennsku.“
Sérkennilegar reiknikúnstir
Björk segir að menn hljóti að
átta sig á því að fyrirtæki bera
rekstrarkostnað. „Við tökum ekki
summuna á verði þeirrar vöru sem
til dæmis Hagkaup býður í verslun-
um sínum og troðum því brúttó í
vasa forstjórans! Mig langaði að
benda á, að þegar menn eru að setja
upp svona reiknisdæmi, að þarna
inni í er tækjaleiga, húsaleiga, aug-
lýsingakostnaður, miðasala, prent-
kostnaður, starfsmannahald, fram-
kvæmdastjórn, leikstjóraprósentur
og svo framvegis. Auk opinberra
gjalda. Og launalausir mánuðir leik-
arans eru nokkrir.“
Samkvæmt tilvitnuðu reiknis-
dæmi Séð og heyrts átti Björk að
vera komin með 15 milljónir í vas-
ann eftir 100 sýningar. Þetta segir
hún mjög orðum aukið. „Það væri
hrikalega gaman að vera með þær í
vasanum núna. En kannski kemur
þetta seinna. Ef þetta gengur allt
upp,“ segir Björk og er nú að vísa
til hugsanlegrar velgengni erlend-
is. „ ... og ég er ekki algjör sauður í
samningaviðræðum og geng auð-
vitað frá því þannig að ef þetta
verður vinsælt fæ ég eitthvað í
minn hlut, þá má kannski fara að
setja þetta svona upp. En fyrr
ekki.“
Árangurstengdar greiðslur
„Sko, í þeim samningum sem ég
hef gert eru þetta engir stórpen-
ingar á borði að svo stöddu. Þetta
er árangurstengt. Prósentur sem í
minn hlut falla miðast við almenn-
ar reglur um höfundagreiðslur,“
segir Björk og vill engar tölur
nefna en segir að þeir sem vilji geti
kynnt sér téðar reglur. „Til að um
tugi eða jafnvel hundruð milljóna
sé að ræða þarf þetta að verða al-
gjör metsölusýning um heim allan.
Vonandi gerist það en um slíkt er
ekki hægt að ræða fyrr en eftir
kannski tvö ár. Ég sé þetta fyrir
mér sem tveggja ára reynsluferli
og þá kemur í ljós hvert verkið fer
og hvort það skilar einhverju í lík-
ingu við það sem menn eru að tala
um.“ Björk segir það sem í hendi er
núna einkum heiðurinn og svo auð-
vitað vonir. „Frábært að einhver
hafi þessa trú á verkinu en ég held
mig alveg við jörðina. Þegar ég
hætti að keyra um á jeppa á rekstr-
arleigu og verð komin á eigin jeppa
í Donnu Karan dressi með vöðva-
stæltan einkabílstjóra – þá er þetta
kannski að gerast.“
Bóndinn of eftirsóttur
Eiginmaður Bjarkar er, eins og
mörgum er kunnugt, leikarinn
Gunnar Helgason. Margir líta öf-
undarauga til hans núna og sjá
hann fyrir sér með sérríglas í ró-
legheitunum heima við eða í dýrum
laxveiðiám á kostnað sinnar konu.
„Nei, ég ætla aldrei að leyfa honum
það,“ segir Björk og hlær nánast
kvikindislega. „Jú, kannski. Þetta
er auðvitað okkar beggja verkefni,
hann tók þátt í gerð þessa leikrits á
ýmsa lund og við erum bæði mjög
ánægð.“
Björk hafði séð fyrir sér að geta
einbeitt sér alfarið að því að vera
úti á vinnumarkaði. Hún dæsir og
segir það víst ekki inni í myndinni.
„Ég var búin að sjá fyrir mér að
geta gengið að kenndum sérrílegn-
um eiginmanni sem biði með mat-
inn þegar ég kem heim úr vinnu.
En það verður víst ekki. Það rignir
inn atvinnutilboðum honum til
handa og tómt vesen. Ég hef því
miður litla stjórn á honum og þarf
að taka betur í taumana. Senda
hann á hlýðninámskeið eins og
hundinn okkar.“
jakob@frettabladid.is
BJÖRK JAKOBSDÓTTIR
Segir sögurnar ganga ljósum logum um meint ríkidæmi sitt. Hún sé ekki lengur
milljarðamæringur heldur billjarðamæringur. Björk segir að greiðslur til sín séu
árangurstengdar og sýningin eigi eftir að slá í gegn.
UM HELGINA EIGNAST ÞÚ SPÓLUNA
Miklar vonir eru bundnar
við velgengni íslenska
leikverksins Sellófon á
erlendri grundu.
Höfundurinn segir sögur
af meintu ríkidæmi sínu
ýktar – í það minnsta enn
sem komið er.
Billjarða-
mæringurinn Björk
Ég var búin að sjá
fyrir mér að geta
gengið að kenndum sérrí-
legnum eiginmanni sem
biði með matinn þegar ég
kem heim úr vinnu. En það
verður víst ekki. Það rignir
inn atvinnutilboðum honum
til handa og tómt vesen.
,,
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/RÓ
B
ERT