Fréttablaðið - 08.11.2003, Page 29

Fréttablaðið - 08.11.2003, Page 29
LAUGARDAGUR 8. nóvember 2003 Skólavörðustíg 12 / Kringlunni / Smáralind 7 rósir og vasi 990 kr. 790 kr. Nóvemberkaktus og keramikpottur Blómaverkstæði Binna þakkar frábærar móttökur við nýjum verslunum í Kringlunni og Smáralind. Komdu við um helgina og líttu á úrvalið af afskornum blómum, fallegri gjafavöru og freistandi jólaskrauti. Blómstrandi tilboð Binna Jólasveinn sem ruggar 950 kr. F í t o n F I 0 0 8 2 2 1 17 VÉLAR á Broadway LAUGARDAGSKVÖLDIÐ 8. nóvember kl. 00.00 Miðaverð aðeins kr. 1200.- Höll minninganna eftir Ólaf Jó-hann Ólafsson kom út vestan hafs nú um mánaðamótin hjá Random House. Viðtökur þar hafa verið það góðar að fyrirhuguð kynningarferð Ólafs Jóhanns um Bandaríkin hefur verið lengd úr tveimur vikum í þrjár. Fyrstu dómarnir eru farnir að birtast. Kirkus Reviews sagði að Ólafur Jóhann hefði ritað fyrirhafnar- laust og af skarpskyggni heillandi frásögn og virðist ófær um að skrifa slaka málsgrein eða blað- síðu. „Persónurnar eru af holdi og blóði, hann nær tíðaranda og sagnfræðilegum atriðum fullkom- lega án þess að íþyngja lesandan- um; skáldsaga hans er dýrgripur og hógvært meistaraverk.“ Þá sagði í Star Tribune að Höll minn- inganna væri besta bók Ólafs Jó- hanns, rituð í hárréttum tón, end- urlitin í sögunni væru fallega skrifuð og sögulokin undrafögur. Höll minninganna kom út fyrir skemmstu á Ítalíu og af því tilefni bauð forlag hans þar í landi, Longanesi, honum til Mílanó nú í vikunni. Hann var bókaður í fjöl- miðlaviðtöl frá því snemma á morgnana og fram undir kvöld. Veitti hann blaða- og fréttamönn- um hátt í þrjátíu viðtöl á þeim tveimur dögum sem hann dvaldi í borginni. Þá áritaði hann bókina í sex af helstu bókaverslunum Mílanó. ■ ÓLAFUR JÓHANN ÓLAFSSON Hefur nóg að gera við að kynna Höll minninganna í Evrópu og Bandaríkjunum. Höll minninganna fær lofsamlega dóma í Bandaríkj- unum og er nýkomin út á Ítalíu: Sögð vera dýrgripur Eina íslenska skáldsagan á met-sölulista þessa vikuna er Betty eftir Arnald Ind- riðason. Þetta á þó lík- lega eftir að breytast því Mál og menning á eftir að spila út sínum stærstu trompum í skáldsagna- geiranum. Kunnugir segja að Einar Kárason sé í miklum ham í nýrri skáldsögu sinni Stormi, en þar er aðalpersónan skrautlegur karakter, Eyvindur Jónsson Stormur, sem bókaútgef- endur ákveða að dubba upp sem rithöfund og lýsingin á því mun vera stór- skemmtileg. Nokkrar persónur skiptast á að segja söguna, rétt eins og í Óvinafagnaði, sem þessa vikuna er í öðru sæti á skáldsagn- alista Máls og menningar. Sjö ár eru síðan Guðmundur Andri Thorsson sendi frá sér skáldsögu og nýrrar bókar hefur verið beðið með nokk- urri óþreyju. Hún heitir Náðarkraftur og er fjöl- skyldusaga ættgöfugra sósíalista. Þeir sem les- ið hafa segja bókina meistaralega vel skrif- aða. Hallgrímur Helga- son er kannski okkar frumlegasti höfundur. Hann hefur lag á að koma á óvart og sýnir sífellt á sér nýja hlið. Ný skáldsaga hans, Herra alheimur, er fyrsta Hollywood- kvikmyndin í íslenskum bók- menntum. Aðalpersónan er Guð, og það er sjálfur Marlon Brando sem leikur hann. Woody Allen er í hlutverki aðstoðarmanns Guðs. Bækurnar eru væntanlegar inn- an örfárra vikna og fróðlegt verð- ur að sjá hvernig þær spjara sig. ■ HALLGRÍMUR HELGA- SON Bók hans, Herra alheim- ur, er Hollywood-mynd þar sem Marlon Brando er í hlutverki Guðs. Helstu tromp Máls og menningar á skáldsagnasviðinu: Hollywood-mynd í skáldsöguformi Ég er dottin í Jung einu sinnienn,“ segir Guðrún Eva Mínervudóttir rithöfundur um les- efni sitt um þessar mundir. „Jung er sniðugur þegar trúarþörfin er að plaga mann, því það er hægt að velta sér upp úr mystíkinni í hon- um undir því yfirskini að maður sé að lesa sálfræði. Ef maður fær nóg af honum í bili (hann skrifar ekk- ert sérlega læsilegan stíl) er hægt að leita til lærimeyja hans og - sveina. Úr þeirra hópi hef ég sér- staklega hallað mér að konu sem heitir Liz Greene. Ég er líka að lesa frekar skemmtilega hormónahlaðna skáldsögu eftir Kierkegaard sem gæti heitið Dagbók flagara, ef hún yrði þýdd yfir á íslensku, og bók sem heitir Understanding the Mind, eftir Geshe Kelsang Gyatso sem útskýrir nákvæmlega í öllum smáatriðum hvernig hugurinn virkar. Ef Gyatso hefur rétt fyrir sér er hugurinn ekki bara þessi þvaðrandi api sem fer sínar eigin óútreiknanlegu leiðir, heldur blíð- asta mjólkurkýr sem maður getur tekið í þjónustu sína ef maður fer rétt að henni. Svo hef ég líka verið að lesa allskyns hryllingssögur sem ég finn hér og þar, aðallega á Netinu, en ég reyni að gleyma því jafnóð- um hvað þær heita og um hvað þær fjalla. Samt get ég ekki stillt mig um að lesa þær. Það er hægt að ánetjast hryllingi eins og sígar- ettum. Síðan er ég á leiðinni að lesa ævisögu Houdini í fjórða skiptið. Ég fæ köfnunartilfinningu bara af tilhugsuninni.“ ■ Les um heilann GUÐRÚN EVA MÍNERVUDÓTTIR „Svo hef ég líka verið að lesa allskyns hryllingssögur sem ég finn hér og þar, að- allega á Netinu, en ég reyni að gleyma því jafnóðum hvað þær heita og um hvað þær fjalla. Samt get ég ekki stillt mig um að lesa þær. Það er hægt að ánetjast hryllingi eins og sígarettum.“

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.