Fréttablaðið - 23.11.2003, Blaðsíða 22
22 23. nóvember 2003 SUNNUDAGUR
Já, Forest Whitaker hefur sam-þykkt að leika aðalhlutverkið í
Little Trip to Heaven, kvikmynd
sem ég hef verið að undirbúa
ásamt Sigurjóni Sighvatssyni
undanfarin þrjú ár,“ segir
Baltasar Kormákur, leikari og
leikstjóri. Hann er með mörg járn
í eldinum og stendur nú frammi
fyrir þeim vanda að önnur mynd
sem hann mun leikstýra, The Bird
Artist, gæti skarast við vinnslu-
tíma hinnar. Best er að taka eitt
skref í einu þegar Baltasar er ann-
ars vegar.
„Forest Whitaker er einn af
mínum uppáhaldsleikurum og
frábært að fá hann í myndina. Ég
hef hitt hann og það fór vel á með
okkur enda hinn viðkunnalegasti
náungi. Þetta er spennumynd í
film noir stíl og fjallar um trygg-
ingasvindl. Að fjármögnun henn-
ar koma líkast til Film Council í
Bretlandi og þá hefur Capitol
Films sýnt áhuga á að dreifa
henni.“
Baltasar leikstýrir og skrifar
handrit. Fyrirhugað er að ‘skjóta’
myndina strax eftir áramót og
verður hún tekin að hluta til í
Norður Ameríku og líklega að
miklu leyti á Íslandi einnig. „Ég
hefði áhuga á að nýta íslenskt fag-
fólk. En þá verður að koma til
fjármagn héðan. Þetta er svolítið
erfið staða með þessar tvær
myndir, gerð þeirra gæti rekist
saman.“
Berst urmull handrita
Baltasar er nú kvikmyndaleik-
stjóri á vegum stærstu og virtustu
umboðsskrifstofu heims - CAA
eða Creative Artist Agency. Þar
er Björk einnig og eru þá upptald-
ir þeir Íslendingar sem þar eru
innan vébanda. Enda er afar erfitt
að komast þar að.
Þegar Baltasar var í Toronto á
kvikmyndahátíð þar sem 101
Reykjavík sigraði sem besta byrj-
andamyndin hitti hann aðila á
vegum CAA og hefur Baltasar
borist margir tugir handrita til yf-
irlestrar í gegnum umboðsskrif-
stofuna. Það var hins vegar ekki
fyrr en handrit að The Bird Artist,
sem byggir á samnefndri bók eft-
ir Howard Norman, að hann varð
virkilega hrifinn. „Já, já, ég nenni
ekki að leikstýra einhverjum há-
skólakómedíum, byssumyndum
eða Pierce Brosnan með sítt hár á
hesti að bjarga einhverri stúlku
úr kastala...“ Stundum eru stjörn-
ur tengdar verkefnunum - stund-
um ekki. Baltasar segir ekki þar
með sagt að ávallt sé verið að
bjóða honum að taka að sér tiltek-
in verkefni þegar honum eru send
margvísleg handrit til yfirlestrar.
En í tilfelli The Bird Artist var um
hreint boð að ræða og honum
hugnaðist sagan. Bókin eftir
Howard Norman, sem handritið
byggir á, kom út 1994 og hefur
hlotið margvísleg verðlaun, meðal
annars var hún tilnefnd til The
American National Book Award.
Í Kanda í miðju HABL-fári
The Bird Artist verður gerð á
Nýfundnalandi. Framleiðandi er
langstærsta kvikmyndafyrirtæki
Kanada, Alliance Atlantis, sem
framleiddi meðal annars heimild-
armyndina Bowling for
Colombine og CSI-þættina sem
sýndir eru á Skjá einum.
„Ég var hrifinn af bókinni en
ekki handritinu og sagði það. Í
kjölfarið var mér flogið til
Toronto af Alliance Atlantis. Þetta
var í miðju HABL-fárinu og Lilja
kona mín vildi meina mér að fara.
Mjög friðsælt var í Toronto á
þessum tíma og auðvelt að fá góð
borð á veitingastöðum. En ég
sagði þeim hjá Alliance Atlantis
mína meiningu og þeim leist vel á
það sem ég hafði fram að færa.
Svo sendu þeir tilboð til míns um-
boðsmanns sem annast alla milli-
göngu.“
Baltasar segir 101 Reykjavík
hafa verið einskonar „cult-mynd“
í Kanada og svo þegar hinir
kanadísku framleiðendur sáu
Hafið hefði það gert útslagið. Í
kjölfarið flaug handritshöfundur-
inn Malcom MacRury, sem meðal
annars er með handrit myndar-
innar The Man Without a Face
með Mel Gibson á afrekaskránni,
við þriðja mann til Íslands. „Við
dvöldum í viku saman í kofa á
Hofsósi. Nú er komið nýtt handrit
sem ég er ánægður með og grænt
ljós frá framleiðendum.“
Lítill byssubófamyndamaður
Sagan er heillandi að mati
Baltasar og sviðið, Nýfundnaland,
samasvarandi Íslandi á margan
hátt. „Svipuð að stærð, svipaður
íbúafjöldi og þeir lifa á fiski líkt
og við. Á sama tíma og við vorum
að slíta á tengsl við Dani gengu
þeir í faðm Kanadamanna. Allt
hefur legið upp á við hjá okkur en
að sama skapi niður á við hjá
þeim. Athyglisvert að bera þessar
tvær eyjur saman. Ég er miklu
meira á heimavelli við leikstjórn
þessarar sögu en amerískir leik-
stjórar, einhverjir LA-byssubófa-
myndamenn. Enda þeir á heima-
velli þar. Ekki væri ég tilbúinn að
takast á við slík verkefni enda lít-
ið um byssubardaga í Kópavogin-
um þar sem ég ólst upp.“
Baltasar segir draum sinn vera
þann að geta gert myndir fyrir al-
þjóðamarkað frá Íslandi. Og eftir
því sem hann kemur sér upp
sterkari samböndum ytra er meiri
möguleiki á því. „Ég hef ekki í
hyggju að flytja til Bandaríkjanna
og sitja með kokkteil á sund-
laugarbakkanum. Enda er ég
fluttur að hálfu leyti í Skagafjörð-
inn. Við fjölskyldan reynum að
verja þar sem mestum tíma, á
Hofi á Höfðaströnd. Þar erum við
með sveitabæ og hestabúskap. Ég
óttast að þegar menn skera á ræt-
ur sínar tapi þeir markmiðum sín-
um. Mér líður þannig.“
Stórmynd á kanadískan
mælikvarða
Grunnkostnaður The Bird
Artist er 10 milljónir dollara eða
750 milljónir. Ofan á það leggjast
laun leikara og leikstjóra. Á annað
hundrað manns koma að gerð
myndarinnar sem mun taka þrjá
mánuði í tökum. Þetta er stór
framleiðsla á kanadískan mæli-
kvarða. „Þetta er ekki þessi
Hollywood-framleiðsla í þeim
skilningi. Þetta er alvarlegri kvik-
myndagerð og í þeim geira hef ég
meiri áhuga á að starfa.“
Í Kanada er mjög blómlegur
kvikmyndaiðnaður sem helgast af
margvíslegum skattaívilnunum.
Bandarískir kvikmyndagerðar-
menn flykkjast yfir landamærin
til að búa til bíó.
„Ekki er búið að kynna handrit-
ið fyrir þeim leikurum sem við
höfum augastað á. Það eru stór
nöfn í umræðunni... en hvað þýðir
það? Þeir segja annaðhvort já eða
nei. Ég get því miður ekki nefnt
nein nöfn á þessu stigi. Og nei,
það er ekki Harrison Ford. Þó fólk
hafi miklar meiningar þar um,
stjörnublikið, finnst mér það ekki
aðalatriðið. Sagan og kvikmyndin
eru í öndvegi. Ég hef hitt mikið af
þessu fólki og það gerir ekki mik-
ið fyrir mig.“
Meryl Streep full gömul
Baltasar hefur hug á að taka
leikarann Ingvar E. Sigurðsson
með sér út auk þriggja tækni-
manna sem hann treystir vel. En
það er flókið ferli og ráða þarf
fólk út frá reglugerðum um
skattaafslátt.
„Fyrst þarf að skipa í aðalhlut-
Baltasar Kormákur er með mörg járn í eldinum - hann vinnur að undirbúningi nokkurra kvikmynda
sem eru mislangt komnar í undirbúningi. Á næstunni hefjast tökur á tveimur kvikmyndum í hans leikstjórn
sem ætlaðar eru fyrir alþjóðamarkað. Þær bera titilinn The Bird Artist og Little Trip to Heaven.
Það eru stór nöfn í
umræðunni... en
hvað þýðir það? Þeir segja
annaðhvort já eða nei. Ég
get því miður ekki nefnt
nein nöfn á þessu stigi. Og
nei, það er ekki Harrison
Ford. Ég hef hitt mikið af
þessu fólki og það gerir ekki
mikið fyrir mig.
,,
Ég hef ekki í hyggju
að flytja til Banda-
ríkjanna og sitja með kokk-
teil á sundlaugarbakkanum.
Enda er ég fluttur að hálfu
leyti í Skagafjörðinn. Við
fjölskyldan reynum að verja
þar sem mestum tíma, á
Hofi á Höfðaströnd. Þar
erum við með sveitabæ og
hestabúskap. Ég óttast að
þegar menn skera á rætur
sínar tapi þeir markmiðum
sínum. Mér líður þannig.
,,
BALTASAR KORMÁKUR
Fyrir dyrum stendur leikstjórn á tveim-
ur stórum kvikmyndum og einu leikriti
í Þjóðleikhúsinu. En Baltasar lætur sér
hvergi bregða enda segist hann vilja
hafa mörg járn í eldinum.
Baltasar með
bensínið í botni FRÉTTABLAÐIÐ/RÓB
ERT