Fréttablaðið - 31.12.2003, Qupperneq 8
8 31. desember 2003 MIÐVIKUDAGUR
■ Ástralía
■ Írak
Heimur versnandi fer
„Margt hefur bilað í hinni vest-
rænu heimsmynd. Fáokun
markaðsrisa hefur haldið inn-
reið sína. Hér á landi skipta litl-
ir risar með sér markaði og er-
lendis etja stærri risar til kapps
við þjóðríki um völd og áhrif.“
Jónas Kristjánsson í leiðara DV. 30. desember
.Bankastjóri fyrst og fremst
„Mikið framkvæmdaskeið er
framundan og þjóðin hefur góða
burði til allra hluta, en við verð-
um auðvitað líka að hafa fulla
gát.“
Jón Sigurðsson seðlabankastjóri. DV 30. desember.
Skrýtið þetta fólk
„Þjóðin er hins vegar vís til að
velta meira fyrir sér veðrinu eða
dagskrá sjónvarpsins en meint-
um leiðindum á þingi.“
Kristján Jónsson í Viðhorfspistli. Morgunblaðið
30. desember.
Orðrétt
Víða snjóþyngsli í úthverfum borgarinnar:
Íbúa snjóaði inni
SAMGÖNGUR „Við erum lokuð hér
inni vegna snjóa og komumst
hvorki lönd né strönd,“ sagði
Björn Björnsson, íbúi við Smára-
rima í Grafarvogi, í gærmorgun.
Aðalæðin hafði þá ekki verið rudd
og að sögn íbúa var ekki nema
fyrir hörðustu jeppamenn að
komast leiðar sinnar út úr hverf-
inu. Menn voru þó að moka frá bíl-
um til að undirbúa sig þegar loks-
ins yrði fært á ný.
„Þetta er allt orðið miklu erfið-
ara heldur en það var í gær því nú
er komið frost í snjóinn,“ sagði
Björn.
Íbúar sem blaðið ræddi við
voru harla óánægðir með að ekki
skyldi hafa verið brugðið við í
fyrradag og gatan rudd þegar
snjókoman var að mestu hætt.
Sumir voru heima í gærmorgun,
að sögn, og ætluðu ekkert að
hreyfa sig fyrr en mokað yrði.
Það var svo undir hádegið í
gær sem snjóruðningstækin birt-
ust og tekið var til við að ryðja
götuna við feginleika íbúanna,
sem komast nú væntanlega allra
sinna ferða, þótt þeir séu ekki á
jeppum.■
Kæra Loftkastalans
ekki forgangsmál
Samkeppnisráð taldi 2001 ekki lagaleg skilyrði til íhlutunar vegna meintra
brota stóru leikhúsanna á samkeppnislögum. Ráðið vildi að menntamála-
ráðherra endurmæti opinberan stuðning við leikhúsrekstur.
LEIKHÚSREKSTUR Óvíst er hvenær
kæra Loftkastalans til samkeppn-
isyfirvalda vegna meintra brota
stóru leikhúsanna á ákvæðum
samkeppnislaga, verður tekin fyr-
ir. Tugir mála, stórra og smárra
eru nú til afgreiðslu hjá samkeppn-
isyfirvöldum, meðal annars mál
olíufélaganna og
tryggingafé lag -
anna. Ólíklegt þykir
að mál Loftkastal-
ans fái forgang hjá
samkeppnisyfir-
völdum, umfram
stóru málin.
Samkeppnisráð
taldi í mars árið
2001, að ekki væru lagaleg skilyrði
til íhlutunar samkeppnisyfirvalda
vegna meintra brota Leikfélags
Reykjavíkur, Þjóðleikhússins og
Íslensku óperunnar á ákvæðum
samkeppnislaga.
Bandalag sjálfstæðra leikhúsa
sendi Samkeppnisstofnun erindi
vegna samkeppnisskilyrða í leik-
húsrekstri. Bandalagið vildi með-
al annars fá úr því skorið hvort
ríki og borg mismunuðu aðilum í
leikhúsrekstri, hvort Leikfélag
Reykjavíkur og Þjóðleikhúsið
hefðu brotið samkeppnislög með
því að nýta opinbera styrki til
undirboða í samkeppnisrekstri
leikhúsa og hvort Leikfélagi
Reykjavíkur, Þjóðleikhúsinu og
Íslensku óperunni væri heimilt að
nota opinbera styrki til undirboða
við útleigu á húsnæði sínu.
Öll þessi atriði, og raunar
fleiri, eru sett fram í kæru sem
Loftkastalinn sendi Samkeppnis-
stofnun viku fyrir jólin.
Þótt Samkeppnisráð teldi þá
ekki tilefni til íhlutunar, vakti ráð-
ið athygli menntamálaráðherra á
því að æskilegt verði að teljast að
í viðleitni sinni til eflingar leik-
listar, gæti opinberir aðilar að
jafnræðissjónarmiðum, þannig að
leikhús og leikhópar geti keppt
um hylli áhorfenda á jafnréttis-
grundvelli. Samkeppnisráð taldi
þá að mikið ósamræmi í opinber-
um stuðningi stríddi gegn mark-
miðum samkeppnislaga. Jafn-
framt beindi samkeppnisráð þeim
tilmælum til menntamálaráð-
herra að hann beitti sér fyrir end-
urmati á opinberri aðstoð við leik-
húsrekstur.
Ekki verður séð að grundvall-
arbreytingar hafi orðið á sam-
keppnisstöðu frjálsra leikhúsa og
leikhópa gagnvart opinberum og
hálfopinberum leikhúsum frá því
samkeppnisyfirvöld sendu frá sér
tilmælin.
the@frettabladid.is
VINSÆLUST
Hillary Clinton er sú kona sem bandaríska
þjóðin hefur mestar mætur á, samkvæmt
nýrri skoðanakönnun.
Bandaríska þjóðin:
Bush og
Hillary dáðust
WASHINGTON, AP George W. Bush
forseti og öldungardeildarþing-
maðurinn Hillary Rodham Clinton
njóta mestrar aðdáunar í Banda-
ríkjunum, samkvæmt nýrri skoð-
anakönnun.
Repúblikaninn Bush og
demókratinn Hillary Clinton eru á
öndverðum meiði í flestum mál-
um en eiga það sameiginlegt að
njóta fylgis bandarísku þjóðarinn-
ar. 29% aðspurðra sögðu að Bush
væri sá karlmaður sem þeir hefði
mestar mætur á en sextán prósent
nefndu Hillary sem þá konu sem
þeir dáðust mest að. Aðrir sem
fengu atkvæði voru meðal ann-
arra Colin Powell utanríkisráð-
herra, Jóhannes Páll páfi annar,
Bill Clinton, fyrrum forseti, sjón-
varpskonan Oprah Winfrey og
forsetafrúin Laura Bush. ■
ÁSTRALAR AUKA KJÖTÚTFLUTN-
ING Warren Truss, landbúnaðar-
ráðherra Ástralíu, segist búast
við mjög auknum útflutningi á
nautakjöti frá Ástralíu vegna
gruns um kúariðusmit í Banda-
ríkjunum. Fjöldi þjóða hafa í
kjölfarið sett innflutningsbann á
nautakjöt frá Bandaríkjunum en
Ástralar og Bandaríkjamenn hafa
löngum háð harða baráttu um
kjötmarkaðinn, sérstaklega í
Asíu.
KRÓKÓDÍLLINN DREPINN
Áströlskum öryggisvörðum tókst
í gær að drepa krókódílinn sem
varð 22 ára pilti að bana í Norð-
urhéraði í Ástralíu fyrir jólin.
Krókódíllinn reyndist 3,8 metrar
á lengd og var hann skotinn ná-
lægt þeim stað þar sem hann
réðst á piltinn í Finniss-ánni. Lík
piltsins hefur ekki fundist og er
talið að krókódíllinn hafi grafið
það í botn árinnar.
VISTVÆN ÖKUFERÐ Bíll, sem ein-
göngu gengur fyrir vetni og sólar-
orku, er nýkominn úr ferð um
Ástralíu, þeirri fyrstu sem slíkum
bíl er ekið um heila heimsálfu.
Skipuleggjendur ökuferðarinnar
segja að bílnum hafa alls verið
ekið 4000 kílómetra og árangurinn
gefi góð fyrirheit um aukna notk-
un vistvænni orkugjafa. Bíllinn
var hannaður af nemendum
Tamagavaháskólans í Tókýó.
Sprenging í
flugeldaverksmiðju:
Tugir manna
fórust
PEKING, AP Að minnsta kosti 29
manns fórust þegar sprenging
varð í flugeldaverksmiðju í norð-
austurhluta Kína. Við sprenging-
una hrundi þriggja hæða hús til
grunna og nálægar byggingar
léku á reiðiskjálfi. Ekki liggur
fyrir hvað olli sprengingunni.
Hundruð manna látast árlega
vegna sprenginga og eldsvoða í
flugeldaverksmiðjum í Kína.
Slysum fjölgaði á þessu ári þrátt
fyrir loforð ríkisstjórnarinnar um
að stuðla að bættu öryggi í verk-
smiðjunum ■
LÍKIN HEIM TIL TAÍLANDS
Lík taílensku hermannanna
tveggja, sem
féllu ásamt
sautján
öðrum í bíl-
sprengjuárás
í Karbala í
Írak á laugar-
daginn, voru
flutt heim til
Bangkok í
Taílandi í
gær frá Kúvaít. Um 200 manns
tóku þátt í athöfn sem fram fór á
alþjóðaflugvellinum í Taílandi, en
þeir föllnu voru meðal rúmlega
400 taílenskra hermanna, sem
sendir voru til Íraks í september
til uppbyggingarstarfa.
478 BANDARÍKJAMENN LÁTNIR Í
gær höfðu alls 478 bandaríkir
hermenn látið lífið í Írak síðan
hernaðaraðgerðir hófust í land-
inu. Þar af höfðu 327 fallið í átök-
um en 151 látist af slysförum eða
af öðrum orsökum. Í heildina
hafa 340 bandarískir hermenn
látið lífið í Írak síðan Bush
Bandaríkjaforseti lýsti því yfir 1.
maí að meiriháttar átökum væri
lokið og þar af 212 í átökum.
52 BRETAR FALLNIR Hermenn
bandamanna eftir þjóðernum
sem fallið hafa í Írak eru: 52
breskir, 17 ítalskir, átta spænskir,
fimm búlgarskir, tveir taílenskir,
einn danskur, einn úkraínskur og
einn pólskur.
ÍRAK Saddam Hussein, fyrrum for-
seti Íraks, hefur veitt bandaríska
hernámsliðinu upplýsingar um
sem svarar 2.880 milljörðum ís-
lenskra króna sem hann faldi í
erlendum bönkum, að sögn Iyad
Allawi sem situr í framkvæmda-
ráði Íraks.
Í viðtali við dagblaðið Al-Hayat
segir Allawi að íraski einræðis-
herrann hafi flutt féð yfir á banka-
reikninga í Sviss, Japan og Þýska-
landi og víðar skömmu áður en
hann var hrakinn frá völdum.
Reikningarnir voru stofnaðir í
nafni fyrirtækja sem aldrei hafa
verið til.
Allawi segir að Saddam hafi gef-
ið upp nöfn manna sem geti haft
uppi á peningunum og sem vísað
hafa bandaríska hernámsliðinu á
vopnageymslur uppreisnarmanna.
Bandarískir embættismenn hafa
leitt að því líkur að féð sem
Saddam skaut undan hafi verið not-
að til að fjármagna árásir upp-
reisnarmanna í Írak.
Framkvæmdaráðið í Írak
hyggst leita eftir alþjóðlegri aðstoð
til að reyna að endurheimta féð. ■
SADDAM HUSSEIN
Íraski einræðisherrann er talinn hafa falið sem svarar þúsundum milljörðum króna á
erlendum bankareikningum.
Saddam Hussein veitir mikilvægar upplýsingar:
Þrjú þúsund milljarðar
í erlendum bönkum
RUTT Í RIMAHVERFI
Kærkomin snjóruðningstæki birtust í
Rimahverfinu í Grafarvogi í gær. Sumir
íbúanna í Smárarima voru innilokaðir og
komust hvorki lönd né strönd.
■
Samkeppnisráð
taldi þá að mik-
ið ósamræmi í
opinberum
stuðningi
stríddi gegn
markmiðum
samkeppnis-
laga.
KÆRAN HJÁ SAMKEPPNISYFIRVÖLDUM
Óvíst er hvenær erindi Loftkastalans til Samkeppnisstofnunar verður tekin fyrir. Mjög
miklar annir eru hjá stofnuninni og engin ákvörðun hefur enn verið tekin um að mál
Loftkastalans fari í forgang.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA