Fréttablaðið - 31.12.2003, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 31.12.2003, Blaðsíða 12
12 31. desember 2003 MIÐVIKUDAGUR SÆKIR Í ELDINN Skosk kona frá Northwaterbridge í Aberdeenskíri í Skotlandi sækir sér eldivið. WASHINGTON, AP Erlend flugfélög geta átt það á hættu að verða neitað um aðgang að lofthelgi Bandaríkj- anna ef þau fara ekki að kröfum bandarískra stjórnvalda um að hafa vopnaða lögreglumenn um borð í flugvélum sínum. Bandarísk yfirvöld hafa sett fram kröfur um að vopnaður vörður verði um borð í farþegaþotum og flutningavélum í ákveðnum ferðum ef ástæða þyki til. Ekkert flugfélag hefur gefið til kynna að það ætli ekki að verða við þessum óskum þó Alþjóðlegu flugsamtökin hafi lýst sig andvíga vopnaburði um borð í flugvélum. Öryggismálayfirvöld í Banda- ríkjunum hafa lengi óttast að liðs- menn hryðjuverkasamtakanna al- Kaída myndu aftur ræna flugvélum til að fljúga á byggingar. Leiddar hafa verið að því líkur að hryðju- verkamennirnir hyggist reyna að komast um borð í erlendar flutn- ingavélar sem eigi leið um banda- ríska lofthelgi. Fyrir rúmri viku hækkaði Bandaríkjastjórn viðbúnaðarstig vegna hættu á hryðjuverkum úr gulu í appelsínugult sem er næst- hæsta stigið á fimm stiga lita- kvarða. Franska flugfélagið Air France aflýsti sex ferðum frá París til Los Angeles í síðustu viku eftir að vísbendingar höfðu borist um hugsanleg hryðjuverk. ■ RÁÐHERRASKIPTI Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þingmaður Suðvest- urkjördæmis, tekur í dag við embætti menntamálaráðherra af Tómasi Inga Olrich. Athöfnin fer fram á ríkisráðsfundi á Bessa- stöðum fyrir hádegi. Þorgerður Katrín segir að verk- efnið leggist vel í sig, það sé í senn spennandi og krefjandi og vonandi nái hún að sinna því jafnvel og for- verar sínir hafi gert. „Það er ljóst að það bíða mörg stór verkefni. Ég get nefnt tónlist- arhús, málefni háskólanna, málefni framhaldsskólanna og sérstaklega hvernig við ætlum að halda áfram að vinna að styttingu framhalds- skólans. Þetta eru stóru verkefnin sem við blasa strax á fyrsta mánuði og ég held að það verði seint skort- ur á verkefnum í menntamálaráðu- neytinu,“ sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir verðandi mennta- málaráðherra. Þorgerður Katrín nefnir enn- fremur vísindamálin, gríðarlega stóran málaflokk sem hún segir eiga eftir að skipta okkur miklu máli. „Sem betur fer er búið að búa vel um alla formhlið þess máls með nýrri löggjöf um vísinda- og tækni- ráð en síðan þarf að reyna að halda áfram að fylgja því eftir, þannig að vísindin verði enn meiri og stærri þáttur í íslensku samfélagi. Ég tel að það skipti máli upp á að efla enn frekar hagvöxt í framtíðinni,“ sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir. Fráfarandi menntamála- ráðherra afhendir Þorgerði Katrínu lyklana að menntamála- ráðuneytinu í dag að loknum ríkis- ráðsfundi á Bessastöðum. Aðstoðarmaður Þorgerðar Katrínar verður Steingrímur Sigur- geirsson, blaðamaður á Morgun- blaðinu til fjölda ára. Þorgerður Katrín Gunnars- dóttir er lögfræðingur að mennt og starfaði hjá Lögmönnum Höfðabakka að loknu lögfræði- prófi. Þá var hún yfirmaður sam- félags- og dægurmáladeildar Ríkisútvarpsins 1997–1999. Þorgerður Katrín tók fyrst sæti á Alþingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Reykjaneskjördæmi að loknum kosningunum í maí 1999. Hún er gift Kristjáni Arasyni viðskiptafræðingi og eiga þau þrjú börn. the@frettabladid.is HEILBRIGÐISMÁL Liðskipta- og augn- steinaaðgerðum verður fjölgað umtalsvert á næsta ári, að því er fram kemur í frétt frá heilbrigðis- ráðuneytinu. Jón Kristjánsson, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, hefur ákveðið að tæpar 84 milljónir króna renni til fjögurra spítala til að fjölga umræddum aðgerðum á næsta ári. Með því fjölgar augn- steinaaðgerðum um 550 umfram það sem gert var ráð fyrir og lið- skiptaaðgerðum fjölgar á sama hátt um 128 aðgerðir umfram það sem búist var við. Er þess vænst að með þessu styttist biðlisti eftir augnsteinaaðgerðum um helming og að verulega dragi úr biðtíma eftir liðskiptaaðgerðum. Réttar 200 augnsteinaaðgerðir verða til viðbótar því sem áður var ákveðið á Landspítalanum og 350 á St. Jósefsspítalanum í Hafnarfirði. 60 liðskiptaaðgerðir verða gerðar aukalega á Land- spítala á árinu 2004, 60 á Fjórð- ungssjúkrahúsinu á Akureyri og átta hnjáaðgerðir verða gerðar aukalega á Heilbrigðisstofnun- inni á Akranesi. Landspítali - háskólasjúkrahús fær um 41 milljón króna aukalega til að gera aðgerðirnar 260, Fjórð- ungssjúkrahúsið á Akureyri fær 22,5 milljónir vegna 60 aðgerða, St. Jósefsspítalinn í Hafnarfirði fær rúmar 17 milljónir vegna 350 aðgerða og Heilbrigðisstofnunin á Akranesi fær rúmar þrjár millj- ónir króna vegna átta hnjá- aðgerða. Verður greiðsluáætlun viðkomandi stofnana ársins 2004 hækkuð í samræmi við framvindu ofangreindra verkefna. ■ MIL LÖGÐ NIÐUR Markaðsskrifstofa sem Landsvirkjun og iðnaðarráðuneytið hafa starfrækt í 15 ár verður lögð niður nú um áramótin. Þrír af fjórum starfsmönnum skrifstofunnar hefja störf hjá Landsvirkjun en einn hjá iðnaðar- ráðuneytinu. Markaðsskrifstofa: Lögð niður STJÓRNSÝSLA Markaðsskrifstofa iðn- aðarráðuneytisins og Landsvirkj- unar, MIL, verður lögð niður nú um áramótin. Skrifstofan, sem hefur verið rekin frá árinu 1988, hefur haft það hlutverk að vinna að öflun er- lendrar fjárfestingar á sviði orku- freks iðnaðar. Meðal verkefna sem MIL hefur unnið að má nefna stækkun álverksmiðjunnar í Straumsvík, bygging álvers á Grundartanga og fyrirhugað álver í Reyðarfirði. Það er sameiginleg niðurstaða eigendanna að það sé heppilegt að slíta samstarfinu nú af ýmsum ástæðum. Þar vegur þyngst ný- skipan raforkumála sem byggir á samkeppni í raforkuframleiðslu. Því þykir ekki eðlilegt að iðnaðar- ráðuneytið starfræki markaðs- skrifstofu í samstarfi við einn orkuframleiðenda. Iðnaðarráðuneytið og Lands- virkjun munu hafa samstarf næstu tvö árin um nokkur verkefni sem hafa verið í vinnslu hjá MIL. Þar má nefna rafskautaverksmiðju í Hvalfirði, álþynnuverksmiðju og stóriðjumál á Norðurlandi. ■ Barnaníðingar í Portúgal: Fyrrum ráð- herra ákærður MISNOTKUN Saksóknari í Portúgal hefur ákært tíu manns fyrir kyn- ferðislega misnotkun á börnum sem eiga við andleg vandamál að stríða og vistuð eru á ríkisrekn- um dvalarheimilum. Meðal hinna ákærðu eru þeir Paulo Pedroso, fyrrum atvinnumálráðherra landsins, og Jorge Ritto, fyrrum sendiherra Portúgals í Suður- Afríku. Lögreglan hefur haft málið til rannsóknar í meira en ár eftir að ásakanir bárust um að börn á dvalarheimilum í Lissabon væru misnotuð af hópi barnaníðinga. Paulo Pedroso hefur neitað sakargiftum og segist vera fórn- arlamb rógsherferðar pólitískra andstæðinga, en Jorge Sampaio, forseti Portúgals, segir málið skelfilegt og að um algjöra þjóð- arhneisu sé að ræða. ■ FLUGVÖLLURINN Í LOS ANGELES Bandarísk stjórnvöld krefjast þess að er- lend flugfélög hafi vopnaða lögreglumenn um borð í flugvélum í ákveðnum ferðum. VERÐANDI MENNTAMÁLARÁÐHERRA Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þingmaður Sjálf- stæðisflokks í Suðvesturkjördæmi, á að baki eitt kjör- tímabil á Alþingi. Þorgerður segist hlakka til að takast á við verkefnið enda gnægð verkefna sem bíði. Atlantsolía: 140.000 lítrar VIÐSKIPTI Í desembermánuði seldi Atlantsolía alls ríflega 140 þúsund lítra af dísilolíu. Að sögn Huga Hreiðarssonar hjá Atlantsolíu hefur salan verið mun betri en gert var ráð fyrir. Hann telur að ánægja með samkeppni á þessum markaði ráði miklu um viðtökurnar en atvinnu- bílstjórar hafa mjög beint við- skiptum sínum til Atlantsolíu eftir að rekstur dísilstöðvarinnar í Kópavogi hófst. Í dag heldur Atlantsolía upp á eins mánaðar starfsafmæli og hefur af því til- efni boðið fjögur hundruð atvinnubílstjórum í afmæliskaffi og vestfirskar rjómavöfflur. ■ Hálka á Vesturlandi: Bílvelta og útafkeyrsla UMFERÐARÓHÖPP Ökumaður missti stjórn á bíl sínum við Hafnar- fjall um hádegi í gær með þeim afleiðingum að bíllinn endaði ofan í skurði. Ökumaðurinn slas- aðist nokkuð og var fluttur á sjúkrahúsið á Akranesi til að- hlynningar. Annar ökumaður missti stjórn á bíl sínum um klukkan 14 í gær og valt bíllinn. Þetta gerðist nálægt Grundartanga. Enginn slys urðu á farþegum. Lögreglan í Borgarnesi segir sennilegt að hálka hafi valdið báðum þessum óhöppum. ■ Aukið fjármagn til fjögurra sjúkarstofnana: Fleiri aðgerðir og styttri bið Gnægð verkefna bíður Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks í Suðvesturkjördæmi, tekur í dag við embætti menntamálaráðherra af Tómasi Inga Olrich. Þorgerður segir að málefni tónlistar- húss, háskóla- og framhaldsskóla verði fyrirferðarmikil á fyrstu starfsdögunum. Bandaríkjastjórn setur erlendum flugfélögum afarkosti: Vopnaðir lögreglu- menn í flugvélum

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.