Fréttablaðið - 31.12.2003, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 31.12.2003, Blaðsíða 28
28 31. desember 2003 MIÐVIKUDAGUR Pondus eftir Frode Øverli U2 „And so we’re told this is the golden age And gold is the reason for the wars we wage Though I want to be with you Be with you night and day Nothing changes On New Year’s Day On New Year’s Day.“ Þeir eru víst atburðalitlir nýársdagarnir í lífi söngvarans Paul Hewson, eða Bono eins og flestir þekkja hann. Lagið New Years Day er tekið af War, þriðju breiðskífu U2 frá árinu 1983. Popptextinn Fréttiraf fólki Leikkonan Kristin Davis, semflestir þekkja sem Charlotte í sjónvarpsþáttunum Sex and the City, langar til þess að reyna fyrir sér á leiksviði í London. Fram- leiðsla þáttanna er við það að ljúka og sagði hún nýlega í viðtali að drauma- starfið væri að fá að sýna leikhæfi- leika sína í leik- listarborginni. Davis á bresk- an kærasta og vill því eflaust eyða sem mestum tíma á heimaslóð- um hans. Gítarleikari The Who, PeteTownshend, segist hafa íhugað sjálfsmorð eftir að hafa verið ásakaður um kaupa barnaklám í gegnum Netið. Townshend var handtekinn í janúar síðastliðnum og sætti lögreglurannsókn í fjóra mánuði áður en allar kærur voru felldar niður. Í ljós kom að Townshend hefði far- ið inn á síður sem innihéldu barnaklám án þess að vista myndirnar þar inn á tölvu sína. Pete viðurkenndi allan tímann að hafa gert það og sagðist hafa verið í rannsóknarvinnu fyrir bók sem hann væri að skrifa. Í viðtali við The Observer sagðist hann þess fullviss að hann hefði kálað sér hefði hann átt byssu. Hann er þó glaður að hafa ekki gert það í dag því hann áttar sig á því að þá hefðu flestir talið hann sekan. 21 árs nemi í London hefur kom-ið því þannig fyrir að ef hann nær að lokka þokkadísina Kylie Minogue á stefnumót á árinu þá gæti hann grætt mörg hundruð punda. Piltur- inn lagði inn veðmál í veðbanka og hélt því fram að hann myndi ná settu takmarki sínu fyrir lok næsta árs. Veðbankinn gaf honum líkur upp á 1/100 og þótti honum það frekar hátt. Natalie Portman segist vera aðíhuga að taka að sér aðalhlut- verkið í framhaldsmynd Leon sem franski leikstjórinn Luc Besson gerði árið 1994. Sú mynd skartaði henni og franska leikaranum Jean Reno í aðalhlut- verkum og fjallaði um það hvernig launmorðingi tók að sér tánings- stelpu og kenndi henni til verka. Portman var 12 ára þegar hún lék í myndinni. Hún segist hafa fengið handrit myndar- innar í hendurnar og segist lítast vel á. Eina sem gæti haldið henni frá því að taka að sér hlutverkið sé að hún þurfi að eyða mörgum tímum í vaxtarræktinni ef hún á að vera „rétt“ fyrir hlutverkið og því nenni hún varla. Takk og amen! 1The Mars Volta - De-Loused in the Comatorium Með útgáfu þessarar plötu var afróhaus- unum tveim úr At the Drive-in, Cedric Bixler söngvara og Omar Rodriguez gít- arleikara, fyrirgefið fyrir að rústa þeirri merku sveit. Þrekvirki frá upphafi til enda. Það er allt nær ótrúlegt við þessa plötu, krafturinn, flutningurinn, útsetningarnar, lagasmíðarnar, hljómurinn og hljóðtil- tilraunirnar. Skýtur Ok Computer ref fyrir rass og á án efa eftir að hafa mikil áhrif á framþróun rokksins. Er margt í senn, harðkjarna sýru-progg-hippa-rokk, dub, mexíkósk þjóðlagatónlist, experimental noise og spunadjass. 2Bonnie Prince Billie - Master and Everyone Þriðja plata Wills Oldham, undir listamannsnafninu Bonnie Prince Billie, er hans besta til þessa. Mað- urinn er með ótrúlega til- finninganæma og fallega rödd og berstrípuð lögin rista djúpt. Hef- ur verið settur í hóp indie-rokkara vegna fortíðar sinnar en er í raun skærasta stjar- na bandarískrar sveitatónlistar. Einlægnin er slík að það er engin furða að Johnny Cash hafi tekið eitt af lögum piltsins upp á sína arma. Skyldueign sem vex og vex við hverja hlustun. 3Moloko- Statues Þrátt fyrir að hafa slitið ástarsambandi sínu náðu þau Roisin Murphy og Mark Brydon að gera sína bestu plötu. Hefur sterkara aðdráttarafl en svarthol og ratar alltaf reglulega í tækið. Róar strekkt- ar taugar, kemur manni þó í stuðgírinn og skilar manni endurnærðum aftur á jörðina. Jafnast á við móðurmjólkina. 4Placebo- Sleeping With Ghosts Eftir að hafa ráfað um í dimmu skuggasundi með afleitri þriðju plötu sinni skil- aði Placebo sinni bestu plötu. Sveitin opnaði sig fyrir nýjum áhrifum og varð betri fyrir vikið. Allt gekk upp og Placebo bætti sér í hóp stór- sveita rokksins. Stútfull af slögurum enda er platan orðin þeirra söluhæsta frá upphafi. 5Outkast- The Love Below/Speakerboxxx Eins undarlega og það hljómar þá er fimmta Out- kast-platan í raun tvær sólóplötur liðsmannanna tveggja, Big Boi og André 3000. Lagið Hey Ya! telst til stærri slagara ársins og nóg er eftir af smáskífulögum. André 3000 leyfði sér að rasa út á með- an Big Boi hélt sig við fasta liði eins og venjulega. Báðar plöturnar eru frábærar og ómögulegt að gera upp á milli þeirra. 6Interpol - Turn on the Bright Lights Eins og platan í sætinu fyrir neðan kom þessi eiginlega út árið 2002 en skilaði sér ekki til Ís- lands fyrr en í ár. Ég átti mjög góðar stundir með þessari plötu í sumar, keyrandi um landið með landslagið þjótandi fram- hjá. Augngotur íslenska sauðfésins passaði vel við tónana af einhverjum ástæðum. 7Hot Hot Heat - Make Up the Breakdown Nýliðar rokksins voru margir á árinu. Kanadíska sveitin Hot hot heat átti frábæra frumraun og spennandi verður að fylgjast með áframhaldinu. Fylgdi þeirri bylgju vel sem The Strokes, Interpol og The White Stripes hrintu af stað. Partíplata dauðans. 8Four Tet - Rounds Það besta sem ég heyrði í raftónlist á árinu. Er eins manns sveit Kieran Hebden úr síðrokksveitinni Fridge og er í ætt við það sem Múm og Mugison eru að gera hérna heima. Falleg, áhugaverð og vel gerð. 9Yeah Yeah Yeahs - Fever to Tell Plata sem vex og vex. Fyrst kom ógurlegt hype-ið að utan og ótrúlegt en satt náði sveitin að standa undir væntingum. Var svoldið efins í fyrstu en stóð mig svo að því að vera stelast í að hlusta endrum og eins. Er í dag orðin hálf nauðsynleg fyrir vellíðan um helgar. Lagið Maps er gott efni í lag ársins. 10Peaches - Fatherfucker Færði pönkið yfir í raftón- listina. Er án efa ein svalasta kvenfígura tónlist- arbransans í dag. Hefur hreðjar á við fíl og segir nákvæmlega það sem hún vill. Hetja hinnar frjálsu konu og er hér með krýnd drottning elektróclash stefnunnar eftir frábæra aðra plötu. Kven- kyns Iggy Pop. 11. Grandaddy - Sumday 12. Calexico - Feast of Wire 13. Radiohead - Hail to the Thief 14. The Cardigans - Long Gone Before Daylight 15. Kelis - Tasty 16. Muse - Absolution 17. The Thrills - So Much for the City 18. The White Stripes - Elephant 19. Deadbeat - Wild Life Documentaries 20. Damien Rice - O Birgir Örn Steinarsson 1Mínus- Halldór Laxness Mínus kom eins og ferskur stormsveipur inn í sumarið með mögnuðu nýju sándi sem kom manni algjörlega í opna skjöl- du. The Long Face og Romantic Exorcism munu sitja lengi í minningunni. 2Maus- Musick Frábær plata frá Maus og töluverð framför frá þeirri sem kom á undan. Full af vönduðum og grípandi popp- lögum. Mjög já- kvætt að Kerfisbundin þrá var látið fljóta með í enskri útgáfu, enda eitt allra besta lag sveitarinnar. 3Skytturnar - Illgresið Skytturnar frá Ak- ureyri komu mjög á óvart með þess- ari fínu plötu. Rappið var krydd- að með skemmti- legum gítarleik og vitrænar samfé- lagslegar vangaveltur gáfu lögunum aukið vægi. 4Botnleðja- Iceland National Park Hrátt rokkið fer Botnleðju ákaflega vel eins og sýndi sig á þessum öfl- uga grip. Flottur, ruddalegur gítar- leikur og áberandi spilagleði stóðu upp úr. 5Eivör Pálsdóttir - Krákan Eivör Páls heillaði mann upp úr skónum með fal- legri rödd og góð- um lagasmíðum. Færeysk þulu- stemningin virkaði vel og heildarút- koman var framúrskarandi. 6Dr. Gunni - Stóri hvellur Dr. Gunni hafði legið í dvala í Popppunkti þar til hann birtist óvænt með þessa fínu rokkskífu. Minnti oft á Pixies sem telst mikill kostur hér á bæ. 7Bang Gang - Something Wrong Mjög góð og vönduð poppplata frá Barða Jóhanns- syni. Gamaldags yfirbragðið og þunglyndisleg tón- listin virkuðu mjög vel. Barði á eftir að gera fína hluti í framtíðinni. 8Steintryggur - Dialog Kom mjög á óvart fyrir skemmtileg- heit. Hrærigrauti frá öllum heims- hornum var bland- að saman á listi- legan hátt. Kær- komin tilbreyting frá hefðbundnari tónlist. 9Brain Police - Brain Police Fín plata frá Brain Police sem sýndi að þar fer ein fremst rokksveit landsins. Fjölmarg- ir hörku rokkslag- arar hittu rækilega í mark. 10KK & Maggi Eiríks - 22 ferðalög Þessir félagar slógu í gegn í sumar með skemmtilegum út- gáfum á gömlum og góðum íslensk- um ferðalögum. Plata sem kom sér vel um verslunar- mannahelgina. Á eftir koma í réttri röð: 11. Worm is Green - Automagic 12. 200 naglbítar - Hjartagull 13. Sálin og Sinfó - Vatnið 14. Land og Synir - Óðal feðranna 15. Bubbi - 1000 kossa nótt 16. Kimono - Mineur-Aggresif 17. Graveslime - Roughness and Toughness 18. Miðnes - Alein 19. Páll Óskar og Monika - Ljósin heima 20. Írafár - Nýtt upphaf. Freyr Bjarnason Sko, Guð... þú veist að enginn er fullkominn! Það geta allir gert mistök! Og það er ekki alltaf auðvelt að við- urkenna mistökin... ...en nefrennsli var MISTÖK! MISTÖK, MISTÖK, MISTÖK!!! Þú sérð það örugg- lega sjálfur ef þú pælir aðeins! Íslenskar plötur ársins 2003 Fjölmargar góðar íslenskar plötur komu út á árinu enda víðast hvar vandað mjög til verka. Hér er listi yfir þær 20 athyglisverðustu. Erlendar plötur ársins 2003 Tónlistarárið 2003 var sérstaklega blómlegt. Poppið varð aftur skemmtilegt, rokkið færði okkur glás af nýliðum og reyndari tónlistarmenn héldu höfði. Eftirfarandi eru tuttugu athyglisverðustu erlendu plötur ársins 2003.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.