Fréttablaðið - 31.12.2003, Blaðsíða 22
22 31. desember 2003 MIÐVIKUDAGUR
■ Andlát
Thomas Alva Edison sýndi ífyrsta sinn opinberlega hvernig
ljósaperan virkar á þessum degi
árið 1879. Edison lýsti upp heila
götu Menlo-garðinum í New Jersey.
Þrátt fyrir að fyrsti ljósaperu-
lampinn hafi verið gerður opinber
fjörutíu árum fyrr hafði engum
uppfinningamanni tekist að þróa
hann og finna einfalda lausn. Með
kolefnahugmynd Edison var loks
hægt að láta stöðugt ljós loga í
lengri tíma.
Edison var fæddur í Milan í Ohio
árið 1847. Hann fékk ekki langa
skólagöngu og átti við heyrnar-
vandamál að stríða sem varð upp-
sprettan að mörgum merkustu upp-
finningum hans. Þegar hann var
sextán ára uppgötvaði hann tæki til
skeytasendinga og eyddi næstu
árum í að þróa þá tækni.
Árið 1869 varð Edison uppfinn-
ingamaður í fullu starfi og kom sér
upp rannsóknarstofu í Menlo-garð-
inum. Árið 1877 uppgötvaði Edison
grammafóninn, sem þótti eina
merkasta uppfinning hans. Eftir að
hann sýndi plötuspilaranna opinber-
lega fékk hann viðurnefnið „Galdra-
karlinn í Menlo-garði“.
Thomas Edison lést árið 1931, 84
ára að aldri, og eftir hann lágu um
1.093 einkaleyfi fyrir hinum ýmsu
uppfinningum. ■
Bergljót L. Walls Rútsdóttir hjúkrun-
arkona, lést mánudaginn 29. desem-
ber.
Valgerður Haraldsdóttir, lést laugar-
daginn 20. desember.
Erling Örn Pétursson, frá Sauðárkróki,
lést miðvikudaginn 24. desember.
Gunnar Ólafsson, fyrrverandi skóla-
stjóri, Hraunbæ 42, Reykjavík, lést
mánudaginn 29. desember.
Sigurlaug Jóhannsdóttir, Hranfistu,
Reykjavík, lést sunnudaginn 28. des-
ember.
Ari Gunnarsson, Skútagili 7, Akureyri,
lést laugardaginn 27. desember.
Ingvar Þórðarson bóndi, Reykjahlíð á
Skeiðum, er látinn.
Gísli Gunnar Björnsson, Efstasundi
74, Reykjavík, lést 26. desember.
Pétur Friðrik Jóramsson, Faxabraut
13, Keflavík, áður Ásabraut 14, Kefla-
vík, lést fimmtudaginn 25. desember.
Magnús Ólafur Guðmundsson, fyrr-
um bóndi í Fagradal, Sundabúð,
Vopnafirði, lést sunnudaginn 28. des-
ember.
Ellý Björg Þórðardóttir, lést miðviku-
daginn 24. desember.
Víkingi Heiðari Ólafssyni píanó-leikara var á mánudag veittur
250 þúsund króna styrkur úr Minn-
ingarsjóði Gunnars Thoroddsen,
fyrrverandi borgarstjóra og for-
sætisráðherra. Þórólfur Árnason
borgarstjóri afhenti Víkingi Heið-
ari styrkinn í Höfða í gær, á fæð-
ingardegi Gunnars.
Víkingur Heiðar er 19 ára og
lauk einleikaraprófi árið 2001 þeg-
ar hann flutti hinn geysisnúna
fyrsta píanókonsert Tsjaíkofskís
með Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Víkingur er nú við nám í Julliard
tónlistarháskólanum í New York.
Þar hóf hann nám haustið 2002, en
samhliða náminu þar lauk Víking-
ur Heiðar stúdentsprófi frá
Menntaskólanum við Hamrahlíð
nú í desember. ■
Tímamót
VÍKINGUR HEIÐAR ÓLAFSSON
■ fékk úthlutað 250 þúsund krónur úr
Minningarsjóði Gunnars Thoroddsen.
Fékk kvartmilljón í styrk
Ég er alltaf svo upptekin áþessum degi að gera upp
árið,“ segir Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir, varaformaður Sam-
fylkingarinnar sem er 49 ára í
dag. „Ég reikna með því að vera í
einhverju fjölmiðlastússi upp úr
hádegi.“ Eins og oft áður mun
hluti dagsins fara í að líta um öxl
í sjónvarps- og útvarpsþáttum
yfir farinn veg og þau átök sem
hún hefur togast inn í á árinu.
„Síðan verð ég bara hérna
heima og fólk er að kíkja við yfir
daginn, fjölskylda og vinir, á
meðan ég er að elda kalkúninn
fyrir kvöldið. Þá koma Össur og
Árný og önnur vinahjón okkar í
mat og við höfum það notalegt að
venju. Annars verður þetta fínn
dagur, svolítið kaótískur og ég
verð með mörg járn í eldinum.“
Eftirminnilegasta afmæli
Ingibjargar Sólrúnar er þegar
hún varð fertug en það var sama
ár og hún tók við sem borgar-
stjóri í Reykjavík. „Þetta ár var
mér mjög eftirminnilegt,“ segir
hún og minnist einnig bernsku-
afmælisdaganna, sem týndust
aldrei í önnum dagsins. „Þegar
ég var óviti þá hélt ég að þetta
allt væri mér til heiðurs gert á
gamlárskvöld. Þegar ég varð
eldri vitkaðist ég og komst að því
að svo væri ekki, en ég gældi
alltaf við þá hugsun.“
Nú fer að styttast í að Ingi-
björg flytjist um stund til
London, þar sem hún ætlar að
stunda nám við London School of
Economics and Political Science.
„Ég fer núna 11. janúar og hef
ekki mátt vera að því að hugsa
mikið um það. En ég hlakka mik-
ið til að fara. Þetta er alveg
draumastaða að geta einbeitt
mér að einhverju einu; námi. Það
er svo mikið í boði í þessum
skóla að ég á erfitt með að velja
hvað það er sem ég vil einbeita
mér að. Það verður að vanda val-
ið til að nýta þennan tíma sem
best.“ Hún er búin að finna sér
íbúð, stutt frá Covent Garden í
London. Hún verður því í hjarta
London, þar sem stutt verður í
alla menningu og mannlíf. Einnig
eru Downing Street og Whitehall
í göngufæri á góðum degi. „Nei,
ég geri ekki ráð fyrir að sakna
stjórnmálanna á Íslandi,“ segir
Ingibjörg Sólrún hlæjandi að lok-
um. ■
Afmæli
INGIBJÖRG SÓLRÚN
GÍSLADÓTTIR ER 49 ÁRA
■ Hún mun gera upp átök ársins í dag.
DONNA SUMMER
Diskódrottningin er fædd þennan dag
árið 1948.
31. desember
■ Þetta gerðist
1695 Gluggaskattur er tekinn upp í
Bretlandi. Í kjölfarið er múrað upp
í glugga á mörgum byggingum.
1857 Viktoría Bretadrottning gerir
Ottawa að höfuðborg Kanada.
1947 Roy Rogers og Dale Evans giftast.
1979 Í árslok hafði olíuverð hækkað um
meira en 88% frá byrjun þess.
1990 Heimsmethafinn Gary Kasparov,
frá Sovétríkjunum, ver titilinn
sinn með því að leggja Anatolí
Karpov að velli.
1999 Boris Yeltsín lætur af embætti
sem forseti Rússlands. Forsætis-
ráðherrann Vladimir Pútin tekur
við forsetaembættinu.
1999 Sarah Knauss deyr 119 ára að aldri.
Hún var elsta kona heims, fædd
þann 24. september árið 1880.
THOMAS ALVA EDISON
Lést 84 ára að aldri og skildi eftir sig um
ellefu hundruð einkaleyfi.
EDISON
■ Uppfinningamaðurinn snjalli
sýndi ljósaperuna í fyrsta sinn og
lýsti upp heila götu.
17. september
2001
Mun ekki sakna
stjórnmálanna
Söfnunarsíminn
er 907 2020
Rauði kross Íslands
til styrktar fórnarlömbum
jarðskjálftans í íran
Jóga í Garðabæ
Mjúkir morguntímar
á mánudögum og miðvikudögum kl. 9:30-10:45
kennt í Ásgarði.
Framhaldstímar þriðjud. og fimmtud. kl. 18:00-19:15
Byrjendatímar þriðjud. og fimmtud. kl. 19:30-20:45
kennt í Kirkjuhvoli
Tímar hefjast 5. janúar
Kennari er Anna Ingólfsdóttir kripalujógakennari.
Upplýsingar og skráning
í símum 565 9722 og 893 9723.
■ Jarðarfarir
11.00 Jón Ólafur Ólafsson, fyrrverandi
skólastjóri í Garði, Hólabraut 12,
Keflavík, verður jarðsunginn frá
Keflavíkurkirkju.
Elskuleg móðir okkar,
Þórunn Eiríksdóttir
Kaðalsstöðum,
Stafholtstungum
lést á Sjúkrahúsi Akraness 29. desember.
Sigrún Ólafsdóttir
Unnur Ólafsdóttir
Björk Ólafsdóttir
STYRKURINN VEITTUR
Minningarsjóður Gunnars Thoroddsen var stofnaður af hjónunum Bentu og Valgarð Briem
29. desember 1985, þegar liðin voru 75 ár frá fæðingu Gunnars. Sjóðurinn er í vörslu
borgarstjórans í Reykjavík, sem ákveður úthlutun úr honum að höfðu samráði við Völu
Thoroddsen, ekkju Gunnars heitins. Styrkþegar eru orðnir 18 talsins.
M
YN
D
/J
Ó
H
AN
N
ES
L
O
N
G
INGIBJÖRG SÓLRÚN GÍSLADÓTTIR
Mun hefja nám í byrjun ársins og hlakkar til að fara til London
Edison sýnir ljósaperuna
Heimspeki-
messa
komin út
Háskólaútgáfan hefur gefið útbókina Heimspekimessa í til-
efni af sextugsafmæli Mikaels M.
Karlssonar prófessors.
Í bókinni eru greinar um fjöl-
breytt heimspekileg efni eftir sext-
án höfunda. Þær eru ágóðinn af
tveggja daga heimspekiráðstefnu
sem haldin var dagana 28.–29. mars
síðastliðna í Lögbergi. Þar fluttu
fjórtán íslenskir fræðimenn og
tveir erlendir erindi um heimspeki.
Ráðstefnan kallaðist Mikjálsmessa
og var haldin í tilefni af sextugs-
afmæli Mikaels M. Karlssonar, pró-
fessors í heimspeki við Háskóla Ís-
lands og nýráðins deildarforseta fé-
lagsvísinda- og lagadeildar Háskól-
ans á Akureyri.
Ritstjórar bókarinnar eru heim-
spekingarnir og Logi Gunnarsson. ■
FYRSTA EINTAKIÐ AFHENT
Kristján Kristjánsson afhendir Mikael M.
Karlssyni fyrsta eintakið af Heimspekimessu.