Fréttablaðið - 31.12.2003, Qupperneq 23
23MIÐVIKUDAGUR 31. desember 2003
Ítilefni þess að í ár eru hundraðár liðin frá fæðingu leikkon-
unnar Önnu Borg hefur verið sett
upp vefsíða í minningu hennar á
heimasíðu Leikminjasafns Ís-
lands: www. leikminjasafn.is.
Anna Borg hóf nám við Kon-
unglega leikhúsið í Kaupmanna-
höfn árið 1925 og útskrifaðist hún
þaðan tveimur árum síðar, ásamt
Haraldi Björnssyni, fyrst ís-
lenskra leikara.
Anna starfaði til æviloka í
Danmörku og var lengst af fast-
ráðin við Konunglega leikhúsið.
Árið 1932 giftist hún Poul
Reumert, einum fremsta leikara
Dana, og eignuðust þau tvo syni.
Hjónin komu nokkrum sinnum til
Íslands og léku gestaleiki, oftast
með leikurum úr Leikfélagi
Reykjavíkur. Anna Borg fórst
með flugvélinni Hrímfaxa á
Fornebu-flugvelli við Ósló á leið
til Íslands 14. apríl 1963. ■
Netið
ANNA BORG
■ Opnuð hefur verið vefsíða í minningu
leikkonunnar Önnu Borg. Í ár eru
hundrað ár liðin frá fæðingu hennar.
Í minningu Önnu Borg
??? Hver?
Lögga.
??? Hvar?
Á lögreglustöðinni við Hlemm.
??? Hvaðan?
Úr Reykjavík.
??? Hvað?
Fólk er búið að vera að keyra í saltaustri
á götum borgarinnar. Þá myndast tjara
á dekkjunum. Nauðsynlegt að tjöruþvo
með reglulegu millibili.
??? Hvernig?
Þú ert öruggari í umferðinni og nokkuð
viss um að komast leiðar þinnar á
hreinum dekkjum.
??? Hvers vegna?
Keyra á næstu bensínstöð og kaupa sér
tjöruhreinsi sem hægt er að spreyja á
dekkin.
??? Hvenær?
Hálfsmánaðarlega þarf að þrífa dekkin,
annars verða þau sleip og hættuleg.
■ Persónan
HEILÖG JÓHANNA
Anna Borg í hlutverki heilagrar Jóhönnu í
samnefndu leikriti eftir George Bernard
Shaw. Anna fæddist í Reykjavík þann 30.
júlí árið 1903. Hún þótti snemma sýna
mikla hæfileika sem leikari.
■ Nýjar bækur
Út er komin bókin Úr ritverk-um Björns Sigfússonar há-
skólabókavarðar I. Björn Sigfús-
son (1905-1991) stundaði ritstörf í
yfir 60 ár, og hér eru endurút-
gefnar fræðigreinar hans um ís-
lenskar fornbókmenntir og sögu
auk nokkurs úrvals tækifæris-
greina eftir hann um margvísleg
málefni; ritaskrá höfundar fylgir
og er á sjötta hundrað greina.
Ævi Björns er einnig rakin í ítar-
legu máli. Björn Sigfússon varð
þekktur þegar á námsárum sín-
um fyrir námsafrek og sem út-
varpsmaður um íslenskt mál, en
meginstarf hans varð bókavarsla.
Björn þótti sérkennilegur í máli
og fasi og snemma spunnust um
hann sögur, sem lifa. Seinna bindi
mun koma út næsta vor.
KÓF Á AUSTURVELLI
Veðurguðirnir hafa sannarlega látið finna fyrir sér síðustu daga með tilheyrandi snjókomu
og skafrenningi. Það var ekki margt um manninn á Austurvelli þegar ljósmyndari
Fréttablaðsins átti þar leið um.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
HAUKUR ÁSMUNDSSON
Leggur áherslu á að það sé mjög mikil-
vægt að tjöruhreinsa dekk bíla, þegar
færðin er þung og mikil hálka eins og ver-
ið hefur undanfarna daga.
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/G
VA