Fréttablaðið - 06.01.2004, Síða 30

Fréttablaðið - 06.01.2004, Síða 30
Erpur Eyvindarson rappari erfarinn af landi brott. Hann yfirgaf klakann í gær til þess að elta listræna köllun sína. „Ég er að fara til Svíþjóðar að læra um kvikmyndir og mynd- list,“ segir Erpur. „Það er farið yfir svolítið vítt svið. Þetta er listaháskóli rétt fyrir utan Gauta- borg. Þarna get ég áttað mig á því hvað það er sem mig langar til þess að sérhæfa mig í.“ Erpur segist hafa ákveðið að fara út í nám fyrir sex árum síðan en að hann hafi alltaf tafist vegna anna. „Ég er listamaður og hef alltaf vitað að ég ætli að vinna að listinni. En það hefur verið erfitt fyrir mig að finna út hvað mig langar nákvæmlega að gera. Hvort það tengist myndlist, hand- ritagerð eða kvikmyndagerð. Maður getur ekki endalaust verið að hugsa þetta heima hjá sér. Maður þarf bara að fara út og prófa eitthvað af þessu.“ Eitt af fyrstu verkefnum Erps í nýja skólanum verður að hanga á kvikmyndahátíðinni í Gautaborg í lok janúar, sem Kaldaljós opnar. „Það er ekkert leiðinlegt nám að vera í bíó. Ekkert að því að fá ein- ingar fyrir það,“ segir rapparinn. Erpur er þegar ákveðinn í því að vera í skólanum í eina önn, og jafnvel tvær. Þetta gæti þýtt að hann verði úti í um ár. Hann hefur þó ekki gefið rappið upp á bátinn og segist stöðugt vera að skrifa og vinna að nýju efni. Hann hefur þó ekki ákveðið hvort textarnir endi á sólóplötu eða þriðju plötu Rottweiler. Erpur ætlar að reyna að halda pistlaskrifum sínum fyrir DV áfram og bætir við að blaðið sé „ótrúlega skemmtilegt“. „Þeir vilja að ég geri meira. Svíþjóð er nú samt ekkert endi- lega mest spennandi land í heimi. Hvað er hægt að tala um Svíþjóð í pistlum? Þar þykir þeim frétt- næmt ef búið er að hækka föl- gular Lacoste V-hálsmáls peysur. Það er gaman að vera í svona vinnu þar sem maður getur skrif- að það sem manni sýnist. Maður á alltaf að gera það sem manni finnst skemmtilegt og alltaf að gera eitthvað nýtt,“ segir Erpur að lokum. biggi@frettabladid.is Hrósið 30 6. janúar 2004 ÞRIÐJUDAGUR Ég hef aldrei gert svonaáður,“ segir Jón Gnarr, spaugari og leikari með meiru, sem á laugardaginn ætlar að opna sína fyrstu myndlistarsýn- ingu. Ekki er að efa að myndlist Jóns Gnarr á eftir að koma mörgum verulega á óvart. Myndirnar á sýningunni eru ljósmyndaverk, uppstillingar með brúðum á frægum minnum úr ævi Jesú Krists. „Ég er búinn að vinna að þessari sýningu í eitthvað á þriðja ár, en hef annars ekki unnið að myndlist sem slíkri áður – þótt myndlist sé reyndar teygjanlegt hugtak.“ Sýningin verður í Fríkirkj- unni í Reykjavík og stendur til 20. febrúar. Hún er inni í sjálfri kirkjunni, og það var sóknar- prestur kirkjunnar sem bauð Jóni að sýna þar. „Þetta er trúarleg sýning,“ segir Jón, og aðspurður segist hann vera mjög trúaður og hafa verið það lengi. Hann segir einnig að sú kald- hæðni, sem hann er ekki síst þekktur fyrir í grínhlutverkum sínum, fari mjög vel saman við einlæga trú. „Kaldhæðni er meira að segja gegnumgangandi sem kímni- gáfa víða í Biblíunni, meðal ann- ars í frægustu bókum Gamla testamentisins. Jobsbók er til dæmis mjög nöpur og fyndin bók.“ ■ Myndlist JÓN GNARR ■ Grínistinn hefur undanfarin þrjú ár unnið að sýningu á trúarlegum ljós- myndaverkum, sem byggð eru á ævi Jesú Krists. ...fær KB banki fyrir að lækka færslugjöld. Fréttiraf fólki Jesúmyndir Jóns Gnarr Íslenskir unglingar Veruleikafirrtir vídeósjúklingar Lögreglan rannsakar dularfullt mannshvarf Bera sig gegn Bush Athygli vakti að Ingibjörg Sól-rún Gísladóttir, fyrrverandi borgarstjóri, mætti ekki þegar hin nýja og glæsilega lík- amsræktarstöð World Class var opnuð á laugardag. Í ræðu sinni lýsti Björn Kristmann Leifsson, aðal- eigandi nýju stöðvarinnar, því að Ingibjörg Sólrún væri sannarlega guðmóðir stöðvarinnar en að hún hefði því miður ekki komist til opnunarinn- ar sökum anna. Meðal gestanna var um það pískrað að Ingibjörg Sólrún hefði setið heima vegna þess að hún fékk ekki þann heið- ur að klippa á borða og opna stöð- ina. Það féll í hlut arftaka hennar, Þórólfs Árnasonar, því ekki þótti við hæfi að ganga framhjá sitj- andi borgarstjóra við svo merka athöfn... HARALDUR INGI HARALDSSON Hann telur að það séu miklir möguleikar í að nota þessa tækni. „Ef Íslendingar halda rétt á spilunum getum við orðið módel- samfélag í því hvernig hægt er að þróa tæknimöguleikana sem í þessu felast. Ís- lendingar geta notað tækifærið og aflað mikilla tekna sem svona tilraunasamfélag en þá þarf líka að meta þau störf frum- kvöðla sem hér eru fyrir hendi,“ segir Har- aldur. Þráðlaus Hrísey Hinn virti fréttamiðill CNNbirti frétt af því í desember að borgin Cerritos í Kaliforníu væri fyrsta borgin í heiminum sem stefndi að því að vera með þráðlaust netsamband fyrir borg- ina alla. Hríseyingar vildu nú ekki vera minni menn og sendu CNN leiðréttingu, þar sem þráðlaust netsamband komst á fyrir Hrísey 11. ágúst síðastliðinn. Allir Hríseyingar hafa nú kost á því að tengjast þráðlausa net- sambandinu og ætlað er að tutt- ugu áskriftir þurfi til að standa undir kostnaði, sem var tæp ein og hálf milljón. „Þetta gerir lítið samfélag eins og Hrísey sam- keppnishæfara á sviði atvinnu- mála, kennslu og í afþreyingu,“ segir Haraldur Ingi Haraldsson, frumkvöðull að þráðlausri Hrísey. „Vegna þessa er verið að setja upp nýjar tölvur í skólanum og við stefnum að því að nýta Netið bet- ur í kennsluháttum. Við viljum að börnin okkar verði eins og fiskar í vatni þegar kemur að því að vinna í tölvuverum.“ ■ Erpur yfirgefur klakann ERPUR Ætlar að athuga í Svíþjóð hvort kvikmyndagerð eða myndlist eigi eitthvað við sig. JÓN GNARR Opnar myndlistarsýningu í Fríkirkjunni á laugardaginn. Fólk ■ Erpur Eyvindarson er farinn út í nám til Svíþjóðar. Þar vonast hann til þess að komast í betra samband við listræna köllun sína.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.