Fréttablaðið - 08.01.2004, Síða 4
4 8. janúar 2004 FIMMTUDAGUR
Á að setja lög sem skylda stjórn-
málaflokka til að birta reikninga
sína opinberlega?
Spurning dagsins í dag:
Hefurðu áhyggjur af aukinni hörku í
undirheimum Íslands?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
21%
74%
Nei
5%Veit ekki
Já
Kjörkassinn
Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun
frétt.is
Þjófur á útleið
hitti öryggisvörð
Kurteis þjófur á ósamstæðum skóm braust inn á veitingastaðinn
Shooters í Kópavogi. Öryggisvörður mætti manninum, sem sagðist vera
starfsmaður. Eigandi staðarins gáttaður á öryggisvörslunni.
INNBROT Öryggisþjónusta Securit-
as brást skjótt við þegar merki
kom frá þjófavarnarkerfi á veit-
ingastaðnum Shooters við Engi-
hjalla 8 í Kópavogi um klukkan
níu á þriðjudagsmorgunn. Örfá-
um mínútum síðar var öryggis-
vörður mættur á vettvang. Í aðal-
dyrum veitingastaðarins mætti
hann manni á útleið og vildi vita á
honum deili. Sá var að sögn kurt-
eis og sagðist vera starfsmaður og
kynnti sig með nafni. Hann
kvaddi síðan öryggisvörðinn og
hvarf út í myrkur skammdegis-
morgunsins.
Lára Bragadóttir, eigandi
Shooters, segist hafa komist að
því klukkan fjögur sama dag að
brotist hefði verið inn. Þegar hún
kom til að opna sá hún að sjálf-
virkt slökkvikerfi í eldhúsi hafði
verið sett af stað. Við nánari
skoðun sá hún að reynt hafði ver-
ið að spenna upp peningaskáp.
Hún segir þjófinn ekki hafa áttað
sig á því að skápurinn var ólæst-
ur og einungis þurfti að ýta á
takka sem á stendur opnist. Hún
segir að eitthvað af vindlingum
hafi horfið.
„Ég tilkynnti um atvikið til lög-
reglunnar,“ segir Lára.
Hún segir að
Securitas virðist
ekki hafa gert
sér neina grein
fyrir að þarna
væri innbrots-
þjófur á ferð.
Þegar hún hafði
samband við fyrirtækið síðdegis
kom á daginn að talið var víst að
maðurinn væri starfsmaður
Shooters. Hún segir að klárlega
hafi þarna verið innbrotsþjófur-
inn á útleið. Hún telur að maður-
inn sem um ræðir hafi komið á
veitingastaðinn fyrir lokun. Hann
hafi verið skuggalegur útlits og í
svörtum skó á öðrum fæti en hvít-
um skó á hinum.
„Mér finnst trúlegt að það sé
maðurinn sem braust inn á stað-
inn,“ segir hún.
Lára segist greiða 30 þúsund
krónur á mánuði fyrir öryggis-
vörsluna og sér sé óskiljanlegt í
ljósi ummerkjanna að ekki hefði
uppgötvast að um væri að ræða
innbrot. Lára kallaði til lögreglu,
sem nú rannsakar málið.
Árni Guðmundsson, forstöðu-
maður gæslusviðs Securitas, stað-
festi að öryggisvörður hafi farið á
staðinn og hitt þar mann. Árni seg-
ir að ekki hafi þá náðst í rekstrar-
aðila staðarins. Þá hafi öryggis-
vörðurinn ekki séð nein ummerki
um innbrot. Hann segir að maður-
inn hafi verið stöðvaður og hann
hafi sýnt skilríki. „Það var ekki til-
efni til að kyrrsetja manninn og
kalla til lögreglu,“ segir Árni.
Hann segir að í skýrslu
öryggisvarðarins sé uppgefið
nafn mannsins en ekki kennitala.
rt@frettabladid.is
LOÐNAN SKOÐUÐ
Stella Steinþórsdóttir skoðar hvort loðnan
er frystingarhæf.
Loðnu landað á Norðfirði:
Ingunn GK
fékk tertuna
SJÁVARÚTVEGUR Börkur kom til Nes-
kaupstaðar í gær með 1.500 tonn
af loðnu sem veiddist norðaustur
af Langanesi. Loðnan er smá en
hluti hennar var tekinn til fryst-
ingar á Rússlandsmarkað. Börkur
var ekki fyrsta skipið sem kom
með loðnu til Norðfjarðar. Ingunn
GK landaði þar um 100 tonnum í
fyrradag og fór mesti hluti aflans
í bræðslu. Það voru því skipverjar
á Ingunni sem fengu tertu við
komuna til Norðfjarðar í gær.
Sjómenn sem Fréttablaðið tal-
aði við austur á Norðfirði í gær eru
ekki eins bjartsýnir á mikla loðnu
og fiskifræðingar þegar rætt er
um loðnu á svæðinu frá Vestfjörð-
um austur að Reyðarfjarðardýpi.
„Einhver hefur þó fundið alla
þessa loðnu,“ sagði einn þeirra
sem rætt var við. Hann segir loðn-
una mjög dreifða. ■
Heimahjúkrun:
Tillögur án
breytinga
HEILSUGÆSLA Fyrsti samningafund-
ur í deilu starfsfólks í heima-
hjúkrun og heilsugæslunnar var
haldinn í gær. Þórunn Ólafsdóttir,
hjúkrunarforstjóri Heilsugæsl-
unnar, sagði að lagðar hefðu verið
fram tillögur, sem starfsfólkið
myndi meta. Í þeim væru engar
grundvallarbreytingar frá því
sem Heilsugæslan hefði boðað
áður, heldur einungis nánari út-
listanir.
Yfirstandandi deila er tilkomin
vegna uppsagnar Heilsugæslunn-
ar á aksturssamningum í heima-
hjúkrun. Starfsfólkið lítur á hana
sem uppsögn á ráðningarsamn-
ingi og hættir því störfum 1. mars
næstkomandi, ef ekki semst um
annað. ■
KJARAMÁL Miðstjórn Alþýðusam-
bands Íslands telur að ekki verði
lengur unað við það hróplega
ósamræmi sem er á lífeyrisrétt-
indum launafólks á almennum
markaði og í opinberri þjónustu.
Miðstjórnin telur að afgerandi
stuðningur almennings við kröfu
verkalýðshreyfingarinnar um
samræmdan lífeyrisrétt sé mikil-
vægt veganesti í yfirstandandi
kjaraviðræðum.
Miðstjórn ASÍ vísar til nýrrar
könnunar, sem Gallup gerði fyrir
Alþýðusambandið í lok síðasta
árs. Þar kemur fram að ríflega
80% landsmanna eru hlynnt kröfu
Alþýðusambandsins um sam-
ræmdan lífeyrisrétt. Einungis
14% eru andvíg kröfunni og 5%
eru hvorki hlynnt né andvíg. Þrír
af hverjum fjórum sem spurðir
voru telja að lífeyrisréttindi opin-
berra starfsmanna séu betri en
starfsmanna á almennum mark-
aði, 15% sögðu lífeyrisréttinn
hliðstæðan og 10% sögðu rétt
þeirra sem vinna hjá einkafyrir-
tækjum betri.
Í könnuninni kom einnig fram
að rúmlega 78% segjast óánægð
með ný lög um lífeyrisrétt æðstu
ráðamanna ríkisins, rúm 9% sögð-
ust ánægð með lögin en rúm 12%
sögðust hvorki ánægð né óánægð.
Úrtakið í könnuninni var 600
manns á aldrinum 18 til 80 ára og
var svarhlutfall 71,6%. ■
STEFNURÆÐA SCHWARZENEGG-
ERS Arnold Schwarzenegger, rík-
isstjóri í Kaliforníu, lofar því að
nota ekki nýja
skatta til þess að
koma lagi á fjár-
mál ríkisins og
segir að ef þing-
menn styðji ekki
áætlanir sínar
stefni í þrot. Hann
lofaði þessu í stefnuræðu á
þriðjudaginn og sagði að fortíðar-
vandinn hefði ekki skapast af of
litlum tekjum heldur af allt of
mikilli eyðsla umfram tekjur.
GREIÐA SKAÐABÆTUR Yfirvöld í
New York hafa samþykkt að
greiða þrjár milljónir dollara í
skaðabætur til fjölskyldu manns
frá Gíneu sem lögreglan í New
York skaut til bana árið 1999.
Maðurinn, sem var innflytjandi,
var óvopnaður þegar lögreglan
skaut hann nítján skotum, en
hann mun hafa líkst eftirlýstum
nauðgara og ekki sinnt skipunum
lögreglunnar.
BUSH BOÐAR NÝ LÖG George W,
Bush Bandaríkjaforseti hefur nú
í aðdraganda forsetakosninganna
í haust boðað ný lög sem bætt
gætu til muna lagalega stöðu
ólöglegra verkamanna í Banda-
ríkjunum. Samkvæmt lögunum
munu að minnsta kosti átta millj-
ónir erlendra verkamanna, sem
komið hafa ólöglega til landsins,
aðallega frá Mexíkó, fá tíma-
bundið atvinnuleyfi.
FENGU DVALARLEYFI
Ungt par og sonur þeirra fékk eins árs
dvalarleyfi.
Pólitískt hæli:
80 leituðu
eftir hæli
HÆLISLEIT Enginn þeirra 80 ein-
staklinga sem sóttu um pólitískt
hæli hérlendis á síðasta ári hafði
fengið hæli um áramót. Þrír fengu
tímabundið dvalarleyfi. Það eru
Ramin og Jana Sana sem fengu,
ásamt nýfæddu barni sínu, eins
árs dvalarleyfi af mannúðar-
ástæðum.
Mál sjö einstaklinga er enn til
meðferðar. Umsóknum 21 ein-
staklings var hafnað og 23 sendir
úr landi á grundvelli Dyflinnar-
samkomulagsins sem felur í sér
að tekið er á máli flóttamanns í
því Schengen-ríki sem hann kom
fyrst til. 26 einstaklingar drógu
umsókn sína til baka. ■
HÆLISLEITENDUR 2003
Umsóknir 80
Veiting hælis 0
Veiting dvalarleyfis 3
Synjun á hæli 21
Dró umsókn til baka 26
Enn til meðferðar 7
Endursendir 23*
*Endursendir samkvæmt Dyflinnarsam-
starfi um hvaða ríki beri ábyrgð á með-
ferð hælisumsóknar.
Kröfur verkalýðsfélaga í lífeyrismálum:
Stuðningur lands-
manna afgerandi
ÚTIFUNDUR Á AUSTURVELLI
Bættum lífeyrisréttindum þingmanna var
mótmælt á útifundi í desember.
EIGANDINN
Lára Bragadóttir, veitingamaður á Shooters, er undrandi á öryggisgæslunni sem hún er
áskrifandi að. Þjófur á ósamstæðum skóm hvarf óáreittur út í skammdegismyrkrið.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
„Það var
ekki tilefni til
að kyrrsetja
manninn.
LJ
Ó
SM
YN
D
/E
G
■ Ameríka
HAMFARIR Jón Björgvinsson, kvik-
myndatökumaður og fréttaritari,
kom til borgarinnar Bam í Íran
nokkrum dögum eftir að öflugur
jarðskjálfti reið yfir svæðið.
Minnst 30 þúsund manns týndu lífi
í hamförunum og meira en 30 þús-
und slösuðust. Jón hefur síðustu
daga kvikmyndað skjálftasvæðið.
„Borgin er ein steinahrúga og
það er ótrúlegt að fara um hverfin.
Fólk reynir að tína saman heillega
hluti til að taka með sér, en það er
mikill straumur frá borginni þar
sem flestir hafa ákveðið að yfir-
gefa hana. Það er ekkert lengur til
staðar í Bam og engin framtíð fyrir
fólkið,“ segir Jón þegar hann lýsir
aðstæðum á skjálftasvæðinu.
Íranar hafa fagnað erlendri að-
stoð, en ljóst er að mikið uppbygg-
ingarstarf er fram undan sem
gæti tekið mörg ár. Ríkisstjórn Ís-
lands hefur ákveðið að veita 10
miljónum króna í hjálparstarfið.
Um 70 þúsund manns eru nú
heimilislaus og hafast við í tjöld-
um eða gámum.
„Íranar ætla að byggja borgina
upp á næstu árum en það verður
erfitt því vatnsuppsprettur hafa
til dæmis breyst og jafnvel eyði-
lagst við skjálftann. Þessi gamla
vin í eyðimörkinni á Silkiveginum
frá austri til vesturs er nú horfin,“
segir Jón að lokum. ■
JARÐSKJÁLFTINN Í BAM
Ömurlegar aðstæður blasa við á skjálfta-
svæðinu en minnst 30 þúsund manns týndu
lífi og um 70 þúsund eru heimilislaus.
Jón Björgvinsson á skjálftasvæðinu í Bam í Íran:
Borgin er ein steinahrúga
JÓN BJÖRGVINSSON
Kom til Bam á nýársdag og segir ömurlegar
aðstæður blasa við. Þetta er ekki í fyrsta
skipti sem hann kemur á hörmungasvæði
því hann vann við kvikmyndatökur í Kabúl
og í Bagdad í kjölfar árása Bandaríkjamanna.