Fréttablaðið - 12.01.2004, Qupperneq 4
4 12. janúar 2004 MÁNUDAGUR
■ Lögreglufréttir
Markar vopnafundur íslensku
sprengjuleitarmannanna í Írak
tímamót?
Spurning dagsins í dag:
Ertu sátt(ur) við frammistöðu hand-
boltalandsliðsins gegn Sviss?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
54%
17%
Nei
29%Veit ekki
Já
Kjörkassinn
Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun
frétt.is
■ Evrópa
Sektir vegna ólögmæts afla í fyrra:
Námu rúmum 100 milljónum
SEKTIR Fiskistofa innheimti í fyrra
rúmar 100 milljónir króna af út-
gerðum vegna ólögmæts sjávar-
afla. Hæsta einstaka sektin var
lögð á Stakkavík í Grindavík en
útgerðin varð að greiða tæplega
31 milljón króna í sekt vegna ólög-
mæts afla skips útgerðarinnar
Clintons GK-46.
Sektir vegna afla umfram afla-
heimildir innan íslensku fisk-
veiðilögsögunnar námu tæpum 93
milljónum króna á síðasta ári.
Hæsta einstaka sektin var lögð á
Blíðu á Hellissandi en útgerðin
mátti reiða fram rúmar 20 millj-
ónir vegna umframafla Storms
SH-333.
Þá sektaði Fiskistofa sjö út-
gerðarfélög í fyrra vegna afla um-
fram aflaheimildir utan íslensku
fiskveiðilögsögunnar. Hæstu
sektirnar voru lagðar á Tanga á
Vopnafirði vegna umframafla
Brettings NS-50 og Vinnslustöð-
ina í Vestmannaeyjum vegna um-
framafla Sighvats Bjarnasonar
VE-81. Hvor útgerð þurfti að
greiða á þriðju milljón króna í
sekt.
Sektirnar renna í sérstakan
sjóð í vörslu sjávarútvegsráðu-
neytisins en fénu er varið til haf-
rannsókna og eftirlits með fisk-
veiðum eftir nánari ákvörðun
sjávarútvegsráðherra. ■
Vill bein Keikós
úr norskri gröf
Ásbjörn Björgvinsson, forstöðumaður Hvalasafnsins á Húsavík, leitar
liðsinnis Keikósamtakanna til að fá beinagrind Keikós heim frá Noregi.
Húsavík verði opinber minningarstaður um hvalinn.
KEIKÓ „Ég mun leggjast á árarnar
með það að færa beinin heim til Ís-
lands og hef þegar leitað liðsinnis
Keiko Foundation í þeim efnum.
Við viljum umfram allt fá beinin
heim,“ segir Ásbjörn Björgvins-
son, forstöðumaður Hvalamið-
stöðvarinnar á Húsavík, um hræ
háhyrningsins Keikós sem hvílir í
norskri gröf. Ásbjörn fór strax eft-
ir dauða hvalsins heimsþekkta
fram á það við norsk yfirvöld að fá
hræið afhent en því var hafnað á
þeim forsendum að ekki mætti
flytja leifar
hvalsins á milli
landa.
„Norðmenn
sáu einhverja
annmarka á að
flytja hann hing-
að. Ég skil ekki
þá afstöðu
þeirra þar sem
leyft hefur verið
að flytja hval-
kjöt frá Noregi til Íslands. Þá
hefði ekki átt að vera vandamál að
flytja beinagrindina til Íslands,“
segir Ásbjörn.
Norðmenn grófu Keikó með
leynd í Taknesbukta í Noregi,
skammt þaðan sem Keikó drapst.
Rætt hefur verið um að reisa
minnismerki við gröf Keikós til að
laða að ferðamenn. Þau áform
draga ekkert úr áhuga Ásbjarnar,
sem telur að eftir eitt til tvö ár
verði hægt að grafa bein háhyrn-
ingsins upp og þau verði þá tilbú-
in til flutnings.
„Þegar beinin hafa hreinsast
þá vil ég að þau verði grafin upp
og ég fái grindina heim til Húsa-
víkur til að setja hana upp í safn-
inu. Þá munum við stofna sér-
staka Keikódeild þar. Reyndar er
þegar minningarherbergi í safn-
inu. Ég á mér þann draum að opin-
ber minningarstaður Keikós verði
á Hvalamiðstöðinni á Húsavík.
Forsvarsmenn Keiko Foundation í
Bandaríkjunum hafa tekið ágæt-
lega í hugmyndina. Við höfum
þegar fengið öll gögn og gripi frá
Vestmannaeyjum sem tengjast
lífssögu Keikós frá því hann var
fangaður og þar til hann kvaddi
land og þjóð og nú vantar aðeins
beinin,“ segir Ásbjörn, sem verð-
ur í bili að láta sér nægja upp-
blásna eftirlíkingu af Keikó;
meira segja með boginn bakugga.
Ásbjörn segir að eftirlíkingin sé
útblásin af þingeysku lofti, sem
gefi henni enn meira vægi en ella.
Á meðan Húsvíkingar bíða þess
að Norðmenn afhendi hræ Keikós
sitja þeir ekki auðum höndum því
þeir eru að setja upp beinagrind af
háhyrningi, nauðalíkum Keikó.
„Þarna er um að ræða háhyrn-
ing sem rak rétt austan við Horna-
fjörð og bæjarstjórinn leyfði okk-
ur að hirða. Þetta dýr er álíka
stórt og Keikó heitinn var. Gæti
þess vegna verið bróðir hans,“
segir Ásbjörn.
rt@frettabladid.is
Indland:
Boðað til
kosninga
NÝJA-DELÍ, AP Stjórnarflokkurinn á
Indlandi hefur skýrt frá því að
kosningar verði hugsanlega
haldnar strax í mars á þessu ári.
Yfirlýsingin kemur ekki á óvart,
þar sem margir höfðu búist við
því að stjórnin myndi nota sér
tækifærið og boða til kosninga, nú
þegar efnahagslífið er á uppleið
og samskiptin við Pakistan virð-
ast á batavegi.
Vinsældir Vajpayees forsætis-
ráðherra hafa aukist mjög eftir að
hann samþykkti að taka upp við-
ræður á ný við Pakistan, sem ver-
ið hefur erkióvinur Indlands ára-
tugum saman. Samskipti Indverja
og Pakistana hafa batnað á síðustu
mánuðum. ■
MYRTI FJÖLSKYLDU SÍNA Lög-
reglan á Ítalíu er að rannsaka lát
fjögurra manna fjölskyldu, sem
fannst á heimili sínu í norður-
hluta landsins. Talið er að karl-
maður hafi myrt bæði eiginkonu
sína og tvo syni áður en hann
beindi byssunni að sjálfum sér og
svipti sig lífi.
METHRAÐI Á SUÐURPÓLINN
Tæplega fertug bresk kona,
Fiona Thornewill, kom á Suður-
pólinn á laugardaginn eftir að
hafa gengið þangað 1.127 kíló-
metra leið á aðeins 42 dögum.
Þar með setti hún nýtt met, því
til þessa hefur engum tekist að
ganga þessa leið á skemmri tíma
en 44 dögum.
RÁÐHERRA HÓTAÐ Peter Struck,
varnarmálaráðherra Þýskalands,
hefur fengið margar líflátshót-
anir eftir að hann rak hershöfð-
ingja, sem hafði talað illa um
gyðinga. Struck skýrði frá þessu
í viðtali í þýska dagblaðinu Bild
í gær.
PALE, AP „Þeir eru ekkert að berja
okkur, en ég má ekki yfirgefa hús-
ið,“ sagði Ljiljana Karadzic, eigin-
kona Radovans Karadzics, við
fréttamenn út um gluggann á húsi
sínu í Pale í Bosníu í gærmorgun
meðan friðargæsluliðar á vegum
Nató voru þar inni að leita eigin-
manns hennar.
Friðargæsluliðarnir gerðu um
helgina mikla leit að Karadzic,
fyrrverandi leiðtoga Bosníu-
Serba, sem er eftirlýstur fyrir
stríðsglæpi.
„Við leituðum á tveimur stöð-
um í morgun, þar á meðal í húsi
Radovans Karadzic, en sáum eng-
in merki þess að hann væri þar,“
sagði Matthew Brock, talsmaður
friðargæslusveitanna, í gær.
Ljiljana var að sögn Brocks
„samvinnuþýð og fylgdi hermönn-
unum um húsið“. ■
Friðargæslusveitir í Bosníu:
Leituðu að Karadzic
Varnarliðsflutningar
Breytingum
fagnað
FLUTNINGAR Jónas Garðarsson, for-
maður Sjómannafélags Reykja-
víkur, fagnar því að Eimskip hafi
orðið hlutskarpast í útboði á flutn-
ingi á vegum bandaríska varnar-
málaráðuneytisins vegna varnar-
liðsins í Keflavík.
„Við vorum búnir að vera í
striti við utanríkisráðuneytið í
fyrra og hittiðfyrra út af því að
Atlantsskip hafi verið að brjóta
reglurnar um Íslandshluta
flutninganna. Á þeim tíma stað-
festi ráðuneytið að við hefðum
rétt fyrir okkur og í kjölfarið
skerpa þeir á reglunum hvað
varðar áhafnir skipanna,“ segir
Jónas.
„Þetta eru mjög góðir flutn-
ingar fyrir þessa siglingaleið.
Við höfum verið að auka flutn-
inga milli Íslands og Ameríku
undanfarið og innflutningur frá
Bandaríkjunum til Íslands hefur
verið að aukast,“ segir Erlendur
Hjaltason, framkvæmdastjóri
Eimskips hf. ■
HÚSLEIT Í PALE
Ljiljana Karadzic, til vinstri á myndinni, fullvissaði fréttamenn um að allt væri í lagi meðan
húsleit var gerð hjá henni í gærmorgun.
100 MILLJÓNIR Í HAFRANNSÓKNIR
Fjölmargar útgerðir máttu greiða sektir í
fyrra vegna umframafla. Samtals innheimti
Fiskistofa rúmar 100 milljónir vegna ólög-
mæts afla.
Salan á Brimi:
Línur fara
að skýrast
VIÐSKIPTI Viðræður við mögulega
kaupendur á sjávarútvegsfyrirtækj-
um í eigu Brims halda áfram í dag.
Að sögn Magnúsar Gunnarsson-
ar, stjórnarformanns Eimskips,
fengu áhugasamir kaupendur nán-
ari svör við fyrirspurnum sínum á
föstudag og búast má við að línur
fari að skýrast í dag og á morgun
um hverjir séu líklegastir til þess
að kaupa fyrirtækin.
Fram hefur komið að rætt hafi
verið við töluverðan fjölda
áhugasamra aðila í síðustu viku
en gera má ráð fyrir að hópurinn
þrengist nú eftir fyrstu umferð
viðræðna. ■
MINNINGARATHÖFN
Minningarathöfn var haldin á Húsavík um háhyrninginn Keikó viku eftir að hann drapst
við Noregsstrendur. Húsvíkingar berjast nú fyrir því að fá beinin heim.
„Forsvars-
menn Keiko
Foundation í
Bandaríkjun-
um hafa tekið
ágætlega í
hugmyndina.
ELDUR Í ÚTIHÚSI Eldur kviknaði
í gömlu útihúsi á bæ undir
Eyjafjöllum um fjögurleytið í
gær. Slökkvilið frá Hvolsvelli
og Hellu fór á staðinn en tals-
verður eldur var í húsinu. Tók
það slökkviliðsmenn um tvo
tíma að ráða niðurlögum elds-
ins. Húsið er talsvert mikið
skemmt. Ekki liggur fyrir hver
eldsupptökin voru.
RANN Á LJÓSASTAUR Ökumaður
kenndi sér eymsla í hálsi og hné
eftir að bifreið hans rann í hálku
á ljósastaur í miðbæ Akraness í
gær. Höggið var töluvert og segir
lögregla að öryggispúðar sem
þöndust út við áreksturinn hafi
líklega bjargað manninum frá
frekari meiðslum. Bifreiðin
skemmdist mikið.