Fréttablaðið - 29.01.2004, Page 10
10 29. janúar 2004 FIMMTUDAGUR
Greining Íslandsbanka:
Stöðugleika ekki ógnað
EFNAHAGSMÁL Greiningardeild Ís-
landsbanka telur ekki að stöðug-
leika sé ógnað þrátt fyrir mikla
verðhækkun eigna á síðasta ári.
Í Markaðsyfirliti Greiningar
ÍSB, sem kom út í gær, segir að
verð innlendra eigna hafi hækkað
mjög á árinu 2003; hlutabréf á
Kauphöll hafi hækkað um 236
milljarða, skuldabréf um 70 millj-
arða og íbúðarhúsnæði um 115
milljarða.
Samkvæmt Greiningu ÍSB læt-
ur nærri að eignaverðhækkun á
síðasta ári nemi 1,5 milljón króna
á hvert mannsbarn á Íslandi.
Greiningin spáir áframhald-
andi hækkunum á eignaverði en
telur ekki að hún verði jafn mikil
í ár og hún var í fyrra, en Íslands-
banki gerir þó ráð fyrir að eigna-
verðhækkun á þessu ári muni
nema um 800 þúsund krónum á
hvern Íslending.
Greiningin telur að þessar
hækkanir séu í takt við almennar
efnahagsforsendur og því sé ekki
hætta á því að stöðugleika á fjár-
málamarkaði sé ógnað.
Greining ÍSB spáir því að
Seðlabankinn muni hækka stýri-
vexti á síðari hluta ársins úr 5,3%
í 6,5% í nokkrum skrefum. Grein-
ingin segir að hátt gengi krónunn-
ar muni áfram vega gegn verð-
hækkunum vegna þenslu. ■
Ríkið greiði Háskóla
Íslands 400 milljónir
Formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands afhenti í gær menntamálaráð-
herra greinargerð um málefni og stöðu skólans. Þar er bent á leiðir til
þess að leysa fjárhagsvanda HÍ og tryggja stöðu skólans í fremstu röð.
MENNTAMÁL „Við leggjum meðal
annars til að ríkið greiði fyrir alla
þá nemendur sem stunduðu nám
við skólann á árunum 2001-2003.
Það voru töluvert margir nemend-
ur við nám á þessum árum sem
Háskólinn fékk ekki greitt fyrir.
Árið 2001 voru
þetta um 30
nemendur og á
árunum 2002 og
2003 voru þeir
enn fleiri. Þetta
varðar 300-400
m i l l j ó n i r
króna,“ segir
Davíð Gunnars-
son, formaður
S t ú d e n t a r á ð s
Háskóla Íslands,
en hann afhenti
Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur
menntamálráðherra greinargerð
um málefni skólans í gær. HÍ á við
mikinn fjárhagsvanda að etja og
er í greinargerðinni bent á leiðir
til lausnar þeim vanda. Lagt er til
að einkaleyfisgjald á Happdrætti
Háskólans verði fellt niður, en það
nam 115 milljónum á síðasta ári
sem eru 20% af hagnaði ársins.
„Ef Háskólinn þyrfti ekki að
greiða þetta gjald myndi aukast
verulega það fjármagn sem hann
hefði til að taka á brýnum hús-
næðisvanda,“ segir Davíð. For-
ysta Stúdentaráðs vill að málefni
Háskólans verði leyst á uppbyggi-
legan hátt og telur að leita þurfi
leiða til úrlausnar, bæði hjá ríkis-
valdinu og Háskólanum sjálfum.
Stúdentar vilja að megináhersla
verði lögð á að bæta starf og stöðu
Háskóla Íslands.
„Það er mikilvægt að treysta
fjármögnun skólans til langframa
og mæta kröfum um hagkvæmari
rekstur og með því að endurbæta
kennsluaðferðir væri hægt að
spara stórfé. Við teljum að endur-
skoða verði stjórnun og stjórn-
skipulag Háskólans, meðal annars
í tengslum við rektor og deildar-
forseta,“ segir Davíð.
Með greinargerðinni vonast
stúdentar til þess að umræða um
Háskólann haldi áfram og að
vinna hefjist fljótlega við að endur-
skipuleggja starfsemi stofnunar-
innar.
„Markmiðið er þó fyrst og
fremst að taka á bráðum fjárhags-
vanda Háskólans og ef þessar til-
lögur ná fram að ganga teljum við
að hægt verði að gera góðan skóla
enn betri,“ segir formaður Stúd-
entaráðs HÍ.
bryndis@frettabladid.is
AUMINGI OG RÆFILL Forstöðu-
kona heimilis fyrir aldraða í
Breiðholti varð hissa þegar hún
mætti á skrifstofu sína á þriðju-
dagsmorgunn. Þar inni stóð mað-
ur sem tilkynnti henni að hann
væri aumingi og ræfill og gekk
út. Þegar betur var að gáð var
búið að stela prentara, brjóta upp
peningaskáp og stela úr honum
um tíu þúsund krónum.
BÍLVELTA Á HAFNARFJARÐARVEGI
Ökumaður missti stjórn á bíl sín-
um á Hafnarfjarðarvegi á móts
við Nýbýlaveg með þeim afleið-
ingum að bíllinn valt. Ökumaður-
inn, sem var einn í bílnum, slas-
aðist ekki. Fjarlægja þurfti bílinn
með dráttarbíl.
Ólympíuspilling:
Varaforseti
handtekinn
SUÐUR-KÓREA, AP Suður-Kóreumað-
urinn Kim Un-yong, varaforseti
Alþjóða ólympíunefndarinnar,
IOC, var handtekinn í heimalandi
sínu í gær sakaður um spillingu
og mútuþægni.
Un-yong, sem
er 72 ára fyrrum
þingmaður stjórn-
arandstöðunnar í
Suður-Kóreu, hef-
ur um áratuga
skeið verið einn
af helstu forystu-
mönnum íþrótta-
hreyfingarinnar í
Suður-Kóreu og
einnig innan
ólympíuhreyfing-
arinnar.
Sjálfur neitar
hann öllum sakar-
giftum og segir að um sé að ræða
hefnd pólitískra andstæðinga og
óvildarmanna innan íþróttahreyf-
ingarinnar, en í síðustu viku var
honum vikið úr sæti varaforseta
IOC, að tilmælum siðanefndar
ólympíuhreyfingarinnar, á meðan
lokarannsókn á ásökunum gegn
honum færi fram. ■
„Ef þessar
tillögur ná
fram að
ganga teljum
við að hægt
verði að gera
góðan skóla
enn betri.
ÍSLANDSBANKI
Telur stöðugleika ekki ógnað.
RÁÐHERRA AFHENT GREINARGERÐ
Davíð Gunnarsson, formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands, afhendir Þorgerði Katrínu Gunn-
arsdóttir menntamálaráðherra greinargerð um tillögur til lausnar fjárhagsvanda Háskólans.
UPPRUNI ELDSINS LJÓS Talið er
líklegt að fikt barna með eld og
flugelda sé ástæða þess að eldur
kviknaði í iðnaðarskemmu við
bæinn Stóru-Velli í Bárðardal.
Gífurlegt eignatjón varð vegna
brunans en í skemmunni var tólg-
ar- og kertagerð.
FÉLL MILLI HÆÐA Vinnuslys varð
í nýju sorphreinsistöðinni í
Reykjanesbæ klukkan sjö í gær-
morgun. Maður féll tvo metra
milli hæða og meiddist á höfði. Að
sögn lögreglunnar í Keflavík var
hann fluttur á Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja. Hann var ekki talinn
alvarlega meiddur og fékk að fara
heim að lokinni aðhlynningu.
■ Lögreglufréttir
■ Lögreglufréttir
KIM UN-YONG
Varaforseti
Alþjóða ólympíu-
nefndarinnar, IOC,
var handtekinn í
Suður-Kóreu í
gær, sakaður um
spillingu og
mútuþægni.
ELDHAF
Logarnir teygðu sig upp í
fimmtíu metra hæð.
Öflug sprenging:
Heyrðist
langar leiðir
ÁSTRALÍA, AP Slökkviliðsmenn í
Port Kembla í Ástralíu börðust í
gær við mikinn eld sem upp kom á
einu stærsta iðnaðarsvæði lands-
ins eftir að öflug sprenging hafði
orðið í stórum tanki sem hafði að
geyma sjö milljón lítra af etanóli.
Sprengingin var svo öflug að
hún heyrðist í 25 kílómetra fjar-
lægð og að sögn sjónarvotta
teygðu logarnir sig upp í fimmtíu
metra hæð.
Að sögn Roberts Comberford,
talsmanns slökkviliðsins í Port
Kembla, urðu engin slys á fólki í
sprengingunni og aðeins einn
slökkviliðsmaður hafði hlotið
minni háttar brunasár. „Það er
kraftaverk að enginn skyldi
slasast í þessari öflugu spreng-
ingu,“ sagði Comberford.
Ekki er vitað um orsök spreng-
ingarinnar. ■
Prammi og bátur:
Árekstur í
höfninni
ÓHAPP Prammi og bátur rákust á í
innsiglingu Reykjavíkurhafnar á
þriðjudagskvöld.
Bátnum Guðmundi GK 204 var
siglt inn í höfnina en pramman-
um Mikael 1 var siglt út á sama
tíma. Engin slys urðu á fólki.
Nokkrar skemmdir urðu á bát-
num en pramminn skemmdist
ekki. ■
SADDAMS-GRÍMUR VINSÆLAR
Grímur af Saddam Hussein, fyrrum Íraks-
forseta, eru vinsælar þessa dagana í Rio
de Janeiro í Brasilíu, fyrir árlega kjöt-
kveðjuhátíð sem hefst í næsta mánuði.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA