Fréttablaðið - 29.01.2004, Síða 32
32 29. janúar 2004 FIMMTUDAGURBorðtennis
Óvæntustu úrslit milliriðlanna í gær:
Göldróttur Galia
HANDBOLTI Tékkneska landsliðið í
handknattleik sýndi styrk sinn
svo um munaði í gær þegar liðið
bar sigurorð af Frökkum, 32-31, í
B-riðli milliriðlanna á EM í Sló-
veníu í gær. Fyrir leikinn höfðu
menn ekki mikla trú á því að
Tékkar gætu strítt Frökkum enda
Frakkar taplausir í keppninni til
þessa en Tékkar mættu til leiks
með tíu marka tap gegn Þjóðverj-
um á bakinu. Það var þó engin
hræðsla í þeim því þeir höfðu
frumkvæðið í leiknum frá byrjun
og leiddu með tveimur mörkum,
17-15, í hálfleik. Í síðari hálfleik
náðu þeir mest sjö marka forystu,
26-19, þegar átján mínútur voru
eftir en Frökkum tókst með mik-
illi seiglu að jafna leikinn, 31-31,
þegar þrjár mínútur voru eftir.
Það var síðan David Juricek sem
skoraði sigurmark Tékka þegar
tæp mínúta var til leiksloka.
Tékkar geta þakkað markverði
sínum, Martin Galia, sigurinn en
hann varði oft á tíðum ótrúlega og
alls 21 skot í leiknum. Áðurnefnd-
ur Juricek var markahæstur hjá
Tékkum með níu mörk, Michal
Kraus og Tomas Heinz skoruðu
fimm mörk hvor og Filip Jicha
skoraði fjögur mörk. Guillaume
Gille og Olivier Girault voru
markahæstir hjá Frökkum með
sex mörk, Cedric Burdet skoraði
fimm mörk og Bertrand Gille
skoraði fjögur mörk. Thierry
Omeyer varði ellefu skot í marki
Frakka. ■
Danir unnu Svía
Danir ætla í undanúrslitin á EM en vonir Svía
um sæti á Ólympíuleikunum eru að engu orðnar.
HANDBOLTI „Ég á erfitt með að orða
tilfinningar mínar einmitt núna,“
sagði Torben Winther, landsliðs-
þjálfari Dana, eftir 34-28 sigur á
Svíum í Slóveníu í gærkvöldi. „Við
ætlum að vinna Svisslendinga en
eftir tvo góða leiki við Rússa og
Svía getur orðið erfitt að leika við
andstæðing sem er veikari á
pappírnum,“ sagði Winther. „Í
þetta sinn þori ég að spá. Við för-
um í undanúrslitin en þá verða
leikmennirnir að vera einbeittir.
En ég efast ekki um að þeir verða
það.“
Danir eru því í öðru sæti riðils-
ins og eiga góða möguleika á að
keppa í undanúrslitum mótsins á
laugardag og tryggja sér sæti á
Ólympíuleikunum í Aþenu í sum-
ar. Úrslitin þýða hins vegar að
markmið Svía um að vinna sér
sæti á Ólympíuleikunum í Aþenu í
sumar eru brostin. Þar með er
einnig ljóst að draumur Magnusar
Wislander og Staffans Olsson um
gullverðlaun á Ólympíuleikum
rætist ekki.
Skotnýting Dana var afburða-
góð. Michael Knudsen skoraði
átta mörk úr níu skotum og Søren
Stryger sjö mörk úr átta skotum.
Lars Krogh Jeppesen og Klavs
Jørgensen skoruðu fimm mörk
hvor, Joachim Boldsen þrjú og
Lars Christiansen, Claus Jakob-
sen og Kasper Nielsen tvö hver.
Stefan Lövgren var marka-
hæstur Svía með níu mörk úr
sautján skottilraunum. Staffan
Olsson skoraði fjögur mörk,
Marcus Ahlm, Martin Boquist og
Jonas Larholm skoruðu þrjú hver,
Johan Pettersson og Magnus Wis-
lander tvö hvor og Mathias Franz-
en og Jonas Ernelind eitt hvor. ■
Aðalfyrirlesari og gestur ráðstefnunnar er Georg Træland, sérfræðingur frá Arendal í
Noregi og ræðir hann meðferðarúrræði við eyrnasuði sem reynt hefur verið þar.
Aðrir fyrirlestrar eru: Eyrnasuð: Hannes Petersen, læknir.
Tengd vandamál. Haukur Hjaltason, læknir.
Niðurstöður starfshóps um eyrnasuð: Jörundur Kristinsson, læknir.
Þrír þolendur segja frá lífi með eyrnasuði.
Ávörp verða flutt og nýr vefur Heyrnarhjálpar verður opnaður.
Ráðstefnunni lýkur með pallborðsumræðum.
Ráðstefnan er öllum opin. Aðgangur er ókeypis.
Aðgengi fyrir alla! Tónmöskvi, rittúlkun, táknmálstúlkun og erlendur fyrirlesari verður
túlkaður yfir á íslensku.
Félagið Heyrnarhjálp og Landlæknisembættið gangast fyrir ráðstefnunni.
Grand Hótel Reykjavík
við Sigtún
á morgun föstudag
kl. 13.00 til 17.00
Ráðstefna um
eyrnasuð
Heyrnar- og talmeinastöð Íslands styrkir ráðstefnuna
Sent heim:
ÞORRAHARÐFISKUR
Hjallaþurrkuð ýsa/steinbítur
Hagfiskur
Lyngási 12 - Garðabæ - S. 567 7033
www.hagfiskur.is
KANOUTE Á ÓL? Frederic Kan-
oute, leikmaður Tottenham, gæti
misst af upphafi næstu leiktíðar.
Kanoute leikur þessa dagana með
Malí í Afríkukeppninni en þjóðin
keppir á næstu mánuðum um
sæti á Ólympíuleikunum í sumar.
Talið er víst að Kanoute verði
valinn takist Malímönnum að ná
sæti í keppninni. Fótboltakeppni
ÓL hefst 11. ágúst, þremur dög-
um fyrir fyrsta leikdag í ensku
úrvalsdeildinni. Keppninni lýkur
með úrslitaleik 28. ágúst.
BLÓÐPRUFA SKILYRÐI „Leikmenn
sem neita að fara í blóðprufu
verða ekki valdir í landsliðið,“
sagði Franco Carraro, forseti ít-
alska knattspyrnusambandsins.
„Þeir geta einnig átt von á próf-
um hvernær sem er á leiktíð-
inni.“ Knattspyrnusambandið og
samtök leikmanna hafa deilt um
réttmæti þess að skikka leik-
menn til að fara í blóðprufu. Tals-
maður leikmanna benti á það í
síðustu viku að samþykki leik-
manna þyrfti fyrir blóðprufu.
Intersport-deildin í körfu:
Hamar
bætir við sig
KÖRFUBOLTI Lið Hamars í Inter-
sport-deildinni teflir fram nýj-
um leikmanni í leik sínum gegn
Breiðabliki í Hveragerði í kvöld
en 35 ára framherji, Adrian
Owens hefur gert saming við lið-
ið. Owens spilaði síðast í Chile
en hefur ekkert spilað í eitt og
hálft ár.
Að sögn Péturs Ingvarssonar,
þjálfara liðsins, hefur þetta
kannski mest áhrif á hann sjálf-
an þar sem hann verður að hætta
að spila vegna launaþaksins en
þessi liðstyrkur kemur fyrst og
fremst til með að auka breiddina
í Hamarsliðinu sem hefur nú
tapað tveimur leikjum í röð eftir
að hafa byrjað árið með því að
vinna Keflavík. Pétur segist þó
ekki vera hættur en geti nú það
sem eftir er tímabilsins einbeitt
sér að því að stjórna Hamarslið-
inu, sem er sem stendur í 7. sæti
með 14 stig úr 14 leikjum. Nú
hafa öll lið nema Njarðvík,
Grindavík og Keflavík fengið
sér þrjá erlenda leikmenn. ■
ÆFT FYRIR ÓLYMPÍULEIKA
Æfingamót í Aþenu fyrir Ólympíuleikana í
sumar. Mótin eiga ekki aðeins að reyna á
keppendur heldur einnig skipulag móta og
framkvæmd þeirra.
■ Fótbolti
FRÆKNUM SIGRI FAGNAÐ
Tékkneska skyttan Michal Brüna fagnar hér sigrinum á Frökkum í gær að hætti hússins.
HANDBOLTI Serbar/Svartfellingar
og Ungverjar skildu jafnir, 29-29,
í 2. milliriðli Evrópumótsins í
handbolta í gær. Ungverjar leiddu
29-26 þegar tæpar þrjár mínútur
voru eftir en Serbum tókst að
jafna með tveimur mörkum Zik-
ica Milosavljevic og einu frá
Danijel Andjelkovic. Milosavl-
jevic var markahæstur Serba og
Svartfellinga með níu mörk en
Nenad Maksic og Ivan Lapcevic
skoruðu fjögur mörk hvor. Gabor
Csaszar setti sjö af mörkum Ung-
verja en Laszlo Nagy skoraði sex
sinnum.
Króatar unnu Svisslendinga
30-27 í 1. milliriðli. Sigurinn var
mjög öruggur því Svisslendingar
breyttu stöðunni úr 28-19 í 30-27 á
síðustu tíu mínútunum. Jafnræði
var með liðunum í fyrri hálfleik
og leiddu Svisslendingar 8-5 eftir
góðan kafla snemma í leiknum en
Króatarnir voru yfir í hléi, 15-13.
Robert Kostadinovic var sem
fyrr markahæstur Svisslendinga,
nú með sjö mörk, Carlos Lima
skoraði fimm mörk og Simon
Brogli fjögur. Ivano Balic skoraði
sex mörk fyrir Serba en Mirza
Dzomba og Renato Sulic skoruðu
fimm mörk hvor. ■
ROBERT KOSTADINOVIC
Skoraði sjö mörk gegn Serbum og Svart-
fellingum. Kostadinovic hefur skorað 35
mörk í keppninni.
Evrópumótið í handbolta:
Króatar unnu en
Serbar náðu jafntefli
DANIR STÖÐVUÐU SVÍA
Daninn Claus Jakobsen stöðvar Svíann Staffan Olsson í leik þjóðanna á EM í Slóveníu í
gærkvöldi.