Fréttablaðið - 09.02.2004, Qupperneq 14
14 9. febrúar 2004 MÁNUDAGUR
■ Andlát
■ Afmæli
Bítlarnir lögðu upp í fyrstu Am-eríkuferð sína í febrúar árið
1964 og riðu á vaðið í hinum vin-
sæla spjallþætti Eds Sullivan á
CBS-sjónvarpsstöðinni. Þeir stigu
á svið í myndveri stöðvarinnar í
New York og fluttu lögin All My
Loving, Til There Was You og She
Loves You og síðar í þættinum
tóku þeir I Saw Her Standing
There og I Want to Hold Your
Hand.
Þátturinn fékk metáhorf en 73
milljónir Bandaríkjamanna fylgd-
ust með fjórmenningunum frá
Liverpool á skjánum. Áhrifin létu
heldur ekki á sér standa og Bítla-
æðið var komið til Ameríku fyrir
alvöru.
Sagan segir að Sullivan hafi
bókað Bítlana í þáttinn án þess að
hafa heyrt eitt einasta lag með
hljómsveitinni. Það eina sem
hann hafði fyrir sér var að þegar
hann var staddur á Heathrow-
flugvelli í Englandi í október árið
1963 varð hann vitni að því þegar
Bítlarnir lentu á vellinum og
blaðamenn og hundruð trylltra
aðdáenda tóku á móti þeim. Sulli-
van þurfti ekki að vita meira og
Bítlaþættirnir hans komust á
spjöld bandarískrar sjónvarps-
sögu. ■
Egill Ólafsson, söngvari og leikari, er 51
árs í dag.
Ólöf Erla Hjaltadóttir, Borgargerði 9,
lést 6. febrúar.
Hermann Guðjónsson, Fornhaga 22,
lést 5. febrúar.
Haraldur Jóhannsson, Skeljanesi 2, lést
24. janúar. Útför hans hefur farið fram í
kyrrþey.
13.30 Gísli Sigurjónsson, Þórsgötu 6,
verður jarðsunginn frá Hallgríms-
kirkju 9. febrúar.
10.30 Karl Friðrik Schiöth, Mávanesi
15, verður jarðsunginn frá Digra-
neskirkju 10. febrúar.
13.30 Benedikt Hafliðason, Njörva-
sundi 6, verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju 10. febrúar.
15.00 Sveinn Konráðsson, Háagerði 25,
verður jarðsunginn frá Bústaða-
kirkju 10. febrúar.
13.30 Halldór Arason, Tjarnarlundi 12b,
Akureyri, verður jarðsunginn frá
Akureyrarkirkju 11. febrúar.
JOE PESCI
Þessi geðþekki leikari er 61 árs í dag.
9. febrúar
■ Þetta gerðist
1870 Veðurstofa Bandaríkjanna er sett
á laggirnar.
1943 Bandarískir hermenn frelsa
Kyrrahafseyjunna Guadalcanal
eftir sigur á japönskum hersveit-
um.
1950 Öldungardeildarþingmaðurinn
Joseph McCarthy gefur í skyn að
einhverjir starfsmanna utanríkis-
ráðuneytis Bandaríkjanna séu
kommúnistar.
1971 Þriggja manna áhöfn Apollo 14
snýr aftur til jarðar eftir þriðju
tungllendingu Bandaríkjamanna.
1981 Rokksöngvarinn Bill Haley deyr,
55 ára að aldri.
1984 Sovétleiðtoginn Júrí Andropov
deyr, 69 ára gamall.
1995 Fyrrum þingmaðurinn J. William
Fulbright deyr í Washington, 89
ára gamall.
2002 Margrét prinsessa, systir Elísa-
betar Englandsdrottningar, deyr
á sjúkrahúsi í London. Hún var
71 árs.
ED SULLIVAN
Jay Leno síns tíma vissi ekkert um Bítlana
annað en að þeir væru vinsælir í heima-
landinu. Hann bókaði þá því í sjónvarps-
þáttinn sinn hjá CBS og allt varð vitlaust.
Bítlarnir hjá Ed Sullivan
BÍTLARNIR
■ Komu fram í fyrsta sinn í bandarísku
sjónvarpi í þætti Eds Sullivan og Bítlaæð-
ið tröllreið Bandaríkjunum í kjölfarið.
9. febrúar
1964
Sest brátt í þennan
fræga helga stein
Ég hef ákveðið að halda ekkiupp á afmælið heldur láta
það líða hægt og hljótt og verð
af þeim sökum að heiman,“ seg-
ir Magnús Bjarnfreðsson blaða-
maður, sem er sjötugur í dag.
Óhætt er að segja að Magnús
sé þjóðkunn persóna. Hann
vakti fyrst á sér athygli þegar
íslenska sjónvarpið hóf göngu
sína í lok september 1966.
Magnús starfaði þá sem frétta-
maður auk þess að starfa við
dagskrárgerð. Hann starfaði
samfleytt við Sjónvarpið í tíu ár
og aftur hjá útvarpinu á níunda
áratugnum, þá sem útvarpsþul-
ur. „Það er langt síðan ég hef
farið í heimsókn í Sjónvarpið.
Þeir eru ekki orðnir margir eft-
ir sem störfuðu á sama tíma og
ég. Helst ber að nefna Markús
Örn Antonsson útvarpsstjóra.“
Heilsubrestur hefur hrjáð
Magnús síðustu tvö ár. Um er að
ræða jafnvægisleysi sem er af-
leiðing sykursýki. „Ég vinn
hluta úr degi hjá Happdrætti
Háskólans en ætla að hætta
störfum í vetur og setjast þá í
þennan fræga helga stein. Þrátt
fyrir að veikindi hamli mér
kvíði ég ekki aðgerðaleysi.“
Magnús segir veikindi sín
ólæknandi. „Ég segi eins og
maðurinn. Fyrir utan það sem
er að mér er ég stálhraust-
ur.“
Magnús segist stunda
hugarleikfimi. „Ég er
langt í frá einangraður
heima hjá mér. Ég uni mér
við lestur bóka og
fylgist vel með hvað
er að gerast í
þjóðlífinu. Að
því er ég best
veit hafa veik-
indin ekki haft
áhrif á hugar-
starfsemina.
En er það
ekki venju-
lega svo að
þeir sem
þannig er
ástatt fyrir
eru síðastir
til að átta
sig,“ bætir
hann við og
hlær sínum
djúpa bassa-
hlátri.
Magnús á þrjá syni og eina
dóttur. Elsta soninn eignaðist
Magnús í sínu fyrra hjónabandi.
Þá eru bræðurnir Árni og Páll
áberandi í íslenskum stjórnmál-
um. Magnús segist afar stoltur
af börnunum sínum. Sem kunn-
ugt er á Árni sæti í ríkisstjórn
Íslands og Páll er aðstoðarmað-
ur iðnaðarráðherra. Hann segir
synina lítið fyrir að ræða hvað
gerist á bak við tjöldin. „Ég geri
mér grein fyrir að það er ákveð-
in lína sem ekki má fara yfir og
drengirnir slúðra ekki í pabba
gamla. Einu fréttirnar sem ég
fæ eru þegar ég fylgist með um-
ræðunni í sjónvarpinu.“ ■
Norðurljósin
í Listhúsinu
Þór Marteinsson hefur festnorðurljósin á filmu í allri
sinni dýrð og sýnir afrakstur
þeirrar vinnu sinnar í ListaCafé
í Listhúsinu í Laugardal í febrú-
ar, en af hverju norðurljósin?
„Þetta er sérstakt og þetta er
svolítið eins og að fara að veiða.
Maður fer út aftur og aftur og
stundum fær maður og stundum
ekki. Það fer mikill tími í þetta
og dagarnir sem maður fær eru
allt of fáir vegna þess hversu oft
það er skýjað.“
Þetta er önnur norðurljósa-
myndasýning Þórs, sem er sjálf-
menntaður í ljósmyndun og hef-
ur unnið við framköllun og
prentun ljósmynda síðastliðin
fimm ár. Allar myndirnar eru
teknar á filmu og eru í stærðun-
um 20x30 og 25x38. Rétt eins og
myndefnið sjálft eru myndirnar
margbreytilegar og engar tvær
eru eins.
„Ég lít nú á þessa sýningu
sem fyrstu alvöru sýninguna
mína. Ég er áhugaljósmyndari
og fyrsta sýningin var hálfgerð
æfing sem ég lærði mikið af. Ég
seldi samt myndir þá og allar
myndirnar á þessari sýningu
eru líka til sölu. Ég sýni norður-
ljósamyndirnar þar sem ég legg
einna mestan metnað í þær þó
ég sé alltaf að mynda, en ef það
eru norðurljós er líklegast að ég
sé úti með vélina.“ ■
HLAUPTU VÆNA, HLAUPTU
„Run Baby Run“ nefnist þetta verk eftir
Portúgalann Carlos Barão, sem sýnir verk
sín í Listasafni Reykjanesbæjar um þessar
mundir.
Carlos í
Reykjanesbæ
Portúgalski myndlistarmaðurinnCarlos Barão hefur opnað sýn-
ingu á verkum sínum í Listasafni
Reykjanesbæjar.
„Þetta er ungur maður sem hef-
ur verið mjög virkur í myndlist síð-
ustu árin,“ segir Valgerður Guð-
mundsdóttir, menningarfulltrúi
Reykjanesbæjar. „Þetta er fyrsta
sýning hans hér á landi, þótt áður
hafi reyndar sést hér eitt verk eftir
hann. Það var árið 2000 þegar Salt-
fisksetrið í Sandgerði var opnað.“
Carlos Barão nýtur virðingar í
heimalandi sínu, eins og sjá má af
því að hann var fenginn til þess að
skreyta stærstu íþróttahöllina í
Lissabon fyrir heimsmeistaramótið
í fótbolta, sem verður haldið þar í
sumar.
„Hann er búinn að vera á kafi í
þessu verkefni undanfarið, og verk-
in á sýningunni hér bera sterkan
keim af því. Maður sér mikið af
boltum og mörkum og slíku í þeim.“
Sýning Carlosar er fyrsta sýning
ársins í Listasafni Reykjanesbæjar.
„Þetta er annað starfsárið okkar,
svo við erum bara rétt að fóta okk-
ur. Við vorum með fimm sýningar í
fyrra og það var allt saman eðal-
fólk, fagfólk alveg fram í fingur-
góma,“ segir Valgerður.
„Enginn sem sýnir hér borgar
leigu, og við prentum veglegan
bækling um hvern listamann og
verk hans. Í staðinn skilja lista-
mennirnir hér eftir eitt verk sem
bætist í safnið.“ ■
■ Jarðarfarir
NORÐURLJÓSIN
Þegar þau stíga sinn heillandi dans á himinhvolfinu mætir Þór Marteinsson með mynda-
vélina sína og festir þau á filmu. Afraksturinn er nú til sýnis í Listhúsinu í Laugardal.
Ljósmyndun
ÁHUGALJÓSMYNDARINN ÞÓR
MARTEINSSON
■ eltir norðurljósin á röndum með
myndavélina sína. Afrakstur þeirra veiði-
ferða sýnir hann um þessar mundir í List-
húsinu í Laugardal.
Afmæli
MAGNÚS BJARNFREÐSSON
■ er 70 ára í dag. Hann verður að heim-
an á afmælisdaginn.
MAGNÚS BJARNFREÐSSON
Heilsubrestur hefur hrjáð
Magnús síðustu tvö ár.
Um er að ræða jafn-
vægisleysi sem er
afleiðing sykur-
sýki.