Fréttablaðið - 09.02.2004, Blaðsíða 18
bílar o.fl.
Vikulegur blaðauki Fréttablaðsins um al l t sem viðkemur bí lum
Ritstjórn: sími 515 7500 – netfang: bilar@frettabladid.is. Auglýsingar: sími 515 7500 – netfang: auglysingar@frettabladid.is.
Árlega lendir einn af hverjumfimm bílum, sem eru í um-
ferð á Íslandi, í tjóni. Fyrir öku-
menn eru því töluverðar líkur á
að lenda í árekstri einhvern tím-
ann á ferlinum. Það er ekki nauð-
synlegt að kalla til lögreglu þeg-
ar um minniháttar tjón á bílum er
að ræða, en ef slys verða á fólki
er mikilvægt að kalla til lögreglu.
Þar til gerð eyðublöð vegna
tjónstilkynninga eiga að vera í
öllum bílum en auðvelt er að
nálgast þau hjá næsta trygginga-
félagi. Þeir sem aldrei hafa séð
slík eyðublöð ættu að fá starfs-
fólk Tryggingafélagsins til að
leiðbeina sér um hvernig á að
fylla þau út.
Villur og mistök við útfyllingu
tjónstilkynningar geta valdið
miklum vandræðum þegar
ákvarða á bótaskyldu tjónsins.
Rangt skráð tryggingafélag,
rangt bílnúmer og þegar dagsetn-
ingar og undirskriftir ökumanna
vantar eru dæmi um atriði sem
geta valdið vandkvæðum við mat
bótaréttar. Einnig reynist þeim
sem les yfir skýrslurnar oft erfitt
að átta sig á hvað gerðist í raun
og veru. Ítarlegar upplýsingar
gefa alltaf besta mynd af því sem
gerst hefur og eru margfalt betri
en upplýsingar af skornum
skammti. Það margborgar sig
líka, þegar árekstur hefur átt sér
stað, að fylla út skýrsluna strax á
staðnum.
Það getur nefnilega orðið
þrautin þyngri að hafa uppi á
tjónvaldinum síðar. Þeir sem
verða vitni að ákeyrslu ættu
alltaf að gera vart við sig við þá
sem eiga hlut að máli, því oft
vantar vitni að árekstrum. Mað-
ur veit heldur aldrei hvenær
maður sjálfur þarf á aðstoð
samborgarans að halda.
Vantar þig góð ráð? Sendu Jóni
Heiðari póst á netfangið
bilar@frettabladid.is ■
Skýrsla á staðnum
EINBEITTUR
Undirbúningur
fyrir Formúlu 1
kappaksturinn er
nú í fullum
gangi. Austurrík-
ismaðurinn Alex-
ander Wurz, öku-
þór McLaren,
virkaðir afar ein-
beittur á Spáni á
dögunum þegar
hann prufukeyrði
bílinn sinn.
Vinnuvélanámskeið
Kvöldnámskeið.
Námskeiðsstaður, Þarabakki 3.
109 Reykjavík (Mjódd).
Verð 39.900.-
Upplýsingar og innritun í síma: 894-2737
Flest verkalýðsfélög styrkja nemendur á vinnuvélanámskeið, einnig atvinnuleysistryggingasjóður
Allt sem bíllinn þarf fyrir veturinn
Michelin • Cooper • Loftbóludekk
• Ódýr jeppadekk • Bremsuklossar
• Bremsuviðgerðir
Smur, bón og
dekkjaþjónustan
Sætúni 4, sími 562 6066
Opið virka daga frá kl. 8-18
UMFELGUN OG
BALANSERING
VETRARDEKK
Þvottur og bón • Olís smurstöð
• Rúðuþurrkur • Allar perur
• Rafgeymar
Sagan bak við númersplötuna:
Ástin vekur athygli
Það var eiginmaðurinn semréð þessu,“ segir Bryndís
Svavarsdóttir, 47 ára gömul
námskona úr Hafnarfirði, um
elskulega númersplötuna á bíln-
um hennar og eiginmannsins
Lúthers Þorgeirssonar, en á plöt-
unni stendur hvorki meira né
minna en: ÁST. „Hann vildi endi-
lega fá einkanúmer á bílinn og
auðvitað er vandi að velja þegar
maður þarf svo að keyra með
þetta um allar götur. „Ástin“ hef-
ur auðvitað vakið athygli og mik-
ið spurt,“ sagði Bryndís.
Aðspurð um það hvort eigin-
maðurinn hafi verið að tjá henni
ást sína þegar hann keypti núm-
ersplötuna sagðist Bryndís vona
það. „Ég vona að hann elski mig
meira en bílinn. Annars er hann
ekki mikið fyrir það að tjá tilfinn-
ingar sínar og kannski er þetta
hans aðferð til þess. Ég varð
meira að segja að biðja hans og
bera þessa elsku yfir þröskuldinn
þegar við giftum okkur. Annars er
hann mjög kærleiksríkur og hef-
ur mikla ást á lífinu og tilverunni
yfirleitt. Kærleikurinn er mikil-
vægur þáttur í lífinu og óþarfi að
fara með hann í felur,“ sagði
kjarnorkukonan Bryndís, sem
stundar nám á Hraðbraut í Hafn-
arfirði og stefnir á guðfræðinám.
„Ég er komin á þann aldur að
ég þarf að drífa þetta af á tvöföld-
um hraða. Ég er þó ekkert að gefa
í á malbikinu eða í trimminu. Held
mig bara á mínum hraða,“ sagði
Bryndís, sem stundar langhlaup
og hleypur helst á hverjum degi
þegar tíminn leyfir en hún á að
baki hátt í fimmtíu maraþonhlaup
víða um heim. ■
Góð ráð
JÓN HEIÐAR
ÓLAFSSON
■ segir best að
gera tjóna-
skýrslu strax.
Á LEIÐ Í SKÓLANN
„Kærleikurinn er mikilvægur þáttur í lífinu og óþarfi að fara með hann í felur,“ segir Bryndís Svavarsdóttir, sem keyrir um á Toyota Land
Cruiser árgerð 1997, með ástina í bak og fyrir.
AP
/M
YN
D