Fréttablaðið - 13.02.2004, Blaðsíða 12
12 13. febrúar 2004 FÖSTUDAGUR
BLÓMASALI VIÐ ÁRBAKKANN
Árbakkinn í Phnom Penh er vinsæll hvort
tveggja meðal Kamdódíumanna og er-
lendra ferðamanna. Þetta vita sölumenn
eins og stúlkan á myndinni sem ber fat
fullt af lótusblómum á höfði sér.
Nýtt líf aðskildra síamstvíbura sem voru samvaxnir á höfði:
Læra eitthvað nýtt
á hverjum degi
DALLAS, AP Fjórum mánuðum eftir
að síamstvíburarnir Mohamed og
Ahmed Ibrahim voru aðskildir
eru þeir stöðugt að læra nýja hluti
sem þeir gátu ekki gert meðan
þeir voru samvaxnir á höfði.
Bræðurnir leika sér nú saman
og sjá hvorn annan andliti til and-
lits. Nokkuð sem var ómögulegt
fyrir þá áður en þeir voru aðskild-
ir rúmlega tveggja ára gamlir.
Fyrir þann tíma áttu þeir til að
lyfta höndum yfir höfuð sér og
takast í hendur. Nú kasta þeir og
sparka boltum á milli sín sem er
eitt af því sem þeir hafa lært sem
hluta af lífi sínu sem aðskildir ein-
staklingar.
„Þeir læra eitthvað nýtt á
hverjum degi,“ sagði Linda
Beisanz, einn þroskaþjálfanna
sem kenna strákunum að takast á
við nýtt líf. Þeir voru aðskildir í
34 klukkutíma aðgerð sem fram
fór í Dallas í október síðastliðnum
en eru fæddir í Egyptalandi.
Enn er þó langt í land. „Við
reynum að fá þá til að tala og
borða eins og börn á þeirra aldri
og leika við jafnaldra sína,“ segir
Jacob Makkappallil, annar
þroskaþjálfi þeirra. ■
Ögmundi hugnast
Svavarsvæðing VG
Þingflokksformaður VG segir Svavar Gestsson vera ódeigan baráttumann sósíalista og saknar hans.
Ósáttur og ósammála sumu sem andófsöflin innan VG hafa sett fram. Þolir þó vel gagnrýni.
STJÓRNMÁL „Mér finnst Svavars-
væðingin góð,“ segir Ögmundur
Jónasson, alþingismaður VG, í
grein á vefsíðu sinni ogmund-
ur.is vegna þeirrar óánægju sem
er innan Vinstri grænna meðal
grjótharðra sósíalista um að
flokkurinn hafi sveigst til hægri
og í raun snúið
baki við öreig-
um og láglauna-
fólki til að berj-
ast fyrir hags-
m u n a m á l u m
miðstéttarinn-
ar. Óánægju-
hópurinn hefur
meðal annars rætt um stóraukin
áhrif Svavars Gestssonar, sendi-
herra og fyrrverandi formanns
Alþýðubandalagsins, og hans
fólks innan VG.
„Svavar Gestsson, fyrrverandi
alþingismaður, var einhver dug-
legasti og ódeigasti baráttumaður
í hreyfingu sósíalista um árabil.
Svavar hamaðist í pólitík lengur
en flestir hafa gert og sér víða
stað verka hans. Löngum þótti
mér mikið til Svavars koma sem
stjórnmálamanns og saknaði þess
þegar hann hvarf af vettvangi
stjórnmálanna, mér liggur við að
segja fyrir aldur fram,“ segir Ög-
mundur á heimasíðu sinni.
Um þau ættmenni Svavars sem
komist hafa til áhrifa segir Ög-
mundur að allt sé þetta sérstakt
öndvegisfólk og mikill fengur sé
fyrir hreyfinguna að fá til liðs við
sig.
„Ef menn vilja kalla þetta
Svavarsvæðingu, þá styð ég hana
heilshugar. Ekki ætla ég að gera
upp á milli þessa fólks en sem
flokksfélagi í Reykjavík vil ég
segja að Svandís Svavarsdóttir,
formaður okkar, er geislandi bar-
áttukona,“ segir Ögmundur.
Ögmundur segir að nokkuð
hafi verið um heitingar af hálfu
einstaklinga sem honum séu kær-
ir og hann meti mikils.
„Um sumt sem sagt hefur ver-
ið hef ég ekki verið sammála;
sumt hef ég meira að segja verið
mjög ósáttur við. En hitt, að sam-
an komi hópur félaga í VG, eins og
fram hefur komið í fjölmiðlum, til
að ræða áherslur í flokksstarfinu
og þess vegna gagnrýna okkur
sem erum á þingi eða annars stað-
ar í forsvari fyrir flokkinn, er
nokkuð sem allir ættu að forðast
að leggja út á versta veg. Þarna er
um að ræða marga gamalgróna
baráttujaxla, fólk sem hefur stað-
ið í áratugi í eldlínunni og unnið
hreyfingunni ekki síður en hinir
sem starfað hafa undir kastljósi
fjölmiðlanna,“ segir Ögmundur.
Steingrímur J. Sigfússon, for-
maður VG, sem gagnrýni
andófsaflanna beinist að nokkru
leyti að, vildi ekkert tjá sig um
málið en kvaðst myndu skrifa um
það grein á heimasíðu VG.
rt@frettabladid.is
„Um sumt
sem sagt hef-
ur verið hef
ég ekki verið
sammála
1. flokki 1989 – 53. útdráttur
1. flokki 1990 – 50. útdráttur
2. flokki 1990 – 49. útdráttur
2. flokki 1991 – 47. útdráttur
3. flokki 1992 – 42. útdráttur
2. flokki 1993 – 38. útdráttur
2. flokki 1994 – 35. útdráttur
3. flokki 1994 – 34. útdráttur
Frá og með 15. febrúar 2004 hefst innlausn
á útdregnum húsbréfum í eftirtöldum flokkum:
Innlausnarverðið er að finna í Morgunblaðinu
föstudaginn 13. febrúar.
Innlausn húsbréfa fer fram hjá Íbúðalánasjóði, í bönkum,
sparisjóðum og verðbréfafyrirtækjum og liggja þar einnig
frammi upplýsingar um útdregin húsbréf.
Innlausn
húsbréfa
Húsbréf
THOMAS DUPRE
Biskup rómversk-kaþólsku kirkjunnar í
Springfield í Massachusetts hefur verið
sakaður um kynferðislega misnotkun á
tveimur ungum drengjum.
Biskup segir af sér:
Sakaður um
kynferðisbrot
MASSACHUSETTS, AP Biskup rómversk-
kaþólsku kirkjunnar í Springfield í
Massachusetts sagði af sér af heilsu-
farsástæðum daginn eftir að fjöl-
miðlar greindu frá því að hann hefði
verið sakaður um kynferðisbrot.
Dagblaðið The Republican hefur
það eftir ónafngreindri konu að bisk-
upinn Thomas Dupre hafi misnotað
son hennar og annan ungan dreng
þegar hann var sóknarprestur á átt-
unda áratugnum. Yfirmenn kirkju-
deildarinnar segja að þeim sé ekki
kunnugt um neinar ásakanir á hend-
ur Dupre.
Einn af prestum safnaðarins hef-
ur verið dæmdur fyrir kynferðisbrot
gegn fjölda ungra drengja og sökuðu
verjendur fórnarlambanna Dupre
um að hylma yfir með honum. ■
LÆRA Á NÝTT LÍF
Mohamed, til vinstri, og Ahmed, til hægri, læra nú á líf sem aðskildir einstaklingar sem
geta farið hvor í sína áttina.
FORYSTAN
Ögmundur Jónasson lýsir aðdáun sinni á Svavari Gestssyni, sendiherra og fyrrverandi
formanni Alþýðubandalagsins. Steingrímur J. Sigfússon vill ekkert um gagnrýni
harðlínumanna í flokknum segja.
ALÞINGI Formenn þingflokka á Al-
þingi komu saman á stéttinni fyr-
ir utan Alþingishúsið í gær og
fylgdust með því þegar Rúnar
Guðbrandsson leikstjóri flutti til-
mæli um nýju eftirlaunalögin frá
um 2000 kjósendum alls staðar að
af landinu. Vefurinn almenning-
ur.is hafði frumkvæði að gjörn-
ingnum. Stjórnvöld voru hvött til
þess að endurskoða lög um eftir-
laun forseta Íslands, ráðherra, al-
þingismanna og hæstaréttardóm-
ara, sem sett voru 15. desember
síðastliðinn, og beðin um að hafa
það að leiðarljósi að almenningur
og kjörnir fulltrúar almennings
byggju í grundvallaratriðum við
sömu eftirlaunaréttindi.
„Forréttindi ganga gegn rétt-
lætis- og lýðræðishugmyndum
þorra landsmanna, sérstaklega
forréttindi kjörinna fulltrúa. Þeir
sem kjörnir eru til að setja lögin
mega hvorki búa sjálfum sér
almenn réttindi umfram þau sem
umbjóðendur þeirra njóta né
afmarka almenningi grundvallar-
réttindi sem þeir sjálfir vilja ekki
una við og telja ófullnægjandi,“
sagði Rúnar Guðbrandsson þegar
hann flutti þingflokkunum skila-
boð kjósenda. ■
Tilmæli til alþingismanna:
Eftirlaunalög verði endurskoðuð
ÞINGFLOKKSFORMENN TAKA VIÐ TILMÆLUM
Formenn þingflokkanna á Alþingi taka við tilælum frá almenningi.is þar sem stjórnvöld
voru hvött til þess að endurskoða lögin um eftirlaun æðstu embætta landsins.