Fréttablaðið - 13.02.2004, Blaðsíða 19
19FÖSTUDAGUR 13. febrúar 2004
Mikil gleði ríkti í Fjölskyldu- oghúsdýragarðinum fyrr í vik-
unni þegar kýrin Gráskinna bar fal-
legri rauðhuppóttri stjörnóttri
kvígu. Kvígan litla er sannkallað af-
kvæmi Húsdýragarðsins, því Grá-
skinna var fyrsta kýrin sem fædd-
ist í garðinum. Sú stutta er einnig
undan merkisnautinu Guttormi
sem er eitt frægasta naut landsins.
Þetta er áttundi kálfur Gráskinnu
en áður hefur einn kálfur hennar
drepist við burð og annan þurfti að
taka með keisaraskurði og var því
nefndur Keisari. Vegna þeirrar
kátínu sem ríkti á þriðjudagskvöld-
ið í Fjölskyldu- og húsdýragarðin-
um þegar burðurinn gekk vel hlaut
litla kvígan nafnið Kátína. ■
Mikil kátína í
Húsdýragarðinum
KVÍGAN KÁTÍNA
Nýjasta viðbótin í Fjölskyldu- og húsdýra-
garðinum er undan Gráskinnu og Gutt-
ormi. Hún hlaut þó ekki nafnið Guttskinna.
SNÚÐU
VIÐ
BLAÐINU
Óvættur dagsins
Jason Voorhees er einn þekktastimorðingi kvikmyndasögunnar en
hann hefur farið hamförum í ótrú-
legum fjölda unglingahryllings-
mynda og er þar í flokki ekki minni
manna en Michael Myers úr Hall-
oween myndunum og Freddy úr
martraðamyndunum kenndum við
Álmstræti.
Föstudagurinn 13. er annálaður
ólukkudagur og það fer því vel á því
að Jason láti til sín taka þegar þessi
óheppilega sameining mánaðar- og
vikudags skýtur upp kollinum á
dagatalinu.
Fyrsta Friday 13th myndin kom
út árið 1980 en þá var það móður
Jasons, Pamela Voorhees, sem kom
unglingum, sem hún taldi bera
ábyrgð á dauða sonar síns, fyrir
kattarnef. Jason reis síðan upp og
tók við af mömmu sinni í endalaus-
um fjölda framhaldsmynda. ■
Skrímsli
FÖSTUDAGURINN 13
■ Yfirnáttúrlegi morðinginn Jason
Voorhees lætur reglulega til skarar skríða
í hryllingsmyndum kenndum við
föstudaginn þrettánda.
JASON
Er einn nafntogaðasti morðingi kvikmynda-
sögunnar en endalaus framhaldsmynda-
serían um hann er kennd við föstudaginn
13. en eins og gefur að skilja boðar það ekki
mikla gæfu að verða á vegi kappans.
Ekkert óheppnari á
föstudeginum 13.
Það fer nú lítið fyrir hjátrú hjámér,“ segir Halldór Einarsson
hönnuður. „Ég kalla það ekki hjá-
trú að nudda hársvörðinn á fólki
af belgískum uppruna til að fá
aukið fjárstreymi eða að kasta
krónu á eftir nunnu til að tryggja
að veturinn verði mildur. Þetta er
svona það helsta sem ég geri sem
þröngsýnt fólk gæti flokkað sem
hjátrú, jú reyndar er eitt í viðbót
og það hafa margir reynt og sann-
að að er rétt. Það að bera olíu á
sólana á skóm móðursystur þinn-
ar tryggir góðan hlátur.“
Föstudagurinn 13. hefur alltaf
verið Halldóri góður, fyrir utan
einn árið 1998. „Ég pantaði mér
ítalskan bíl en þar má kenna um
vanþekkingu á bifreiðum frekar
en álögum. Hins vegar hefur það
alltaf fylgt mér að lenda í skrítn-
um hlutum á föstudeginum þrett-
ánda og þessum 13. föstudegi
mun ég verja í lítilli kompu inn á
Nelly’s við það að blása upp vel á
annað þúsund gasblöðrur. En ég
vil þakka blaðamanni kærlega
fyrir það að redda föstudags-
kvöldinu og nú ætla ég að slást
við hópinn allan af fólki úti á
vídeóleigu til að reyna að tryggja
mér eintak af Friday the Thir-
teenth.“ ■
Hjátrú
■ Orðið paraskevidekatriaphobia stend-
ur fyrir hræðslu við föstudaginn þrett-
ánda. Fleiri eru haldnir þessari hræðslu
en vilja viðurkenna þó svo vísindalega
sannanir styðji ekki þá hjátrú að fólk sé
óheppnara á þessum degi en öðrum.
HALLDÓR EINARSSON
Ætlar að verja þessum 13. föstudegi í lítilli kompu við það að blása upp vel á annað
þúsund gasblöðrur.