Fréttablaðið - 13.02.2004, Page 23

Fréttablaðið - 13.02.2004, Page 23
Nýlega kom út geisladiskurinnTáknmálsleikir 1 sem er margmiðlunarefni ætlað heyrnar- lausum börnum á aldrinum fjög- urra til sjö ára, foreldrum þeirra og aðstandendum. Markmiðið með leikjunum er að örva mál- þroska heyrnarlausra barna og veita kennslu í táknmáli. Leikirnir koma út á geisladiski. Þeir eru átta talsins, sex fyrir börn og tvö verkefni fyrir foreldra. Efnið byggist á myndum, hreyfingu og stuttum táknmálstextum. Táknmálsleikir 1 er samstarfs- verkefni Samskiptamiðstöðvar heyrnarlausra og heyrnarskertra og Námsgagnastofnunar. Náms- gagnastofnun annast dreifingu til grunnskóla en Samskiptamiðstöð- in til aðila utan þeirra. Efnið er þýðing á norska táknmálsefninu TegnRom1. Með útgáfu efnisins Táknmáls- leikir 1 er leitast við að koma til móts við aðalnámskrá grunnskóla en þar er lögð áhersla á að tákn- mál hafi grundvallarþýðingu fyr- ir málþroska, persónuleika og hugsun heyrnarlausra nemenda. Enn fremur segir að táknmál gegni lykilhlutverki í skóla fyrir heyrnarlausa og heyrnarskerta og þroski hugsun nemenda og sköp- unargáfu. ■ 23FÖSTUDAGUR 13. febrúar 2004 Á morgun: Laugavegi 53, simi. 552 3737 NÝJAR VÖRUR KOMNAR Síðasta helgi útsölu - meiri lækkun Öskudagur nálgast og inn umlúgurnar læðast bæklingar með auglýsingum um grímubún- inga fyrir börnin. Það má gera því skóna að þeim fækki sífellt sem sauma slíka búninga sjálfir, enda eru tilbúnu búningarnir orðnir miklu ódýrari en áður. En í auglýsingabæklingunum er mjög stöðluðum kynjahlutverk- um haldið að börnunum. Stelpur eru þar sýndar í bleikum eða hvítum prinsessu- og álfabúning- um. Drengirnir eru hins vegar í hlutverki ofurhetja eins og Leð- urblökumannsins eða jafnvel í hermannabúningum, með byssu eða önnur vopn í hendi. Katrín Anna Guðmundsdóttir, ráðskona staðalímyndahóps Femínistafélags Íslands, segir mikilvægt að börnin fái tækifæri til að velja sjálf og að við yfir- færum ekki okkar hugmyndir um kynjahlutverk yfir á börnin. Hún segist vilja benda leikfanga- búðum á að skoða þær ímyndir sem settar eru fram í bæklingum af þessu tagi. „Það er eins og gengið sé út frá því sem vísu að búið sé að sanna að svona sé eðli stráka og stelpna. Þar af leið- andi gefum við börnun- um ekki tækifæri til að velja og komumst ekki út úr þessum hlut- verkum. Karlmennskuímyndinni fylgir oft ákveðin hugmynd um ofbeldi, til dæmis byssur eða sverð. Stelpur eru hins vegar aldar upp í að vera prinsessur, sætar og góðar. Við verðum að gefa börnunum fjölbreyttari fyr- irmyndir og þarna bera leik- fangabúðirnar vissa ábyrgð. Börn eru að uppgötva sjálf sig og lífið í kringum sig og fara eftir því sem þau sjá, hvað gera stelp- ur og hvað gera strákar. Ekki má láta líta út fyrir að strákar hafi einkarétt á einu og stelpur öðru og að búið sé að móta þeim hlut- verk fyrir fram.“ Katrín Anna segir að þessi umræða hafi einnig vaknað fyrir síðustu jól, en þá var það sama uppi á teningnum og í auglýs- ingabæklingum mátti finna stelpuhluti og strákahluti. „Við erum föst í þessum staðalímynd- um og það þarf meðvitað átak gegn þeim. Þá getum við kannski brotist út úr þessu fari.“ audur@frettabladid.is Margmiðlunarefni fyrir heyrnarlausa: Leikir sem örva málþroska TÁKNMÁLSLEIKIR Átta verkefni eru á disknum, sex fyrir börn og tveir fyrir foreldra. KATRÍN ANNA GUÐMUNDSDÓTTIR Ráðskona staðalímynda- hóps Femínistafélags Íslands. Öskudagsbúningar og kynjahlutverk: Börnin fái tækifæri til að velja sjálf OFURHETJA OG PRINSESSA Börn fá afar eindregin skilaboð um hvert þeirra kynhlutverk er. Leikskólakennarar álykta: Áhyggjur af stefnuleysi Stjórn Félags leikskólakennarahefur sent frá sér ályktun þar sem lýst er yfir áhyggjum vegna stefnuleysis margra sveitarstjórna um fyrirkomulag sumarleyfa leik- skóla. „Félag leikskólakennara hefur lengi haft í stefnuskrá sinni að loka beri leikskólum a.m.k. fjórar vikur samfleytt á hverju sumri og hefur hvatt öll sveitarfélög til að gera slíkt. Í leikskólastefnu félagsins stendur: FL leggur áherslu á að leikskólum sé lokað að minnsta kosti 4 vikur sam- fellt á sumrin og að leikskólastarf- semi sé skipulögð þannig að leik- skólaárið hafi upphaf og endi,“ segir meðal annars í ályktuninni. ■ Fyrirtækið Icekart á Íslandi,sem rekur farandleigu gokart- bíla, er þessa dagana að kynna ökukennslu fyrir börn 10 ára og eldri og fer kennslan fram á sér- útbúnum rafdrifnum gokart-bíl- um. Að sögn Charles Onken, verk- efnastjóra Icekart, er fyrsta nám- skeiðinu þegar lokið en það var haldið í desember á yfirbyggðu bílastæði Kringlunnar. „Við erum búnir að missa þá aðstöðu þannig að við erum nú háðir veðri og vindum en höfum tryggt okkur nokkur svæði í borg- inni og bíðum batnandi veðurs. Skráning er í fullum gangi og það eru þegar komnir langir biðlistar. Við setjum öryggið á oddinn og getum fjarstýrt kraftinum í bílun- um, sem eru stilltir miðað við ald- ur og getu nemenda. Við getum líka slökkt á bílunum ef okkur sýnist svo og erum tryggðir í bak og fyrir. Við erum ekki að kenna umferðarreglur heldur gengur þetta út á það að fá tilfinningu fyrir bílnum, þjálfa fjarlægðar- skynið og viðbragð og nákvæmni í stjórn bílsins eins og við beygjur og bremsun,“ sagði Charles. Allar nánari upplýsingar um ökuskólann og bílana er að finna á vefsíðu Icekart: icekart.com. ■ Ökuskóli fyrir 10 ára og eldri: Öryggið sett á oddinn KENNSLUBÍLL Gokart-bílar með öllum nauðsynlegum öryggisbúnaði eru notaðir við kennsluna.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.