Fréttablaðið - 13.02.2004, Side 24
13. febrúar 2004 FÖSTUDAGURhvað?hvar?hvenær?
10 11 12 13 14 15 16
FEBRÚAR
Föstudagur
Þetta er lítill leikþáttur um tværstelpur að tala saman,“ segir
Ólöf Sverrissdóttir hjá Furðuleik-
húsinu um „Eins og fuglar himins-
ins“, leiksýningu fyrir börn sem
frumsýnd verður í Álftamýrar-
skóla í dag.
„Umræður þeirra fara að snúast
um traust, því önnur þeirra er svo-
lítið hrædd. Hún stendur sig ekki
mjög vel, hvorki í leikfimi né öðru.
Hin er aftur á móti miklu öruggari
með sig og greinilega mjög góð í
öllu í skólanum. Samt eru þær góð-
ar vinkonur og þær komast að því í
gegnum þessa umræðu að það
borgi sig að treysta, það geri ekk-
ert til þó maður geri mistök.“
Út frá þessu spinnst líka um-
ræða milli þeirra um Guð, enda eru
hugtökin „traust“ og „trú“ nátengd.
„Þær eru að spekúlera í því
hvort Guð sé þessi refsandi Guð,
eða hvort hann sé bara algóður og
fyrirgefi allt.“
Heiti sýningarinnar vísar að
sjálfsögðu í Biblíuna, þar sem fólk
er hvatt til þess að hafa ekki of
miklar áhyggjur af morgundegin-
um.
„Þessi hugmynd þróaðist
kannski fyrst út frá því að ég átti
sjálf í erfiðleikum með að treysta
ýmsu í lífinu. Þá fór ég að velta
fyrir mér þessu með fugla himins-
ins, og hvort það sé ekki tómt
kæruleysi að hugsa ekki fyrir
framtíðinni. En ég held að við
hugsum alltof mikið um það
hvernig hlutirnir fari, því í raun
og veru sköpum við okkur stund-
um verri framtíð ef við sjáum
hlutina alltaf fyrir okkur út frá
óttanum.“
Ólöf er höfundur sýningarinn-
ar ásamt leikhópnum. Ólafur Guð-
mundsson leikstýrir. Þau Ólöf og
Ólafur eru kjarninn í Furðuleik-
húsinu, sem starfað hefur í tíu ár.
„Við byrjuðum sem lítill leik-
hópur í Fjölskyldugarðinum þar
sem við vorum með götuleikhúsið
Furðufjölskyldan. Eftir það
ákváðum við að halda þessu
áfram og Furðufjölskyldan varð
að Furðuleikhúsinu. Við höfum
sýnt fjölda leikrita. Byrjuðum á
litlum ævintýrum sem fóru í leik-
skólana, og síðan hefur þetta
smám saman vaxið hjá okkur.“ ■
Hvetja börn til að treysta
■ LEIKLIST
fös. 13. feb. - nokkur sæti laus
lau. 14. feb. - nokkur sæti laus
fös. 20. feb. - nokkur sæti laus
lau. 21. feb.
fös. 27. feb.
lau. 28. feb.
„Frábært - drepfyndið -
átakanlegt“
Ekki við hæfi barna
fös. 13. febrúar kl. 20 -örfá sæti laus
fös. 20. febrúar kl. 20 -laus sæti
lau. 21. febrúar kl. 20 -örfá sæti laus
fös. 27. febrúar kl. 20 -laus sæti
lau. 6. mars kl. 20 -laus sæti
lau. 13. mars kl. 20 -laus sæti
Gríman 2003
„Besta leiksýning ársins“
fös 13. feb kl. 20.00 örfá sæti
lau 14. feb kl. 19.00 örfá sæti
lau 21. feb kl. 19.00 nokkur sæti
fim 26. feb. kl. 21.00 nokkur sæti
lau 28. feb kl. 19.00 laus sæti
Sjá nánari upplýsingar á
www.sellofon.is
Miðasölusími í IÐNO 562 9700
og sellofon@mmedia.is
Edda Björgvinsdóttir leikkonahefur tekið á móti gestum í
Iðnó undanfarið í hádeginu á
föstudögum. Þar hefur hún verið
með uppistand yfir súpu og
heimabökuðu brauði þar sem hún
spjallar á sínum óborganlegu nót-
um um miðaldrakrísuna, og þá
ekki síst hvernig það er að vera
miðaldra hippi.
Hádegisuppistand Eddu hófst í
október síðastliðnum og komust
lengi vel færri að en vilja, en nú í
hádeginu er síðasta tækifærið því
Edda hefur meira en nóg að gera á
öðrum vígstöðvum.
Hún er að leika í 5stelpur.com,
sem hefur heldur betur slegið í
gegn í Austurbæ. Síðan er hún að
fara af stað með kabarett á Kaffi
Reykjavík ásamt syni sínum,
Björgvini Franz Gíslasyni.
„Hún verður veislustjóri. Síðan
verðum við Kristjana Skúladóttir
með söngdúettinn okkar, Geira og
Villu. Svo ætlum við að hafa ýmist
gestagrínara eða gestasöngvara,“
segir Björgvin Franz.
Fyrsta kabarettkvöldið verður
annað kvöld, og þá fá þau til liðs
við sig þau Pál Óskar og Moniku. ■
ER GUÐ GÓÐUR?
Leikþátturinn „Eins og fuglar himins-
ins“ verður frumsýndur í Álftamýrar-
skóla í dag. Þarna sjást Ingibjörg Stef-
ánsdóttir og Ásta Sighvats Ólafsdóttir í
hlutverkum sínum.
■ ■ TÓNLEIKAR
19.30 Bandaríska kvennapönk-
sveitin Harum Scarum spilar í TÞM, eða
Tónlistarþróunarmiðstöðinni, sem er
staðsett að Hólmaslóð 2 út á Granda.
Einnig spila hljómsveitirnar Dys, Inn-
vortis, Heiða og Heiðingjarnir og
Hryðjuverk. Ekkert aldurstakmark.
■ ■ LEIKLIST
10.00 Furðuleikhúsið frumsýnir
leikritið Eins og fuglar himinsins í
Álftamýrarskóla. Höfundur er Ólöf Sverr-
isdóttir og leikhópurinn. Leikstjóri er
Ólafur Guðmundsson. Leikarar eru Ingi-
björg Stefánsdóttir og Ásta Sighvats
Ólafsdóttir. Tónlistina samdi Ingibjörg
Stefánsdóttir.
12.00 Uppistand Eddu Björgvins-
dóttur í hádeginu í Iðnó.
20.00 Borgarleikhúsið sýnir
Chicago eftir J. Kander, F. Ebb og B.
Fosse á stóra sviðinu.
20.00 Borgarleikhúsið sýnir Spor-
vagninn Girnd eftir Tennessee Willi-
ams á nýja sviðinu.
20.00 Loftkastalinn sýnir Eldað
með Elvis.
20.00 Þjóðleikhúsið sýnir Sólin
gleymdi dagsins háttatíma í síðasta
skiptið á stóra sviðinu.
20.00 Hafnarfjarðarleikhúsið sýn-
ir Meistarann og Margarítuna.
20.30 Leikdeild Ungmennafélags-
ins Eflingar frumsýnir Landsmótið, sem
er nýtt frumsamið leikverk eftir þá Jó-
hannes Sigurjónsson og Hörð Þór Ben-
ónýsson. Leikstjóri er Arnór Benónýsson
og Jaan Alavere stýrir tónlistinni. Verkið
er sýnt í félagsheimilinu Breiðumýri,
Reykjadal.
21.00 Einleikurinn, Sellófon eftir
Björk Jakobsdóttur, er sýndur í Iðnó.
■ ■ SKEMMTANIR
23.00 Brimkló verða á Players,
Kópavogi.
23.00 Blúskvöld á Grand Rokk.
23.00 Í svörtum fötum verður í fé-
lagsheimilinu Hnífsdal í kvöld.
Hljómar frá Keflavík verða með
stórdansleik á Kringlukránni.
■ ■ DANSLIST
20.30 Danshópurinn Lipurtré
stendur fyrir danssýningu í Tjarnarbíói.
Miðasala er í Tjarnarbíói.
EDDA BJÖRGVINS
Síðasta hádegisuppistandið í Iðnó verður í dag.
Tekst á
við krísu
■ LEIKSÝNING