Fréttablaðið - 13.02.2004, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 13.02.2004, Blaðsíða 40
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500 Bakþankar GUÐMUNDAR STEINGRÍMSSONAR Að ræna banka Ísland er ekki gott land til hefð-bundinna bankarána. Þetta sést glöggt þegar litið er yfir bankarán undanfarinna mánuða. Einn náungi rændi banka á Suðurnesjum og skil- di ránsfenginn eftir í skjalatösku, að mig minnir, við afleggjarann að Bláa lóninu. Auðvitað klikkaði þetta. Þýskir ferðamenn fundu auðvitað ránsfenginn og fóru með hann, eftir þó nokkuð strögl, til lögreglunnar. ANNAR RÆNDI banka á Eiðis- torgi og ætlaði síðan að komast und- an í strætó. Það mistókst auðvitað. Hann var handtekinn í strætóskýl- inu. Maður hefði nú haldið að eftir að hafa rænt banka myndu menn splæsa í leigubíl, en það var nú ekki. Og núna í vikunni var banka- rán í Hveragerði. Þar gerðu menn þau algjöru grundvallarmistök að velja Hveragerði til verknaðarins. Þessir aðilar náðust auðvitað á hlaupum um bæinn skömmu eftir ránið. Þeir voru líka bíllausir og hvert geta menn farið eftir að hafa rænt banka í Hveragerði? MÁLIÐ ER að það er afskaplega erfitt að ræna banka á Íslandi yfir- höfuð og komast upp með það. Bara það að þjóðvegurinn skuli liggja í hring skapar ákveðin vandræði. Þó svo að bankaræningjarnir séu á bíl, og reykspóli í burtu frá vettvangi, þá þarf löggan í raun og veru ekki annað en að bíða í nokkra daga þangað til ræningarnir koma aftur úr hinni áttinni. OG SVO er auðvitað bara leiðin- legt að ræna banka á Íslandi. Það er lítið upp úr því að hafa, því pening- arnir eru flestir einhvers staðar annars staðar en í gjaldkerakössun- um, og svo er líka endalaust rok. Menn eru að göslast þetta í slyddu og sudda, dettandi á hausinn á hálkublettum. Og svo þekkja mann allir. Það er nú eitt. Í rauninni er ómögulegt að ræna banka á Íslandi eftir hefðbundnum leiðum. Eina leiðin er auðvitað bara sú að verða sér úti um fé í Rússlandi og kaupa helvítið. Það þýðir ekkert annað. ■ undur.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.