Fréttablaðið - 12.05.2004, Síða 29
21MIÐVIKUDAGUR 12. maí 2004
FÓTBOLTI Forsætisráðherra Taílands,
Thaksin Shinawatra, er talinn hafa
náð samkomulagi um kaup á 30 pró-
senta hlut í Liverpool, sigursælasta
liði enskrar knattspyrnusögu. For-
stjóri Liverpool, Rick Parry, átti
fund með forsætisráðherranum í
gær þar sem nánast var gengið frá
samningi um kaupin en ennþá á eft-
ir að leggja lokahönd á hann. Tals-
maður ríkisstjórnar Taílands,
Jakrapob Penkair, vildi ekki fara út
í nein smáatriði en lét hafa þetta
eftir sér: „Þetta er nánast 100 pró-
sent frágengið, báðir aðilar eru
þess fullvissir að kaupin gangi í
gegn og hvað okkur varðar er þetta
mál frágengið,“ sagði Penkair og
bætti við: „Við kaupum í nafni
Taílands.“ Forráðamenn Liverpool
hafa neitað að staðfesta samkomu-
lagið og segjast aðeins munu gefa
út opinbera yfirlýsingu í samráði
við ríkisstjórn Taílands þegar
samningurinn er fullfrágenginn. 30
prósenta hlutur í Liverpool er met-
inn á um 7,5 milljarða króna sem
stjórnvöld í Taílandi munu fjár-
magna en þarlendum kaupsýslu-
mönnum mun verða boðin aðild að
kaupunum. Líklegast er talið að
mestur hluti þessara 30 prósenta
komi frá David Moores, sem er
stjórnarformaður Liverpool og á
sem stendur 51 prósent í félaginu.
Næststærstu hluthafar í Liverpool
eru sjónvarpsfélagið Granada með
9 prósent hlut og kaupsýslumaður-
inn Steve Morgan sem á 5 prósent.
Í kjölfar þessara væntanlegu kaupa
er talið líklegt að Gerard Houllier,
framkvæmdastjóri Liverpool, fái
eitthvað um 40 milljónir punda eða
meira til leikmannakaupa í sumar
en félagið hefur ekki hampað enska
meistaratitlinum síðan vorið 1990.
Mikillar óþreyju hefur gætt hjá
stuðningsmönnum Liverpool und-
anfarin ár og í vetur voru uppi há-
værar kröfur um afsögn Houlliers
enda var gengi liðsins á tímabili
arfaslakt auk þess sem það þótti
leika verulega leiðinlega knatt-
spyrnu. En með góðum endaspretti
virðist Liverpool ætla að tryggja
sér sæti í Meistaradeildinni á
næstu leiktíð og það ásamt væntan-
legum kaupum Taílendinganna
sendir bjartsýnisbylgjur um nánast
gjörvalla bítlaborgina og gæti fest
Gerard Houllier í sessi. ■
FÓTBOLTI Fjöldi útsendara frá er-
lendum félagsliðum hefur boðað
komu sína á fyrstu umferð Lands-
bankadeildarinnar í knattspyrnu
sem hefst á laugardaginn með leik
KR og FH. Samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins mun einn nánasti
aðstoðarmaður Arsene Wenger,
knattspyrnustjóra Arsenal, koma
til landsins og horfa á þrjá leiki,
KR-FH á laugardeginum, og ÍA-
Fylkir og Fram-Víkingur á sunnu-
deginum. Aukinheldur mun hann
kíkja á leiki í yngri flokkum. Út-
sendari frá ítalska félaginu
Brescia mun vera meðal áhorf-
enda á KR-vellinum á laugardag-
inn sem og útsendari frá fær-
eyska landsliðinu en hann mun sjá
sömu leiki og útsendari Arsenal.
Íslenskir knattspyrnumenn virð-
ast vera í tísku um þessar mundir
enda hefur frammistaða margra
þeirra leikmanna sem spilað hafa
erlendri grund í vetur verið til
fyrirmyndar. ■
Ítalski fótboltinn:
Úrslitum
hagrætt?
FÓTBOLTI Lögreglan á Ítalíu hefur
hafið rannsókn á því hvort úrslit-
um leikja í deildakeppninni hafi
verið hagrætt. Tólf félög munu
vera undir smásjá lögreglunnar
en aðeins Siena og Chievo hafa
staðfest að lögreglan hafi heim-
sótt þau vegna málsins.
Fimm leikmenn, þrír þeirra frá
Siena, sæta rannsókn vegna máls-
ins en í yfirlýsingu frá Siena kem-
ur fram að félagið hafi ekki verið
sakað um ólöglegt athæfi. Í yfir-
lýsingu frá Chievo kemur fram að
hvorki félagið né leikmenn þess
sæti rannsókn og að lögreglan
hafi ekki gert gögn upptæk. ■
Tælandi tilboð í Liverpool
Austurlandahraðlestin hefur viðkomu í bítlaborginni.
HEIÐURSMANNASAMKOMULAG
Hér sjást þeir Rick Parry, forstjóri Liverpool, og Thaksin Shinawatra, forsætisráðherra
Taílands, á fundi í Bangkok, höfuðborg Taílands, í gær. Kaupin á stórum hlut í Liverpool
eru nánast frágengin.
Landsbankadeild karla:
Allt morandi í
útsendurum
BIRKIR ÍVAR GUÐMUNDSSON
Varði 22 skot í leiknum í gærkvöldi.
Sannfærandi
sigur Hauka
Haukar unnu Val 29-23 að Hlíðarenda og leiða 2-0
í einvígi félaganna um Íslandsmeistaratitilinn.
HANDBOLTI Frábær seinni hálfleikur
færði Haukum sigur á Val í öðrum
leik félagann um Íslandsmeistara-
titilinn í handbolta. Valsmenn leid-
du með tveimur mörkum í hléi en í
fyrri hluta seinni hálfleiks skoruðu
Haukar níu mörk á móti einu og
breyttu stöðunni úr 11-13 í 20-14.
Þessi munur hélst lítið breyttur
fram eftir hálfleiknum en Valsmenn
náðu að minnka muninn í 26-23 seint
í leiknum eftir að tveimur leik-
mönnum Hauka var vikið af velli.
Valsmenn misstu tvo menn af velli
skömmu síðar og Haukarnir náðu
aftur sex marka forystu.
Birkir Ívar Guðmundsson, mark-
vörður Hauka, sagði að þessi rosa-
legi kafli í byrjun seinni hálfleiks
hefði ráðið úrslitum. Hann var ekki
ánægður með fyrri hálfleikinn og
sagði að Valsarar gætu sjálfum sér
um kennt að hafa ekki haft meiri
forystu í leikhléi.
Óskar Bjarni Óskarsson, þjálfari
Vals, var ánægður með fyrri hálf-
leikinn. Hann sagði að þá hefðu
Valsmenn leikið eins og hann hafi
lagt fyrir þá. Baráttan var frábær,
varnarleikurinn góður og þeir voru
skynsamir í sókninni. Í seinni hálf-
leik hafi Birkir Ívar dottið í stuð og
unnið leikinn fyrir Hauka.
Haukar eru með góða stöðu eftir
tvo sigurleiki en Birkir Ívar sagði
að þeir væru ekki byrjaðir að fagna
titlinum, enda hefðu Valsmenn sýnt
að aldrei væri hægt að afskrifa þá.
Haukarnir ætluðu að gefa allt í að
ná titlinum á morgun og það væri
klárlega markmiðið.
Óskar sagði að Valsmenn stæðu
höllum fæti en þeir væru langt frá
því að vera hættir. Hann sagði að
Valsmenn tryðu því að þeir ættu
enn möguleika á sigri. Þeir ætluðu
að gefa allt í leikinn á morgun en
það væri spurning hvort það væri
nóg.
Brendan Þorvaldsson skoraði
sex mörk fyrir Val, Baldvin Þor-
steinsson fimm, Markús Máni
Michaelsson fjögur, Hjalti Þór
Pálmason þrjú, Ragnar Ægisson tvö
og Bjarki Sigurðsson, Heimir Örn
Árnason og Hjalti Gylfason eitt
hver.
Pálmar Pétursson varði nítján
skot.
Ásgeir Örn Hallgrímsson skor-
aði tíu af mörkum Hauka, Halldór
Ingólfsson fimm, Andri Stefan og
Þórir Ólafsson þrjú hvor, Robertas
Pauzuolis, Þorkell Magnússon og
Vignir Svavarsson tvö hver og Gísli
Jón Þórisson eitt.
Birkir Ívar Guðmundsson varði
22 skot.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R