Fréttablaðið - 12.05.2004, Qupperneq 30
Í þessu verki er geysilegasterkur friðarboðskapur sem
mér finnst vera vel við hæfi
núna, þegar allir eru að tala um
stríð og þátttöku okkar í stríði,“
segir Björn Thorarensen um
Vopnaða manninn, friðarmessu
sem VÍS-kórinn ætlar að flytja í
Seltjarnarneskirkju í kvöld.
„Þetta fjallar um það hvað
stríð eru hryllileg og það er far-
ið í gegnum allan tilfinninga-
skalann sem fylgir því sem ger-
ist í stríði.“
Vopnaði maðurinn, eða
L’Homme Armé, er upprunalega
franskt þjóðlag frá 15. öld þar
sem segir frá því að vopnaði
maðurinn sé varasamur og að nú
sé hrópað um allt að allir skuli
vígbúast og klæðast hettu-
brynju úr járni.
Fjölmörg tónskáld hafa
samið tónverk í kringum þetta
stutta stef, flestir reyndar á 16.
og 17. öld, en verkið sem VÍS-
kórinn flytur er eftir velska tón-
skáldið Karl Jenkins.
„Þessi Jenkins er svolítið
merkilegur náungi. Hann er
menntaður í klassík en var mik-
ið í djassi og poppi á sínum
tíma.“
VÍS-kórinn var stofnaður síð-
astliðið haust, og þetta eru
fyrstu opinberu tónleikar hans.
Eins og nafnið bendir til er hann
kór starfsmanna Vátryggingafé-
lags Íslands.
„Þetta er ekki nema 150
manna fyrirtæki, svo við teljum
okkur góð að vera með 20 manns
í kór,“ segir Björn.
„Þarna er inni á milli vant
fólk sem hefur sungið í kórum
og lært að syngja, en svo er slat-
ti af byrjendum líka sem hafa
aldeilis bitið á öngulinn og smit-
ast af þessari bakteríu. Þetta er
geysilega áhugasamt og metn-
aðarfullt fólk.“
Kórinn flytur þetta verk í
styttri útgáfu ásamt sjö manna
hljómsveit, og það er kórstjór-
inn sjálfur sem á heiðurinn af
þeirri útsetningu.
Sjálfur er hann reyndar tölv-
unarfræðingur að mennt og
starfaði við það í ein fimmtán ár.
„Í sjö ár var ég yfirmaður
tölvumála hjá EFTA-stofnun í
Brussel, en svo lauk starfssamn-
ingi mínum árið 1999. Þá flutti ég
heim, lagðist undir feld og ákvað
að hætta á þessum vettvangi og
helga mig tónlist.
Björn fór í orgelnám í Tón-
skóla þjóðkirkjunnar, en hafði þó
einkum áhuga á kórstarfi og kór-
stjórn.
„Ég hef sungið í kórum nánast
allt mitt líf og sótti fjöldamörg
námskeið í kórstjórn, bæði innan
þessa náms og utan þess.“ ■
12. maí 2004 MIÐVIKUDAGUR
&
Á ferð um landið
Vinsælasta sýning síðustu 2ja ára
þakkar frábærar viðtökur og lýkur
sýningum með leikferð um landið.
Viðskiptavinir Flugfélags Íslands fá 2 fyrir 1 á Sellófon
gegn framvísun brottfararspjalds dagsettí maí.
LANDSBYGGÐIN
13. maí Hótel Valaskjálf
20. maí Hótel Framtíð Djúpavogi
21. maí Mikligarður - Vopnafirði
27. maí Félagsheimilið Vík
29. maí Hótel HöfnEkki missa af Sellófon!
„Salurinn lá í hlátri
enda textinn stórsnjall
og drepfyndinn“
Kolbrún Bergþórsdóttir
blaðakona“
Miðasala sími: 662-5000 • www.100hitt.com
A›eins 1
s‡ning
eftir í
Rvk.
Í tónlistarhúsinu †mi, Skógarhlí› 20
me› Helgu Brögu
Næstu s‡ningar:
BANNAÐINNAN
16
Sýningin hefst kl. 20:00
fös. 21. maí. Rvk. Ýmir
SÍÐASTA SÝNING
Landsbyggðin Reykjavík
mið. 19. maí. Selfoss
lau. 29. maí. Blönduós
lau. 12. jún. Flúðir
SÍÐASTA SÝNING Örfá sæti eftir 21.maí
(Engar aukas‡ningar)
FIMMTUDAGINN 13. MAÍ KL. 19:30
Háskólabíó við Hagatorg I Sími 545 2500 I sinfonia@sinfonia.is I www.sinfonia.is
AÐALSTYRKTARAÐILI
SINFÓNÍUHLJÓMSVEITAR
ÍSLANDS
M
Á
T
T
U
R
IN
N
&
D
Ý
R
Ð
IN
Hljómsveitarstjóri ::: Bernharður Wilkinson
Einsöngvarar ::: Elín Ósk Óskarsdóttir, sópran
Algirdas Janutas, tenór
Snorri Wium, tenór
Andrzej Dobber, baritón
Cornelius Hauptmann, bassi
Karlakórinn Fóstbræður
Kórstjóri: Árni Harðason
Sögumaður ::: Ingvar E. Sigurðsson
Wolfgang Amadeus Mozart ::: Sinfónía nr. 39
Igor Stravinskíj ::: Ödipus Rex
Stórvirki á Sinfóníutónleikum:
Mögnuð óperu-óratóría Stravinskíjs
og sinfónía nr. 39 úr smiðju Mozarts Sterkur friðarboðskapur
■ TÓNLEIKAR
BJÖRN THORARENSEN OG VÍS-KÓRINN
Þau ætla að flytja friðarmessuna Vopnaði maðurinn í Seltjarnarneskirkju í kvöld.
■ ■ TÓNLEIKAR
20.00 Útskriftartónleikar Helgu
Þóru Björgvinsdóttur fiðluleikara
frá Listaháskóla Íslands verða
haldnir í Salnum í Kópavogi. Með
henni spilar Anna Guðný Guð-
mundsdóttir á píanó.
20.00 Gospelsystur Reykjavíkur
halda sína árlegu vortónleika í
Langholtskirkju. Með Gospelsystr-
um syngja einnig fjörkálfarnir Sig-
rún Hjálmtýsdóttir og Jóhann
Sigurðarson. Sérstakir gestir á
þessum tónleikum er Stúlknakór
Reykjavíkur. Stjórnandi tónleik-
anna er Margrét J. Pálmadóttir.
Hljómsveitina skipa Stefán S.
Stefánsson á slagverk, saxófón
og flautu, Agnar Már Magnússon
á píanó og Jón Rafnsson á bassa.
20.00 Útskriftartónleikar Helgu
Þóru Björgvinsdóttur fiðluleikara
frá Listaháskóla Íslands verða
haldnir í Salnum í Kópavogi. Með
henni spilar Anna Guðný Guð-
mundsdóttir á píanó.
20.00 VÍS kórinn frumflytur
ásamt hljómsveit í Seltjarnarnes-
kirkju friðarmessuna Vopnaði
Maðurinn, The Armed Man, eftir
velska tónskáldið Karl Jenkins.
20.00 Útskriftartónleikar Helgu
Þóru Björgvinsdóttur fiðluleikara
frá Listaháskóla Íslands verða
haldnir í Salnum í Kópavogi. Með
henni spilar Anna Guðný Guð-
mundsdóttir á píanó.
20.30 Stórsveit Reykjavíkur
verður með tónleika á Hótel Borg
ásamt danska trompetleikaranum
Jens Winther, sem jafnframt
stjórnar hljómsveitinni.
22.00 Indigo verður með tón-
leika í Stúdentakjallaranum. Þau
kynna efni af væntanlegri plötu í
bland við eldri lög.
■ ■ FYRIRLESTRAR
12.15 Erling Ólafsson, skordýra-
fræðingur á NÍ, flytur erindi sem
hann nefnir „Geitungar - nýliðar í
umhverfi okkar”, á Hrafnaþingi, í
sal Möguleikhússins á Hlemmi,
Reykjavík.
■ ■ FUNDIR
16.30 Framtíðarhópur Samfylk-
ingarinnar efnir til málstofu í Nor-
ræna húsinu um þjóðareign á
auðlindum og öðrum sameign-
um þjóðarinnar. Fyrirlesara verða
Þorsteinn Gylfason, Katrín
Theodorsdóttir og Eiríkur Tóm-
asson.
20.00 Menningar- og friðarsam-
tök íslenskra kvenna og Samtök
kvenna af erlendum uppruna
halda sameiginlegan fund í Al-
þjóðahúsinu, Hverfisgötu. Amal
Tamimi kynnir Samtök kvenna af
erlendum uppruna, Guðrún Frið-
geirsdóttir segir frá starfi MFÍK,
og Tatjana Latinovic talar um ný
lög um útlendinga.
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki síð-
ar en sólarhring fyrir birtingu.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
9 10 11 12 13 14 15
Föstudagur
MAÍ
FR
ÉT
TB
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N