Tíminn - 19.03.1972, Blaðsíða 4
4
TÍMINN
Sunnudagur 18. marz 1972.
Skattamálaáróður Mbl. orð-
inn að óðra manna æði
Skattamál eru ákaflega heitt
umræðuefni, sem vorilegt er, og
hefur svo jafnan verið, enda
snerta reglur um skattlagningu
hins opinbera svo að segja hvert
mannsbarn i landinu. Eins og til
háttar á íslandi — og liklega i
ílestum nágrannalöndum —
verður örðugt að þjóna öllu rétt-
læti með allsherjarreglum, sem
hvergi sé vikið frá. Þvi valda hin
mörgu tilbrigði atvinnulifs og
mannlifs, og þurfa þvi aö koma til
ýmis frávik.
Núverandi rikisstjórn hefur
efnt til róttækustu skatta-
breytingar, sem lengi hefur verið
gerð hér á landi. Þetta var mikil
og knýjandi nauðsyn, þvi að
skattakerfið var orðið gersam-
lega óviðunandi og verkaði með
svo mikluin þyngslum á afkomu
fólks með lág laun og miölings
tekjur, að gersamlega var
ósamræmanlegt sjónarmiöum
sæmilegra félagshyggjumanna.
Hins vegar þarf engan aö un-
dra, þótt hinn nýi stakkur veröi
ekki sniðinn fullkomlega viö hæfi
á einu ári. Reynslan er bezti
skólinn, og skattreglur verður
sifellt að endurskoða vegna þess,
sem timinn breytir, hvað þá
þegar farið er inn á alveg nýjar
leiðir. Þótt meginstefnan sé rétt
og mikilvægt réttlætisspor stigið
má búast við, að einhverjir
agnúar komi i ljós viö fyrstu
reynslu, en rikisstjórnin, sem að
þessum umbótum stendur, hefur
áreiðanlega fullan hug á þvi að
halda áfram endurskoðun og lag-
færa þá annmarka, sem reynslan
leiðir i ljós.
Eölilegt er, aö mikill
ágreiningur sé um þessar
breytingar, þar sem beinlinis er
um að ræða gerólikar þjóðmála-
stefnur, annars vegar táknrænt
ihaldsskattakerfi, sem leggur
þungann af skattabyrðum eins og
fært er á allan almenning, hins
vegar kerfi félagshyggjusjónar-
miða, þar sem reynt er að létta
þeim efnaminni i þjóðfélaginu
róðurinn og bæta og jafna hag
hins almenna þegns, þannig að
stórtekjumenn og gróðafyrirtæki
beri mestan þunga. Rikisstjórn
hinna fyrrnefndu sjónarmiða
þokaöi þessum málum jafnt og
þétt i þá átt, að skattabyröin væri
á almenningi, en peninga-
arðurinn nyti æ meira skatt-
frelsis.
I þessari hörðu orrahriö um
skattana undanfarnar vikur, hefur
margt verið sagt af litilli skyn-
semi.en þvi meira striösæsingum.
Er vafalaust dæmi um það aö
finna á beggja vigstöðvum. Þó
hlýtur það að verða mönnum
mest ihugunarefni, hve Sjálf-
stæöisflokkurinn og málgögn
hans hafa varið skattvé sin og hið
gamla kerfi af yfirgengilegum
ofsa og hvergi sézt fyrir. Hefur
verið beitt svo miklum og marg-
vislegum blekkingum, talna-
fölsunum og hrikalegum,
tilbúnum dæmum til þess að
hræða fólk á skattabreyt-
ingunum, að mörgum er nú farið
að skiljast, hvilikt fjöregg
peningavaldið i landinu telur sig
vera að verja.
Þó tekur fyrst i hnúana, þegar
fyrrverandi ráöherrar, sem ætla
verður að óreyndu nokkra sjálfs-
virðingu, gera sig seka um aug-
ljósa samanburðarfölsun, eins og
henti Ingólf Jónsson á dögunum,
er hann bar saman gamla og nýja
kerfið, án þess að taka niðurfell-
ingu nefskattanna með i reikning-
inn!!
Og þegar þetta liggur i augum
uppi og á það er bent, er verkið
kórónað og réttlætt meö fárán-
legum nýjum fölsunum i Morgun-
blaðinu i vanmáttugri tilraun til
þess að verja og afsaka Ingólf.
Rétt er aö birta hér þetta sér-
kennilega framlag Morgunblað-
sins orörétt úr Staksteinum 15.
marz:
,,I dæmum Ingólfs Jónssonar
var hvorki reiknað með niður-
fellingu nefskatta né hækkun
fasteignaskatta, en þetta tvennt
vegur hvort annað upp. Fast-
eignaskattar veröa væntanlega
viðast hvar lagðir á meö 50%
álagi skv. heimild i væntanlegum
lögum, vegna mikillar skerðingar
á tekjustofnum. Þetta þýðir, að
hækkun skatta á flestum ibúðum
nemur frá 10 upp i 20 þús. kr.
Nefskattar á einstaklinga hafa
verið frá 8865 kr. i 10.605 kr. en á
hjón 14.950 kr. Jafnvel þótt gert
væri ráö fyrir, að nefskattar
hefðu orðið aö hækka verulega
eða upp i 16 til 22 þús.kr., eins og
stjórnarflokkarnir hafa viljað
halda fram, er ljóst að niður-
felling nefskatta og hækkun fast-
eignaskatta vega hvor aðra upp
og frávik þar frá svo litil, að ekki
skipta máli”.
Fyrr má nú rota en dauðrota!
Að halda þvi fram að „niðurfell-
ing nefskatta og hækkun fast-
eignaskatta vegi hvort annað
upp”, er svo hrikaleg og augljós
fölsun hverjum manni, að furðu-
legt er að blað, sem ætlazt til þess
að það sé talið með öllum mjalla,
skuli bera hana á borð.
Eftir nýju reglunum yrði fast-
eignaskattur af ibúð, sem er 2
millj. að fasteignamati, og verður
að teljast meira en meöallag, kr.
10 þús. og er það varla meira en
helmingshækkun fra fyrri reglu.
Þótt fasteignagjald væri lagt á
51
51
51
51
51
51
51
51
B0GBALLE
áburðardreifarinn
15
15
15
15
15
15
15
15
Qi ER N0TAÐUR AF BÆNDUM UM ALLAN HEIM §
51
51
15
HHér á landi hefur þessi ágæti dreifariH
® þjónað bændum á annan áratug |
Dreifarinn er bliaa
tveimnr stillistöngum
sem gera þaft mögirfegt
aft dreifa a fteins tU aan
dreifingu meftfram
15
15
15
Dreifarinn er búinn
hrærara sem sér um ________
mulning á kögglum og |Q"
tryggir þannig góða og “
jafna dreifingu áburð-
arins.
Gerð 325 rúmar 350-400 kg. - Verð með söluskatti kr/15.000
a KaupSélögln
51 ,
51
Sombnnd iil.Mimiinnufdago
Veladeild
Ármúía 3, Rtiik. simi 38400
15
15
15
15
15
15
15
15
15
al5
IsElgSESIgSIgSöSSSSBSSElaölalalslÉilslslÉilslalals
með 50% viðbót eftir heimild, yrði
það ekki nema 15 þús. af þessari
ibúð. Og jafnvel þótt dæmið væri
sambærilegt um hjón, sem hafa
greitt hvort tveggja, fasteigna-
skatt og nefskatta. Þá „vegur”
þetta tvennt „hvort annað” ekki
betur upp en svo, að 22 þús. kr.
niðurfelling kemur á móti svo
sem 8—10 þús kr. hækkun. Svona
augljóst vindhögg er þessi vörn
Mbl fyrir fyrrverandi ráð-
herrann. En það er miklu meira á
spýtunni. Til þess að dæmi Mbl.
stæðist i heild, yrðu húseigendur
að vera jafnmargir með þjóðinni
og nefskattsgreiðendur, en eins
og allir vita eru þeir tvöfalt eða
þrefalt fleiri, og i fjölmörgum
fjölskyldum i sömu ibúð eru tveir,
þrir, fjórir eða fleiri meðlimir, oft
unglingar á skólaaldri, sem hafa
þurft og hefðu þurft að greiða
hina háu nefskatta, ef ekki væru
niður felldir. I margri fjölskyldu
litur dæmið þannig út, að
fjölskyldan losnar við að greiða
svo sem 60 þús. i nefskatta
þriggja eða fjögurra meðlima, en
á móti kemur svo sem 7 - 10 þús.
kr. hækkun fasteignagjalds, eigi
að bera þetta tvennt saman, sem
auðvitað er fráleitt.
Að gera þennan framangreinda
samanburð á þann veg.sem
Morgunblað gerir til varnar Ing-
ólfi Jónssyni, og segja þá firru, að
niðurfelline nef_skatta og hækkun
fasteignagjalda éti hvað annað
upp, er táknrænt dæmi um það,
hve bardagaofsinn fyrir hag
hinna rikari i þjóðfélaginu, hefur
leitt ihaldið út i mikla ófæru.
Jafnvel þótt finna mætti einhver-
jar likur með þessum tölum i
heild, sem alls ekki er um að
ræða, er þessi samanburður ger-
samlega út i hött vegna þess að
þessar fáránlegu jöfnur, sem
ihaldið setur upp, eiga I fæstum
tilfellum við sömu skattþegna.
Það verður ekki fyrr en hver
skattþegn i landinu á sina ibúð, en
allmikið mun á það vanta enn.
—AK
—III—
IL.mí
l!!!!l
Fyrstu fimm beitinga-
vélarnar
eru nú tilbúnar.
I Fiskaren 7. febrúar 1972 er
eftirfarandi um beitingarvél.
Mustard Stöberi & mek. versted
hefur lokið smiði á fimm
beitingavélum og er það haft eftir
sölustjóra fyrirtækisins, Björn
Bang. Næsta verkefnið er, segir
hann, að selja þessar vélar, en
þær munu kosta um 100.000.00 n.
kr. eða um 1. 2-3 millj. isl. kr.
Þessar fimm fyrstu vélar munu
ganga undir nafninu „Mustard
Autoline System”. Fullreynd var
vélin siðastliðið sumar um borð i
ms. Saltstein. Hugmyndir um
vélina komu frá tveimur sjó-
mönnum, þeim hásetanum
Konrad O. Mamrad og skipstjór-
anum Ole Alvstad.
Vélin er að hluta gerð úr
beitingavél Trio.sem er hluti af
vélinni. Mikið hagræði mun vera
að vélinni engir stampar verða
notaðir, vélin raðar önglunum
upp i stokk, þegar hún hefur tekið
af snúning og beitu, auk þess sem
hún hefur sett rétt lag á önglana.
Beitingin fer fram um leið og
linan er lögð, og er hún i einu lagi
saman bundin, svo að ekki þarf að
gera það um leið, eins og áður var
gert. Vonast Norðmenn til, að
þessar vélar verði reyndar sem
viðast i Noregi, en þeir virðast
ekki hafa mikinn áhuga sjálfir.
Útlendingar munu aftur á móti
hafa sýnt talsverðan áhuga, og
ekki sizt islenzkir útgerðarmenn.
Fiskirækt.
I sama blaði og fréttin um beit-
ingavélina birtist, er skýrt frá all-
merkilegri tilraun um fiskirækt i
bænum Torsken i Flakstad. Þar
hafa bæjarbúar tekið höndum
saman og komið upp smá klak-
stöð, og hyggjast þeir með þess-
ari tilraun sanna eða afsanna
hvort hægt sé að koma á laggirn-
ar nýjum atvinnurekstri. Greiöa
þeir kostnaðinn við þessa tilraun
að mestu, en fá smávegis styrk.
Gelluskurður.
Ennfremur segir frá þvi i þessu
sama blaði, að skólabörn i Gylle-
fjord séu það aðgangshörð við að
skera gellur, að þau njóti ekki
svefns. En svo háttar til þarna, að
það er gamall sigur, að börn 12 til
13 ára skeri gellur á meðan
þorskvertiðin stendur yfir. Eins
og áður hófst gelluskurðurinn á
venjulegum tima, en vel er greitt
fyrir að skera gellur úr þorsk-
hausunum, og er unnið við þessa
iðju i akkorðsvinnu og vel borgað
fyrir. Svo ötullega sóttu börnin
vinnuna að þau komi i skólann illa
sofin, og kvað svo rammt að
þessu, að kennurunum þótti ekki
hægt að láta málið afskiptalaust.
Tilmæli komu um, að börnin yrðu
ekki lengur en til kl. 02.00 að nóttu
við vinnuna, en svo fóru leikar,
að ekkert barnanna hætti vinn-
unniá þeim tima, svo að illa horf-
ir með svefn barnanna i Gylle-
fjord. Ingólfur Stefánsson.
SÝNIR Á M0KKAKAFFI
Arni Finnbogason hefur opnað sýningu á 26 blýantsteikningum í
Mokkakaffi á Skólavörðustfg. Myndirnar eru allar til sölu og kosta
3—12 þús. kr.
Arni, sem er 78 ára gamall, er fæddur I Vestmannaeyjum. Hann var
sjómaður þangaðtil fyrir 7 árum að hann fór Iland. t 50 ár var Arni for-
maður á hinum og þessum bátum, og þar af var hann á eigin bát I 20 ár
og stundaði ailtaf dragnótaveiðar.
Sýning Arna verður opin næstu 3 vikurnar.
Veljið yður í hag - Úrsmíði er okkar fag
Nivada
OMEGA
<nwmm
JUpina.
PIEnPOOT
gnús E. Baldvinsson
Laugavcgi 12 - Simi 22804