Tíminn - 19.03.1972, Qupperneq 14
14
TÍMINN
stóðu tvö eða þrjú koffort, sem
voru full af fatnaði.
Walter ætlaði þá að fara út aft-
iur, er hann hitti eigi önnu, en
heyrði þá, að nafn hans var nefnt.
Hann fór þá að hlusta, og
heyrði þá mannamál í borðstof-
unni.
Glerhurðin, sem var milli henn
ar og herbergisins, sem hann var
í, var læst, og er hann beygði
sig, og dró dyratjaldið ögn til
hliðar, sá hann glöggt, að tveir
menn sátu við borð, og heyrði
hann á málrómnum, að annar var
Studly, en hinn 'Warner.
Heyrði hann nú og að nefnt
var aftur nafnið „Damby“. .—
Hvað gátu þeir verið að spjalla
nmj hann?
— Veirtu óhræddur, sagði
Warner. — Hann færir þér pen-
ingana! Hann tekur á arfinum!
— Hann var um 500 sterlings-
pund, mælti Studly. — Það er þá
ekkert smáræði, sem ég á enn
eftir að vinna.
— Minnstu ekkert á það, mælti
Warner. — Hann spilar ekki oft-
ar við þig. — Það hefur hann
sagt mér, enda réð ég honum það.
— Vinarbragð — en við hann,
mælti Studly, allgramur.
— Við ykkur báða, mælti Warn
er, og barði í borðið. .— Við höf-
um annað þarfara að gera, en að
næla í nokkur sterlingspund frá
honum!
— En hér er eigi um neitt smá
ræði að tefla, rnælti Studly. —
Skyldi hann annars ekki fara að
koma? Honum bregður f brún, er
hann hittir ekki önnu. Ég lét
hana skreppa til frú Wells!
— Er vinnukonan þá ekki held
ur heima? spurði Wamer.
— Nei, hún er ekki heima,
enda stranglega bannað að koma
heim, fyrr en kl. 10, mælti Studly.
— Hún rak upp stór augu, er ég
sagði henni það!
— Þá megið þér ekki vera lang
orður við Damby, — verðið að
segja honum, að þér hafði lítinn
tíma, séuð einn heima, og eigið
annríkt, enda er það mála sann-
ast. — Ætlið þér yður, að eiga
viðskipti við Sturtevant, verðið
þér að skrifa allt glöggt og skýrt:
númerið, þyngd steinsins, verðið
o.s.frv. — í París getið þér hitt
Mormier, þ.e.a.s. gamla manninn,
en ekki soninn, sem er margorð-
ur, en hræddur, er um kaup ræð-
ir. — í Briissel getið þér hitt
Cassenapé, en ekki býst ég við,
að þér seljið til muna, fyrr en
þér komið til Amsterdam, til
Sturtevant's. .— En, heyrðið mér:
þegar Damby kemur, megið þér
ekki láta hann ko.ma hérna inn!
— Hvernig dettur yður það í
hug? svaraði Studly. — Þér gleym
ið því, að við erum tveir einir!
En þegar hann kemur, verður
hann að hringja dyrabjöllunni, og
fer ég þá út á móti honum.
— Og farið þá með honum inn
í herbergi yðar, og þegar þér haf-
ið tekið við peningunum, verðið
þér að losna við hann, mælti
Warner. — En nú ættum við að
fara að byrja! Hafið þér eldspýt-
ur, Studly?
— Það eru eldspýtur þarna á
arinhillunni! svaraði Studly.
Damby sá að Warner teygði sig
nú til þess að kveikja í hengi-
lampanumi.
Walter dró siig í hlé, kom sér
þangað, sem skugga bar á, en tók
þó brátt aftur að gægjast inn í
herbergið.
Þar var nú albjart, og brá hon-
um mjög er hann sá það, sem
þar var inni.
Beint niður undan lampanum,
milli mannanna, var teðurhulstur,
fóðrað hvítu atlasilki.
Hulstrið var með gömlu iagi,
— stórt, og auðsjáanlega ætiað til
þess, að geyma í því fjölda skraut-
gripa.
Armböndin, sem sett vciu stór-
eflis demöntum, lágu inn í lmlstr-
inu, og sömuleiðis skrautgripur.
sem átti að spennast yfir upp-
ennið. — Á hinn bóginn var ekk-
ert í þeim hólfunum, þar sem
hálsbandið og eyrnahringirnir
höfðu verið.
Damby einblíndi á þetta, eins
og augun ætluðu út úr höfðinu á
honuim.
Rétt hjá Warner lá dálítill, vel
fágaður haimar úr stáli, stöng, og
nokkur önnur smá verkfæri.
Fyrir framan hann lá hlutur,
sem var úr gulli, allur beyiglaður
Og brotinn.
f höndinni hélt hann og á bréfi,
sem á voru glampandi steinar, og
bar hann þá upp að ljósinu.
— Dýrindis steinar, tautaði
hann, — og nægir Sturtevant að
líkindum í bráðina! Betra að
bjóða honum ekki allt í einu! Það
færir niður verðið! Og ekki veitti
oss auðvelt, að ná þessu!
Um leið og hann mælti þetta,
kipptist hann ögn við, og gafst
Damby þá færi á, að skyggnast
inn í hulstrið.
Fannst honum hann þá kann-
ast við skartgripina, sem þar voru,
fannst hann hafa séð þá fyrr! En
hvar hafði hann séð þá?
Studly tók nú upp hulstrið.
— Náið þér steinunum úr?
mælti hann.
■— Nei, svaraði Wamer. — Þeir
eru enigu lausari en þeir væru
negldir í gullið! En nú höfum við
og nægilegt í bráðina, og gleypi
gamli maðurinn í Amsterdam agn
ið, þá má heimsækja hann seinna!
— En hvað er þetta? mælti
Wamer ennfremur, hrökk við og
sneri sér til dyranna.
— Það er ekkert! mælti Studly,
til að friða hann. — Líklega kött-
urinn! Við erum hér tveir einir!
En harkið, sem heyrzt hafði,
stafaði nú reyndar frá Walter
Damby.
Hann hafði allt í einu kannazt
við gimsteinana og hulstrið.
Það voru gimsteinar, sem
spönsk greifafrú hafði komið til
geymslu í bankanum fyrir hálfu
misseri, — munir, sem þá höfðu
verið látnir í stálhólfið.
Hafði hann hrokkið við, og velt
glasi, sem stóð á hyllu, við hlið-
ina á honum.
Gimsteinarnir, er stolið hafði
verið úr Middleman's-bankanum
— og gefið höfðu tilefni til morðs
ins — þeir vora þá hérna.
Og þeir vora í vörzlum manna,
sem hann sizt varði, — faðir
önnu einn í þeirra tölu!
Lárétt
1) Glöggur,- 5) Trekk.- 7)
Titill.- 9) Steinn.- 11) Box.-
13) Vond.- 14) Labba.- 16)
Röð.- 17) Vonarbænin.- 19)
Mjótt.-
Lóðrétt
1) Nýr.- 2) Ess.- 3) Belja.- 4)
Sundfæri,- 6) Erlertt.- 8)
Kyrr.- 10) Avöxtur,- 12)
Hnallar,- 15) Hraða,- 18)
Skáld,-
Ráöning á gátu No. 1065
Lárétt
1) Myrkar.- 5) Raf.- 7) óp,-
9) Flög.- 11) Lús,- 13) Afl.-
14) Kata,- 16) UU,- 17)
Ógagn,- 19) brista.-
Lóðrétt
1) Mjólka,- 2) RR,- 3) Káf.-
4) Afla.- 6) Ugluna,- 8) Púa.-
10) öfugt,-12) Stór,- 15) Agi,-
18) As,-
BUT FLASH HAD BEftí PREPAREP FOR A TRAP.
HIS JETROP CARRIES HIM INTO THE
IMOUNTAINTOP RESEARCH CENTER..
HVELl
G
E
í
R
I
SwiFTLy ANP
SOUNPLESSL^
ASUARP IS
RELIEVED OF
DUTy...
Það er ekki um neitt að villast. Snjóflóðiö sópaði
Hvell—Geira fram af klettabrúninni. — Það er svo.
Þakka ykkur þá fyrir. En Hvellur hafði búið sig
undir það versta. — Þotuhreyfillinn hans flytur
hann upp i rannsóknarstöðina. — An nokkurs óþarfa
hávaða er einn vó'rðurinn leystur af verði sinum.
D
R
E
K
I
IN BOTH CASES 7HEY
SOUNPEP LIKE — "THE
vultures'7
Þessir viðbjóöslegu hrægammar eu enn á lifi, eftir
300 ár. — Hve gamlir eru þeir? — Þaö eru ef til vill
ekki sömu mennirnir, heldur afkomendur þeirra. —
Það átti sér stað fyrir aðeins viku, i bæ, þar sem
eldgos var að eyðileggja allt, aö ræningjar.... —
Svo var það i annari borg, þar sem stóö yfir borg-
arastyrjöld, aö ræningjarnir birtust á nýjan leik. —
I bæði skiptin hefur liklega verið um hrægammana
að ræða.
Sunnudagur 18. marz 1972.
liiilllilii i .
SUNNUDAGUR
19. MARZ
8.30 Létt morgunlög. Karlakór
Vinarborgar syngur • "
9.15 Morguntónlcikar.
11.00 IVlessa i kirkju Óháða
safnaðarins. Prestur: Séra
Emil Björnsson. Organleik-
ari: Snorri Bjarnason.
13.15 Sjór og sjávarnytjar.
Þórunn Þórðardóttir mag
scient. talar um þörunga-
svifið i sjónum i þriðja
erindi þessa flokks.
14.00 Miðdegistónleikar:
Óperan „Salome” eftir
Richard Strauss. Þorsteinn
Hannesson kynnir.
15.50 Fréttir. Skáldsagan
„Virkisvetur” eftir Björn
Th. Björnsson.
16.55 Veðurfregnir.
17.00 A hvitum reitum og
svörtum. Guðmundur Ar-
nlaugsson flytur skákþátt.
17.40 Útvarpssaga barnanna:
„Levndarmálið í skóginum”
eftir Patriciu St. John.i
Benedikt Arnkelsson les
þýðingu sins (7).
18.00 Stundarkorn með brezka
hörpuleikaranum Ann Griff-
iths.
18.30 Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.30 Bækur og bókmenntir.
Hjörtur Pálsson stýrir um
ræðum um nýjustu bók
Indriða G. Þorsteinssonar,
„Norðan við strið”. Þátttak-
endur auk hans: Evsteinn
Sigurðsson cand. mag. og
Hólmfriður Gunnarsdóttir
B.A.
20.00 „Ave Maria” eftir Her-
bert H. Agústsson. Kven-
nakór Suðurnesja syngur,
höfundur stjórnar. Organ-
leikari: Arni Arinbjarnar-
son.
20.10 t einmánuði. Jón Gunn-
laugsson sér um þátt með
blönduðu efni.
20.55 „Blessuð gamla
fóstran”, smásaga eftir
P.G. Wodehouse. Siðari
hluti.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Danslög.
23.25 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
SUNNUDAGUR
19. MARZ.
17.00 Endurtekið efni. Dan-
sleikur i sjónvarpssal.
Hljómsveit Guðjóns Mat-
thiassonar leikur. Tiu dans-
pör dansa gömlu dansana.
17.20 Þjórsárver. Heimildar-
kvikmynd, sem Sjónvarpið
lét gera siðastliðið sumar
Aður á dagskrá 6. marz s.l.
18.00 Helgistund. Sr. Bern-
harður Guðmundsson.
18.15 Stundin okkar. Stutt
atriði úr ýmsum áttum til
skemmtunar og fróðleiks.
19.00 Hlé.
20.00 Fréttir.
20.20 Veður og auglýsingar.
20.25 Útvörðurinn i austri.
Dagskrá um heimsókn is-
lenzku forsetahjónanna, dr.
Kristjáns Eldjárns og frú
Halldóru, til Finnlands fyrr i
þessum mánuði. Sýndar eru
svipmyndir frá dvöl forseta-
hjónanna i Finnlandi, og inn
i fléttað fróðleiksmolum um
land og þjóð. Umsjón Ólafur
Ragnarsson.
21.15 Shari Lewis Brezkur
skemmtiþáttur meb söng og
gleðskap. Auk Shari Lewis
kemur þar fram gamanleik-
arinn Richard Wattis og
hópúr dansara. Þýðandi
Sigriður Ragnarsdóttir.
21.45 Milljón punda seðillinn.
Framhaldsleikrit frá BBC,
byggt á samnefndri sögu
eftir Mark Twain. 4. báttur.
sögulok.
22.10 Maður er nefndur. Séra
Gunnar Árnason. Andrés
Kristjánsson, ritstjóri ræðir
við hann.
22.40 Dagskrárlok.