Tíminn - 19.03.1972, Blaðsíða 17
Sunnudagur 18. marz 1972.
TÍMINN
17
i U'ott
iSPSVt.
««>(»
' i-> I >■■■■
: f <■
* *f^i
. .. X- ' v ...» y< * y* ;
Meöfylgjandi mynd er af læknum útskrifuöum frá Háskóia tslands í febrúar 1972 f heimsókn I Ingóifs
Apóteki.
Læknarnir á myndinni eru: Til vinstri: Guömundur Óskarsson, tii hægri: Þorkeil Guöbrandsson.
Stóráætlun um fiskirækt á vatna
svæði Skjálfandafljóts
Hvammstanga-ostur
vinsæll
Ég las þessa stórfrétt i Tíman-
um l.marz siðast liöinn. Þetta
varö mér nokkurt umhugsunar-
efni, vegna þess að ég er eigandi
að fjórum fimmtu hlutum
arinnar Barnafell, þar sem aðal
fiskivegurinn er hugsaður,
sprengt fyrir laxastiga meðal
annars.
Maðurinn minn, Sigurður
Benediktsson listmunasali hér i
Reykjavik, var fæddur og upp-
alinn I Barnafelli. Hann keypti
fjóra fimmtu hluta Barnafells
skömmu eftir 1940, þá á háu
verði, en tókst að borga þetta með
aðstoð föður mins.
Ég hefi nú gert nokkra grein
fyrir eignarrétti minum á Barna-
felli, og tel þvi fréttina um fiski-
rækt i suðurhluta Skjálfandafljóts
ekki tímabæra. Auk þess hefur
mér ekki einusinni verið boðin
þátttaka i Veiðifélagi Landeig-
enda, eða leitað samráðs við mig
á nokkurn hátt.
Reykjavik, 13. marz 1972.
Guðbjörg Vigfúsdóttir (sign.)
Garðastræti 16, Reykjavik.
BS—Havammstanga.
Við erum svo heppnir, að
mjólkurostur sá, sem mjólkur-
búið hér framleiðir, er eftirsótt
vara. Afleiðing þess er hinsvegar
sú, að þegar minnst mjólkur-
magn berst hingað af fram-
leiðslusvæðinu, höfum við ekki
næga mjólk til þess að geta full-
nægt eftirspurninni eftir ostunum
nema með þvi að flytja mjólkina
að. Úr þvi hefur verið bætt með
þvi að flytja hingað mjólk frá
Blönduósi og var byrjað á þvi i
október i haust.
VISIR á mánudegí
greinir frá íþróttaviðburðum helgarinnar
PVrstur meó
fréttimar
vísm
Reiðvegir og
vegaleysur
Eitt af þvf nauðsynlega fyrir
hestamenn er að hafa reiðvegi
sem viðast um landið. Ég
minnist þess ekki að hafa
heyrt nema einn leiðandi
mann kveða upp úr með að
koma á reiðvegum sem viðast
um landið. Maðurinn var Jón-
as frá Hrifu. Hann kom manna
fyrstur auga á,að hestur og bill
eiga ekki samleið á sama vegi.
Alltof mikill slóðaskapur
hefur rikt hjá okkar ráða-
mönnum um þetta undanfarin
ár. Það ætti að vera hægt að
ferðast riðandi landsfjórðung-
ana á milli, án þess að koma á
þessa svokölluðu bilavegi. Það
voru einu sinni til reiðvegir
um allt landið frá þeim tima
að allar samgöngur fóru fram
á hestum. Það er hægt að fara
eftir heilli sýslu i bil eftir vegi,
sem lagður hefir verið þar
sem reiðgötur voru áður. Að
rikið hafi nokkuð gert fyrir
reiðvegi fer viðsfjarri. Komið
hefir það fyrir, að reiðvegir
hafa verið eyðilagðir með til-
komu nýrra vega. Þar sem
nýr vegur hefur verið lagður
alllangt frá þeim gamla en i
sömu átt, hefði oft á tiðum
verið hægt að nota gamla bil-
veginn fyrir reiðveg. En þvi er
ekki fyrir að fara, þvi áður en
langt um liður er búið að girða
gamla veginn af svo hann er
ekki lengur alfaraleið. Það
hefir svo ömurlega litið verið
gert til að koma skipulagi á
þessi vegamál fyrir hesta-
menn að sætir furðu, jafn-
mikið og ferðast er um landið
á hestum. Reiðvegsmálið
verður að skipuleggja upp að
nýju, það er engin umferðar-
menning að ætlast til að bilar
og hestar noti sama veginn,
þeir eiga enga samleið, auk
þess sem það býður slysahætt-
unni heim.
Þeir menn, sem hafa átt að
koma þessu máli áfram, hafa
sýnilega sofið á verðinum en
það er til ráð viö þvi, fela þetta
öðrum mönnum, sem liklegir
væru til að gera eitthvað. Mér
virðist að sáralitið fjármagn
færi i svona vegi i samanburði
við bilvegi, svo ekki sé talað
um hraðbrautir, þetta er einn
þáttur i umferðarmenningu og
hann ekki sá minnsti. Það er
orðið ókleift fyrir einn mann
að ferðast með marga hesta
vegna bilaumferðar og slysa-
hættu. Það væri þvi ekki til of
mikils mælzt, að vegagerðin
skilaði aftur reiðvegunum til
þjóðarinnar og þar með stuðl-
aði að meiri umferðarmenn-
in8u- SMARI
J
Auglýsingastofa Timans er i
Bankastræti 7 simar 19523 —
18300.
• 4" slipivél i sérflokki
þyngd aöeins 1.8 kg
380 watta motor
• Borvélar við allra hæfi,
stæröir frá 1/4" og
3/4".
Kraftur og gæði sitja
i f y r i r r ú m i .
Aleinangraðar
vélar, veita aukið
öryggi.
• Rafmagnsverkfæri í
miklu
úrvali, komið og
kynnist
WOLF verkfærunum.
• 5", 7" og 9"
slípirokkar
mjög
afkastamikil
tæki,
sem þurfa ekki
jarðtengingu
þar sem þeir
aleinangraðir.
7 1/4" og 9 1/4"
Aflmiklar
hjólsagir með
stóru landi,
aleinangraðar.