Tíminn - 30.03.1972, Side 23
Fimmtudagur 30. marz 1972.
TÍMINN
123"
Vilmundur Jóns-
son er lótinn
IGÞ-Reykjavik.
Siðastliðinn þriðjudag andaðist
Vilmundur Jónsson, fyrrverandi
landlæknir, hér i Reykjavik. Vil-
mundur var 82ja ára að aldri
þegar hann lézt. Hanna bar aldur
sinn vel, og munu fáir þeirra sem
þekktu hann hafa gert sér þess
grein, hve aldraður hann var
orðinn.
Vilmundur fæddist 1889 að
Fornustekkjum i Nesjum i
Austur-Skaftafellssýslu.
Foreldrar hans voru Jón Sigurðs-
son bóndi þar og siðar verka-
maður á Seyðisfirði og kona hans
Guðrún Guðmundsdóttir. Vil-
mundur lauk kandidatsprófi i
læknisfræði frá Háskóla íslands
árið 1916, en stundaði siðan fram-
haldsnám i Osló Kaupmanna-
höfn, Englandi, Frakklandi og
Þýzkalandi á næstu árum. Hann
varð landlæknir árið 1931, en
hafði þá verið héraðslæknir i
Þistilfjarðarhéraði 1916-1917 og i
ísafjarðarhéraði frá 1917-31.
Vilmundur kom mjög við sögu
islenzkra stjórnmála á læknis-
árum sinum og allt fram til ársins
1941. Hann var jafnaðarmaður og
sat á þingi fyrir Alþýðuflokkinn,
fyrst sem þingmaður tsafjarðar-
kaupstaðar árin 1931-33, og
Norður-ísafjarðarsýslu 1933-41,
er hann sagði af sér þing-
mennsku.
Þá eru ótalin kynni hans við rit-
höfunda og skáld samtiðarinnar,
en hiklaust má telja hann með
hinum fremstu á þvi þingi. Þrir
miklir rithöfundar eiga sögu
langra kynna við Vilmund, þeir
Halldór Laxness, Þórbergur
Þórðarson og Guðmundur G.
Hagalin, en Guðmundur og hann
voru baráttufélagar á Isafirði.
Eftir Vilmund liggur margt i rit-
uðu máli, bæði frumsömdu og
þýddu. Rit hans Lækningar og
saga er þeirra veigamest, og
sýnir ljóst hina frábæru hæfileika
hans. Hann hafði tvimælalaust
mikil áhrif á samtima rithöfunda,
þótt dult hafi farið, og mun ganga
seint að rekja alla þá þræði, sem
legið hafa til hins látna snillings.
ENSKIR OO
ÍSLENZKIR
FÉLAGSBÚNINGAR
Flest tslenzku liðin
Ensk lið t.d.: Leeds, Ar-
senal, M. Utd. M. Citv,
Stoke, W. Ham., Tottenham,
Liverpool o.fl.
Einnig búningar Brasiliu,
Englands, Þýzkalands,
Ajax, Celtic o.fl. o.fl.
PÓSTSENDUM
SPORTVÖRUVERZLUN
INGÓLFS
ÓSKARSSONAR
Klapparstig 14 — simi 11783
Reykjavik
VÉLRITUN
Við viljum ráða vana vélritunarstúlku nú
þegar i hálfs dags vinnu um mán-
aðartima.
Starfsmannahald S.Í.S.
Fulltrúastaða í
utanríkisþjónustunni
í utanrikisþjónustunni er laus fulltrúa-
staða. Umsóknir ásamt upplýsingum um
menntun og fyrri störf sendist utanrikis-
ráðuneytinu, Stjórnarráðshúsinu við Læk-
jartorg, fyrir aprillok 1972.
Utanrikisráðuneytið,
Reykjavik, 29. marz 1972.
TILBOÐ ÓSKAST
i nokkrar fólksbifreiðar og International
Scout, er verða sýndar að Grensásvegi 9
miðvikudaginn 5. april kl. 12—3.
Tilboðin verða opnuð i skrifstofu vorri kl.
5.
Sölunefnd varnarliðseigna.
FORSTÖÐUMAÐUR
Forstöðumann vantar fyrir Bifreiða- og Trésmiðju
Borgarness, Borgarnesi.
Fyrirtækið annast almennar bifreiða- og véiaviögeröir,
yfirbyggingar o.fl. Þeir sem áhuga hafa fyrir starfinu,
vinsamlega sendi umsóknir sinar, ásamt meðmælum,
upplýsingum um fyrri störf og menntun, til Óiafs Sverris-
sonar kaupfélagsstjóra, Borgarnesi, en hann gefur nánari
upplýsingar um starfið ef óskað er.
Kf. Borgfirðinga
Borgarnesi.
Rjómaís
milli steikar og
kaffis
ísréttur er friskandi ábætir, sem fljótlegt er að útbúa. Vinsæld-
ir hans við matborðið eru öruggar. Skemmtilegt er að fram-
reiða hann á mismunandi hátt og fylgja hér á eftir nokkrar
uppskriftir:
ÍSSÚKKULAÐI. Fyllið glas að Vb með kakó eða kakómalti.
Setjið nokkrar sneiðar af vanilluís í, skreytið með þeyttum
rjóma og sultuðum appelsínuberki eða möndlum.
JARÐARBERJAÍS MEÐ HNETUM. Ristið hasselhnetur þurrar
á pönnu. Fjarlægið hýðið og saxið hneturnar gróft. Stráið þeim
yfir ísinn og hellið 1 msk. af víni yfir (t. d. líkjör eða sherry).
BANANAÍS, 1 skammtur. 1 banani / 3 msk. súkkulaðiís / 1 msk.
sólberja- eða jarðarberjasulta / '/2 dl þeyttur rjómi / 1 msk.
hnetukjarnar.
Kljúfið banana að endilöngu og leggið á disk. Setjið ísinn yfir,
skreytið með rjóma, sultu og söxuðum hnetum.
ÍS I PÖNNUKÖKUM er sérlega ódýr og Ijúffengur eftirréttur.
Skerið vanillu- eða súkkulaðiís í lengjur, vefjið pönnuköku
utanum, hellið súkkulaðisírópi, bræddu súkkulaði eða rifnu yfir.
NOUGATÍS MEÐ APRIKÓSUM. Setjið til skiptis í glas nougat-
ís, niðursoðnar aprikósur og möndlur. Blandið dálitlum sítrónu-
safa saman við aprikósumauk og skreytið með því.
HEIT ÍSTERTA. 1 sykurbrauðsbotn / 3 msk. sherry / Va ds.
niðursoðnir ávextir / 2 msk. saxað súkkulaði / 2 msk. saxaðar
möndlur / 1 lítri vanilluís.
Marengs: 4 eggjahvítur / 3 dl (250 g) sykur.
Hellið sherryi yfir kökubotninn, setjið ávextina yfir og súkkulaði
og möndlur þar yfir. Spænið ísinn upp og setjið hann yfir
ávextina. Þeytið hvíturnar með 1 dl af sykri mjög vel, góða
stund eftir að þær eru stífar. Blandið því sem eftir er af sykr-
inum gætilega saman við. Smyrjið eggjahvftunum utan um ís-
inn og bakið við mikinn yfirhita (300° C) í örfáar mínútur, eða
þar til marengsinn er gulbrúnn. Berið ísréttinn fram strax.
ÍSKAFFI. Fyllið hátt glas tií hálfs með sterku, köldu kaffi.
Leggið nokkrar skeiðar af vanilluís í kaffið, skreytið með þeytt-
um rjóma og rifnu súkkulaði.