Tíminn - 14.05.1972, Side 5
Sunnudagur 14. mai 1972
TÍMINN
5
Kristján B. Þórarinsson:
SÖGULEG UMSKIPTI
SEM MARKA
TÍMAMÓT
Á undanförnum mánuðum
hafa orðið stórfelldar breyt-
ingar á islenzkum þjóðfélags-
háttum. Með nánu samstarfi
er þeirri rikisstjórn, sem nú
situr að völdum, kleift að
koma þeim málum i fram-
kvæmd^sem urðu hornreka hjá
fyrrverandi rikisstjórn. Það
verður að teljast til tiðinda.er
það náðust samningar til
tveggja ára og sú samstaða,
sem stjórnarflokkunum hefur
tekizt að ná við stjórnarand-
stöðu um landhelgismálið er
mikið gleðiefni. Þá má einnig
teljast til tiðindaier bætur til
aldraðra voru hækkaðar um
meira en helming. Það má
vera mönnum tilhlökkunar-
efni það stórfellda átak, sem á
að gera i vegamálum á næstu
mánuðum. Það er lika eftir-
tektarvert hversu miklar
framkvæmdir eru alls staðar
og sá stórhugur, sem hefur
verið með þjóðinni, þrátt fyrir
þau niðurrifsskrif, sem
Morgunblaðið hefur reynt að
bera á borð fyrir alþjóð. Það
er von að stjórnarandstaðan
sé grátklökk, er hún sér
hvernig almenningur hristir
af sér afturhaldið, sem hann
hefur búið við siðastliðin ár.
Það hefur einnig sýnt sig,
hversu óábyrg fyrrverandi
rikisstjórn var, er hún van-
rækti endurnýjun togara-
flotans, en fyrir það sinnuleysi,
sem hún sýndi þeim málum,
er islenzkur sjávarútvegur að
blæða fyrir nú. Engum getur
dulizt,hversu okkur er mikil
nauðsyn að eiga öflugan
togaraflota.
1 ljósi þeirra fáu punkta,
sem ég hef talið upp hér að
framan, þá getur engum dulizt
hversu vel sú rikisstjórn hefur
staðið að þeim málefnasamn-
ingi, sem hún gerði undir for-
sæti Ólafs Jóhannessonar, for-
manns Framsóknarflokksins,
enda kom það glöggt i ljós, er
ungir Framsóknarmenn efndu
til ráðstefnu að Hótel Loftleið-
um þann 29. og 30. april s.l. Sú
ráðstefna sannaði svo ekki
verður um villzt, hvað Fram-
sóknarflokkurinn nýtur mikils
trausts meðal þjóðarinnar, en
þar var svo yfirfullt hús af
áhugasömu fólki, að ekki eru
nema örfá dæmi til um slikt.
Það sýnir fólki og Fram-
sóknarmönnum, að hann er
flokkur frjálslyndra umbóta-
manna.
Með þessa ráðstefnu að leið-
arljósi hlýtur mönnum að vera
það ljóst, að Framsóknar-
flokkurinn er sterkt stjórn-
málaafl, sem nýtur mikils
trausts og flokkurinn er ein-
huga um uppbyggingu Fram-
sónarflokksins. Það sannast
enn, sem Eysteinn Jónsson
sagði eitt sinn,er hann ræddi
um Framsóknarflokkinn:
„Framsóknarflokkurinn vill
byggja upp á tslandi sannkall-
að frjálst lýðræðis- og menn-
ingar þjóðfél. efnalega sjálf-
stæöra manna, sem leysa
sameiginleg verkefni eftir
leiðum samtaka, samvinnu og
félagshyggju. Þjóðfélag, þar
sem manngildið er metið
meira en auðgildið, og vinnan,
þekkingin og framtakið er sett
ofar og látið vega meira en
auðdýrkun og fésýsla.”
Það þurfti kjarkmenn til að
takast á við þá hrollvekju,
sem stjórnin fékk i arf og
prófessor OJafur Björnsson
talaði sem mest um i fyrra.
Hann er þaö framsýnn maður,
að hann sá afleiðingar við-
reisnarstefnunnar fyrir. Hann
sagði einnig fyrir um þau úr-
ræði, sem beitt myndi verða
að kosningum loknum, ef við-
reisnarstjórnin héldi velli, en
þau úrræði, sagði hann að
væru gengin sér til húðar.
Núverandi rikisstjórn er nú
að takast á við afleiðingar við-
reisnarinnar með nýjum úr-
ræðum og nýrri stefnu, sem
hentar islenzku þjóðfélagi.
Það var þetta, sem kjósend-
ur hlustuðu eftir, er þeir felldu
viðreisnarstjórnina. Hún var
búin að fá að spreyta sig of
lengi.
NÝTT FRÁ
ATON
RUGGUSTÓLAR
SELSKINN OG SALUN
ÁKLÆÐI
ATON-umboðið:
ÓÐINSTORG
Bankastræti 9
Sími 14275
Sendum gegn póstkröfu
Buid ykkur aukið
öryggi og spariö óþarfa
erfiöi
Stöðugt fleiri launþegar láta
færa laun sín beint inn á banka-
reikning, annaðhvort ávísana-
eða sparisjóðsreikning. Að
sama skapi vex fjöldi þeirra
ellilífeyrisþega, er láta Trygg-
ingastofnunina færa ellilífeyri
sinn á ávísana- eða sparisjóðs-
reikning.
Með þessu er tryggt að:
— ekki þarf lengur að standa
í biðröðum til þess að fá
lífeyri eða laun greidd,
peningarnir eru komnir í
bankann á útborgunardegi.
— þú losnar við að vera með
ótryggt, vaxtalaust fé á
vinnustað, í vösum eða í
heimahúsum.
— auðveldara er að fylgjast
með eigin fjárhag, þar sem
bankinn sendir yfirlit yfir
innlegg og stöðu reikn-
ingsins við hver mánaðamót.
— með því að stofna til fastra
viðskipta við Alþýðubank-
ann leggur þú drög að fyrir-
greiðslu bankans á ýmsum
sviðum við sjálfan þig.
Alþýóubankinn