Tíminn - 16.05.1972, Blaðsíða 12
12
TÍMINN
Þriðjudagur. 16. maí. 1972
SLEGIÐ UM
í SKOTLAÍ
Texfi og myndir: Kjartan L. P!tí
Margar konur Voru meö I ferðinni. Hér er hluti þeirra að sóla sig áöur en lagt er af staö út á golfvöll-
inn. Taliö frá vinstri: Ólöf Geirsdóttir Rvk., Jakobina Guðlaugsdóttir Vestm., Guöfinna Sigurþórsdóttir
Keflav., Laufey Karlsdóttir Rvk., Sigurbjörg Guðnadóttir Vestm., og Agústa Guðmundsdóttir, Vestm.
Haldið um borö I þotu Flugfélags tslands á flugvellinum I Edinborg, eftir ánægjulega 9 daga dvöl i hinu
„helga landi golfsins"
Fyrir nokkru kom heim frá
Skotlandi um 90 manna hópur ts-
lendinga, sem þar hafði dvalið i
eina 9 daga. Tilgangur ferðarinn-
ar var að slétta örlitið úr skozkri
jörð, en á góðri islenzku heitir það
nú vist að li'ika þá vinsælu
iþrótt, sem nefnist á alþjóðamáli
golf.
Dvalið var i East Lothian, eða
nánar tiltekið i Nort Berwick,
sem er við f jörðinn Firth of Forth.
Um þann f jörð hefur fjöldi islend-
inga farið, þvi að þetta er sá, sem
siglt er inn, þegar faiio er til
Leith.
East Lothian hefur verið kallað
„The Holy Land of Golf". bar er
að finna tugi golfvalla af þeirri
gerð og gæðum, sem bezt þekkj-
ast i heiminum. Sumir þeirra eru
löngu heimsfrægir meðal þeirra,
sem fylgjast með iþróttum, eins
og t.d. Muirfield, þar sem opna
brezka meistarakeppnin fer fram
i sumar, Luffness, sem er sagður
vera með. einar beztu flatir
(green) i alíri Evrópu, en þær eru
á að horfa eins og flosábreiða af
beztu gerð, Duhbar, þár sem leik-
ið hefur verið golf i hátt að aðra
öld, og Gullane-vellirnir nr. 1., 2.
og 3., svo að nokkrir séu nefndir.
L4 þessurh völlum, og mörgum
öðrum, slógu Islendingarnir um
sig i þessá 9 daga. Og þar var svo
sannarlega slegið og gengið.
Lauslega reiknað léku flestir
þetta 10 til 14 hringi. Ef reiknað er
með, að i hverjum hring séu
gengnir 10 km, en það er mjög
nærri lagi á 18 holu velli, hefur
hver maður gengið þessa 9 dága
milli 100 og 140km,eða sem sam-
svarar „spottanum" frá Reykja-
vik og upp i Borgarfjörð, eða
austur i Þórsmörk.
1 þessum hópi var fólk á öllum
aldri, báöum kynjum og úr mörg-
um stéttum þjóðfélagsins. Það
kom Skotunum mjög á óvart, að
enginn stéttamunur væri meðal
Islendinganna, en hjá þeim er
hann mikill. Jafnvel á golfvöllun-
um bar mikið á þessum stétta-
mun, sumir vellirnir nálguðust
það að vera lokaðir nema fyrir
einhverja lorda og hefðarfrúr.
t Skotlandi lætur nærri.að hvert
einasta mannsbarn leiki golf,
endaer iþróttin þaðan komin, og
Skotar lita á hana sem sína 'þ.íöið-
ariþrótt. Á sumum völlunum sá
maður jafnvel svo aldrað fólk
leika, að það hafði það varla af að
beygja sig eftir kúlunni, þegar
hún loks komst niður i holuna.
Hjá þvi skipti höggafjöldinn eða
lengdin engu máli, aðeins gangan
um völlinn, félagsskapurinn og
að slá boltann, var nægíleg
ánægja fyrir það.
Fyrir tslendingana, sem þarna
voru i fyrsta sinn, var þessi ferð
hrein opinberun, ekki aðeins
gagnvart golfinu heldur bara
ferðin öll og allt það, sem henni
fylgdi. Búið-var á 1. fl. hóteli,
Marine Hotel, sem er i gamalli og
virðulegri höll. Henni hefur verið
mikið breytt að undanförnu, og
segja tslendingarnir, sem búið
hafa þar áður, að hún taki stakka-
skiptum á hverju ári. Þeir hentu
gaman að þvi, að eftir að þeir fóru
að koma þangað i stórum hópum
á hverju ári, hefði barinn verið
stækkaður mikið. Hann hefði ver-
ið fyrir einn. mann i fyrstu ferð-
inni, en nú tæki hann orðið heilt
lið, og vel það.
A þessu hóteli voru hátt á annað
hundrað starfsmenn, og þar var
bæði kunnáttan og getan til að
taka á móti gestum. Fyrir tslend-
ingana var tvivegis slegið upp
dansleik, og til þeirra fengin góð
hljómsveit frá Glasgow. Sérstakt
kveðjuhóf var haldið, þar sem
kyrjuð voru islenzk ættjarðarlög
á milli þess, sem raddböndin voru
skoluð i skozkum þjóðardrykk,
sem löngu er orðinn þekktur hér á
landi, sem annars staðar.
A hverju kvöldi var safnazt
Slegið á 1'2. braut á North Berwich East Links-vellinum, þar sem útsýnið er sérlega fallegt. Sá sem er að slá, er Kristmann Magnússon i Pfaff, en
sá sem horfir svona hugfanginii á hann er Birgir Þorgilsson, annar fararstjórinn i ferðinni.
Arnór Hiálmarsson flugumferðastjóri stakk sni;
golfskálanum og fékk hæsta vinning sem hann ti