Tíminn - 04.06.1972, Side 12
12
TÍMINN
Sunnudagur 4. júni 1972.
Rætt við nokkra skipverja á varðskipunum í tilefni útfærslu
ijJJl
s<tra IJJ á
Viö staösettum togara og
skrifuöum þá upp, sem voru
aö ólöglegum veiöum. Aftur á
móti gátum viö ekki fært þá til
hafnar á þessum árum, af
skiljanlegum ástæöum.
—Veröuröu heima á
sjómannadaginn aö þessu
sinni?
—Nei, viö verðum liklega
staddir i Norðursjó á sunnu-
daginn á leið til Alaborgar.
Þar verður skipt um rafvélar i
skipinu og farið yfir aðrar vél-
ar þess. Vélarnar i Þór hafa
frá upphafi reynzt fremur illa,
bilað mjög oft, liklega vegna
srfiiöagalla á þeim.
Vélarnar eru að minu áliti
nógu aflmiklar fyrir þetta
stórt skip, u.þ.b. 1600 ha.
— Er einhver munur á aö-
búnaöi um borö i skipunum nú
eða fyrir 15-20 árum?
—Skipin eru auövitaö stærri
nú og aukin tækni hefur gert
störfin um borö mun léttari en
áöur. Útivist er þvi þægilegri
nú, þótt hún hafi fremur lengzt
en stytzt.
Tækjabúnaöur varðskip-
anna er yfirleitt nýtizkulegur,
t.d. hafa allar miöanir oröiö
öruggari með hinum nýju
Decca- og Omega miöunar-
kerfum. Móttökutæki fyrir
þessi kerfi hafa verið sett i
stærri varðskipin, nú sem
stendur eru t.d. 2 Omega-tæki
i reynsluathugun hjá okkur á
Þór.
—Eruð þiö varöskipsmenn
farnir að „vigbúast” fyrir
haustiö?
—Ekki get ég sagt þaö. Viö
höfum að sjálfsögöu fengiö
æfingu I meðferö skotvopna og
öörum löggæzlustörfum á
námskeiðum hjá lögreglunni,
og eins á sérstöku námskeiöi I
Stýrimannaskólanum. Aö
ööru leyti erum viö ekki sér-
staklega búnir undir nein
átök, við biðum bara rólegir
og sjáum hvaö setur.
Næstur á vegi minum varö
Bjarni Magnússon, yfirvél-
stjóri á Óöni. Bjarni hefur
verið i rúm 20 ár á skipum
Landhelgisgæzlunnar, og á
þeim tima á þeim öllum nema
Ægi hinum nýja.
— Þú manst vel eftir
Þorskastríðinu, Bjarni?
—Jú, ég var á Þór og Albert
á striðsárunum. Ég hélt allan
timann til i vélarrúminu,
þegar spennan var hvað mest
upp á þiljum.
Ég minnist þess einu sinni,
er ég var 1. vélstjóri á Albert,
haustið 1959, aö mér varö litiö
upp frá vélinni og sá þá hvar
brezkur togari kom
askvaöandi á eftir okkur,
e.t.v. i þeim tilgangi að sigla
okkur niður. Þaö eina, sem
mér hugkvæmdist að gera,
var að snarast niður i vélar-
rúm og gefa inn, eins og hægt
var. Við sluppum, en ekki
munaði samt miklu, aö skipin
skyllu saman. Ég er nú ekki
viss um, að Bretarnir hafi
ætlað sér að keyra okkur niö-
ur, en alla vega tefldu þeir á
tæpasta vaðið i þetta skipti.
—Hefur aöbúnaður skip-
verja um borð i varðskipunum
eitthvað breytzt á þessum 20
árum, sem þú hefur verið á
þeim?
—Aðbúnaöurinn hefur ekki
breytzt mikiö i vélarrúmi.
Mallorkaferöir Sunnu - Beint með DC 8
stórþotu. eða ferðir með Lundúnadvöl. Vegna
mikilla viðskipta og góðra sambanda gegnum
árin á Mallorca getur aðeins Sunna boðið
þangað „islenzkar" ferðir með frjálsu vali um
eftirsóttustu hótelin og ibúðirnar. sem allir
er til þekkja, vilja fá.
Eigin skrifstofa Sunnu i Palma með islenzku
starfsfólki tryggir farþegum örvggi og góða
þjónustu - Þér veljið um vinsælu hótelin
í Palma - eða baðstrandabæjunum Arenal.
Palma Nova. Magaluf. eða Santa Ponsa
Sunna hefir nú einkarétt á Islandi fyrir hin
víðfrægu Mallorqueenes hótel, svo sem
Barbados Antillas. Coral Playa. De Mar.
Bellver, Playa de Palma Luxor o. fl. - Trianon
ibuðirnar i Magaluf og góðar ibúðir í Santa
Ponsa og höfuðborginni Palma. öll hótel og
ibúðir með baði. svölum og einkasundlaugum,
auk baðstrandanna. sem öllum standa opnar
ókeypis eins og sólin og góða veðrið.
FtRflASKRIFSTOFAN SIINNA BANKASTRIETI7 SfMAR 1640012070'
málum sjómanna nú
ber liklega hæst
baráttuna fyrir út-
færslu fiskveiði-
lögsögunnar i 50 sjó-
milur 1. sept. n.k.
i tilefni þessa tók ég
undirritaður nokkra
af skipverjum Land-
helgisgæzlunnar tali i
vikunni sem leið. Þrjú
skip Gæzlunnar lágu
þá i Reykjavikurhöfn:
Þór, Óðinn og Albert.
Ég rabbaði við sjö
menn af áhöfnum
þessara skipa um hitt
og þetta, þó einkum
um fyrirhugaða
stækkun fiskveiði-
lögsögunnar og
„Þorskastriðið” við
Breta 1958-1961, svo
og störf Landhelgis-
gæzlunnar og kjör
varðskipsmanna nú
Þröst Sigtryggsson, skip-
herra á Þór, tók ég fyrstan tali
af þeim varöskipsmönnum.
Þröstur hefur stundaö sjó-
mennsku siðan 1948, fyrst á
sild- og trollveiöum, en siöar
hjá Landhelgisgæzlunni. í
Þorskastriöinu var hann m.a.
skipherra á gæzluflugvélinni
RAN.
Tal okkar barst að sjálf-
sögðu fyrst að fyrirhugaöri út-
færslu landhelginnar og
hugsanlegum átökum i sam-
bandi við hana.
—Ég get engu spáð um þaö,
hvort einhver átök eigi sér
stað á komandi hausti. Það er
allt komiö undir stjórnvöldum
i viökomandi löndum. Sem
stendur er reynt aö komast aö
samkomulagi og ég vona, aö
það takist.
— Minnistu einhverra sér-
stakra atvika úr Þorskastriö-
inu?
—Nei, ekki það ég man. Ég
starfaði einkum við gæzlu úr
lofti á þessum árum og stóö
þvi i óbeinna sambandi viö
sjálfa deiluna en þeir, sem
störfuöu á skipunum.
Siguröur Arnason
Itogi Kyjólfsson
í dag, sunnudaginn
4. júni, er hátiðis-
dagur s jómanna,
sjómannadagurinn.
Af öllum baráttu-
Við vonum að samkomulag náist
svo að ekki komi til átaka
é.. >.J' JJ
Framhald á bls. 18
/
/