Tíminn - 14.06.1972, Side 5
Miðvikudagur 14. júni 1972.
TÍMINN
5
Snjór á Hellisheiði og
vegaskemmdir víða
vegna mikilla þurrka
kj - Reykjavík
Þótt sumar og sól sé nú um allt
land, og flestir vegir séu nú orönir
færir vegna snjóa, þá er þó einn
vegur, sem töluvert er farinn á
sumrin, sem ekki er fær.
Hér er um að ræða veginn yfir
Hellisheiöi á milli Vopnafjarðar
og Héraðs.
Fjorir fa inm i husi
Jóns Sigurðssonar
Frá 1. september i ár, til jafn-
lengdar á næsta ári, munu fjórir
islenzkir fræðimenn dvelja i húsi
Jóns Sigurðssonar i Kaupmanna-
höfn. Steindór Steindórsson
skólameistari hefur fengiö afnot
af húsinu frá l.scpt. — 30. nóv.,
en þá kemur Sveinn Einarsson
leikhússtjóri og dvelur til loka
febrúar. Haraldur Asgeirsson
verkfræðingur dvelur i húsinu
næstu þrjá mánuði þar á eftir og
siðan Lárus H. Blöndal bóka-
vöröur timabilið 1. júní — 31.
ágúst.
Eldur í Fjórðungs-
sjúkrahúsinu
SB—Reykjavik
Slökkvilið Akureyrar var i gær-
morgun kl. 8.40 kvatt aö
Fjórðungssjúkrahúsinu þar.
Hafði kviknað i hálmi og
umbúðum i geymslu i kjallara
hússins. Orsök eldsins var sú að
menn sem voru þarna að vinna
að þvi að opna vegg, en vildu ekki
nota loftpressu vegna hávaðans
og skáru þvi vegginn sundur með
einhvers konar geislum og það
var neisti úr þvi verkfæri, sem
hrökk i hálminn.
Merktu seiðin
eru 11500
EB-Reykjavik.
t Timanum nú á sunnudaginn
var skýrt frá þvi,að 11500 seiðum
úr Kollafjarðarstöðinni, ætti að
sleppa i sumar, i 5 ár i 3 lands-
fjórðungum. bað, sem þvi miður
féll út úr fréttinni, var, að hér er
átt við merkt seiði, sem er
aðeins svona 1/10 hluti af öllum
þeim seiðum úr Kollafjarðarstöð-
inni, sem sleppt verður i sumar i
ár hér á landi.
Og þótt snjór sé enn á þeim
vegi, þá liður stór hluti af vega-
kerfi landsmanna • vegna
þurrkanna, sem verið hafa að
undanförnu. Fjölfarnir vegir eru
sumir hverjir eins og hraun yfir
að lita, en góðar fjaðrir og góð
dekk forða vegfarendum frá þvi
að hristast i sundur, en i stað þess
hristist eitthvað af bilnum i
sundur. Sumsstaðar þar sem
harpaður og finn ofaniburður
hefur verið settur i ákveðinni
þykkt á veginn, er allt fokið i
burtu, aða þá komið út i veg-
kantinn.
En ekki er ofaniburðurinn alls-
staðar finn, þvi eftir fréttum ofan
úr Biskupstungum að herma, þá
er ofaniburðurinn þar svo grófur,
að illt er yfirferðar fyrir litla
fjölskyldubila.
Annars er hægt að flytja veg-
farendum þau ánægjutiðindi að
Kaldikalur er nú orðinn fær, og
þá Uxahryggir lika, og hafa veg-
irnir verið heflaðir og lagfærðir.
Af öðrum sumarvegum er það að
frétta, að Frostastaðavatn hefur
legið yfir veginum i Landmanna-
laugar og á Fjallabaksleið nyðri
er snjór i Jökuldölunum. Þeir,
sem vilja fara i Eldgjá, geta hins-
vegar farið upp Skaftártungur og
yfir nýja brú á Ófæru, og geta þá
væntanlega klifið Blátind i leið-
inni. Ekki er farið að lita á Kjal-
veg, og heldur ekki Sprengisands-
leið, en einhverjir munu þó hafa
farið i Kerlingarfjöll og gengið
svona sæmilega — en ekki meira
en það.
Rannsaka kol-
munnann í Rvik
KJ-Reykjavik.
Eldborg hefur tvivegis landað
kolmunna á Reyðarfirði, og i sið-
ara skiptið á sunnudaginn. Kom
skipið þá með 150 lestir af kol-
munna, sem fengizt hafði um 50
milur NA af Norðfjarðarhorni.
Tveim dögum áður landaði Eld-
borg 22 lestum af kolmunna, en
þann afla fékk skipið á milli Fær-
eyja og Islands. Verið er að bræða
kolmunnann i rikisverksmiðjunni
á Reyðarfirði, og búið er að senda
sýnishorn af aflanum suður. Kol-
munninn er frekar magur, en
einkum er sótzt eftir lifrinni til að
bræða. Skipstjóri á Eldborgu er
Gunnar Hermannsson.
IÐNSKOLINN I REYKJAVIK
Verklegt nám i
bifvélavirkjun
Ráðgert er að hefja kennslu i bifvéla-
virkjun á næsta skólaári með þriggja
mánaða verklegu námskeiði, sem
væntanlega hefst fyrst i september n.k.
Námskeiðið er ætlað nemendum, sem ekki
eru á námssamningi,en hafa lokið námi i
málmiðnadeild Verknámsskóla
iðnaðarins og hyggja á iðnnám í bifvéla-
virkjun og einnig þeim, sem lokið hafa 2.
bekk iðnskóla og eru þegar á
námssamningi.
Umsóknir um námið ber að leggja inn hjá
yfirkennara dagana 15. og 16. þ.m., stofu
312, þar sem nánari upplýsingar verða
gefnar.
Skólastjóri.
Skipstjóri og eigandi Hörpu GK—111, llafsteinn Sæmundsson ásamt eiginkonu sinni Agústu H. Gisla-
dóttur, sem gaf skipinu nafn.
,-> /
Grindvíkingar
fá nýtt skip
A laugardaginn var sjósett frá
Skipasmiðastöð Þorgeirs & Ell-
erts á Akranesi nýtt 103 rúmlesta
fiskiskip úr stáii, sem byggt er
fyrir Hafstein Sæmundsson,
útgerðarmann i Grindavik, en
hann verður jafnframt skipstjóri
á þessu nýja skipi.
Frú Agústa H. Gisladóttir, eigin-
kona eigandans, gaf skipinu
nafnið Harpa GK-111. Skipiö er
útbúið til veiða með linu, netum
og botnvörpu með skuttogi. Fiski-
lest þess er einangruð og búin
tækjum til kælingar og einnig
bjóðageymsla, sem staðsett er
aftast á þilfarshúsi.
Mesta lengd skipsins er 27,60 m,
breidd þess er 6,60 m og dýpt 3,30
m. Það er búið öllum
fullkomnustu tækjum. Aðalvélin
er Caterpillar D-379, 565 hestöfl.
Skipið mun halda á veiðar ein-
hvern næstu daga.
R-NÚMER YFIR 30
- EN 22 ÞÚS. BILAR í
ÞÚSUND
REYKJAVÍK
KJ — Reykjavik
Það mætti kannski halda,
samkvæmt bilnúmerunum i
Reykjavik að bifreiðaeign höfuð-
borgarbúa væri komin á fjórða
tuginn, þvi að nú má sjá nýja
bíla og gamla með númer yfir 30
þúsund.
Um tima voru það aðeins bif-
reiðar slökkviliðsins i Reykjavik,
sem voru með númer yfir 30
þúsund, en i fyrri viku var farið
að setja svo há númer á venju-
lega bila lika.
Guðni Karlsson forstöðumaður
Bifreiðaeftirlits rikisins sagði i
viðtali við Timann að bifreiðaeign
höfuðborgarbúa væri samt ekki
kominn á fjórða tuginn, þvi að
um siðustu áramót voru rúmlega
átta þúsund ónotuð númer með R
bókstaf i bifreiðaeftirlitinu, svo
reikna mætti með að skráðar bif-
reiðir i Reykjavik væru i kring
um 22 þúsund talsins. Nákvæmar
tölur um bifreiðaeign lands-
manna um siðustu áramót liggja
ekki fyrir, þótt rúmir fimm
mánuðir séu liðnir af árinu, en
skýrslur um bifreiðaeignina eru
Eru byrjaðir
á stærsta
laxastiganum
- og öðrum minni
í Laxá í Kjós
EB-Reykjavik.
t sumar verður byrjaö að gera
stærsta laxastigann, sem gerður
hefur verið hér á landi. Verður
hann i Lagarfossi og má kalla
hluta af virkjunarframkvæmd-
unum austur þar.
Þór Guðjónsson, veiði-
málastjóri, sagöi i viðtali við
Timann, að þessi stigi yrði tals-
vert langur, en hæð hans verður
hins vegar aðeins 14 metrar. Mun
vera ráðgert að ljúka við gerð
stigans 1975.
Fram kom i viðtalinu við veiöi-
málastjóra, að nú er verið að
ljúka við að endurbyggja laxa-
stigann i Eyrarfossi i Laxá i
Leirársveit, en hann varð fyrir
skemmdum i vetur. Þá er byrjaö
á gerð laxastiga i Laxfossi i Laxá
i Kjós. Þeirri framkvæmd á að
ljúka á næsta ári, sam-
kvæmt upplýsingum veiðimála-
stjóra.
nú gerðar i Skýrsluvélum rikis-
ins, og valda byrjunarörðug-
leikar þessari töf á útkomu bif-
reiðaskýrslunnar.
Við sjáum ekki betur en þetta sé Jón Reynir Magnússon efnaverk-
fræðingur, sem eraöfesta eitt af háu númerunum á Opel Commodore.
(Timamýnd G.E.)
f YFIRLÆKNIR
Staða yfirlæknis i orkulækningum við
Borgarspitalann er laus til umsóknar.
Umsækjandi skal vera sérfræðingur i
orkulækningum eða hafaverulega starfs-
reynslu á sviði endurhæfingar, enda er
yfirlækninum ætlað að stjórna allristarf-
semi á þvi sviði á sjúkrastofnunum
borgarinnar, jafnframt þvi að vera yfir-
læknir á Grensásdeild Borgarspitalans,
sem er i byggingu.
Staðan veitist frá 1. okt.n.k. eða siðar eftir
samkomulagi. Laun samkvæmt samningi
Læknafélags Reykjavikur við Reykja-
vikurborg. Nánari upplýsingar veitir
borgarlæknir.
Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og
fyrri störf sendist landlækni fyrir 1. ágúst.
n.k.
Reykjavik 12.6 1972.
Heilbrigðismálaráð
Reykjavikurborgar.