Tíminn - 14.06.1972, Blaðsíða 12
12
TÍMINN
Miövikudagur 14. júni 1972.
////
er miðvikudagurinn 14. júní 1972
HEILSUGÆZLA
Slökkviliðiö og sjúkrabifreiðar
fyrir Reykjavik og Kópavog.
Simi 11100.
Sjúkrabifreiö i Hafnarfiröi.
Sirni 51336.
Slysavaröstofan i Borgar-
spitalanum er opin allan
sólarhringinn. Simi 81212.
Tannlæknavakt er i Heilsu-
verndarstöðinni, þar sem
Slysavaröstofan var, og er
opin laugardaga og sunnu-
daga kl. 5-6 e.h. Simi 22411.
I.ækningastbfur eru lokaðar á
laugardögum, nema stofur á
Klapparstig 27 frá kl. <9-11 f.h.
Simi 11360 og 11680. — Um
vitjanabeiðni visast til
helgidagavaktar. Simi 21230.
Kvöld, nætur og helgarvakt:
Mánudaga-fimmtudaga kl.
17.00-08,00. Frá kl. 17,00 föstu-
daga til kl. 08,00 mánudaga.
Simi 21230.
.Upplýsingar um
læknisþjónustu i Reykjavlk
eru gefnar i sima 18888.
ónæmisaögeröir gegn mænu-
sótt fyrir fullorðna fara fram i
Heilsuverndarstöð Reykjavik-
ur á mánudögum frá kl. 17-18.
Apótck llafnarfjaröar er opið
alla virka daga frá kl. 9-7, á
laugardögum kl. 9-2 og á
sunnudögum og öðrum helgi-
dögum er opið frá kl. 2-4.
Kvöld og nælurvörzlu i Kefla-
vik 14. júni annast Jón K.
Jóhannsson.
Nætur og helgidagavörzlu.
apótekanna i Reykjavik 10. til
16. júni annast, Laugavegs
Apótek, Holts Apótek.
BLÖÐ OG TÍMARIT
Sjómannadagsblaöið, 4. júni
1972. Helzta efni: Fiskimiö
okkar- fjöregg þjóöarinnar.
Gjafir til Hrafnistu.
Sjómannadagurinn i Reykja-
vík 1971. Viðförull sjófarandi.
Hrafnista- Dvalarheimili
aldraðra sjómanna. Sumar-
dvalarheimili Sjómannadags-
ráðs. Kiwanisklúbburinn
Hekla. Sjómannadagurinn i
Grindavik. Hér hef ég alla æfi
mina dvalið, Jóhannes
Jónsson, Gauksstööum rifjar
upp sitthvað frá liöinni æfi.
Kveðja og þökk yfir hafið. 50
milna landhelgin Fernando
Magellan. Sjóslys og
drukknanir. Svarti fress-
kötturinn. Lási kokkur og fl.
Úlfljótur. 2. tbl. 1972 er komiö
út, efni, m.a. Dr. Armann
Snævarr, prófessor:
Hjúskaparlöggjöf á hvörfum.
Ingólfur Hjartarson hdl.
meðalákvörðunarréttur
starfsfólks, atvinnulýðræöi.
SÖFN OG SÝNINGAR
Listasafn Einars Jónssonarer
opið daglega kl. 13.30 til 16.
FLUGAÆTLANIR
Flugáætlun Loftleiöa. Eirikur
rauði kemur frá New York kl.
05.00 Fer til Luxemborgar kl.
05.45. Er væntanlegur til baka
frá Luxemborg kl. 14.30. Fer
til New York kl. 15.15.
Þorfinnur karlsefni kemur frá
New York kl. 07.00. Fer til
Luxemborgar kl. 07.45. Er
væntanlegur til baka frá
Luxemborg kl. ,16.30. Fer til
New York kl. 17.45. Leifur
Eiriksson kemur frá New
York kl. 17.45. Leifur Eiriks-
son kemur frá New York kl.
07.00. Fer til óslóar og Kaup-
mannahafnar kl. 08.00. Er
væntanlegur til baka frá
Kaupmannahöfn og ósló kl.
16.50. Fer til New York kl.
17.30.
SIGLINGAR
Skipaútgerö ríkisins. Esja fer
frá Reykjavik i kvöld austur
um land i hringferð. Hekla er i
Reykjavik. Herjólfur fer frá
Vestmannaeyjum kl. 10.30 i
dag til Þorlákshafnar, þaðan
aftur kl. 17.00. til Vestmanna-
eyja. Frá Vestmannaeyjum
kl. 21.00 i kvöld til Reykja-
vikur. Baldur fór frá Reykja-
vik kl. 19.00 i gærkvöld vestur
um land til ísafjaröar.
Skipadeild S.l.S. Arnarfell fer
i dag frá Akureyri til Rotter-
dam og Hull. Jökulfell fór 7.
þ.m. frá New Bedford til
Reykjavikur. Disarfell fór i
gær frá Alaborg til Malmö,
Ventspils og Lubeck. Helgafell
er I Alaborg, fer þaðan til
Kotka. Mælifell væntanlegt til
Reyðarfjarðar i dag. Skafta-
fell fór i gær frá Setubal til
Faxaflóahafna. Hvassafell er
i LUbeck, fer þaðan til Svend-
borgar, Leningrad og
Ventspils. Stapafell oliu-
flutningum á Austfjörðum.
Litlafell væntanlegt til
Weaste 15. júni fer þaöan til
Rotterdam.
FÉLAGSLÍF
Frá Prestkvennafélagi
tslands. aðalfundur Prest-
kvennafélags tslands veröur
haldinn i Norræna húsinu,
mánudaginn 19. júni n.k. kl.
Stjórnin.
Dansk kvindeklubs árlige
sommerudflugt starter fra
Tjarnarbúð tirsdag den 20.
juni kl. 10.00 f.m.
Bestyrelsen.
ORÐSENDING
Orlof húsmæöra i Kópavogi,
veröur 8-16. júli að Lauga-
gerðisskóla. Innritun á skrif-
stofu orlofsins i Félagsþeim-
ilinu 2.h. sem opin er frá kl. 4-6
á þriðjudögum og föstu-
dögum frá 23. júni.
Læknaritari
Staða læknaritara við Landspitalann er
laus til umsóknar. Stúdentspróf eða hlið-
stæð menntun æskileg, ásamt góðri
vélr itunarkunnáttu.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf sendist skrifstofu
rikisspitalanna fyrir 26. júni n.k.
Reykjavik, 13. júni 1972.
Skrifstofa rikisspitalanna.
Þeir missa sjaldan nokkuð i
vörninni, itölsku spilararnir. A
HM 1967 opnaði Murrey, Kanada,
á 3 L á spil Noröurs, sem gekk til
V, Forguet, sem doblaöi. Garozzo
i A haföi litið viö það að athuga,
en sennilega hefur Kehela i S nag-
aö sig i handarbökin eftir á að
breyta ekki I T.
♦ 82
V K10
♦ 864
+ DG10832
* AG94 * D1075
▼ AG875 T D 3
* A97 ♦ 10
* K * A97654
* K63
V 9642
KDG532
ekkert
Garozzo spilaöi út T-10. tekið á
As og T-9 spilað, biður um Sp.
Garozzo trompaði og spilaði Sp. -
D, gefið, og litill Sp., sem Forguet
fékk á G. Aftur T og trompaður —
og siðan Sp., sem N trompaði. Þá
L-10 og V fékk á K og Sp., sem N
trompaði með L-8. Þá L-D, sem
Garozzo tók á Ás, og hann spilaði
L-9. Murrey tók á G og spilaöi
aftur trompi, svo Garozzo varö aö
spila Hj. og N fékk á K. 900 til
Italiu og 6 stig, þar sem Kaplan
vann 5 Sp. á hinu borðinu, 650.
Þessi staöa kom upp i skák
Kunin, sem hefur hvitt og á leik,
og Ochengoit i Moskvu 1958.
10. Bb5! —Rc6 11. Re5-f og svart-
ur gafst upp (RxR þá Be8+ og
mát i öðrum leik.)
Friðarrannsóknir afrabTsha9ld
ara tók við völdum i Bonn 28.
október 1969, sagði hann: ,,Við
munum fara að frumkvæði
sambandsforsetans og sam-
ræma friðarrannsóknirnar —
af þvi að við vitum, að ein-
ungis takmarkað starfslið get-
ur fengizt við þær, eins og nú
standa sakir — en við munum i
engu skerða sjálfstæði
annarra, sem vinna að sama
verki. Það er ætlun okkar, að
með þessu veröi um framlag
að ræða af hálfu Þjóðverja i þá
átt að friða heim, sem hefur
lengi orðið að þola hættur og
styrjaldir.”
Menn gera sér ljósarigrein
fyrir þvi viða um heim, að
friðinum er alvarleg hætta bú-
in, og þess vegna er úrræða til
að tryggja hann leitað af
meira kappi en áður. En jafn-
framt þvi að stjórnmálamenn
gerðu eindregnari tilraunir til
að tryggja friðinn i Evrópu,
fundu menn i Vestur-Þýzka-
landi þörfina fyrir visinda-
grein, sem hafði aðeins mótað
fyrir siðustu áratugina i kröf-
um einstakra heimspekinga
og stjórnmálafræðinga. Þegar
svo var komið, voru friðar-
rannsóknir komnar á rekspöl i
Vestur-Þýzkalandi.
JÓN ODDSSON
hrl.
málflutningsskrifstofa
Laugaveg 3. Simi 13020.
Urvals hjólbaröar
Flestar gerbir ávallt
fyrirliggjandi
Ffjót og góð þjónusta
LAUSSTAÐA
Staða sérfræðings i jarðfræðideild
Náttúrufræðistofnunar íslands er laus til
umsóknar.
Þær greinar jarðfræðinnar, sem umsækj-
endur þyrftu einkum að verá sérmenntað-
ir i, eru steinafræði, bergfræði og stein-
gervingafræði.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna
rikisins.
Umsóknir með upplýsingum um menntun
og fyrri störf skulu sendar menntamála-
ráðuneytinu fyrir 12. júli n.k.
Menntamálaráðuneytið
12. júni 1972
+
Góöur guö blessi alla.er sýndu okkur samúö og vináttu viö
andlát og útför ástvinar okkar.
BJARNA JÓNSSONAR
Hellu
Scrstakar þakkir færum viö Heimi Bjarnasyni lækni.
Jórunn S. Magnúsdóttir,
Sigurjón Helgason,
Arni Sigurjónsson, Guöný Jónadóttir,
Gunnar Sigurjónsson, Sóley Olgeirsdóttir,
Jórunn Sigurjónsdóttir,
Júlia Gunnarsdóttir,
og systkyni hins látna.
Þökkum auösýnda samúö viö andlát og jaröarför
ÞÓRIS STEINÞÓRSSONAR
fyrrverandi skólastjóra, Reykholti.
Laufey Þórmundsdóttir, börn, bræöur og aörir aöstand-
endur.
Útför eiginmanns míns, fööur okkar og tengdafööur,
PÁLS DIÐRIKSSONAR
verður gerð frá Búrfellskirkju föstudaginn 16. júni
Athöfnin hefst I Selfosskirkju kl. 2 e.h.
Laufey Böövarsdóttir
börn og tengdabörn
Útför móöur okkar og stjúpmóöur,
ÞORLÁ KSÍNU SÆUNNAR
VALDIMARSDÓTTUR
frá Jaöri, Dalvik,
fer fram frá Dalvikurkirkju, fimmtudaginn 15. júnl kl. 2
e.h.
Kristin Jóhannsdóttir,
Kjartan Jóhannsson,
Kolbeinn Jóhannsson,
Valdimar Jóhannsson,
Sveinn Jóhannsson.