Tíminn - 14.06.1972, Síða 7
Miövikudagur 14. júni 1972.
TÍMINN
7
Nýr
íþróttaleikvangur
í Paris.
Nýlokið er við að byggja nýj-
an iþróttavöll i Paris, og geta 50
þúsund áhorfendur horft á það,
sem fram fer á vellinum úr sæt-
um sinum. Leikvangurinn er
kallaður Parc des Princes, og er
suðvestan við Paris. Arkitekt-
inn Jean Tallibert teiknaði og
skipulagði iþróttavöll þennan,
og er hann likastur egglaga
skál, meö þaki sem ris yfir sæt-
in. Þannig er hægt að verja
áhorfendur gegn regni, en þó
nær þakið ekki það langt inn, að
það skýli þeim, sem sitja á
fremstu bekkjunum. Fólk hefur
þó bent á, að eitt stórt vandamál
eigi eftir að risa upp i framtið-
inni, þegar mikil aðsókn verður
að þessum iþróttavelli. — Það
er mjög erfitt um bilastæði á
nágrenni vallarins. — Þá hafa
menn bent á, að kostnaðurinn
við gerð vallarins var geysilega
mikill. Völlurinn mun hafa kost-
að um 18 milljónir dollara og
var það þrisvar sinnum meira,
en ráð hafði verið fyrir gert i
upphafi. Ein aðalorsökin fyrir
þessari hækkun, er sú, að völl-
urinn er hitaður upp með raf-
magni, og á það að koma i veg
fyrir að grassvörðurinn á vellin-
um frjósi.
Ólympiu-gestir
til Berlinar.
Yfirvöld i Vestur Berlin eru
nú farin að undirbúa af miklu
kappi móttöku gesta sem koma
munu til Miinchen vegna
Olympiuleikjanna. Það tekur
ekki nema eina klukkustund að
fljúga frá Miinchen til Berlinar,
og allt verður gert til þess aö
draga athygli ferðamanna aö
borginni og þvi, sem hún hefur
upp á að bjóða. Auðvitað verður
reynt að fá gestina til þess aö
dveljast nokkra daga um kyrrt I
Berlin, þvi borgaryfirvöldin
hafa áhuga á peningum ferða-
mannanna ekki siður en ailir
aðrir, sem eiga eftir að mata
krókinn i sambandi við þessa
miklu leiki.
Dómkirkja lagfærð.
Dómkirkja i Strassborg i
Frakklandi verður senn færð i
sinn upprunalega búning, að þvi
er sagt er. Til dæmis verður rif-
in hvelfing, sem reist var við
kirkjuna á 19. öld, en i staðinn
endurreistar gotneskar turn-
spirur, i þeim stil, er upphaflega
var á kirkjunni. Verkið mun
taka þrjú ár, og verður hafizt
handa á næsta ári.
Mikill verkmaður
Skúli læknir Thorarensen bjó
á Móeiðarhvoli, og var meðal
hjúa hans maður sem Páll hét,
mikill dugnaðarforkur og i
góðum metum hjá lækninum,
húsbónda sinum.
Þann skugga bar þó á, að Páll
var maður mjög þunglyndur og
raunar ekki heill geðsmuna á
köflum. Þar kom, að Páll varð
sjálfum sér að grandi. Var hann
að raka gærur á Móeiöarhvoli,
er það ósjálfræði kom að
honum, að hann brá hnifnum á
háls sér.
Allir urðu skelfinu lostnir, og
var i skyndi kallað á Skúla
lækni. Gekk hann þegar inn, þar
sem Páll lá i blóði sinu, en
annað fólk beið þess utan dyra
að heyra, hvar komið væri fyrir
Páli. Þar á meðal var kona
Skúla, Ragnheiður. Kallaði hún
til manns sins og spurði, hvort
manninum væri lift. Læknirinn
svaraði:
„Það hefur nú ekki hingað til
þurft að ganga i verkin hans
Páls mins”.
Maðurinn minn á ekki
að sjást, né i honum að
heyrast
Drottningarmennirnir i Eng-
landi og Hollandi, Filipus og
Bernard ganga alltaf nokkrum
skrefum fyrir aftan eiginkonur
sinar, þegar þær koma fram
opinberlega. A þann hátt er
sýnt, að þeir eru konum sinum
óæðri. Þetta er þó ekkert i
samanburði við það, sem fram-
tiðin býður Henrik prinsi i Dan-
mörku uppá. Hin nýja drottn-
ing, Margrét, hefur ákveðið að
maður hennar skuli ekki hafa
annað hlutverk með höndum en
föðurhlutverkið, já og hlutverk
eiginmannsins innan veggja
hallarinnar. Henrik prins verð-
ur þvi aðeins skuggi af þvi, sem
bæði Filipus og Bernard eru. Og
hvers vegna hefur Margrét
ákveðið, að þannig skuli það
verða? Það er sagt, að ákvörðun
hennar stafi af þvi, hversu óvin-
sæfl maður hennar er i Dan-
mörku. Hvar svo sem Henrik
kemur fram opinberlega virkar
hann ótrúlega taugaóstyrkur.
Hann er alltaf að fikta við gift-
ingarhringinn sinn, ef hann er
að tala við ókunnugt fólk, og
tekur hringinn gjarnan af sér og
setur hann upp á þumalputtan,
og siðan aftur á baugfingur.
Hann svitnar á höndunum. og
þarf alltaf að vera aö þurrka
svitadropana af enninu. Allt
bendir þetta til þess að hann sé
taugaóstyrkur i meira lagi og
þetta og margt fleira fer i taug-
arnar á Dönum. Þar við bætist,
að Henrik hefur látið hafa eftir
sér ýmislegt, sem Dönum fellur
ekki verðandi barnauppeldi og
hlutverk konunnar i þjóðfé-
laginu. Hann heldur þvi m.a.
fram, að konan eigi að halda sig
innan veggja heimilisins, en nú
bendir allt til þess að kona hans
ætli að dæma hann til þess, sem
hann hefur látið skina i, að ætti
að vera hennar eina hlutverk,
Margrét hefur alla tið verið
mjög sparsöm, en það er vist
tæpast hægt að segja það sama
um Henrik. Hann er mjög
eyðslusamur og veltir ekki
skildingunum á milli handanna,
áður en hann eyöir þeim i ein-
hverja vitleysu. Sér i lagi eyðir
hann miklum fjármunum til
fatakaupa. Þvi kom háðsbros á
varir dönsku þjóðarinnar þegar
hann var valinn bezt klæddi
maður Danmerkur, árið 1968.
Enn eitt fer i taugarnar á
dönsku þjóðinni. Það eru langar
og dýrar skemmtiferðir, sem
hann tekur sér fyrir hendur til
annarra landa, og þá oftast
einn. Dönum finnst hann gæti
vel haldið sig heima við hjá
konu sinni og börnum, enda
þykir allri dönsku þjóðinni
óendanlega vænt um hina
skylduræknu drottningu sina, og
vilja ekki vita af þvi að henni
sé ekki sýnd viöeigandi virðing
og hlýja. Þykir fólki þvi leitt að
halda, að hjónaband Margrétar
og Henriks virðist ekki sem
bezt. Það fyrsta, sem Margrét
gerði til þess að draga úr valdi
mann sins út á við var aö taka
nafn hans úr rikisalmanakinu,
en það stóð við fæðingardag
hans.
Honum er ekki leyfilegt fram-
vegis að taka við nokkurri
viðurkenningu á afmælisdegi
sinum. Þá hefur drottningin
ákveðið, aö myndin, sem tekin
var af þeim nokkru eftir dauða
Friðriks konungs, myndin, sem
fylgir með þessari frásögn, og
fólk haföi viða hengt upp, skuli
tekin niður aftur, og i stað
hennar hengd upp mynd af
hennieinni. Akveðiö haföi verið,
að gera prinsinn að æðsta manni
flughersins, en drottningin
hefur neitað að þaö veröi, en i
staöinn hefur hún ákveðið, að
verða sjálf hershöfðingi allra
greina hersins i Danmörku. Allt
bendir þvi til, að framtið Hen-
riks verði ekki sem glæsilegust,
og ef til vill á utanlandsferðum
hans einsamals eftir að fjölga
frekar en hitt, og þætti engum
mikið, eftir alla þá niður-
lægingu, sem þetta hlýtur allt
saman að hafa i för með sér
fyrir hann.
DENNI
DÆMALAUSI
Dennis hefur veriö að koma með
alls konar gamalt dót heim frá
Wilson-hjónunum.