Tíminn - 02.08.1972, Side 3

Tíminn - 02.08.1972, Side 3
Miftvikudagur 2, ágúst 1972 TÍMINN 3 Friðrik Ölafsson skrifar um níundu skákina IIv: Spasski Sv: Fischer Semi-Tarrasch vörn. I. d4 Spasskí heldur tryggð við drottningarpeðsleikinn þrátt fyrir erfiðleikana i 3. og 5. skákinni. NU varð nokkur bið á þvi, að Fischer léki fyrsta leik sinum þar sem hann mætti ekki til leiks fyrr en 10 min- útur yfir fimm. 1. —, Kf(i 2. c4, e(i 3. Rf3 Spasski lék 3. Rc3 i 5. skák- inni og upp kom nimzo-ind- versk vörn, þ.e. 3. —, Bb4 4. Rf3, c5 5. e3, Rc6 6. Bd3, Bxc3+! o.s.frv. Spasski hélzt illa á þessari stöðu og lenti fljótlega i erfiðleikum. 3. —, d5 3. —, c5 gafst Fischer vel i 3. skákinni, en hann álitur ráð- legast að geyma þann leik til siðari tima. 4. Rc3, c5 Fram að þessu hefur skákin teflzt á sama hátt og 1. skákin en hér breytir Fischer enn einu sinni út af. Hann er litið fyrir það gefinn að hjálpa and- stæðingum sinum við undir- búninginn. Með þessum sið- asta leik svarts er komin upp svonefnd semi-Tarrasch vörn. 5. cxd5, Rxd5 Fischer hefur einstaka sinn- um beitt þessari vörn, m.a. i einni skáka sinna við Reshevsky i einvigi þeirra 1961 sem aldrei lauk. (Fischer neitaði að halda þvi áfram vegna ágreinings um frestun einnar skákarinnar.) (i. e4 Skarpasta áframhaldið. Þessi leikur komst mjög i tizku eftir að Spasski beitti honum gegn Petrosjan i ein- vigi þeirra um heims- meistaratitilinn 1969 og vann glæsilegan sigur. 6. —, Rxc3 7. bxc3, cxd4 8. cxd4, Rc6 Sjaldséður leikur i þessari stöðu, en Fischer lumar alltaf á einhverju nýju i hverri skák. Skákin, Spasski-Petrosjan, sem var sú 5. i einviginu 1969 tefldist á þessa leið: 8. —, Bb4+ 9. Bd2, Rxd2+ 10. Dxd2, 0-0 11. Bc4, Rc6 12. 0-0, b6 13. Hadl,Bb7 14. Hfel, Hc8 15. d5 ! og hvi'tur náði yfir- burðastöðu. 9. Bc4, 1)5 ?! Sérstök aðferð til að koma svarta drottningarbiskupnum i spilið. Hvitur má að sjálf- sögðu ekki drepa þetta peð vegna drottningarskákarinn- ar á a5 (10. Bxb5?, Da5+.) Spassky Friðrik Fischer 10. Bd3 Hérkom sterklega til greina að leika 10. Be2 til að hafa betra vald á d-peðinu hvita. 10. —, Bb4 + 11. Bd2, Bxd2 + 12. I)xd2, a(> 13. a4, 0-0 Ef nú 14. axb5, þá —, Rxd4 15. Rxd4, Dxd4 og hvitur fær engu áorkað. 14. I)c3, Bb7 15. axb5, axb5 16. 0-0 Heimsmeistarinn áræðir ekki að drepa peðið á b5, enda virðist litill akkur i þvi. T.d. 16. Hxa8, Dxa8 17. Bxb5, Re7 (eða til a7) og e-peðið hvita verður ekki varið áfallalaust. Eða 16. Bxb5,væri einfaldasta leiðin fyrir svart — Hxal+ 17. Dxal, Db6 og hvítur verður að láta peðið af hendi aftur. 16. —, Db(> 17. Habl, 1)4 Hvitur hefur e.t.v. haft i hyggju að svara þessum leik með 18. d5, en komizt að raun um það við nánari afthugun að sá leikur leiðir tii einskis t.d. 18. d5, exd5 19. exd5, bxc3 20. Hxb6, Ra5 og staðan leysist upp. 18. Dd2 Eða 18. Db2, Hfd8. 18. —, Rxd4 Nú leysist skákin upp i „steindautt” jafntefli. 19. Rxd4, I)xd4 20. Ilxb4, I)d7 ' 21. Dc3 21. e5 hótar að visu 22. Bxh7+, en Fischer andæfir þeirri hótun einfaldlega með 21. —, Hfd8 21. —. Hfd8 22. llfbl, I)xd3 23. I)xd3, Ilxd:t 24. !Ixb7 Ekki þarf mikla skákkunn- áttu til að gera sér grein fyrir að þessi Staða er ekkert nema jafntefli. 24. -. gs 25. Hb8+, Ilxll 26. Hxb8+, Kg7 27. f:t, Hd2 28. b4, b(> Fischer litur ekki við peðinu á h4, en reyna mátti 28. —, g4. 29. hxg5, hxg5 ABCDEFGH ee •o at oi M \k\ A! A! A abcdefgh Jafntefli. Staðan nú 572 - 3X Fischer í vil: DAUTT JAFNTEFLI” í 9. SKÁKINNI »7 ET-Reykjavik. 9. einvigisskákinni lauk með jafntefli eftir 29 leiki. Skákin var ein sú bragðdaufast, sem tefld liefur verið liingað til í þessu ein- vigi. Hún var engu að siður skemnitileg á að horfa og lengi framan af varð ekki ráðið, hvor stæði bctur. Spasski kaus drottningarleik i upphafi, en Fischer beindi skák- inni inn á braut svonefndrar semi-Tarrasch varnar. Siðar tóku við uppskipti, er leiddu að lokum til „dauðrar jafnteflisstöðu”. Eftir þetta leiðir Fischer enn með 2 vinningum, hefur nú hlotið 5 1/2 gegn 3 1/2 . 10. einvigisskák- in vcrður væntanlega tefld á morgun (fiinmtudag). Byrjunin svipuð fyrstu skákinni Spasski hefur 9. einvigisskák- ina með drottningarleiknum: d4. Fischer svarar með Rf6 og leikirnir eru þeir sömu og i 1. ein- vigisskákinni, unz áskorandinn breytir útaf i 4. leik: c5. Sá leikur beinir skákinni i farveg svonefnds semi-Tarrach varnarafbrigðis. Staðan að loknum fyrstu 10 leikjunum er tviræð og menn ekki á eitt sáttir um stöðu keppenda. Sumir segja, að hvitur standi bet- ur, að vigi, aðrir veðja á svartan (e.t.v. vegna trúar á ofurmátt Fischers) — þessi skák getur endað hvernig sem er! Uppskipti — en skiptar skoöanir Skákin liðast áfram og þeir tvi- menningarnir halda áfram að skipta upp mönnum og peðum, ef ekki vill betur. Ég bregð mér nið- ur i skýringasal, þar sem Jón Þorsteinsson, fyrrv. al- þingismaður, er i óða önn að skýra leikina og spá fyrir um framhaldið. Jón telur, að staðan sé torræð þessa stundina, en telur hana skýrast verulega að 4-5 leikjum loknum. Benóný Benónýsson er ekki sammála Jóni og segir: „Hvitur hefurbetri stöðu.” Og menn velta vöngum yfir þessari staðhæfingu Benónýs meðan skákin þokast fram á við. Þeir keppendurnir hafa nú (að loknum 16 leikjum) notað svipað an tima til umhugsunar. (Spasski var vissulega með betri tima framan af, en Fischer hefur leikið fremur hratt upp á siðkastið.) Drottningakaup — jafn- tefli ekki umflúið f 22. leik lætur Fischer til skar- ar skriða og leikur DxBd3, neyðir sem sagt Spasski i drottninga- kaup. Nú tekur skákin alltaf á sig meiri og meiri jafnteflissvip. Ég spyr John Collins, lærifaðir Fischers, um stöðuna og hann svarar: „Mér sýnist þetta vera dautt jafntefli.” Það er eru orð að sönnu, þvi að að loknum 29. leik semja keppendurnir um jafntefli. — Ekki óvænt úrslit, úr þvi, sem komið er. Og þeir Fischer og Spasski flýta sér að yfirgefa keppnisstaðinn. Sá fyrrnefndi rýkur burtu ásamt Sæ- mundi Pálssyni i Citroen-bifreið Sæmundar, en heimsmeistarinn ekur á braut i Range-Rover þeirra Rússanna. Bent Larsen: „Jafnteflis- leg skák". Ég spyr danska stórmeistarann Bent Larsen um nýafstaðna skák þeirra Fischers og Spasskis. „Staðan var alltaf i jafnvægi. Að visu hafði Spasski eitt sinn möguleika á vinningi, en hann notfærði sér það tækifæri ekki réttilega. Annars gerði Spasski sig áreiðanlega ánægðan með jafntefli — og á sama hátt tók Fischer enga áhættu i þessari skák.” Ég spyr Larsen, hverjir mögu- leikar séu fyrir Spasski á sigri i einviginu. (Áður hafði danski stórmeistarinn lýst þvi .yfir, að ynni Spasski þessa skák, þá væru 50% likur á sigri hans i einviginu. Tapaði hann hins vegar, minnk- uðu likurnar um helming, niður i 25%). „Möguleikar Spasskis eru sannarlega litlir i dag. Þó verður auðvitað að reikna með honum. Spasski er að min áliti betri skák- maður en Fischer, takist honum vel upp.” Ég get bætt þvi við til gamans, að júgóslavneskur blaðamaður spurði Larsen i gærkvöld, hver væri bezti skákmaður heimsins. Daninn svaraði án umhugsunar: „Þú veizt liklega, að til er skák- meistari, sem heitir Bent Larsen. Og þú veizt væntanlega lika, að hvorki Spasski né Fischer eru beztir i heiminum i dag!” Fátt að frétta utan skák- borðsins Engar kvikmyndir voru teknar i keppnissalnum i gær. Chester Fox var daufur i dálkinn og sagði, að ekkert hefði þokazt i áttina sið- ustu daga. Kvikmyndatöku- mennirnir voru sama sinnis, enda litil furða. Guðmundur G. Þórarinsson var svartsýnn á, að kvikmyndun hæf- ist nokkurn tima. Hann sagði það sina skoðun, að segja ætti mynda- tökumönnum Fox upp störfum, þar eð þeir sætu með öllu að- gerðarlausir á fullu kaupi. Að öðru leyti kvað Guðmundur fátt fréttnæmt hafa gerzt i þessu máli: Fischer sæti fastur við sinn keip og á meðan stæði allt fast. PMscher á ferð og flugi Spasski hefur að mestu haldið sig inni við upp á siðkastiö, enda kvefaður. Fischer hefur á hinn bóginn farið viða. Hann var t.d. boðinn til kvöldverðar af Sæmundi Pálssyni og frú að heimili þeirra, Sörlaskjóli 46. Þau hjónin buðu skákmeistaranum upp á innlenda nautasteik ásamt ýmiss konar þjóðlegu góðgæti. Fischer kynnt- ist þar islenzkri gestrisni á is- lenzku heimili og er það vel. (Ég er viss um að áskorandanum er það ómetanlegt að eiga þann hauk i horni sem Sæmundur er. Það hlýtur aö róa taugarnar aö vita af manni, sem treysta má og er jafnframt íslendingur með þekkingu á öllum aðstæðum.) í fyrrinótt óku þeir Fischer og Sæ- mundur um borgina, i bifreið þess siðarnefnda. Lét Fischer svo um mælt i gær, að hann vildi helzt ekki upp i annað farartæki stiga en Citroen-bifreið þessa islenzka vinar síns. Þá fór Fischer i siglingu um sundin blá um helgina. Sú ferð var skipulögð af bandarisku blaðasamsteypunni Life og Time. A sunnudagskvöld skoðaöi áskorandinn svo glænýtt einbýlis- hús, sem hann hefur fengið til umráða. Að sögn var hann ánægður með bústaðinn, en bað þó um þykkari gluggatjöld i svefnherbergið. Fjöltefli í Útgarði David Levy, alþjóðlegur meistari frá Skotlandi, teflir fjöl- tefli við unglinga undir 17 ára aldri i Útgarði i kvöld (miðviku- dagskvöld) og hefst það kl. 8. Krakkar! Takið með ykkur töfl og 100 krónur, sem er upphæð þátttökugjaldsins. Reikningur Reykjavíkurborgar Hér i þessum pistlum hefur áður verið grcint frá gagnrýni þeirri. sem fulltrúar minni- lilutaflokkanna i borgarstjórn Kcykjavikur héldu uppi við af- grciðslu á reikningi borgar- sjóðs Reykjavikur fyrir áriö 1971. Komu fulltrúar minni- hlutans i veg fyrir áform ihaldsins um að afgreiða og samþykkja reikninginn, þrátt fyrir tugi athugasemda og óútkljáðra atriða, villa, sem bcnt hafði verið á. Svo fór, að reikningurinn var afgreiddur nicð fyrirvara um leiðrétting- ar skv. bókun, sem borgar- stjórinn sá sig tilneyddan að gera. i Þjóðviljanum i gær er drepið á 2 atriði, sem fulltrúar minnihlutans i borgarstjórn- inni gerðu m.a. að umtalsefni i þeim umræðum, sem fram fóru i borgarstjórninni, er rcikningurinn var til af- greiðslu. Þjóðviijinn segir: Ótekjufærðar eignir „í skýrslu endurskoðunar- dcildar lteykjavikurborgar er gcrð samskonar athugasemd við 5. lið i rekstrarreikningi borgarinnar er snerta hrein- lælismál. Þcssir liðir eru: Lóðahreinsun, sorphreinsun, sorpeyðingarstöð, sorptunnur og lok, og holræsahrcinsun. Hjá þessum eru útistandandi ótckju- og eignafærðar tekjur, samanlagt tæpar 800 þús. kr. Þetta eru mcð öðrum orðum lekjur, sem borgin á, en livergi hafa verið færðar til bókar. Ilvernig sem leitað er i reikningi borgarinnar er ekki hægt að finna stafkrók fyrir þvi að þessi upphæð sé til sem cign. Eini staðurinn þar sem upplýsingar er að finna um þessar eignir eru væntanlega vinnubækur verkstjóra við- komandi deilda. Áreiðanleiki þeirra upphæða, sem endur- skoðunardeildin tclur að úti- standandi séu hjá hverri deild (samanlagt um 800 þús.), er allavega véfengjanlegur. Þessi inistök i bókhaldinu vekja einnig spurningar um hvort, og að hve miklu leyti, það sé tilviljunum háö, hvað af ra un v eru leg u m tekjum borgarinnar hafi verið fært inn á reikning sem tekjur, hve iniklar upphæðir kunni að liggja úti á minnisblöðum hjá vcrkstjórum og öðrum starfs- mönnum borgarinnar, ellegar i reikningum sem ekki er búið að meta að hve miklu leyti muni vera innheimtanlegir. Bók 415 Vert er að gefa sérstakan gauni því sem segir í skýrslu endurskoðunardeildar um reikninga Almannavarna: „Ekki voru færöar til tekna seldar birgðir aö fjárhæð kr. 528.099.00 og til gjalda keyptar birgðir kr. 400.000.00. Sala og kaup þessi fóru um sparisjóðsbók nr. 415...”. Um viðskiptahætti þá sem hér er lýst mætti ugglaust skrifa langt mál þvi að þeir bjóða upp á fleiri hættur en i fljótu bragði kann að virðast. Það er allavcga óvenjulegt að sparisjóðsbók sé jöfnum liönduin látin gegn hlutverki gjaldkera og bankareiknings. Iiandhafa sparisjóðsbókar- innar er trúað fyrir þvi að leggja inn á hana andvirði seldra birgða og taka út úr lienni peninga til að borga Frh. á bls. 15

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.