Fréttablaðið - 28.02.2004, Side 1
VIÐSKIPTI „Við hugsum þetta til
langs tíma og teljum Straum einn
besta kostinn á markaðnum í
dag,“ segir Kristinn Björnsson,
fyrrverandi forstjóri Skeljungs,
um kaup óstofnaðs hlutafélags
undir forystu hans á tæplega tíu
prósenta hlut í fjárfestingarbank-
anum Straumi. Tryggingamiðstöð-
in keypti tólf prósenta hlut með
fyrirvara um samþykki Fjármála-
eftirlitsins. Þá jók Magnús Krist-
insson útgerðarmaður hlut sinn í
Straumi.
Bjarni Ármannsson, forstjóri
Íslandsbanka, segir verðmæti
Straums hafa vaxið mikið, sér-
staklega eftir að bankinn breyttist
úr fjárfestingarsjóði í fjárfesting-
arbanka. Miklir fjármunir Ís-
landsbanka og Sjóvár-Almennra
hafi verið bundnir í þessari fjár-
festingu, sem hafi skilað góðum
arði. „Hækkunin gaf tilefni til
þess að endurskoða stöðuna og
það varð niðurstaðan að selja
stærsta hlutann og nýta hagnað-
inn til lækkunar eiginfjár til hags-
bóta fyrir alla hluthafa bankans.“
Straumur er skilgetið afkvæmi
Íslandsbanka og nú eru þau tengsl
rofin. „Þetta eru tímamót í sögu
Straums eftir langt og farsælt
samstarf við Íslandsbanka sem
hefur skilað miklum ávinningi.
Við teljum mikil tækifæri í sam-
starfi við þá sem nú keyptu í bank-
anum,“ segir Þórður Már Jóhann-
esson, framkvæmdastjóri
Straums fjárfestingarbanka.
Miklar hræringar hafa verið í
kringum eignarhald Íslands-
banka. Landsbankinn hefur sótt
að bankanum. Meðal þess sem
bankinn er talinn hafa ásælst er
hlutur Íslandsbanka í Straumi.
Með viðskiptunum hefur þeirri
leið verið lokað. ■
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 515 7500
Kvikmyndir 42
Tónlist 32
Leikhús 32
Myndlist 32
Íþróttir 40
Sjónvarp 44
LAUGARDAGUR
DAGURINN Í DAG
28. febrúar 2004 – 58. tölublað – 4. árgangur
VIÐSKIPTI STÖÐVUÐ Kauphöll Ís-
lands greip inn í markaðinn í gær og stöðv-
aði viðskipti með hlutabréf í Pharmaco eftir
að gengi bréfa félagsins hafði hækkað
verulega. Sjá síðu 2
ENGIN LAUSN Neyðarástand skapast í
heimahjúkrun ef ekki semst um nýjan
alsturssamning fyrir mánudag. Efnt verður
til borgarafundar um málið í Glæsibæ í
dag. Sjá síðu 2
GATES ENN RÍKASTUR Bill Gates
er ríkasti maður heims, samkvæmt árleg-
um lista Forbes. Höfundur bókanna um
Harry Potter og stofnendur bandaríska
netfyrirtækisins Google eru ný á
listanum. Sjá síðu 4
NEITAR HRAÐAKSTRI Rútubílstjóri
sem Blönduóslögregla mældi á 108 kíló-
metra hraða vefengir mælinguna. Lögregl-
an stendur fast á sínu og bendir rútubíl-
stjóranum á dómstólaleiðina. Sjá síðu 8
Erum hvorki djöflar né englar
● keyrði á sviðsmanninn
Ólafía Hrönn Jónsdóttir:
▲
SÍÐA 46
Vikan
sem var
● orti um lífið og tilveruna
Ási í Bæ:
▲
SÍÐA 14
90 ár frá fæðingu
skáldsins
● pönkið bjargar honum frá sófanum
Gunnþór Sigurðsson:
▲
SÍÐA 46
Laugardagskvöld
Hljómsveitin Mínus hefur verið í umræðunni
í kjölfar þess að henni var meinað um að
spila á Samfésballi. Frosti Logason gítarleik-
ari svarar fyrir sig og félaga sína. ▲SÍÐA 22
● nýir bílar ● góð ráð
Síðasti kratinn
í Hafnarfirði
bílar o.fl.
Árni Hjörleifsson:
▲
SÍÐA 36
VEÐRIÐ Í DAG
52%74%
MILT Í BORGINNI OG DÁLITL
VÆTA Hennar kann þó að verða vart víða,
einkum þó á vesturhelmingi landsins. Heldur
meiri vindur sunnantil en norðan. Morgun-
dagurinn ósköp svipaður. Sjá síðu 6
Mínus svarar fyrir sig:
Glímdi við hamslausa matarfíkn
Kona sem glímdi við hamslausa fíkn í mat
segir frá reynslu sinni í viðtali við Frétta-
blaðið. Líf hennar var undirselt matarinn-
kaupum og stanslausu áti.
Mál Mörthu Stewart:
Meginsök
vísað frá
NEW YORK, AP Alvarlegustu ásökun-
inni á hendur bandarísku sjón-
varpsstjörnunni Mörthu Stewart
var vísað frá dómi í New York í
gær. Stewart er sökuð um að nýta
sér innherjaupplýsingar til þess
að hagnast á hlutabréfaviðskipt-
um með bréf í tæknifyrirtækinu
ImClone Systems.
Dómari komst að þeirri niður-
stöðu að engin leið væri til þess að
sakfella Stewart fyrir að hafa vís-
vitandi logið að fjárfestum með
því að lýsa því yfir að viðskipti
hennar með hlutabréfin hefðu
verið lögmæt. Enn standa fjögur
ákæruatriði eftir. ■
SS BIKARÚRSLIT Úrslitaleikir í bikar-
keppni karla og kvenna í handknattleik
fara fram í dag. Klukkan 13 mætast
kvennalið ÍBV og Hauka en klukkan 16.30
leika Fram og KA til úrslita. Báðir leikirnir
fara fram í Laugardalshöll.
SÍÐA 16
▲
FRÖNSKUM BÆNDUM BRUGÐIÐ Bændur í vesturhluta Frakklands eru uggandi um salatuppskeru sína vegna hrets sem gekk yfir í
gær. Snjónum kyngdi niður og mældist hann rúmlega hálfur metri þar sem mest var. Þúsundir íbúa á Bretaníuskaga urðu rafmagnslausar
og tafir urðu á umferð. Mikil hálka var á vegum og hafa yfirvöld bannað umferð stærri bíla. Bannið gildir áfram í dag.
Ofát:
LÍKFUNDUR „Það hefur verið stað-
fest að Vaidas Jucevicius dó ekki
af völdum eitrunar,“ segir Arnar
Jensson hjá Ríkislögreglustjóra
um rannsókn líkfundarins í Nes-
kaupstað. Hann bætir við að
hvorki amfetamín né kókaín hafi
fundist í blóðsýnum hins látna.
Sama sé að segja um áfengi.
Arnar segir að grunur leiki á að
Jucevicius hafi dáið þar sem hann
hafi ekki náð að skila fíkniefnun-
um út úr líkamanum. Veikindi
þess vegna hafi dregið hann til
dauða. Við krufningu fundust 400
grömm af fíkniefnum, trúlega am-
fetamíni, í iðrum mannsins. Fíkni-
efnunum var pakkað í 50 til 60
gúmmíhylki.
Arnar vildi í samtali við Frétta-
blaðið ekki upplýsa hvort einhver
þremenninganna hafi játað aðild
að málinu.
Hann segir að engin önnur
dánarorsök en eitrun hafi verið úti-
lokuð. Arnar segir rökstuddan grun
vera fyrir því að Jucevicius hafi
verið fluttur látinn frá Reykjavík
til Neskaupstaðar föstudaginn
sjötta febrúar í Pajero-bílaleigu-
jeppa. Líkið hafi verið vafið inn í
tólf fermetra gólfteppi, þunnt, blátt
eða gráblátt með svampbotni. Lög-
reglu er kunnugt um hvar teppið
var keypt og að hinir grunuðu hafi
keypt teppið föstudaginn sjötta
febrúar. Lögreglan leitar nú að
teppinu og telur að því hafi verið
fleygt í Neskaupstað, í Reykjavík
eða á leiðinni þar á milli. Öll lög-
regluembætti á þeirri leið sem og
starfsmenn sorpstöðva hafa leitað
að teppinu en án árangurs. Lög-
regla biður alla sem geta veitt ein-
hverjar upplýsingar um teppið að
gefa sig fram.
hrs@frettabladid.is
Sjá nánar bls. 4
Fluttur látinn í
gólfteppi austur
Vaidas Jucevicius dó ekki vegna eitrunar af fíkniefnum sem fundust í iðrum
hans. Lögregla leitar að teppi sem líkið var vafið í á leiðinni til Norðfjarðar.
Íslandsbanki selur í Straumi fjárfestingarbanka:
Straumur floginn úr hreiðri
Kjaraviðræður á
almennum markaði:
Sérsamningar
undirritaðir
KJARAVIÐRÆÐUR Fulltrúar Starfs-
greinasambandsins og Samtaka
atvinnulífsins skrifuðu í gær und-
ir nýja sérkjarasamninga fyrir
fiskverkafólk og verkafólk í fisk-
eldisstöðum. Samkvæmt upplýs-
ingum Fréttablaðsins eru þetta
fyrstu sérkjarasamningar Starfs-
greinasambandsins sem eru und-
irritaðir í þessari lotu. Flóabanda-
lagið hefur þegar gengið frá sér-
kjarasamningum og bókunum
fyrir þrjá til fjóra hópa.
Samningamenn verkalýðs-
hreyfingarinnar og atvinnurek-
enda þinga hjá ríkissáttasemjara í
dag og vonast menn til að þar
verði línur skerptar nokkuð. Til
stendur að fulltrúar verkalýðs-
hreyfingarinnar hitti ráðherra úr
ríkisstjórninni á næstu dögum og
ræði aðkomu stjórnvalda að
samningum. ■