Fréttablaðið - 28.02.2004, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 28.02.2004, Blaðsíða 14
14 28. febrúar 2004 LAUGARDAGUR ■ Afmæli ■ Andlát Guðný Bergsveinsdóttir, Hornbrekku, Ólafsfirði, lést miðvikudaginn 25. febrú- ar. Gestur Sæmundsson, Ægisgötu 31, Ak- ureyri, lést miðvikudaginn 25. febrúar. Ellen Marie Steindórs lést miðvikudag- inn 25. febrúar. Hjörtur Bjarnason, Breiðuvík 9, Reykja- vík, lést mánudaginn 16. febrúar. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Svandís Elmundardóttir frá Dverga- steini, Hellissandi, lést miðvikudaginn 25. febrúar. 13.30 Bjarni M. Sigmundsson, Þrasta- rima 7, Selfossi, verður jarðsung- inn frá Selfosskirkju. 13.30 Bergljót Björg Óskarsdóttir, Skagaströnd, verður jarðsungin frá Hólaneskirkju. 14.00 Anton Proppé, frá Þingeyri við Dýrafjörð, verður jarðsunginn frá Mýrakirkju við Dýrafjörð. 14.00 Bjarni Sæmundsson, dvalarheim- ilinu Hjallatúni í Vík, verður jarð- sunginn frá Víkurkirkju. 14.00 Margrét B. Guðmundsson, Vest- urhópshólum, Álagranda 23, Reykjavík, verður jarðsungin frá Vesturhópshólakirkju. 14.00 Kristinn Gestur Kristjánsson frá Bárðarbúð verður jarðsunginn frá Hellnakirkju. 14.00 Ragnar Jón Jónsson, Miðtúni 14, Tálknafirði, verður jarðsunginn frá Tálknafjarðarkirkju. 14.00 Oddný Gísladóttir, dvalarheimil- inu Helgafelli, Djúpavogi, verður jarðsungin frá Djúpavogskirkju. 14.00 Jóhann Óskar Jósefsson, bóndi og harmonikuleikari, Ormarslóni, Þistilfirði, verður jarðsunginn frá Raufarhafnarkirkju. 14.00 Sigurfinnur Einarsson verður jarðsunginn frá Landakirkju, Vest- mannaeyjum. Hilmar Foss, skjalaþýðandi og dómtúlk- ur, er 84 ára. Guðrún Halldórsdóttir, Námsflokkum Reykjavíkur, er 69 ára. Mats Wibe Lund ljósmyndari er 67 ára. Edda Jónsdóttir, eigandi gallerísins i8, er 62 ára. María Baldursdóttir söngkona er 57 ára. Ásjónum ég hugsa um þorskinnog þig, en þú hugsar auðvitað bara um mig.“ Þennan makalausa kveðskap er að finna í laginu Anna Marí eftir hinn ástsæla ljóða- og sönglagahöfund Ása í Bæ. Níutíu ár voru í gær liðin frá fæðingu Ása en hann lést 1. maí árið 1985. Í kvöld ætla Vest- mannaeyingar að halda upp á þessi tímamót með skemmtun í Höllinni í Eyjum. Gísli Helgason er einn þeirra sem koma að skemmtuninni. Hann kynntist Ása og verkum hans vel eftir að hafa verið í læri hjá Oddgeiri Kristjánssyni sem ungur drengur. „Ási orti skemmtilega um lífið og tilveruna. Það sem einkenndi hann var væntumþykja til alls sem lifir. Það er margar perlur að finna í ljóðskap Ása eða eins og hann orti um sólarlagið í Eyjum og hvernig það bar við hafflötinn: „Drekka þar saman rennandi rauðvín, ránardætur og himin- ský.“ Gísli segir að á skemmtuninni verði minningin um Ása í háveg- um höfð, annars vegar með borð- haldi og síðar um kvöldið með dagskrá. Þar ætli ýmsir listamenn að flytja ljóð og lög eftir Ása. „Þetta verður gert í þeim anda að halda fjöldasöng ásamt því að spjalla um Ása. Eins og Ási orðaði það sjálfur eiga menn að syngja með en þeir mega vera aðeins meira edrú en stundum á Þjóðhá- tíð.“ Gísli stóð ásamt Árna Johnsen og fleirum fyrir skemmtun í Nor- ræna húsinu árið 1984 þegar Ási varð sjötugur. Fimm árum síðar var gefin út snælda með upptök- um frá skemmtuninni. Í dag er búið að endurnýja upptökuna auk þess sem tínt hefur verið til efni sem aldrei áður hefur heyrst og gefið út á geisladiski. Þá fylgir geisladisknum lítil bók með myndum, frásögnum og textum eftir Ása. „Fagnaðurinn í Norræna hús- inu kom þannig til að ég hitti Ása í Þjóðleikhúskjallaranum á föstu- dagskvöldi. Honum lá eitthvað mikið niðri fyrir því hann gekk til mín og kýldi mig góðlátlega í magann. Þetta gerði hann ef hon- um lá mikið á hjarta. Það eina sem Ási sagði við mig þetta kvöld var: „27. febrúar, afmæli, haltu upp á það.“ Ég stóð þarna eins og illa gerður hlutur og velti fyrir mér hvað hann væri að fara. Svo laust því niður í hugann, Ási yrði sjö- tugur.“ Gísli hringdi í Árna John- sen og saman smöluðu þeir saman tónlistarfólki. „Við æfðum dálítið fyrir þetta en ekki of mikið. Troð- fyllir var á skemmtuninni og stemningin var slík að húsið raulaði með.“ kolbrun@frettabladid.is JOHN TURTURRO Þessi fjölhæfi leikari er 47 ára í dag. 28. febrúar Olof Palme, hinn ástsæli forsætis-ráðherra Svíþjóðar, var skotinn til bana í Stokkhólmi á þessum degi árið 1986. Hann var fótgangandi á leiðinni heim úr kvikmyndahúsi ásamt Lisbet, eiginkonu sinni, þegar maður vatt sér að þeim og skaut á ráðherrann. Morðið var sænsku þjóðinni mik- ið áfall og það vakti vitaskuld óhug um öll Norðurlönd þar sem það hafði ekki tíðkast að ráða þjóðarleiðtogum bana. Rannsókn morðmálsins varð síð- an eitt allsherjarklúður og enn hefur ekki fengist botn í það hver banaði Palme í raun og veru þannig að mál- ið hvílir enn þungt á Svíum. Öryggi sænskra ráðamanna var hert til muna eftir morðið á Palme en martröðin endurtók sig í fyrra þegar brjálæðingur stakk utanríkisráð- herra landsins, Önnu Lindh, til bana í verslunarmiðstöð. ■ ■ Þetta gerðist 1854 Andstæðingar þrælahalds í Bandaríkjunum koma saman og leggja drög að stofnun stjórnmálaflokks sem síðar varð Repúblikanaflokkurinn. 1849 Fyrstu gullgrafararnir koma til San Francisco með skipinu California. 1974 Bandaríkjamenn og Egyptar endurnýja stjórnmálasamband sem legið hafði niðri frá 1967. 1975 Rúmlega 40 manns farast í neðanjarðarlestarslysi í London. 1995 Bandarískir landgönguliðar koma til Sómalíu til að tryggja öryggi friðargæsluliða Samein- uðu þjóðanna sem voru að yf- irgefa landið. 2001 6,8 Richter-stiga jarðskjálfti skekur Washington-ríki og hefur í för með sér milljarða- tjón en lítil slys á fólki. Palme myrtur OLOF PALME ■ Sænski forsætisráðherrann var skotinn til bana á leið heim úr kvikmyndahúsi. 28. febrúar 1986 Og húsið raulaði með Hjartans þakkir til allra þeirra er sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför eiginmanns míns, sonar, föður, bróður og afa STEINGRÍMS JÓNS ELÍASAR GUÐMUNDSSONAR. Guð blessi ykkur öll Wan Phen Malai, Anna S. Steingrímsdóttir, Íris Anna Steingrímsdóttir, barnabörn, systkini og fjölskyldur þeirra. ■ Jarðarfarir OLOF PALME Sótti Ísland heim og hér er hann á Bessa- stöðum ásamt Lisbet, eiginkonu sinni, og Vigdísi Finnbogadóttur, þáverandi forseta. Afmæli ÁSI Í BÆ ■ Níutíu ár eru liðin frá fæðingu Ása í Bæ. Skemmtun honum til heiðurs verður haldin í Eyjum í kvöld. ÁSI Í BÆ Áður en Ási lést var hann byrjaður að lesa inn á snældur sjálfsævisögu sína Skáldað í skörðin fyrir Blindrabókasafn Íslands. Honum auðn- aðist ekki að ljúka lestrinum. Gísli Helgason segir glefsur úr upplestrinum notaðar til að tengja saman efni á geisladiski sem gefinn hefur verið út í tilefni af því að 90 ár eru liðin frá fæðingu ljóða- og söngvaskáldsins. M YN D Á R N I J O H N SE N Bestu blaða- ljósmyndirnar Í kvöld er komið að þeim árlegaviðburði þegar Blaðaljósmynd- arafélag Íslands veitir verðlaun fyrir mynd ársins 2003. Að auki verða veitt verðlaun í níu öðrum flokkum, þar á meðal fréttamynd ársins, portrettmynd ársins og myndröð ársins. Um leið verður opnuð sýning á verðlaunamyndunum ásamt hátt í tvö hundruð öðrum ljós- myndum íslenskra blaðaljós- myndara frá síðasta ári, sem sér- stök dómnefnd valdi úr 915 inn- sendum myndum. Þrjátíu ljósmyndarar sendu inn myndir þetta árið, þar á meðal eiga allir ljósmyndarar Frétta- blaðsins myndir á sýningunni. Jafnframt verður opnuð á neðri hæð Gerðarsafns sýning á ljósmyndum eftir Magnús Ólafs- son, sem var einn af frumherjum íslenskrar ljósmyndunar. Myndir Magnúsar eru í eigu Ljósmynda- safns Reykjavíkur. ■ Ljósmyndir BLAÐALJÓSMYNDARAFÉLAG ÍSLANDS ■ opnar árlega ljósmyndasýningu sína í Gerðarsafni í kvöld. Jafnframt verða veitt verðlaun fyrir bestu ljósmyndir ársins í tíu flokkum, þar á meðal Mynd ársins 2003. UMTÖLUÐ FRÉTTAMYND Ljósmynd Pjeturs Sigurðssonar, ljósmyndara Fréttablaðsins, er ein þeirra sem valin var á hina árlegu sýningu Blaðaljósmyndarafélags Íslands í Gerðarsafni, Kópavogi. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /P JE TU R

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.