Fréttablaðið - 28.02.2004, Blaðsíða 31

Fréttablaðið - 28.02.2004, Blaðsíða 31
Vinir Ben Affleck eru byrjaðirað hafa áhyggjur af honum. Pilturinn hefur brennandi áhuga á póker og öðrum fjár- hættuspilum og eyðir víst öllum frístundum sín- um í það að sóa peningum sín- um. Spilafíkn hans var víst ein af ástæðum þess að Jennifer Lopez fékk sig fullsadda og flúði. Í einsemd- inni hefur pókerborðið reynst Affleck félagi og honum er al- veg sama þó að hann tapi nokkrum milljónum á kvöldi, því hann á nóg í bankanum. Rosie O'Donnell nýtti sértækifærið og giftist ástkonu sinni í San Francisco á dögun- um. Borgar- stjórinn þar í bæ aflétti bann- inu sem hindr- aði samkyn- hneigða frá því að komst í vígða sambúð og hafa þúsundir para gengið í það heilaga á síðustu vikum. Rosie og Kelli Carpenter, sambýlis- kona hennar til margra ára, flugu til San Francisco, giftu sig og flugu beina leið heim án tilheyrandi veisluhalda. Framleiðendur Friends reyna núhvað þeir geta til þess að fá leikarahópinn til þess að samþykkja að koma saman í endurkomuþætti eftir einhver ár. Ganga þarf frá samningunum varðandi það núna en erfitt er að sannfæra leikkonuna Jennifer Aniston um að vera með. Hinir segjast vera opnir fyrir því en eiga erfitt með að lofa sér í verk- efnið. Leikstjórinn Kevin Smithákvað að klippa út giftingar- atriði úr nýjustu mynd sinni Jersey Girl þar sem persónur Ben Affleck og Jennifer Lopez gengu í það heilaga. Hann sagði í gríni að hann hefði óttast það að rugla bíógesti í ríminu, þar sem Lopez og Affleck hafi af- lýst brúðkaupi sínu. Smith gerir hvað hann getur til þess að nota þau ekki bæði í kynningarskyni fyrir myndina. Kona fékk banvænt hjartaáfallvið það að horfa á nýjustu mynd Mel Gibson, The Passion of the Christ. Krossfestingin í myndinni er víst 25 mínútna löng, mjög blóðug og greinilega meira en konan gat þolað að sjá. Vitað er að konan var strangtrúuð. LAUGARDAGUR 28. febrúar 2004 6 fyrir 2000kr Þú færð 6 ge isladiska á að eins 2000kr. TÓNLIST Það er greinilega ekki bara Friðrik Karlsson sem situr heima hjá sér í fullkomnu æðruleysi með bros á vör. Nú ætlar Lou Reed að bæta sér í hóp þeirra sem gefa út slökunartónlist. Hann hefur nýlokið við gerð nýrrar tvöfaldrar plötu, Animal Serenade, sem inniheldur slökun- artónlist. Plötuna vinnur hann með slökunargúruinum Dr. S Peng. „Þessi tónlist er góð til þess að slaka á við og að nota til hug- leiðslu,“ segir Reed á heimasíðu sinni. „Þessir hlutir eru á okkar áhugasviði og við vonumst til að fólk með svipaðan smekk hafi gaman af þessu.“ Reed segist svo vonast til þess að með plötunni geti fylgt hug- leiðsluleiðbeiningar frá Dr. S Peng. Platan kemur út 22. mars næstkomandi. Þangað til verðið þið bara að halda áfram að vera stressuð. ■ Fréttiraf fólki 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 X-ið977 - vika 9 Y’All Want A Single KORN Last Train Home LOSTPROPHETS Are You Gonna Be My Girl JET Take Me Out FRANZ FERDINAND Megalomaniac INCUBUS I Miss You BLINK 182 English Summer Rain PLACEBO I Hate Everything About You 3 DAYS GRACE The Outsider A PERFECT CIRCLE A Selfish Need MAUS Reptilia THE STROKES Mad World GARY JULES Mono COURTNEY LOVE Meant To Be SWITCHFOOT California Waiting KINGS OF LEON The Unnamed Feeling METALLICA Hysteria MUSE Wants Your Number CYPRESS HILL Johnny Babas BRAIN POLICE Angel In Disguise MÍNUS Topp 20listinn KORN Jæja, nú styttist í tónleika Korn á Íslandi. Þjóðin verður líklegast aldrei söm eftir þá. LOU REED Ætli Lou hafi verið að reykja eitthvað annað en bara sígarettur? Fer yfir í slökunartónlist

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.