Fréttablaðið - 28.02.2004, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 28.02.2004, Blaðsíða 26
26 28. febrúar 2004 LAUGARDAGUR ■ Bækur Harold Bloom er 73 ára gam-all, þekktasti gagnrýnandi Bandaríkjanna og helsti sér- fræðingur heimsins í Shakespe- are. Naomi Wolf er 41 árs og höfundur nokkurra femínískra bóka, þar á meðal metsölubókarinn- ar The Beauty Myth sem fjallar um kvenímyndir. Nú hefur Wolf ruðst fram á sviðið og sakar Bloom um að hafa áreitt sig kynferðislega - fyr- ir 20 árum. Árið 1983 var Naomi Wolf nem- andi í enskum bók- menntum við Yale. Kennari hennar, Harold Bloom, kom í heimsókn einn dag- inn, hafði lofað að lesa ljóð hennar. Hann hafði með sér sérrí og drakk ótæpilega af því. Hann sýndi engan áhuga á að lesa ljóð nemanda síns en lagði skyndi- lega beinabera hönd sína á læri hennar. Wolf segir að sér hafi orðið svo mikið um að hún hafi ælt í vaskinn og Bloom hafi látið sig hverfa. Hún hafi borið fram kvörtun við skólayfir- völd, sem hafi ekkert viljað gera í málinu. Þetta er f r á s ö g n Wolf, 20 á r u m seinna, í grein í bandarísku tímariti og margir spyrja sig hvers vegna í ósköpunum hún sé að rifja upp og magna fremur lítilfjörlega sögu. Rithöfundurinn Camille Paglia, sem er fyrrverandi skjólstæðingur Blooms, hefur gagnrýnt Wolf harðlega. „Þetta lyktar af Salem-galdraofsóknun- um með tilheyrandi móðursýki,“ segir Paglia og bætir því við að Wolf hafi alla ævi deplað augun- um og dillað brjóstunum til að ganga í augun á karlmönnum. Fleiri konur hafa komið Bloom til varnar. Katie Roiphe, höfund- ar bókar um stefnumótanauðg- anir, segir Wolf vera að vekja á sér athygli vegna þess að síðasta bók hennar um móðurhlutverkið hafi ekki slegið í gegn. Umrætt atvik hafi greinilega verið minniháttar. Wolf segir málið ekki ein- göngu snúast um hegðun Blooms heldur ekki síður um viðbrögð skólayfirvalda. Bloom, sem er heilsuveill, hefur ekki viljað tjá sig um ásakanir Wolf en náinn vinur hans segir þær vera siðlausa lygi. ■ HAROLD BLOOM Camille Paglia hefur komið honum til varnar. Metsölulisti Bókabúða Máls og menningar, Eymundssonar og Pennans ALLAR BÆKUR 1. Lífshættir fugla David Attenborough 2. Orð í gleði Karl Sigurbjörnsson 3. Bókin um viskuna og kærleikann Dalai Lama 4. Öxin og jörðin Ólafur Gunnarsson 5. Þú getur hætt að reykja Guðjón Bergmann 6. Fiskiveisla fiskihatarans Dr. Robert Buckman & Anne Charlish 7. Villibirta Liza Marklund 8. Einhvers konar ég Þráinn Bertelsson 9. Leggðu rækt við ástina Anna Valdimarsdóttir 10. Stóra kynlífsbókin Suzi Godson SKÁLDVERK - INNBUNDNAR BÆKUR 1. Öxin og jörðin Ólafur Gunnarsson 2. Alkemistinn Paulo Coelho 3. Glæpur og refsing - Fjodor Dostojevskí 4. Í leit að glötuðum tíma Macel Proust 5. Vetrarferðin Ólafur Gunnarsson 6. Djöflarnir Fjodor Dostojevskí 7. Ilmurinn Patrik Suskind 8. Lokavitni Patricia Cornwell 9. Anna Guðbergur Bergsson 10. Plateró og ég Juan Ramón Jiménez SKÁLDVERK - KILJUR 1. Villibirta Liza Marklund 2. Svo fögur bein Alice Sebold 3. Röddin Arnaldur Indriðason 4. Mýrin Arnaldur Indriðason 5. Annað tækifæri James Pattersson 6. Ár hérans Arto Paasilinna 7. Grafarþögn Arnaldur Indriðason 8. Synir duftsins Arnaldur Indriðason 9. Dauðarósir Arnaldur Indriðason 10. Reisubók Guðríðar Símonardóttur Steinunn Jóhannesdóttir Listinn er gerður út frá sölu dagana 18. 02. - 24. 02. 2004 í Bókabúðum Máls og menningar, Eymundsson og Penn- ans. BÓK VIKUNNAR The Stain on the Snow eftir Georges Simenon Simenon skrifaði um 500 bækur á langri starfsævi og gat skrifað bók á fjórum dögum. Furðulegt nokk komu afköstin ekki niður á gæðum. Þetta er ein þekkt- asta bók hans og þar segir frá hinum 19 ára gamla Frank, sem er þjófur og morðingi. Dag einn er hann handtekinn. Simenon lýsir hugarheimi þessa unga manns á meistaralegan hátt. Drungaleg og merkileg sálfræði- stúdía sem er af mörgum talin meðal bestu sakamálasagna sem skrifaðar hafa verið. Femínisti ásakar gagnrýnanda NAOMI WOLF Sakar Harold Bloom um kynferðislega áreitni. Nýr krimmi eftir rússneska glæpasagnahöfundinn Boris Akúnin er komin út í íslenskri þýðingu. Rússneski glæpakeisarinn Einn af gestum bókmennta-hátíðar síðasta haust var keis- ari rússnesku glæpasögunnar, Boris Akúnin. Sjálfur sagðist hann ekki hafa neitt sérlega gam- an af því að lesa upp úr verkum sínum og vera alveg hættur því á heimavelli í Moskvu en sig hefði langað til að koma til Íslands. Þessi hægláti en meinhæðni höf- undur er orðinn vanur því að flengjast um heiminn til að kynna bækur sínar og stóra skrefið í þeim efnum var útkoma Vetrar- drottningarinnar á ensku vorið 2003. Nú er þessi bók komin út hjá Máli og menningu í þýðingu Árna Bergmann en íslenskir lesendur hafa áður fengið að kynnast ævin- týrum Fandorins ríkisráðs í bók- unum Ríkisráðið og Krýningar- hátíðin sem hlutu rífandi dóma. Glæpasögur af nýjum toga Það var árið 2000 sem Boris Akúnin varð að stórveldi í rúss- nesku bókmenntalífi. Hægt og ró- lega hafði hann byggt upp les- endahóp, en svo varð allt í einu sprenging. Á örskömmum tíma hafði hann selt yfir eina milljón eintaka af bókunum um Fandorin ríkisráð og nunnuna Pelagiu á Rússlandsmarkaði og frægð hans barst eftir það út um heim- inn. Þetta voru glæpasögur af al- gerlega nýjum toga. Sögurnar gerðust allar á 19. öld og byggðu allar á stefjum, persón- um og stíl sem lesendur heims- bókmenntanna þekktu úr skáldsögum stóru meistar- anna: Tolstojs, Lermontovs, Dostojevskís. Flestar taka sögurnar mið af raunveruleg- um atburðum úr rússneskri sögu og alls staðar þar sem eitthvað ber til, hvort sem það er krýning Nikulásar II eða stríð Rússa og Tyrkja, þar eru Fandorin og Pelagia komin til að leysa málin. R é t t t r ú n a ð a r n u n n a n Pelagia, sem er tilbrigði við stef „munkaglæpasögunnar“, heltist reyndar brátt úr lestinni og um hana ritar Akúnin ekki meir, en þeim mun meiri vinsælda hef- ur Fandorin ríkisráð notið. Nú eru bækurnar um hann orðnar tólf og sú þrettánda á leiðinni. Hann hóf einnig að rita sagnabálk um Niku- lás, lítinn frænda Fandorins, sem gerist í rússnesku byltingunni og á árunum fyrir hana en enn sem komið er hafa þær bækur aðeins komið út á frummálinu. Á Ítalíu og í Frakklandi og Þýskalandi er nú um helmingur Fandorin-bálksins kominn út og stórblöð þar hafa keppst við að hrósa hinum rússneska glæpa- sögukeisara fyrir einstæð tök á bókmenntagreininni. Frankfurter Allgemeine Zeitung segir Fandor- in vera „ótrúlega persónu“ og Corriere della Sera hefur hampað Akúnin sem hugmyndaríkum rit- höfundi sem hafi tekist á snilldar- legan hátt að vinna úr rússnesk- um bókmenntaarfi. Þeir sem þekkja til Fandorins og ævintýra hans kannast mæta- vel við þessa furðulegu blöndu af James Bond, Philip Marlowe og Dostojevskí. Hver bók er líka samin inn í sérstaka bókmennta- tegund; sumar eru njósnasögur, aðrar, eins og Vetrardrottningin, klassískar glæpasögur, aðrar bækur í stíl Agöthu Christie og ein Fandorin-sagnanna fjallar um fjöldamorðingja. Sögurnar Ríkis- ráðið og Krýningarhátíðin eru báðar pólitískir tryllar um baráttu við hryðjuverkamenn. Þar nýtir Akúnin sér að rússneskir anar- kistar á 19. öld voru á undan sam- tíma sínum í hryðjuverkum og sjálfsmorðsárásum og nær að skapa andrúmsloft sem á jafn vel við nú í upphafi 21. aldar og þá. Ian Fleming Rússlands Vetrardrottningunni var vel tekið þegar hún kom út í Banda- ríkjunum og Bretlandi í fyrra. New York Times Book Review birti um hana heilsíðudóm og reyndi að átta sig á því af hverju spennusögur af þessum toga væru svona vinsælar í Rússlandi. Bókinni var sömuleiðis tekið afar vel í Bretlandi og glæpasögu- drottningin Ruth Rendell skrifaði afar lofsamlega um hana í Sunday Times og kallaði Akúnin Ian Fleming Rússlands. Þegar það spurðist líka að Paul Ver- hoeven, leikstjóri myndanna Ro- bocop, Total Recall og Showgirls, hefði fest kaup á kvikmyndarétt- inum jók það enn á spenninginn og samkvæmt Akúnin sjálfum hafa rússneskir efnamenn lofað að leggja pening í framleiðsluna. Á meðan öllu þessu vindur fram heldur hinn hámenntaði og hóg- væri Akúnin áfram sína leið. Hann talar reiprennandi ensku, japönsku og kínversku og les flest Evrópu- mál. Hann er með próf í austur- lenskum bókmenntum og tungu- málum frá Moskvuháskóla og dval- di um hríð í Japan við nám. Hann fæddist í Georgíu árið 1956 og heit- ir réttu nafni Grígoríj Tsjkartísjví- lí. Hann var lengi ritstjóri hins áhrifamikla bókmenntatímarits Ínostrannja Literatura í Moskvu. Hann er húmoristi sem horfir á heiminn úr fjarlægð og gerir gys að flestu á góðlátlegan hátt, ekki hvað síst eigin velgengni. kolla@frettabladid.is Þeir sem þekkja til Fandorins og ævin- týra hans kannast mætavel við þessa furðulegu blöndu af James Bond, Philip Mar- lowe og Dostojevskí. ,, BORIS AKÚNIN Þessi hugmyndaríki höfundur heitir réttu nafni Grígoríj Tsjkartísjvílí, er hámenntaður og les flest Evrópumál. VETRARDROTTNINGIN Rómuð glæpasaga Akúnins er komin út hjá Máli og menningu í íslenskri þýðingu Árna Bergmann.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.