Fréttablaðið - 28.02.2004, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 28.02.2004, Blaðsíða 8
8 28. febrúar 2004 LAUGARDAGUR Vá! „Pabbi minn er Elvis Presley Íslands.“ Krummi í Mínus um föður sinn Björgvin „Bo“ Halldórsson, Morgunblaðið 27. febrúar Og líka við gæsalappirnar? „Ég er sáttur við útgefendur mína. Nú vanda ég mig eins og ég get og verð tilbúinn með handritið þegar það verður til- búið. Ég er ekkert að flýta mér.“ Hannes Hólmsteinn Gissurarson, DV 27. febrúar Siv líka „Það er í höndum þingmanna að ákveða hverjir verða ráð- herrar í haust. Þeir verða nú bara að spjara sig og afla stuðnings meðal þingmanna.“ Kristinn H. Gunnarsson, Fréttablaðið 27. febrúar Orðrétt Iceland Express fagnaði eins árs afmæli í gær: Hefur flutt 160 þúsund farþega SAMGÖNGUR Iceland Express hélt í gær upp á eins árs af- mæli félagsins. Á þessu eina ári hefur félagið flutt 160 þúsund farþega til London og Kaupmannahafnar. Sigurður Halldórsson, stjórnarformaður Iceland Express, segir horfur félags- ins mjög góðar og að það stefni í 72 prósenta sæta- nýtingu. Á síðasta ári nýttust tæp 75 prósent sæta. Í byrj- un apríl mun farþegafjöldi tvöfaldast með tilkomu nýrr- ar flugvélar sem bætist í flota félagsins. Í tilefni afmælisins seldi Iceland Express 2.702 sæti til London og Kaupmanna- hafnar á eina krónu og stóðst tölvukerfi félagsins álagið að mestu leyti. Félag- ið styrkti þrenn góðgerða- samtök, Klúbbinn Geysi, Stígamót og Vímulausa æsku, til utanferða og gaf þeim samtals 52 farmiða. Iceland Express hafnaði í fyrsta sæti í könnun, sem Gallup gerði fyrir Ímark, meðal markaðsstjóra 350 íslenskra fyrirtækja um hvaða fyrirtæki þeir teldu hafa staðið sig vel í mark- aðsmálum á síðasta ári. ■ Hraðamæling lögreglu á Blönduósi vefengd Rútubílstjóri harðneitar að hafa ekið á 108 kílómetra hraða þegar annáluð umferðarlögga gómaði hann við Víðihlíð. Varðstjóri Blönduóslögreglu er harður á mælingunni og bendir rútubílstjóranum á dómstólaleiðina LÖGREGLA Fyrirtækið Hópbílar ve- fengir að Blönduóslögregla hafi staðið rétt að hraðamælingum þeg- ar rúta í eigu fyrirtækisins var stöðvuð á hraða sem lögreglan heldur fram að hafi verið 108 kíló- metrar á klukkustund. Bílstjóri VL- 636 var stöðvaður við Víðihlíð í Húnavatnssýslu á sunnudaginn og bílstjóranum tilkynnt að hann hafi verið á ólöglegum hraða. Hann mót- mælti strax niðurstöðu lögreglunn- ar og skrifaði ekki undir skýrsluna. Hraðatakmarkari er í bílnum sem er miðaður við 97 kílómetra hámarkshraða á klukkustund. Hraðamæling lögreglu fer ekki saman við þau gögn sem eru til staðar í lang- ferðabílnum, svo sem ökurita og skífu sem skráir jafnóðum þann hraða sem rútan er á hverju sinni. Forsvarsmenn Hópbíla hafa lát- ið fara fram ítarlega rannsókn á þessum búnaði sem er jafnan inn- siglaður og því óbreytanlegur. Skoðun þeirra er sú að lögreglan hafi rangt fyrir sér í þessum efn- um. Gunnar Sigurðsson, varðstjóri lögreglunnar á Blönduósi, segir að hraðamælingin sé í þessu tilviki ör- ugg og hann sjái enga ástæðu til að fallast á mótmæli rútubílstjórans. „Hann hefur rétt á því að fara með mál sitt fyrir dómstóla,“ segir Gunnar og kveðst hvergi hvika frá mælingunni. Hann staðfestir að skilyrði til hraðamælinga geti verið misjöfn og útkoma ekki áreiðanleg þegar um er að ræða úrkomu. Það þurfi þó að vera töluverð úrkoma til að trufla. Í tilfelli rútubílstjórans seg- ir Gunnar að skilyrði til hraðamæl- inga hafi verið góð. „Það voru fínar aðstæður,“ segir Gunnar. Hann segist ekki þekkja dæmi þess að lögreglumenn hans hafi þurft að hvika frá niðurstöðu um hraðakstur. Enda séu þeir með góð tæki og aðeins þurfi að ýta á einn takka til að staðfesta hraða viðkom- andi. Gunnar segir að flestir öku- menn sem brjóti reglur um hraðakstur séu teknir yfir sumar- tímann. „Yfir háannatímann getur þetta farið í 50 til 60 bíla. Orðstírinn hjálpar okkur til að forða slysum. Stundum er þó fólk ekki vakandi fyrir hraðablindunni,“ segir Gunn- ar. Hann segir að frægð Blöndu- óslögreglunnar fyrir óvægnar hraðamælingar hafi orðið til þess að hraðakstur hafi minnkað. „Á seinasta ári fækkaði tilvikum og við verðum þess varir að ofsa- akstur á sér sjaldnar stað í um- dæminu,“ segir Gunnar. rt@frettabladid.is Síminn og ADSL-þjónusta: Stofngjald afnumið SÍMINN Síminn hefur afnumið stofngjald í ADSL-þjónustu til einstaklinga um allt land, en fram að þessu hafa viðskiptavinir í þjónustunni greitt sex þúsund krónur fyrir gjaldið. „Niðurfell- ing gjaldsins er liður í bættri þjónustu við viðskiptavini fyrir- tækisins,“ segir í tilkynningu frá Símanum. Viðskiptavinir Símans með sítengingu eru nú fleiri en viðskiptavinir með innhringiþjón- ustu, en fjöldi þeirra sem tengjast netþjónustu einstaklinga með ADSL-tengingum tvöfaldaðist á síðasta ári. ■ HJÚKRUNARDEILD Samstarfsnefnd um opinberar framkvæmdir hef- ur veitt leyfi fyrir stækkun hús- næðis Heilbrigðisstofnunarinnar á Selfossi. Heilbrigðisráðuneytið hefur leitað leiða til að flýta fram- kvæmdinni, að minnsta kosti þeim hluta húsnæðisins þar sem verður hjúkrunardeild fyrir aldr- aða. Hjúkrunardeildinni er ætlað að taka við þeirri þjónustu sem nú er í Ljósheimum, langlegudeild fyrir aldraða sjúklinga. Húsnæði og aðbúnaður sjúklinga og starfs- fólks á Ljósheimum er algerlega ófullnægjandi og er reksturinn á undanþágu. Jón Kristjánsson heilbrigðis- ráðherra segir að bygging nýrrar hjúkrunardeildar sé forgangsmál í heilbrigðisráðuneytinu og stefnt sé að því að taka hjúkrunardeild- ina í notkun í síðasta lagi á árinu 2006. Samkvæmt ákvörðun sam- starfsnefndar um opinberar framkvæmdir verða lagðar tæpar 800 milljónir króna í verkið og á því að ljúka í árslok 2006. ■ www.plusferdir.is Krít - 50 sæti í júní og júlí 39.232 kr. N E T á mann, m. v. að 2 fullorðnir og 2 börn, 2ja-11 ára, ferðist saman. 49.980 kr. ef 2 ferðast saman. Innifalið er flug, gisting í 7 nætur á Skala, ferðir til og frá flugvelli erlendis og flugvallarskattar. NETplus er einungis bókanlegur á www.plusferdir.is LONDON, AP Tony Blair, forsætis- ráðherra Bretlands, hefur til- kynnt að hann hyggist setja upp nefnd með fulltrúa víðs vegar að úr heiminum til að fjalla um vanda Afríkuríkja og gera tillögur um hvernig megi koma heimsálf- unni til aðstoðar. Nefndin á að líta á stöðu efna- hags- og menntamála í álfunni, sjá hvernig binda megi enda á átök og hlúa að heilbrigðis- og umhverfis- málum. Meðal þeirra sem sitja í nefnd- inni eru Meles Zenawi, forsætis- ráðherra Eþíópíu, Trevor Manuel, fjármálaráðherra Suður-Afríku, og rokkarinn Bob Geldof. ■ Ný hjúkrunardeild fyrir aldraða á Selfossi: Verður opnuð árið 2006 JÓN KRISTJÁNSSON Heilbrigðisráðherra segir byggingu nýrrar hjúkrunardeildar fyrir aldraða á Selfossi forgangsverkefni og lofar opnun deildarinnar árið 2006. ICELAND EXPRESS GAF ÞREMUR GÓÐGERÐAFÉLÖGUM FARMIÐA Frá vinstri: Helen Breiðfjörð frá Vímulausri æsku, Guðrún Jónsdóttir frá Stígamótum, Sigurður Halldórsson, stjórnarfor- maður Iceland Express, og Jóhanna María Eyjólfsdóttir frá Klúbbnum Geysi. FB -M YN D H AR I „Hann hef- ur rétt á því að fara með mál sitt fyrir dómstóla. HRAÐAMÆLING Lögreglan á Blönduósi er annáluð fyrir að sitja fyrir ökuföntum sem leið eiga um umdæmi þeirra. Hér má sjá nokkra ógnvalda ökufantanna. Vandi Afríku: Tony Blair skipar nefnd

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.