Fréttablaðið - 28.02.2004, Blaðsíða 27
LAUGARDAGUR 28. febrúar 2004
- SPENNANDI VALKOSTUR
Stangarhyl 3
110 Reykjavík
Sími: 591 9000
www.terranova.is
Akureyri sími: 461 1099
8.000 kr.
Bókaðu fyrir 15. mars ogtryggðu þér 8.000 kr. afsláttí valdar brottfarir.
afsláttur ef þú bókar strax.
Gullna ströndin – fegursta strönd Ítalíu er
8 km löng sandströnd við norðanvert Adríahafið, miðja
vegu á milli Feneyja og Trieste á Ítalíu.
Nafnið Lignano klingir örugglega bjöllum hjá mörgum
og kallar fram ljúfar minningar hjá þeim sem dvöldu
á þessum frábæra stað á árum áður.
Frá kr. 58.990
Miðað við 2 í stúdíó á Olimpo
1. júlí - 5 daga ferð með 8.000 kr. afslætti
Frá kr. 45.045
Miðað við hjón með 2 börn, 2-11 ára á Olimpo
1. júlí - 5 daga ferð, með 8.000 kr. afslætti
Beint leig
uflug
í sumar
Ítalía
Lignano
Sabbiadoro
SKÁLDSAGA UM HENRY JAMES
The Master eftir Colm Tóibín,skáldsaga um Henry James,
fær sérlega góða dóma í The
Guardian. Gagnrýnandinn, Adam
Mars-Jones, viðurkennir að hafa
ekki verið ýkja hrifinn af fyrri
bókum Tóibíns, segist meira að
segja að hafa haft vægt ofnæmi
fyrir einhverjum þeirra, en er
afar hrifinn af þessari nýju bók,
sem hann segir hafa dýpt og
áferð meistaralegrar höggmynd-
ar.
Skáldsagan hefst árið 1895
þegar leikrit Henry James, Guy
Domville, kolfellur á sviði í
London. Þetta verður James
mikið áfall og hann sökkvir sér
ofan í ritstörf og skrifar eitt
þekktasta verk sitt, The Turn of
the Screw, meðan minningar úr
fortíð hans leita á hann. Í skáld-
sögunni er James fylgt í fimm
ár en á þeim árum verður hann
meistari skáldsögunnar. Gagn-
rýnandinn segir að Tóibín takist
einna síst upp þegar hann lýsi
því hvernig James fái hugmynd-
ir að skáldverkum sínum en
skáldsagan sé engu að síður sig-
ur fyrir höfundinn. Bókin er
væntanleg í bókaverslanir hér á
landi í kringum 19. mars.
Colm Tóibín er írskur, fædd-
ur árið 1955. Skáldsaga hans The
Blackwater Lightship var til-
nefnd til Booker-verðlaunanna
árið 1999. ■
Andri Snær Magnason ermjög víða á ferð um þessar
mundir. Leikritið Blái hnöttur-
inn er að fara á svið í Toronto og
verður leiklesið í London, rétt-
urinn að bókinni Blái hnötturinn
hefur verið seldur til Kóreu og
LoveStar kemur út í kilju á Ís-
landi.
Í tilkynningu kanadíska leik-
hússins Lorraine Kimsa Theatre
for Young People í Toronto fyrir
leikárið 2004-05 er ekkert verið
að skafa af því. Þar segir að
leikritið „Blue Planet“ eftir
Andra Snæ Magnason sé eitt
„ótrúlegasta, ævintýralegasta
og inntaksríkasta leikrit sem
hafi fyrr og síðar verið skrifað
fyrir börn“. Listrænn stjórnandi
leikhússins, Allen McInnis, seg-
ir að með sýningu þess og stóru
verkefni um umhverfismál í
samstarfi við skóla og sveitar-
félög sem tengist leikritinu sé
verið að opna algerlega nýja
vídd í starfsemi þessa stærsta
leikhúss sinnar tegundar í
Kanada. Frumsýnt verður í jan-
úar 2005 og Andri fer utan nú í
vor til að vinna að undirbúningi
sýningarinnar.
Leiklestur í London
Á sama tíma og Andri Snær fer
til Kanada verður Blái hnötturinn
einnig leiklesinn af Company of
Angels í Arcola-leikhúsinu í
London. Tíu evrópsk leikverk
voru valin til að vera leiklesin af
þessum hópi, þar af eru tvö ís-
lensk og er Blái hnötturinn annað
þeirra. Lesturinn fer fram dagana
27. apríl til 8. maí.
Bókin um bláa hnöttinn, sagan
um krakkana sem gefa eilítið brot
af æskunni til að fá eilífa sól en
komast svo að því að hinum meg-
in á hnettinum eru aðrir krakkar í
eilífu regni, hefur nú ferðast út
um allan heim og hefur útgáfu-
rétturinn verið seldur til tíu
landa: Frakklands, Spánar, Ítalíu,
Danmerkur, Svíþjóðar, Færeyja,
Grænlands, Eistlands, Júgóslavíu
og Taílands. Nú bætist ellefta
landið í þennan hóp því gengið
hefur verið frá samningum við
forlagið Seoul Cultural Publishers
í Suður-Kóreu um útgáfu á bók-
inni. Sagan af bláa hnettinum kom
út hjá Máli og menningu árið 1999
og fyrir hana hlaut Andri Snær Ís-
lensku bókmenntaverðlaunin í
flokki fagurbókmennta, auk
fjölda annarra verðlauna.
LoveStar í kilju
LoveStar, nýjasta skáldaga
Andra Snæs, sem var ein best
selda skáldsagan jólin 2002, er nú
komin í kilju. Athygli vakti á dög-
unum þegar fréttir bárust af því
að fyrirtæki í Taívan tæki að sér
að flytja ösku látins fólks út í
geim með eldflaugum. Hugmynd-
in er grunsamlega áþekk þeirri
meginhugmynd í LoveStar að
senda lík út í geim og gera úr því
bissness. Reyndar eru hugmyndir
Andra Snæs um þennan iðnað
miklu stórbrotnari en þeirra Taí-
vaninga því samkvæmt LoveStar
byggir fyrirtækið LoveDeath á
því að skjóta dánu fólki út í geim
og láta það síðan brenna upp í loft-
hjúpnum. Þá geta syrgjendur
huggað sig við að hinir látnu enda
sem stjörnuhrap. ■
Andri Snær í öllum heimshornum
Öxin og jörðin er með þeimbetri sem ég hef lesið undan-
farið. Frábær bók sem vekur
áhuga á efninu. Ég er ekki nægi-
lega vel að mér í sögunni til að
vita hvað var skáldað og hvað
ekki, þannig að nú er á dag-
skránni að kynna sér sögu Jóns
Arasonar og sona hans í sögubók-
um,“ segir Róbert Marshall,
fréttamaður og formaður Blaða-
mannafélagsins. „Life of Pi eftir
Yann Martel fannst mér frábær.
Vel skrifuð saga með einstaklega
eftirminnilegum aðalpersónum.
Meðal bóka sem hafa gripið
mig undanfarið er Áform eftir
Michel Houellebecq, Nánd eftir
Hanif Kureishi og Enduring Love
eftir Ian McEwan. Sú síðast-
nefnda skartar einni æsilegustu
og eftirminnilegustu upphafssenu
sem ég man eftir en afgangurinn
af bókinni stóð kannski ekki alveg
undir þessum fyrstu fyrirheitum.
Family Matters eftir Rohinton
Mistry var lengi vel á nátt-
borðinu hjá mér en ég
flosnaði einhvern veginn
upp úr henni. Hún verður
kláruð seinna. Ég á það
nefnilega til að vera með
nokkrar í gangi í einu. Stupid
White Men var skemmtileg
þangað til mér fór að leiðast
röflið í Michael Moore.
Vilborg Davíðs kenndi mér
ágæta reglu, þegar við unnum
saman, sem ég hef notað síðan; ef
bók er ekki búin að ná tökum á
þér á fyrstu fimmtíu síð-
unum þá gerir hún
það ekki og jafn-
gott að hætta
að eyða
tíma í hana.
Þessa dag-
ana er ég
að lesa um
H a r r y
Potter og
Fönixregl-
una og hún
rígheld-
ur.“ ■
Harry Potter rígheldur
ANDRI SNÆR MAGNASON
Leikritið Blái hnötturinn er að fara á svið í
Toronto og verður leiklesið í London,
rétturinn að bókinni Blái hnötturinn hefur
verið seldur til Kóreu og LoveStar kemur
út í kilju á Íslandi.
Í tilkynningu
kanadíska leikhússins
segir að leikritið „Blue
Planet“ eftir Andra Snæ
Magnason sé eitt „ótrúleg-
asta, ævintýralegasta og
inntaksríkasta leikrit sem
hafi fyrr og síðar verið skrif-
að fyrir börn.
,,
■ Sagt og skrifað
RÓBERT MARSHALL
„Öxin og jörðin er með þeim betri sem ég
hef lesið undanfarið. Frábær bók sem
vekur áhuga á efninu. Ég er ekki
nægilega vel að mér sögunni til að
vita hvað var skáldað og hvað ekki,
þannig að nú er á dagskránni að
kynna sér sögu Jóns Arasonar og
sona hans í sögubókum.“
Vilborg Davíðs
kenndi mér ágæta
reglu, þegar við unnum
saman, sem ég hef notað
síðan; ef bók er ekki búin
að ná tökum á þér á fyrstu
fimmtíu síðunum þá gerir
hún það ekki og jafngott að
hætta að eyða tíma í hana.
,,
Finni fær Bók-
menntaverðlaun
Norðurlandaráðs
Finnski rithöfundurinn KariHotakainen hlýtur Bók-
menntaverðlaun Norðulandaráðs
í ár fyrir skáldsöguna Skotgraf-
arveg en bókin fékk finnsku bók-
menntaverðlaunin á síðasta ári.
Verðlaunin nema um fjórum
milljónum íslenskra króna.
Ljóðabókin Hvar sem ég verð,
eftir Ingibjörgu Haraldsdóttur,
og skáldsagan, Ýmislegt um
risafurur og tímann, eftir Jón
Kalmann Stefánsson, voru til-
nefndar til verðlaunanna af Ís-
lands hálfu. ■
27