Fréttablaðið - 28.02.2004, Síða 2

Fréttablaðið - 28.02.2004, Síða 2
2 28. febrúar 2004 LAUGARDAGUR „Svona í meðallagi.“ Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra sagði norskum blaðamönnum um daginn að fjölda kvikmynda af brottkasti á íslenskum fiskiskipum mætti fyrst og fremst rekja til mikils áhuga Íslend- inga á kvikmyndagerð. Spurningdagsins Árni, ertu mikill kvikmyndaáhuga- maður? ■ Lögreglufréttir Engin lausn í sjónmáli Neyðarástand skapast í heimahjúkrun ef ekki tekst að semja um nýjan aksturssamning fyrir mánudag. Núgildandi samningur barn síns tíma seg- ir Heilsugæslan. Efnt verður til borgarafundar um málið í Glæsibæ í dag. HEIMAHJÚKRUN Starfsmenn heima- hjúkrunar óttast að neyðarástand blasi við þegar nýr aksturssamn- ingur tekur gildi 1. mars, en hann hefur valdið deilu og hætta 40 af um 70 starfsmönnum um helgina ef ekki semst. Nýr sáttafundur hef- ur ekki verið boðaður. Félag eldri borgara og Öryrkjabanda- lagið hafa boðað til borgarafund- ar um deiluna í Ásgarði í Glæsi- bæ klukkan tvö í dag og er von á skjólstæðingum heimahjúkrunar, þingmönnum, og fulltrúum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. „Það er gríðarleg stífni af hálfu stjórnenda Heilsugæslunn- ar að vilja ekki hafa áfram í gildi aksturskerfi sem hefur verið lengi við lýði. Þjónustan mun skerðast en neyðaráætlun gerir ráð fyrir að sinna þeim sem þurfa mestu hjálpina,“ segir Elsa B. Friðfinnsdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Heilsugæslan hefur þegar auglýst eftir hjúkrunarfræðing- um, sjúkraliðum og hverfisstjóra í Kópavogi og eftir hjúkrunar- fræðingum og sjúkraliðum í mið- stöð heimahjúkrunar og óskað er eftir því að viðkomandi geti strax hafið störf. Samkvæmt núgildandi samn- ingi eru greiddar 452 krónur fyr- ir hverja vitjun. Starfsmaður í fullu starfi á eigin bíl sinnir um 10 vitjunum á dag og fær fyrir það 4.520 krónur og tæplega 95 þúsund krónur fyrir 21 vakt. Af þeirri upphæð þarf að greiða all- an kostnað við bílinn, svo sem bensín, skatt og tryggingar. Þórunn Ólafsdóttir, hjúkrun- arforstjóri Heilsugæslunnar, vís- ar öllu tali um neyðarástand á bug. Hún segir að nýr samningur taki mið af raunakstri og greitt sé fyrir ekna kílómetra. Gert sé ráð fyrir að starfsmaður í fullu starfi keyri 12-13 þúsund kíló- metra á ári, sem þýði að viðkom- andi fái 67 þúsund krónur í bíla- styrk á mánuði. Munurinn á samningunum er því um 28 þús- und krónur. „Aksturskerfið eins og það er núna er barn síns tíma. Með nýju kerfi viljum við efla og bæta alla þjónustuna,“ segir Þórunn. bryndis@frettabladid.is Snörp hækkun Pharmaco í gær: Kauphöllin stöðvaði viðskiptin MARKAÐUR Kauphöll Íslands greip inn í markaðinn í gær og stöðvaði viðskipti með hlutabréf í Pharmaco. Gengi bréfa félagsins tók kipp á markaði, án þess að fyrir lægju neinar nýjar verð- myndandi upplýsingar um félag- ið. Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallar Íslands, segir að Kauphöllin hafi haft samband við fyrirtækið og í framhaldi af því ákveðið að stöðva viðskipti með bréf félagsins. Meðal markaðsaðila er talin full ástæða til þess að skoða nán- ar þau viðskipti sem urðu með bréf Pharmaco í gær. „Við munum skoða þetta mál eins og venja er þegar slíkt ger- ist,“ segir Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Fjár- málaeftirlitisins. Hann segir slík mál oft koma til skoðunar hjá Fjár- málaeftirlitinu og í þeim tilvikum sem rökstuddur grunur sé um inn- herjasvik sé mál- um vísað til lög- reglu. Hann legg- ur ríka áherslu á að eðlilegar skýr- ingar geti verið á málum sem eftirlitið tekur til skoðunar. Þórður Friðjónsson segir að það sé Fjármálaeftirlitsins að rannsaka slík mál. „Við leitum skýringa og stöðv- um viðskipti ef við teljum þörf á,“ sagði Þórður. Pharmaco sendi frá sér yfir- lýsingu eftir lok markaðar í gær. Þar segir að Pharmaco eigi í viðræðum um kaup á félagi. Viðræðurnar séu á frumstigi og óljóst um niðurstöðu. Slíkt hefði ekki gefið tilefni til tilkynningar nema vegna þeirra hreyfinga sem urðu á gengi bréfa félags- ins. ■ Bankaráð Íslandsbanka: Kristján hættir VIÐSKIPTI Kristján Ragnarsson, formaður bankaráðs Íslands- banka, hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér til áframhaldandi setu í ráðinu, en Kristján hefur átt þar sæti frá stofnun bankans. Hann sat áður í bankaráði Út- vegsbankans, sem rann inn í Ís- landsbanka. „Þetta er orðinn langur tími, tólf ár, þannig að ég tel ágætt að hægja á sér núna.“ Kristján hætti sem formaður LÍÚ í fyrra. Hann segir að í ljósi breytinga á eignarhaldi bankans hafi sér fundist tímabært að standa upp úr stóli formanns bankaráðsins. ■ Auglýsingaverðlaun: Gott fólk fékk sjö MARKAÐSMÁL Auglýsingastofan Gott fólk - McCann hlaut verðlaun í sjö flokkum við úthlutun Ís- lensku auglýsingaverðlaunanna í gær en verðlaun voru veitt í tíu flokkum. Fyrirtækið var verð- launað fyrir auglýsingar fyrir Sýn, Durex, Verzlunarmannafélag Reykjavíkur og Vífilfell. Gunnlaugur Þráinsson, fram- kvæmdastjóri félagsins, er mjög ánægður með árangurinn og segir hann hafa komið sér á óvart. Aðrir sem unnu verðlaun voru Fastland fyrir eigin auglýsingu og Hvíta húsið sem vann verðlaun fyr- ir auglýsingu gegn nauðgunum og markpóst fyrir Pharmaco.■ Árni Johnsen: Hefur störf fyrir vestan SVEITASTJÓRNIR Gagnkvæmur vilji er fyrir því hjá forsvarsmönnum Vesturbyggðar og Árna Johnsen að hann taki að sér tímabundin verkefni fyrir hönd bæjarfélags- ins. Þetta kemur fram á vef Bæj- arins besta á Ísafirði. Þar er haft eftir Brynjólfi Gíslasyni bæjarstjóra að leitað hafi verið til Árna um að taka að sér verkefni á sviði atvinnu- og ferðamála. Eftir Árna er það haft að það hafi glatt sig að til hans væri leitað og hann muni ganga „vaskur til verka ef af verður“. ■ Bandarísk hjón: Eignuðust sexbura BANDARÍKIN Það hefur aldrei verið jafn mikið að gera á fæðingardeild í borginni Akron í Bandaríkjunum og þegar Jennifer Hanselman fæddi börn sín, sex að tölu. 34 manna sjúkralið þurfti til að taka á móti börnunum, þremur drengjum og þremur stúlkum, sem voru tekin með keisaraskurði þegar móðirin var komin 29 vikur á leið. Aðeins leið mínúta frá því að fyrsta barnið var tekið úr legi móð- ur sinnar þar til það síðasta var tek- ið. „Það var ótrúlegt hve hratt þau komu út,“ sagði Keith, faðir þeirra. „Þetta var eins og poppvél.“ ■ ÞJÓFNAÐUR Á HAÍTÍ Lögleysa ríkir á Haítí. Stuðningssveitir for- setans hafa ráðist á og myrt andstæðinga hans í höfuðborginni. Borgarastríðið á Haiti: Aristide segi af sér HAITI, AP Frönsk og bandarísk stjórn- völd hafa mælst til þess að Jean- Bertrand Aristide láti af embætti forseta Haítí til að binda megi enda á borgarastríðið sem þar geisar. Uppreisnarmenn hertóku í gær bæ nærri höfuðborginni Port-au- Prince og voru í aðeins fimmtán kílómetra fjarlægð frá borginni. Leiðtogi þeirra sagði að þeir réðust fljótlega á hana segði Aristide ekki af sér. Nýr hópur uppreisnarmanna, sem ekki tengist þeim hópum sem hafa náð rúmlega helmingi lands- ins á sitt vald, náði þriðju stærstu borg landsins á sitt vald í gær. ■ www.landsbanki.is sími 560 6000 Varðan - alhliða fjármálaþjónusta Nokkrir punktar um beinharða peninga! Nánast öll viðskipti gefa punkta Varðan býður upp á mjög víðtæka söfnun ferðafríðinda í formi punkta. Punktarnir hlaðast upp við nánast öll viðskipti sem Vörðufélagar eiga við Landsbankann. Í SL EN SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S LB I 23 72 2 02 /2 00 4 Innbrot og íkveikja í Hraunbergi: Lögreglan handtók tvo LÖGREGLA Tveir menn á þrítugs- aldri eru í haldi lögreglu í tengsl- um við innbrot sem framin voru í Hraunbergi í Reykjavík. Einnig hefur lögregla hluta þýfisins í sinni vörslu. Bruni varð í íbúðinni fyrir um tveimur vikum og hafði verið brotist inn bæði fyrir og eftir brunann. Þau Hermóður Sigurðs- son og Anna María Sigtryggs- dóttir, sem bjuggu í íbúðinni, sögðu í viðtali við Fréttablaðið í gær greinilegt að brotist hefði verið inn fyrir brunann og segja þau að grunur sé um íkveikju þar sem kveikt hefði verið á tveimur eldavélahellum. Eftir brunann var íbúðin innsigluð og þau fengu inni hjá vinafólki. Daginn eftir þegar þau komu að íbúðinni var búið að rjúfa innsiglið og brjótast aftur inn. Hermóður og Anna hafa fengið hluta af eigum sínum til baka, þar á meðal keilukúlur, eitthvað af fatnaði og geisladiska. ■ ALLSLAUS EFTIR BRUNA OG INNBROT Tveir menn eru í haldi grunaðir um innbrotin. GRIPIÐ INN Í Þórður Friðjóns- son, forstjóri Kauphallar Ís- lands sá ástæðu til þess að grípa inn í þegar hluta- bréf Pharmaco tóku skyndilega að hækka. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T HEIMAHJÚKRUN Heimahjúkrunarfólk á fundi með stéttafélögum fyrr í vikunni vegna ástandsins sem blasir við. „Aksturs- kerfið eins og það er núna er barn síns tíma. Með nýju kerfi vilj- um við efla og bæta alla þjónustuna. ELDUR Á ÞORRAGÖTU Eldur kom upp í eldhúsi við Þorragötu í Reykjavík um sexleyið í gær. Allt tiltækt slökkvilið var kallað á staðinn og gekk starf þess greið- lega. Síðustu bílar fóru af vett- vagni fyrir klukkan 19. Tvennt var flutt á slysadeild vegna reyk- eitrunar og lítilsháttar brunasára.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.