Fréttablaðið - 28.02.2004, Qupperneq 30
30 28. febrúar 2004 LAUGARDAGUR
TÓNLIST Miðasala á tónleika Korn í
Laugardalshöll 30. maí næskom-
andi hefst á sunnudaginn. Sjaldan
hefur verið jafn mikill áhugi fyrir
komu rokksveitar hingað til lands
og því nokkuð víst að barist verð-
ur um miðana.
Fyrstu miðarnir verða seldir
klukkan 21 á sunnudag í verslun-
um Skífunnar á Laugavegi, í
Kringlunni og í Smáralind. Miða-
sala utan höfuðborgarsvæðisins
hefst á sama tíma í Pennanum á
Akranesi og Hljóðhúsinu Selfossi.
Fyrstu miðarnir verða þó seldir í
Pennanum - Eymundssyni á Gler-
ártorgi Akureyri en þar hefst
miðasalan klukkan 13.
Áhugasamir af landsbyggðinni
geta hringt í síma 525 5040 til að
tryggja sér miða gegn kredit-
kortagreiðslu og opnar það númer
klukkan 21 sama dag.
Samtök verslunareiganda í
Kringlunni og Smáralind fara
þess vinsamlega á leit við aðdá-
endur að þeir stilli sér ekki upp í
röð fyrr en klukkan 17 í Kringl-
unni og 18 í Smáralind, þannig að
raðirnar hafi sem minnst áhrif á
verslun og þjónustu í verslunar-
miðstöðvunum.
Skífan á Laugavegi fer þess á
leit við væntanlega tónleikagesti
að þeir stilli sér ekki upp fyrr en
klukkan 18.
Miðaverð á tónleikana er 4.500
krónur í stæði en 5.500 í stúku.
Aldurstakmark er 13 ára, nema í
fylgd með forráðamanni. Hver
einstaklingur getur ekki keypt
fleiri en 6 miða. ■
Popptextinn
I used to love her, but I had to kill her
I used to love her, but I had to kill her
I had to put her
Six feet under
And I can still hear her complain.
- Axl Rose losnaði víst ekki við nöldur fyrrverandi
kærustunnar þrátt fyrir að hafa kálað henni og jarð-
að í bakgarðinum heima hjá sér í laginu Used to
Love Her. Tekið af G N'R Lies, annarri breiðskífu
Guns ‘n' Roses, frá árinu 1989.
GUNS ‘N’ ROSES
Smáralind
Kópavogi
FRÁBÆRIR LITIR.
Verð frá kr. 1.590
Benetton „logo” bolirnir komnir
á bæði börn og fullorðna.
Þá er rapparinn Snoop Dogghættur að reykja maríjúana.
Hann segir að honum hafi verið
byrjað að líða eins og
eiturlyfjafíkli og því
hafi hann ákveðið að
hætta. Hann varð líka
var við það að efnið
væri að eyðileggja
ímynd sína þar sem
hann var sjaldnast tengdur við
neitt annað en reykingar. Hann
segir líðan sína mun betri eftir að
hann hætti og segir að hann hafi
mun meiri stjórn á lífi sínu.
André 3000 úr Outkast hefursamþykkt að leika gítarhetj-
una Jimi Hendrix í væntanlegri
kvikmynd um ævi rokkarans. Við
megum búast við því að sjá
André í fleiri myndum því hann
er ansi duglegur þessa dagana að
taka að sér kvikmyndahlutverk.
Stjarna Outkast rís því hærra
með hverjum degi.
Fréttiraf fólki
PARTÍ HJÁ DONATELLU VERSACE
Hér sjást þær Donatella Versace og leikkonan Liz Hurley á skallanum í partíi hjá fata-
hönnuðinum fræga. Þær skemmtu sér saman eftir að sýningu Donatellu lauk í Mílanó á
fimmtudagskvöldið.
TÓNLIST Samkvæmt rannsókn
bandarísks heilsusérfræðings
hefði gítarleikarinn Keith Rich-
ards átt að deyja fyrir átta árum
síðan. Heilsufræðingurinn David
Demko heldur því fram að ei-
lífðarrokkarinn hafi náð að
„smeygja sér framhjá dauðanum“
eftir áralangt sukklíferni.
Demko var ráðinn af tímaritinu
Blender til þess að rannsaka nokkra
af frægustu poppurum heims og líf-
erni þeirra. Upp frá þeim upplýs-
ingum átti Demko svo að segja til
um líklegan dánardag stjarnanna.
„Hann hefði átt að drepast þeg-
ar hann var 52 ára,“ sagði Demko í
blaðaviðtali um Richards, sem er
60 ára í dag. „Ég er ekki viss um
hvernig hann fer að þessu en hann
býður allri rökhugsun birginn.
Áttatíu prósent af því hversu gam-
all þú getur orðið ræðst af lífsstíl
en ekki genum.“
Richards gerir sér svo sem al-
veg grein fyrir þessu og viður-
kenndi á sextugsafmæli sínu í
fyrra að margir félaga hans
hefðu lýst yfir áhyggjum af sér.
„Það eru margir sem héldu að ég
myndi aldrei ná þessum áfanga,“
sagði hann í afmælisveislu sinni.
Til þess að halda sér gangandi
hefur Richards þurft að gangast
undir nokkrar aðgerðir. Þar á
meðal hefur hann látið skipta
um blóð í sér minnst tvisvar.
Demko spáði því svo að Ozzy
Osbourne myndi deyja árið 2013,
þá 65 ára gamall. Whitney Hou-
ston mun aðeins lifa í 19 ár til
viðbótar og verða 59 ára og
Michael Jackson nær 76 ára
aldri.
Sting er aftur á móti í góðum
málum því samkvæmt útreikn-
ingum Demkos ætti hann að ná
93 ára aldri. ■
KEITH RICHARDS
Alltaf í stuði, steiiiiindauður!
Bræðurnir Einar Vilberg ogStefán Vilberg Einarssynir
skipa rokksveitina Noise ásamt
Ragnari Sólberg, sem hefur getið
sér gott orð sem forsprakki Sign.
Hér er hann reyndar með
trommukjuðana í hendi í stað gít-
arsins og míkrófónsins.
Þessi plata kom út í fyrra og
hafa nokkur lög af henni fengið
útvarpsspilun, aðallega þó
Freeloader sem vissulega á sín
augnablik á plötunni ásamt Para-
noid Parasite. Noise spilar hrátt
rokk í Nirvana-stílnum sem tröll-
reið öllu fyrir um það bil tíu árum
síðan. Kannski ekki heitasta tón-
listin í dag, en hvað um það.
Vandamálið er bara að sveitin
bætir engu þar við og er allt of
þunglamaleg. Fyrir utan það að
ekkert kemur á óvart á plötunni
er það truflandi hversu mikið
vantar upp á sönginn og hljómar
hann á köflum eins og léleg eftir-
líking frábærrar raddar Kurt
Cobain.
Sterkasti hlekkur Pretty Ugly
eru vel útfærð gítarsólóin, meðal
annars í fyrstu þremur lögunum
og Freeloader. Annars er fátt sem
gleður eyrun, því miður.
Freyr Bjarnason
Umfjölluntónlist
NOISE:
Pretty Ugly
Fátt sem gleður
Hefði átt að deyja
fyrir 8 árum
Miðasala á Korn byrjar á morgun
KORN
Kornið sem fyllir mælinn? Mikil eftirvænt-
ing er eftir tónleikum bandarísku sveitar-
innar Korn.