Fréttablaðið - 28.02.2004, Side 40
VARAMENN Í VINÁTTULEIKJUM
Alþjóðlega knattspyrnuráðið
fundar í London um helgina og
ræðir tillögur að breytinugm á
knattspyrnulögunum. Þeir ræða
meðal annars tillögu um tak-
mörkun á fjölda varamanna í vin-
áttuleikjum. Þjálfarar enska, ítal-
ska og franska landsliðsins hafa
lýst yfir andstöðu.
BARMBY TIL FOREST Leeds
United hefur lánað Nick Barmby
til Nottingham Forest í einn mán-
uð. Leeds keypti Barmby frá
Liverpool í ágúst 2002 fyrir 2,75
milljónir punda en hann lék áður
með Tottenham, Middlesbrough
og Everton. Frumraun Barmby
með Forest verður heimaleikur
gegn Bradford í dag.
40 28. febrúar 2004 LAUGARDAGUR
■ Fótbolti
STALLONE BOXAR
Leikarinn Sylvester Stallone, sem sló í
gegn sem Rocky Balboa, mun taka þátt í
nýjum raunveruleikaþáttum sem kallast
The Contender. Þar verður kappinn í hlut-
verki læriföðurs ungra boxara sem stefna
á toppinn. Sá besti fær í sinn hlut eina
milljón dollara, eða um 70 milljónir króna.
Box
Eiður Smári Guðjohnsen:
Látið Ranieri í friði
FÓTBOLTI Eiður Smári hefur hvatt
almenning til að leyfa Claudio
Ranieri að stunda starf sitt í friði.
Ranieri, sem hefur fengið um
15 milljarða króna til leikmanna-
kaupa, hefur verið undir miklum
þrýstingi eftir nokkuð misjafnt
gengi upp á síðkastið. Liðið er níu
stigum á eftir Arsenal í baráttunni
um enska meistaratitilinn og er
dottið út úr enska bikanum. Nánast
eina von liðsins til að ná í titil er að
sigra Meistaradeild Evrópu.
„Fólk ætti að láta hann vera og
gefa honum vinnufrið. Það myndi
auðvelda okkur öllum vinnuna;“
sagði Eiður. „Við sjáum til í lok
leiktíðarinnar hvað gerist ef það
verður þá eitthvað. Sem betur fer
held ég að hann láti þetta ekki hafa
áhrif á sig. Það lítur ekki út fyrir
að hann sé undir þrýstingi. Hann
vinnur sína vinnu eins og vana-
lega. Málið er að knattspyrnustjór-
inn er ekki bara undir þrýstingi,
við erum það allir,“ sagði hann.
Eiður telur að Chelsea, sem
sækir Manchester City heim á
morgun, eigi enn möguleika á
meistaratitilinum. „Það voru mikil
vonbrigði að tapa á móti Arsenal
vegna þess að þetta voru þrjú mik-
ilvæg stig. En ef við náum góðum
úrslitum á næstunni og Arsenal
tapar stigum þá gætum við átt
möguleika.“ ■
Óvissa með framtíð Veigars Páls:
Gæti hætt hjá KR
KNATTSPYRNA Mál Veigars Páls
Gunnarssonar eru í enn meiri óvis-
su í dag en þau voru í gær. Norska
liðið Stabæk vill fá hann og Veigar
telur sig geta farið til félagsins án
greiðslu. Því eru KR-ingar ósam-
mála og segja þeir Veigar vera
samningsbundinn félaginu enda
gerði hann nýjan leikmannasamn-
ing við félagið í byrjun árs. Veigar
hefur aftur á móti ekki skrifað
undir KSÍ-samning við KR og því
telur hann sig lausan allra mála en
því vill KR ekki una.
„Ég ætla mér að komast til
Noregs og spila fyrir Stabæk. KR
hafði lofað því að standa ekki í
vegi mínum ef ég fengi tækifæri
til þess að gerast atvinnumaður
en það er nákvæmlega það sem
þeir eru að gera núna,“ sagði
Veigar Páll.
„Ég er hundfúll og þessi fram-
koma kemur mér á óvart þar sem
samskipti okkar hafa alla tíð ver-
ið mjög góð,“ sagði Veigar en
hann útilokar ekki að hætta hjá
KR fái hann ekki að fara til Nor-
egs. „Ég veit ekkert hvað ég geri
en ég útiloka ekki að hætta að
spila hjá KR komist ég ekki út.“
Kristinn Kjærnested, stjórnar-
maður hjá KR-Sport, vildi ekki tjá
sig um ummæli Veigars Páls en
sagði að KR væri í viðræðum við
Stabæk. ■
FÓTBOLTI Arsenal er í toppsæti
deildarinnar með sjö stiga forskot
á Manchester United. Charlton
situr aftur á móti því fimmta og
getur komist upp fyrir Newcastle
með sigri í dag.
„Þeir eru náttúrulega búnir að
vera í dúndurformi allt keppnis-
tímabilið og eru taplausir, þannig
að þetta er leikur þar sem þú hef-
ur í rauninni engu að tapa,“ segir
Hermann um leikinn við Arsenal.
Hann vill ekki meina að Charlton
ætli að leggjast í vörn á Highbury.
„Maður reynir alla vega ekki að
pakka í vörn og láta þá fá boltann.
Þeir hafa svo marga gæðaleik-
menn að þeir refsa þér bara. Við
ætlum bara reyna að vinna þá.“
Hermann játar að jafntefli væru
ágætis úrslit en ætlar sér engu að
síður sigur. „Það er náttúrulega
komin pressa á þá. Þeir hljóta að
tapa einhvern tímann,“ segir hann
og hlær.
Aðspurður um erfiðasta and-
stæðinginn í liði Arsenal nefnir
Hermann Frakkann Thierry
Henry til sögunnar. „Hann hefur
verið svakalegur í vetur og er
stöðugt að bæta sig, sem ætti nú
ekki að vera hægt. Hann er búinn
að vera sér á báti. En fyrir utan
hann þá eru þarna fullt af topp-
spilurum sem hafa verið að spila
vel líka.“
Gengi Charlton hefur verið
vonum framar á leiktíðinni. Liðið
hefur náð að halda sér á meðal
efstu liða í allan vetur, þvert á
hrakspár fótboltasérfræðinga. Að
sögn Hermanns eru ástæður vel-
gengninnar margvíslegar. „Það er
hörkugóður andi í hópnum og
stjórinn veit hvað hann er að gera.
Klúbburinn er líka búinn að stim-
pla sig inn og þarna er mikið af
góðum leikmönnum. Síðan er æft
stíft og vel tekið á því. Það skilar
sér út á völlinn.“
Hermann vill ekki viðurkenna
að félagið hafi sett stefnuna á
Meistaradeildina en veit þó að
möguleikinn er fyrir hendi. „Víst
það eru búnir 2/3 hlutar af keppn-
istímabilinu og við erum ennþá í
Evrópusæti þá er bara að reyna
að halda því,“ segir hann. „Annars
er þetta gamla klisjan, að taka
einn leik fyrir í einu og sjá hvað
gerist. Í dag er engin ástæða til að
vera að gefa eitthvað eftir.“
Hermann á erfitt með að nefna
einn samherja umfram annan sem
er betra að spila með. Hann sér þó
eftir Scott Parker, sem var seldur
til Chelsea á dögunum. „Parker
heillaði mig svakalega sem leik-
maður og maður skilur vel að
hann vilji fara til stærri klúbbs.
Hvaða klúbbur sem er myndi
sakna leikmannsins. Hann á eftir
að sýna það og sanna að hann er
framtíðar enskur landsliðsmaður
og bara þvílíkur klassaspilari.“
Hvað varðar ensku meistara-
baráttunna býst Hermann við að
Arsenal klári dæmið. „Ég veðjaði
á Manchester í byrjun móts en
það hefur verið þeim dýrkeypt að
missa Rio Ferdinand. Þá vantar
varnarmann, það er engin spurn-
ing. Ég er hissa á að Ferguson
skildi ekki hafa farið í vasann og
eytt í varnarmann. Ef þú lítur á lið
Manchester og síðan á Chelsea og
Arsenal, þá eru nokkrir farþegar í
Manchester. Ef þú ætlar að vera á
toppnum hefðurðu ekki efni á
því.“
Hermann vill ekki spá fyrir um
úrslit leiksins í dag en hefur þetta
að segja: „Ég vona bara að við
náum að spila almennilegan leik
og sýna hvað við getum. Vonandi
skilar að einhverjum stigum,“
segir landsliðsmaðurinn sterki að
lokum, tilbúinn í slaginn.
freyr@frettabladid.is
Almennur hluti 1b
Þ
já
lf
ar
an
ám
sk
ei
ð
Í
S
Í
Þjálfaranámskeið ÍSÍ
www.isisport.is
Önnur námskeið í mars
Þjálfari 1a – Almennur hluti Patreksfjörður 5. mars
Skíðanámskeið fyrir fatlaða Hlíðarfjall 12. mars
Þjálfari 2a – Almennur hluti Rvk. 12. mars
Skíðanámskeið fyrir fatlaða Hlíðarfjall 19. mars
Þjálfari 1b – Almennur hluti Neskaupstaður 26. mars
Þjálfari 1a – Almennur hluti Ísafjörður (dags. ákv. síðar)
Þjálfari 1b – Almennur hluti Akureyri (dags. ákv. síðar)
Helgina 5. – 7. mars n.k. verður Þjálfari 1b – almennur hluti haldinn í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal.
Námskeiðið er framhald af þjálfaranámskeiði 1a – almennum hluta. Námskeiðið sem er samræmt fyrir
allar íþróttagreinar er 20 kennslustundir, að meginhluta bóklegt, og er ætlað leiðbeinendum barna í
íþróttum. Haldið verður áfram að fjalla um þroskaferli barna, þ.e. vaxtarþroska og hreyfiþroska. Einnig er
fjallað um undirstöðuatriði kennslufræði, mikilvægi rétt mataræðis, fyrstu viðbrögð við íþróttameiðslum
og fleira. Nemandi sem lýkur þessu námskeiði ásamt því að ljúka sérgreinahluta þjálfarastigs 1b hlýtur
réttindi sem þjálfari hjá börnum 12 ára og yngri undir eftirliti yfirþjálfara.
Verð á námskeiðið er kr. 8.000,- Skráningar þurfa að berast á netfangið andri@isisport.is
eða í síma 514-4000 í síðasta lagi miðvikudaginn 3. mars.
Þeir sem hafa lokið Grunnstigi ÍSÍ eru
gjaldgengir á Almennan hluta 1b.
Þeir sem hafa lokið ÍÞF102, ÍÞG1x2 í
framhaldsskóla og Skyndihjálparnámskeiði
eru gjaldgengir á Almennan hluta 2a.
Þjálfaramenntun íþróttahreyfingarinnar fæst
metin til eininga í framhaldsskólum
samkvæmt aðalnámskrá framhaldsskóla.
Frekari upplýsingar má finna á
www.isisport.is
AP
/M
YN
D
LEIKIR UM HELGINA
LAUGARDAGUR:
Arsenal-Charlton
Blackburn-Southampton
Everton-Aston-Villa
Fulham-Man.Utd
Leicester-Wolves
Man.City-Chelsea
SUNNUDAGUR:
Leeds-Liverpool
Portsmouth-Newcastle
STAÐAN
Félag L S
Arsenal 26 64
Man. Utd 26 57
Chelsea 26 55
Newcastle 26 41
Charlton 26 40
Liverpool 25 38
Aston Villa 26 37
Birmingham 25 36
Fulham 26 35
Tottenham 26 34
Bolton 26 34
Southampton 26 32
Middlesbr. 25 31
Man. City 26 27
Blackburn 26 27
Everton 26 26
Portsmouth 25 23
Wolves 26 23
Leicester City 26 22
Leeds United 26 21
Hefur engu að
tapa á Highbury
Hermann Hreiðarsson, varnarjaxlinn í liði Charlton, mætir Thierry
Henry og félögum í Arsenal í miklum Lundúnarslag á Highbury í dag.
HERMANN
Í baráttu við Fredrik
Ljungberg í fyrri leik
Charlton og Arsenal
á The Valley í októ-
ber. Leiknum lauk
með jafntefli, 1-1.