Fréttablaðið - 28.02.2004, Page 46
Ég ætla á æfingu með hrukku-dýraþungarokkshljómsveit-
inni Bulldosers. Meðlimir hljóm-
sveitarinnar eru allir komnir um
og yfir fertugt og hljóta þess
vegna þessa heiðursnafnbót,“ seg-
ir Gunnþór Sigurðsson bassaleik-
ari, tæknimaður og líkamsræktar-
kennari. Þrír eru í hljómsveitinni
og þeirra á meðal Danni Pollock.
„Við tökum okkur ekkert alltof al-
varlega en erum þó að nálgast það
stig að kíkja út úr bílskúrnum.
Allt efni sem við leikum er frum-
samið. Þetta er ekki þriggja gripa
pöbbarokk heldur kraftmikið
rokk.“
Gunnþór segir eina ástæðuna
fyrir tilurð hljómsveitarinnar
vera að forða þeim frá því að enda
sem algjörir sófar. „Tónlistin
heldur manni við efnið. Ég segi
ekki að ég detti alla leið aftur í
pönkið þegar ég leit á alla yfir þrí-
tugt sem risaeðlur. Á þeim tíma
klæddist ég bol sem á stóð „Trust
no one over thirty“. Afstaðan hef-
ur heldur breyst og aldursmarkið
lengst.“
Gunnþór var sem kunnugt er
meðlimur í pönkhljómsveitinni
Q4U og segir laugardagskvöldin í
dag heldur frábrugðnari en á með-
an hljómsveitin var starfandi. „Þau
voru ansi villt í gamla daga. Á þeim
tíma hafði pönk-kynslóðin alltaf á
tilfinningunni að kjarnorkustyrjöld
væri yfirvofandi. Svo var henni
frestað. Sú kynslóð er í dag sokkinn
ofan í hægindastóla, handfjatlar
fjarstýringar og spáir í matar-
æðið.“
Sjálfur datt Gunnþór í heilsu-
ræktina svo um munaði og kennir í
dag spinning í Gym 80. „Ég hætti að
reykja á sínum tíma og varð svo
feitur að andlitið féll saman þegar
ég reimaði skóna. Rebellinn var
orðin eins og pera í laginu og það
var ekki alveg að gera sig. Í spinn-
ing-tímunum nota ég eingöngu tón-
list sem ég fíla. Ekkert Abba-
kjaftæði heldur slétt 100 desibel af
rokki.“
Gunnþór segir efst á baugi hjá
sér það sama og flestum öðrum.
„Ég fæ mitt svitakast um mánaða-
mót þegar ég hugsa um ógreidda
reikninga. Þá liggur við að ég
hringi á lögregluna á morgnana
þegar ég horfi í spegilinn og held að
ókunnugur maður sé í íbúðinni. En
ég hef þetta skóhorn sem er að
komast til að spila og gleyma stað
og stund.“ Hann segist horfa til
baka með bros á vör. „Þetta var dá-
samlega klikkaður tími en allt tek-
ur enda. Í dag er ég að komast á
markamínútuna. Ég er að verða 44
ára gamall og ef ég skora ekki núna
er þetta búið,“ segir hann og hlær.
kolbrun@frettabladid.is
28. febrúar 2004 LAUGARDAGUR
Vikan hjá mér hófst á því að égfékk í fyrsta skipti konu heim
til mín að þrífa á mánudag. Það var
alveg stórkostlegt og hún er komin
til að vera. Törnin dagana á undan
var svo svakaleg að ekki gafst tími
til eins eða neins og allt var á rúi og
stúi,“ segir Ólafía Hrönn Jónsdóttir
leikkona.
Ólafía leikur í nýju leikriti, Þetta
er allt að koma, sem byggt er á sögu
eftir Hallgrím Helgason og var
frumsýnt í Þjóðleikhúsinu á
fimmtudag. Hún segist hafa dvalið í
leikhúsinu meira og minna alla daga
síðustu viku við æfingar. Þrátt fyrir
það tókst henni að finna tíma til að
keyra viljandi á sviðsmann Þjóð-
leikhússins.
„Þetta gerðist eftir rennsli á
þriðjudagskvöld. Ég var að keyra
upp Hverfisgötuna og þurfti að
stöðva á rauðu ljósi. Fyrir framan
mig var Jón Örn sviðsmaður á reið-
hjólinu sínu og ákvað ég að stríða
honum aðeins. Ég keyrði léttilega á
hjólið hans á litla bílnum mínum og
ýtti honum áfram. Jóni brá svo
svakalega að hann stökk af hjólinu
og sparkaði í bílinn minn. Ég varð
skelfingu lostinn og Jón Örn líka
þegar hann sá að þetta var ég. Þarna
störðum við á hvort annað
skömmustulega og afsökuðum okk-
ur í bak og fyrir. Þessi stríðni mín
mistókst gjörsamlega en endaði
sem betur fer í góðu og hann hjólaði
hlæjandi í burtu.“ ■
Vikan sem var
ÓLAFÍA HRÖNN JÓNSDÓTTIR
■ eyddi drjúgum tíma í Þjóðleikhúsinu
í síðustu viku. Samt sem áður fann hún
sér tíma til að keyra viljandi á sviðs-
manninn.
Laugardagskvöld
GUNNÞÓR SIGURÐSSON
■ ætlar á æfingu í kvöld með hrukku-
dýraþungarokkshljómsveitinni Bulldosers.
Keyrði viljandi á sviðsmanninn
■ Veistu svarið?
Svör við spurningum á bls. 6
1.
2.
3.
Valgeir Elíasson.
Hrafn Jökulsson.
Veigar Páll Gunnarsson.
Drottningarnarkræktu í prinsana
Útlendingar á ÍslandiGo home you American bitch Bls. 22–23
Steingrímur HermannssonBúið að hafa af honumblessaða þjóðarsáttina Bls. 24–25
DAGBLAÐIÐ VÍSIR 50. TBL. – 94. ÁRG. – [ LAUGARDAGUR 28. FEBRÚAR 2004 ] VERÐ KR. 250
Tvær kynþokkafyllstukonur landsins eru sam-herjar og keppinautar ísenn. Harðar í horn að takaog báðar á milli tannannaá fólki vegna nýju kærast-anna. Ítarleg nærmynd afSvanhildi og Jóhönnu.
LJÓSVAKALÆÐAN OG VILLIKÖTTURINN
Leikur rokk og sneiðir
hjá því að enda sem sófi
1
7
8 9
10
11 13
16 17
18
14 15
12
2 3 4 5
6
Lárétt: 1 æðstur klerka, 6 fugl, 7 tveir
eins, 8 sólguð, 9 fótabúnað, 10 samfarir,
12 kaldi, 14 nafar, 15 kyrrð, 16 sund, 17
fæða, 18 duglaust.
Lóðrétt: 1 hluti, 2 fjanda, 3 tónn, 4 sumt,
5 í röð, 9 misgerð, 11 naut, 13 ullar-
hnoðrar, 14 eldur, 17 borðandi.
Lausn.
Lárétt: 1páfinn,6ara,7oo,8ra,9skó,
10mök,12kul,14bor, 15 ró, 16ál,17
æti,18lint.
Lóðrétt: 1part, 2ára,3fa,4nokkurt, 5
noó,9sök,11boli,13lóin,14bál,17
æt.
GUNNÞÓR SIGURÐSSON
Gunnar starfar sem tæknimaður hjá Sjónvarpinu og líkamsræktarstöðinni Gym 80. Þá er
hann mikill aðdáandi KR-fótboltaliðsins. „Ég sé heiminn röndóttan. Ég fylgist lítið með
enska fótboltanum enda nenni ég ekki að horfa allan sólarhringinn. Ég fer á leiki með KR
og læt það duga.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/T
EI
TU
R
ÓLAFÍA HRÖNN JÓNSDÓTTIR
Ólafía á fjögurra og hálfs árs gamla dóttur.
Öskudagur var á þriðjudag og vildi sú
stutta klæða sig upp sem drottningu.
„Það var á hreinu að hún vildi ekki vera
prinsessa.“