Fréttablaðið - 09.03.2004, Page 2
2 9. mars 2004 ÞRIÐJUDAGUR
„Nei, þetta voru bara fyrstu samn-
ingarnir. Fjörið er rétt að byrja.“
Ari Edwald er framkvæmdastjóri Samtaka
atvinnulífsins sem á sunnudag skrifaði undir
kjarasaminga við Starfsgreinasambandið og Flóa-
bandalagið.
Spurningdagsins
Ari, ertu þá á leiðinni í frí?
■ Evrópa
Kristján sendi Lands-
bankanum tóninn
Kristján Ragnarsson kvaddi í gær formannsstól bankaráðs Íslandsbanka
eftir tólf ára samfellda setu. Bankinn skilaði metuppgjöri í fyrra. Kristján
gagnrýndi Landsbankann, Seðlabankann, Alþingi og Fjármálaeftirlitið.
VIÐSKIPTI „Athygli vakti ásælni
Landsbankans í hlutabréf Íslands-
banka nýlega og síðan ráðstöfun
þeirra,“ sagði Kristján Ragnars-
son, fráfarandi formaður banka-
ráðs Íslandsbanka, í kveðjuræðu
sinni á aðalfundi bankans í gær.
Hann bætti því við að með kaup-
unum hefði verið látið að því ligg-
ja að Landsbankinn kysi samstarf
við Íslandsbanka á einhverjum
óljósum sviðum. „Af þeirri
reynslu sem við höfum af sam-
starfi við for-
s v a r s m e n n
Landsbankans,
tel ég heppileg-
ast að við vinn-
um að okkar
markmiðum án
tengsla við þá.“
Átök voru á
milli bankanna
um yfirráð yfir
fjárfestingar-
s j ó ð n u m
Straumi á haust-
mánuðum. Kaup
Landsbanka í Ís-
landsbanka í
byrjun árs voru
í óþökk for-
manns banka-
ráðsins.
Kristján þakkaði í ræðu sinni
samstarf við stjórnendur og
bankaráð bankans. Hann kveður
bankaráðið eftir fjórtán ára setu í
því, þar af sem formaður banka-
ráðs í tólf ár. Hann þakkaði traust
hluthafa þennan tíma. Bankinn
hefur dafnað á þessum tíma. Fjár-
hagur hans er traustur og bankinn
skilaði methagnaði í fyrra.
Kristján beindi gagnrýni í
fleiri áttir. Seðlabankinn varaði ís-
lensk fjármálafyrirtæki við of
miklum erlendum lánum. Krist-
ján sagði óeðlilegt að setja slíkar
viðvaranir almennt fram. Nær
væri að beina þeim til þeirra fjár-
málastofnanna sem Seðlabankinn
teldi að væru í þörf fyrir þær.
Sömu gagnrýni beindi hann til
Fjármálaeftirlitsins og taldi að í
virku fjármálaeftirliti þyrfti að-
gerðir í stað orða. Kristján minnt-
ist einnig á löggjöf Alþingis um
sparisjóði í kjölfar tilraunar KB
banka til að kaupa SPRON. „Við-
brögð Alþingis voru óvenjuleg
hvað þetta mál varðar og ástæða
til að efast um að löggjöf sem
þessi verði sparisjóðunum eða
viðskiptavinum þeirra til fram-
dráttar þegar til lengri tíma er lit-
ið.“
Við formennsku í bankaráðinu
tekur Einar Sveinsson, forstjóri
dótturfélags Íslandsbanka, Sjóvá
Almennra. Hann mun láta af for-
stjórastarfinu. Einar segir engar
hallarbyltingar á döfinni, enda
bankinn í góðum rekstri.
„Við munum hyggja að stefnu-
mótun og eðlilegri endurskoðun.“
Jón Snorrason var kjörinn
varaformaður bankaráðsins. Aðr-
ir bankaráðsmenn eru Karl Wern-
ersson, Helgi Magnússon, Orri
Vigfússon, Guðmundur B. Ólafs-
son og Víglundur Þorsteinsson.
haflidi@frettabladid.is
Framkvæmdaráðið undirritar bráðabirgðastjórnarskrá:
Söguleg stund fyrir
írösku þjóðina
ÍRAK Framkvæmdaráðið í Írak
undirritaði í gær nýja bráða-
birgðastjórnarskrá við hátíðlega
athöfn í Bagdad. Stjórnarskráin
gengur í gildi í júlí, þegar völdin í
landinu verða færð í hendur
heimamanna.
Mohammed Bahr al-Ulloum,
forseti framkvæmdaráðsins,
sagði að þetta væri söguleg stund
sem hefði mikla þýðingu fyrir
írösku þjóðina. L. Paul Bremer,
landstjóri Bandaríkjamanna í
Írak, var viðstaddur athöfnina.
Áformað hafði verið að undir-
rita stjórnarskrána í síðustu viku
en því var frestað vegna óvæntra
deilna við fulltrúa sjía-múslima í
framkvæmdaráðinu. Ágreiningur
var um ákvæði sem gefur Kúrd-
um í Norður-Írak neitunarvald
þegar efnt verður til þjóðar-
atkvæðagreiðslu um varanlega
stjórnarskrá í lok ársins 2005.
Deilurnar leystust um helgina en
leiðtogar sjía-múslimar hafa gefið
í skyn að þeir muni taka málið upp
að nýju síðar.
Samkvæmt stjórnarskránni
verður Írak ríkjabandalag 18
ríkja. Íslam verður opinber trú í
landinu og leggur grunninn að
löggjöfinni. ■
Breytingar hjá Eimskip:
Magnús
hættir
VIÐSKIPTI Fullvíst er talið að
Magnús Gunnarsson, stjórnar-
formaður Eimskipafélagsins,
hætti á aðalfundi félagsins sem
haldinn verður síðar í mánuðin-
um. Björgólfur Guðmundsson,
formaður bankaráðs Lands-
bankans, fékk Magnús til liðs
við félagið til þess að stýra
breytingum á félaginu. Meðal
verkefnanna voru sala sjávar-
útvegshlutans Brims. Umbreyt-
ingarverkefnum Eimskipa-
félagsins er að ljúka og meta að-
ilar stöðuna svo að Magnúsi hafi
tekist að ljúka þeim verkum
sem honum voru falin. ■
Ríkisfyrirtæki:
Einkafyrir-
tæki endur-
skoði
STJÓRNMÁL Fjórir þingmenn
Sjálfstæðisflokks, undir forystu
Guðlaugs Þórs Þórðarsonar,
leggja til að endurskoðun ríkis-
fyrirtækja verði boðin út en
Ríkisendurskoðun hafi umsjón
með því útboði.
Í greinargerð með frumvarpi
þessa efnis segir að eðlilegt sé í
því viðskiptaumhverfi sem nú
ríki á íslenskum markaði að
félög í eigu ríkisins, sem rekin
eru sem sjálstæðar einingar og
standi jafnvel í samkeppni á
markaði, fari fram með sama
hætti og almennt gerist á mark-
aði. ■
Flóð í Hvítá:
Óttast
landbrot
VATNAVEXTIR Steinar Halldórsson,
bóndi í Auðsholti í Hrunamanna-
hreppi, óttast að vatnavextir í
Hvíta geti valdið töluverðu land-
broti og öðrum skemmdum.
Hann segir hættuna á landbroti
mikla þar sem ekki sé frost í
jörðu.
Hann segir að bú sitt sé um-
kringt vatni og það sé eins og
hann búi á eyju. „Þetta er heil-
mikið vatnasvæði hérna. Ég
giska á að það séu svona átta
hundruð hektarar undir vatni,“
segir hann.
Að sögn Steinars þurfti að
fara á bátum til að sækja hross í
gærmorgun og þurftu þau að
grípa til sunds á leið sinni í ör-
ugga höfn.
Steinar telur að flóðið hafi
náð hámarki í gærkvöldi og að
það væri með þeim stærri hin
síðari árin. ■
Frumvarp um vörugjald
af ökutækjum:
Stutt við
umhverfis-
væn ökutæki
ALÞINGI Geir H. Haarde fjármála-
ráðherra mælti fyrir frumvarpi á
Alþingi í gær um breytingu á lög-
um um vörugjald af ökutækjum
sem búin eru vélum sem nýta
metangas eða rafmagn að veru-
legu leyti í stað bensíns eða
dísilolíu. Lögð er til tímabundin
heimild til að lækka vörugjaldið
til að styðja áfram við öra þróun í
hönnun og framleiðslu slíkra öku-
tækja, enda skaðleg áhrif metan-
gass og rafmagns á umhverfið
mun minni en eldsneytis úr olíum.
Bent er á að aukin notkun tvíorku-
bifreiða sé í samræmi við skuld-
bindingar Íslands gagnvart
rammasamningi Sameinuðu þjóð-
anna um loftslagsbreytingar og
þá stefnu stjórnvalda að auka hlut
innlendra orkugjafa. ■
Tillaga í borgarráði í dag:
Hafnir við Faxaflóa sameinaðar
HAFNASAMLAG Hafnir sveitarfélaga
á Faxaflóanum verða sameinaðar
undir eina yfirstjórn. Rekstrar-
form þess verður svokallað hafn-
arsamlag. Málið verður rætt í
borgarráði í dag og búist er við að
endanlega verið gengið frá því á
næstu dögum.
Að sögn Páls S. Brynjarssonar,
bæjarstjóra í Borgarbyggð, verða
hafnirnar í Borgarnesi, Akranesi,
Grundartanga og í Reykjavík aðil-
ar að hafnarsamlaginu. Páll segir
að unnið verði að kynningu á mál-
inu á næstu dögum í bæjarstjórn-
um en gert sé ráð fyrir að niður-
stöður liggi fyrir mjög fljótlega.
Hann segir að í þessu felist að lit-
ið verði á hafnir á Faxaflóasvæð-
inu sem eitt svæði.
Samkvæmt heimildum felst í
áætlunum að byggð verði upp
stórskipahöfn í Grundartanga en
að ekki verði höfn í Geldinganesi
eins og áformað hefur verið. Gert
er ráð fyrir að Grundartangi verði
framatíðarhafnarsvæði Reykja-
víkurborgar í þeim tillögum sem
lagðar verða fyrir á morgun.
Miklar deilur hafa verið um
framtíð Geldinganess í borgar-
stjórn Reykjavíkur. Minnihluti
sjálfstæðismanna hefur lagt
áherslu á það fyrir síðustu tvenn-
ar kosningar að þar verði ekki
byggð höfn heldur íbúabyggð. ■
MEIRIHLUTI FANGA ÚTLEND-
INGAR Meirihluti vistmanna í
fangelsum í Hollandi er af er-
lendu bergi brotinn. Um 13.000
manns voru í fangelsum lands-
ins í september 2003 en 55
prósent þeirra voru fæddir í
öðru landi. Um níu prósent
fanganna eru frá Súrínam sem
er fyrrum hollensk nýlenda, sjö
prósent eru frá Marokkó og
fimm prósent frá Tyrklandi.
EITURLYFJAHRINGUR UPPRÆTT-
UR Ítalska lögreglan segist hafa
upprætt eiturlyfjahring sem
smyglaði kókaíni og maríjúana
frá Hollandi og Þýskalandi til
Ítalíu. 25 manns voru handtekn-
ir í kjölfar rannsóknar sem
staðið hafði yfir í tvö ár, í sam-
vinnu við lögregluna í Þýska-
landi. Eiturlyfjunum var
smyglað í rútum og bílum til
Napólí.
STJÓRNARSKRÁIN UNDIRRITUÐ
Mohammed Bahr al-Ulloum, forseti fram-
kvæmdaráðsins í Írak, undirritar nýju
bráðabirgðastjórnarskrána.
STÓRSKIPAHÖFN VIÐ GRUNDARTANGA
Gert er ráð fyrir að stórskipahöfn fyrir höfuðborgarsvæðið verði við Grundartanga
en ekki í Reykjavík.
SÍÐASTA RÆÐAN
Kristján Ragnarsson hefur stýrt bankaráði Íslandsbanka í gegnum mikinn vöxt og miklar
breytingar síðustu ára. Efnahagur bankans er sterkur og afkoman í fyrra sú besta í sögu
bankans.
„Af þeirri
reynslu sem
við höfum af
samstarfi við
forsvarsmenn
Landsbank-
ans, tel ég
heppilegast
að við vinn-
um að okkar
markmiðum
án tengsla
við þá.”
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA