Fréttablaðið - 10.03.2004, Page 17
MIÐVIKUDAGUR 10. mars 2004
Götusmiðjan fékk átta tölvur aðgjöf frá Frétt ehf. í gær. Guð-
mundur Týr, betur þekktur sem
Mummi í Götusmiðjunni, segir að
hann hafi fengið skemmtilegt sím-
tal frá Frétt þar sem hann var
spurður út í stöðu tölvumála hjá
krökkunum og hvort hann vildi ekki
fá fleiri tölvur. „Við vorum með
einn til tvo tölvugarma handa 15
krökkum sem er ekki nóg. Það er oft
dýrt fyrir okkur að ráða við að
kaupa tölvur út úr búð.“
Mummi segir krakkana á Árvöll-
um hafa mismunandi þekkingu og
reynslu af tölvum. „Margir hafa
varla kveikt á tölvum þar sem það
féll ekki að lífsmynstri þeirra á
meðan þau voru í neyslu. Aðrir eru
eins og tölvusérfræðingar.“ ■
LILJA GUNNARSDÓTTIR OG
GUÐMUNDUR TÝR ÞÓRARINSSON
Frétt ehf. afhendir Götusmiðjunni
átta tölvur til afnota.
Tölvur í Götusmiðjuna
Skáldsagan Líflæknirinn eftirPer Olov Enquist í þýðingu
Höllu Kjartansdóttur er komin út í
kilju hjá Máli og
menningu. Líf-
læknirinn fjallar
um eitt merki-
legasta skeið
norrænnar sögu,
tímabil sem
stundum er kall-
að Struenseetím-
inn. Þýski lækn-
irinn og hug-
sjónamaðurinn Struensee vann
fljótlega fullan trúnað hins geð-
sjúka konungs en jafnframt hjarta
Karólínu Matthildar, drottningar-
innar ungu. Á valdatíma sínum
innleiddi Struensee ýmsar róttæk-
ar breytingar á stjórn danska rík-
isins í anda frönsku byltingarinnar,
en tuttugu árum fyrr. Líflæknirinn
er margverðlaunuð á Norðurlönd-
um og hefur farið sigurför um
heiminn og var meðal annars valin
besta erlenda skáldsaga ársins
2001 í Frakklandi og er metsölubók
í Þýskalandi. Per Olov Enquist er
einn virtasti rithöfundur Svíþjóðar
og hlaut Bókmenntaverðlaun Norð-
urlandaráðs árið 1969.
Þá hefur Mál og menning einniggefið út í kilju bókina Vetrar-
drottningin eftir Boris Akúnin en
hann hefur skipað sér í hóp mest
lesnu rithöfunda Rússlands sem
sögum sínum um Fandorin ríkis-
ráð, snjallasta lögreglumann Rúss-
lands undir lok
19. aldar. Bækur
hans eru nú ein-
nig meðal vinsæl-
ustu glæpasagna
í Evrópu. Mál og
menning hefur
áður gefið út
tvær bækur um
Fandorin í þýð-
ingu Árna Berg-
mann, Ríkisráðið og Krýningar-
hátíðina, en Vetrardrottningin
fjallar um fyrsta mál Fandorins
sem er tvítugur nýliði á rannsókn-
ardeild lögreglustjóraembættisins
í Moskvu og hefur fátt spennandi
fyrir stafni.
■ Nýjar bækur
“Í kringum blæðingarnar mátti ég alltaf búast við
hræðilegu kasti sem stóð í 1 til 2 daga og köstin
komu óreglulega þess á milli. Því miður gátu
læknarnir lítið fyrir mig gert annað en að gefa mér
sterk mígrenilyf en þau unnu ekki á rót vandans.
Ég hef stundað líkamsrækt reglulega svo árum
skiptir og vissulega hefur það hjálpað en það var
ekki fyrr en ég tók málin í mínar hendur og leitaði
mér upplýsinga. Eftir það breytti ég mataræðinu og
fór að taka inn ákveðin bætiefni og síðan hef ég
verið laus við mígreni. Þetta gjörbreytti lífi mínu.”
Jóhanna Benediktsdóttir hefur þjáðst af mígreni í áraraðir
Jóhanna verður í Heilsuhúsinu á eftirfarandi
tímum til að segja frá því hvernig hún heldur
sér lausri við mígrenið:
Smáratorgi í dag kl. 14:00 - 18:00
Skólavör›ustíg á morgun kl. 14:00 - 18:00
Kringlunni n.k. föstudag kl. 14:00 - 18:00