Fréttablaðið - 11.03.2004, Blaðsíða 33
FIMMTUDAGUR 11. mars 2004
Dúndur
tilboð
sem gleður augað!
á öllum kremum
og snyrtivörum fyrir augun!
Verslanir Lyfju:
Lágmúla, s. 533 2300 • Laugavegi, s. 552 4045
Smáralind, s. 530 5800 Smáratorgi, s. 564 5600
Kringlunni, s. 568 1600 • Spönginni, s. 577 3500
Gar›atorgi, s. 565 1321 • Setbergi, s. 555 2306
Lyfja Keflavík, s. 421 6565 • útibú Grindavík
20% verðlækkun
Í verslunum Lyfju
11.-14. mars
21.00 Einleikurinn Sellófon eftir
Björk Jakobsdóttur í Iðnó.
■ ■ SKEMMTANIR
21.00 Electric Massive kvöld á
Kapítal með EXOS, Bjössa Brunahana,
Árna Vector og Óla Ofur.
■ ■ FYRIRLESTRAR
20.15 Hörður Þorgilsson og Álf-
heiður Steinþórsdóttur flytja fyrirlestra
um þunglyndi í Námunni, húsnæði
Endurmenntunar Háskóla Íslands,
Dunhaga 7. Þetta er fyrsta fræðslukvöld-
ið um þunglyndi af fjórum, sem Félag
sérfræðinga í klínískri sálfræði efnir til í
kvöld og næstu fimmtudagskvöld.
■ ■ SAMKOMUR
20.00 Sænskt-íslenskt bókakaffi
með Jan Mårtenson og Þorsteini frá
Hamri í kaffistofu Norræna hússins.
Ókeypis aðgangur.
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki síð-
ar en sólarhring fyrir birtingu.
FIMMTUDAGUR 11. MARS KL. 20
BACALAO:
Vestfirskur uppruni að hætti Miðjarðarhafsins.
Jón Sigurð Eyjólfsson og hljómsveit
SUNNUDAGUR 14. MARS KL. 20
TÍBRÁ: UNGT OG EFNILEGT TÓNLISTARFÓLK.
KaSa hópurinn kynnir Búdrýgindi,
Pál Palomares og Huga Guðmundsson.
ÞRIÐJUDAGUR 16. MARS KL. 20
FIÐLA OG PÍANÓ.
Theresa Bokany og Anna Guðný Guðmundsdóttir,
verk eftir Tartini, Beethoven og Franck
Dolfallnir
yfir fegurðinni
TÓNLEIKAR „Fyrir suma er þetta hund-
leiðinleg tónlist. Það verður bara að
viðurkennast,“ segir Smári Ólafsson
tónlistarmaður. „En þeir sem á annað
borð geta hlustað á hana eru alveg
dolfallnir yfir fegurðinni í þessum
gömlu sálmum.“
Hann er þarna að tala um gömlu
Passíusálmalögin, sem Smári hefur
verið að bjarga frá gleymsku með
rannsóknum sínum undanfarin ár.
„Þegar Hallgrímur yrkir Passíu-
sálmana vísar hann alltaf til þekktra
sálma, svokallaðra lagboða. Á þeim
tíma voru engin hljóðfæri hér á
landi, þannig að smám saman breyt-
ast þessi lög í munnlegri geymd. Með
tilkomu hljóðfæra í kirkjurnar um
1870 kemur síðan ný tónlist, en samt
er haldið áfram að syngja gömlu lög-
in við húslestra á heimilum alveg
fram á 20. öld.“
Á fyrstu árum 20. aldar er síðan
farið að hljóðrita þessi gömlu lög,
sem sungin voru við Passíusálmana
áður en orgelin komu í kirkjurnar.
„Elstu hljóðritanirnar eru frá
árunum 1903–1912. Síðan voru gerð-
ar markvissar upptökur á árunum
1960–1974, en þá voru einfaldlega all-
ir dauðir sem höfðu kunnað þetta.
Það var fólk sem hafði alist upp við
þessi lög í bernsku og kunni þau.“
Þessar hljóðritanir, samtals um
það bil 500 upptökur, hefur Smári
verði að rannsaka undanfarin ár.
Hann hefur síðan útsett þau ýmist
fyrir kór eða söngvara og orgel og nú
í kvöld gefst tækifæri til að hlýða á
þau Magneu Tómasdóttur söngkonu
og Guðmund Sigurðsson organista
flytja nokkur þeirra í Bústaðakirkju.
„Ég hef verið að halda áfram því
starfi sem hefði átt að gera fyrir 130
árum, sem er að aðlaga þessi gömlu
lög að hljóðfærum til þess að þau geti
lifað áfram.“
Á síðasta ári gaf Smekkleysa út
geisladisk með flutningi þeirra
Magneu og Guðmundar á tólf af þess-
um gömlu Passíusálmalögum í
útsetningu Smára. Meiningin er að
halda áfram útgáfu laganna þangað
til þau verða öll komin á disk. ■
Þyrstir í að spila
TÓNLEIKAR „Okkur þyrstir í að spila.
Við höfum ekkert spilað síðan í des-
ember,“ segir Kristinn Júníusson,
söngvari hljómsveitarinnar Vínill.
Hljómsveitin er tveggja ára
gömul um þessar mundir og ætlar
að nota það tilefni til að halda tón-
leika á Ellefunni við Laugaveginn í
kvöld.
Ýmislegt er á döfinni hjá þeim
félögum, svo sem tónleikaferð til
Bandaríkjanna í vor og síðan ný
plata með haustinu.
„Við erum að semja efni á plöt-
una núna, taka upp demó og svo
verður farið á fullt í upptökur í
sumar eða haust.“
Vínill spilar eingöngu frum-
samið efni á tónleikum og þeir eiga
því fullt af lögum á lager.
„Við gætum verið búnir að gefa
út tvær þrjár plötur með þeim hug-
myndum sem komnar eru, en við
viljum vanda okkur við að semja
lögin, finna heildarstefnu og ákveð-
ið sánd til þess að koma með heil-
steypta fyrstu plötu. Við höfum
bara viljað leyfa okkur að þroskast
sem tónlistarmenn.“ ■
SMÁRI, MAGNEA OG GUÐMUNDUR
Magnea og Guðmundur ætla að flytja gömul Passíusálmalög, sem Smári hefur verið að
bjarga frá gleymsku undanfarin ár, í Bústaðakirkju í kvöld klukkan 20.
VÍNILL
Hljómsveitin er tveggja ára og spilar af því
tilefni á Bar 11 við Laugaveginn í kvöld.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA