Fréttablaðið - 03.05.2004, Page 13
■ Evrópa
13MÁNUDAGUR 3. maí 2004
!
"
#
##
$
$
BRETLAND Læknar í Bretlandi hafa
óskað eftir því að framleiðendur
örbylgjuofna birti skýrari varnað-
arorð með tækjunum varðandi hit-
un á eggjum. Tilefnið er slys á ungri
stúlku sem meiddist alvarlega á
auga eftir að hafa hitað egg í
örbylgjuofni. Hitaði hún forsoðið
egg með skurninni í fjörutíu sek-
úndur en um hálfri mínútu eftir að
hún tók það út sprakk það með þeim
afleiðingum að skurn skaðaði augn-
himnu hennar varanlega.
Læknirinn sem sá um stúlkuna
sá ástæðu til þess að rita grein í
breska læknablaðið þar sem hann
mælir með því að fólk sé varað við
hættunni á því að hita egg í
örbylgjuofnum því slys af þeim
völdum fari fjölgandi.
Hann beinir þeim tilmælum til
fólks að fræða börn sín um notkun
ofnanna og hita jafnframt aldrei
egg með skurn í örbylgjuofni. ■
Árás án fordæma:
Bjarnarhúnn
borinn burt
NOREGUR, AP Norskir náttúrufræð-
ingar eru furðu lostnir á árás arnar
á bjarnarhún sem vísindamenn
urðu vitni að. Þá flaug örninn að
þriggja kílóa húninum læsti klón-
um um hann og bar á brott. Nátt-
úrufræðingar sem hafa flett í
gegnum skruddur sínar segjast
ekki hafa fundið nein fordæmi fyr-
ir árásinni. Einn þeirra segir þetta
jafnast á við að finna snjókorn í Sa-
haraeyðimörkinni.
„Bjarnarhúnninn öskraði allan
tímann,“ sagði Jarle Mogens Totsa-
as sem varð vitni að árásinni. „Örn-
inn flaug í átt að okkur og kom mjög
nærri. Við gátum auðveldlega séð
húninn sparka til fótunum þar sem
hann hékk í klóm arnarins. ■
GUÐNI ÁGÚSTSSON
Guðni segir það mikilvægt skref fyrir
álfuna að austurhluti hennar verði nú
réttur af efnahagslega
Guðni Ágústsson um
stækkun ESB:
Framtíð ríkj-
anna bjartari
ESB „Ég fagna stækkun Evrópu-
sambandsins fyrir hönd þeirra
þjóða sem nú eru að ganga í sam-
bandið. Ég tel að framtíð þeirra sé
bjartari fyrir bragðið og þessar
þjóðir þurfa á því að halda að
starfa náið með öflugri þjóðum,“
segir Guðni Ágústsson, varafor-
maður Framsóknarflokksins, um
stækkun ESB til austurs.
Hann segir það mikilvægt
skref fyrir álfuna að austurhluti
hennar verði nú réttur af efna-
hagslega og það hafi mikla þýð-
ingu fyrir viðskiptalönd hinna
nýju aðildarríkja, meðal annars
Íslendinga. ■
MAKEDÓNÍA, AP Makedónska lög-
reglan hefur viðurkennt að
bardagi við meinta pakistanska
hryðjuverkamenn fyrir tveimur
árum hafi verið sviðsettur til að
bæta samskiptin við Bandaríkin
og sýna fram á að þeir væru
dugandi í baráttunni gegn hryðju-
verkum.
Talsmaður lögreglunnar sagði á
föstudag að sjö einstaklingar sem
létust hafi verið ólöglegir innflytj-
endur sem voru saklausir af
hryðjuverkum. Morðin á þeim hafi
verið skipulögð fyrirfram og séu
til marks um brenglaða hugsun
lögregluforingja sem það gerðu.
Fimm lögreglumenn og einn
athafnamaður hafa verið kærðir
fyrir morð vegna málsins. ■
Ólöglegir innflytjendur:
Myrtir af lögreglu
SÉRSVEITIN
Yfirmenn lögreglunnar hafa sagt að
bardagi við hryðjuverkamenn hafi verið
settur á svið.
HÆTTULEG SKURN
Læknar í Bretlandi hafa beint
þeim tilmælum til fólks að
fræða börn sín um notkun ör-
bylgjuofna og hita jafnframt
aldrei egg með skurn í þeim.
Tilefnið er slys á ungri stúlku
sem meiddist alvarlega á auga
eftir að hafa hitað egg í ör-
bylgjuofni.
Varnaðarorð um örbylgjuofna:
Ekki hita egg með skurn
GRAFIR SVÍVIRTAR Tveimur dög-
um eftir að nasistatákn voru mál-
uð á grafreit gyðinga í frönskum
bæ nærri þýsku landamærunum
voru samskonar tákn máluð á
legsteina í grafreit kristinna
manna skammt frá. Lögregla
rannsakar málin en ekki er ljóst
hvort þau tengist.
■ Írak
GÍSLUM BORGIÐ Mannræningjar
sem halda þremur ítölskum gísl-
um segja að gangan í Róm til
stuðnings gíslunum hafi orðið til
að bjarga lífi þeirra. Mannræn-
ingjarnir hótuðu að drepa þá ef
Ítalir efndu ekki til fjölmennra
mótmæla gegn stefnu stjórnar
sinnar í Íraksmálum. Nokkur
þúsund fóru í gönguna.